Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Fréttir
text*
Eigandi Forum ehf. sakar Þjóðleikhúsið um rangindi:
„Gott leikrit en bara
á vitlausri hæð“
- segir Stefán Axel Stefánsson um þátt þjóðleikhússtjóra
DVWYND HARI
Forsvarsmenn Forum ehf. segja Þjóðleikhúsiö skulda þeim peninga
Stefán Axel Stefánsson mætti meö lögmanni sínum á blaöamannafund í gær þar sem lýst var afskiptum hans af
rekstri Þjóöleikhúskjallarans. Frá vinstri: Hilmar Ingimundarson, hæstaréttarlögmaöur, Ólafur Thoroddsen, lögmaður
Forum, og Stefán Axel Stefánsson veitingamaöur.
Stefán Axel Stefánsson, veitinga-
maður í Forum, sem rekið hefur
Þjóðleikhúskjallarann með meiru,
gagnrýnir fullyrðingar Stefáns Bald-
urssonar þjóðleikhússtjóra um að
fyrirtæki sitt hafi ekki efnt samninga
um reksturinn. Þvert á móti skuldi
Þjóðleikhúsið Forum peninga vegna
málsins. „Þetta er gott leikrit en bara
á vitlausri hæð,“ sagði Stefán að
loknum blaðamannafundi sem hann
efndi til ásamt lögmönnum sínum í
gær.
Á fundinum kom fram að eigandi
Forum telur sig hafa verið hlunnfar-
inn í viðskiptum við Þjóðleikhúsið og
einnig varðandi kaup sín á rekstri
Þjóðleikhúskjallarans ehf. árið 2000.
Komið hafi til tals í ágúst að slíta
samstarfi Forum ehf. og Þjóðleik-
hússins og hafi Þjóðleikhúsið í fyrstu
boðið 10 milljóna króna greiðslu
vegna þessa. Það hafi síðan verið
lækkað í 6 miHjónir en ekkert hafi
orðið af samningum um málið.
Stefán Axel segir að landsfrægur
bar Þjóðleikhúskjallarans hafi sann-
arlega farið I viðgerð en þjóðleikhús-
stjóri hafi komið í veg fyrir að hægt
væri að klára málið með sjáiftöku er
hann lét skipta um skrár í Þjóðleik-
húskjallaranum. Ástæða þessa að
gera hafi þurft við barinn var að
vond lykt hafi stafað af honum og
sökkull og raflagnir hafi verið orðin
gegnsósa, en búið væri að smíða nýj-
an sökkul. Lögmenn Stefáns Axels
segja að nú verði öll áhersla lögð á að
leysa málið og ná samningum við
Þjóðleikhúsið og vilji sé af þeirra
hálfu til að leysa málið í sátt.
- Nú kom fram í samtali við Stefán
Baldursson þjóðleikhússtjóra að um-
ræddur bar, sem sagður var í við-
gerð, hafi verið kominn á veitinga-
staö sem þú værir að opna í Grafar-
vogi. Getur þú útskýrt það nánar?
„Það er mjög gott að það komi
fram. Ég er að opna 450 manna stað í
Grafarvoginum. Það voru góð ráð
dýr er ég kom að lokuðum dyrum og
stóð með barinn á tröppunum í Þjóð-
leikhúsinu á laugardaginn. Ég gat
ekki hugsað mér að skilja hann eftir
Kærir úrskurð tii ráðherra
Stjóm Landverndar hefur falið
Katrínu Theodórsdóttur héraðs-
dómslögmanni að kæra til um-
hverfisráðherra úrskurð Skipu-
lagsstofnunar um mat á umhverf-
isáhrifum Norðlingaölduveitna
sunnan Hofsjökuls.
í tilkynningu frá Landvernd
segir að Þjórsárver séu einstætt
vistkerfi á heimsvísu, verðmæt
landslagsheild og víðerni og eitt
helsta varpland heiðagæsar í
heiminum. Hluti Þjórsárvera
njóti verndar sem friðland skv.
íslenskum lögum og séu alþjóð-
legt verndarsvæði. Segir að vill-
andi sé þegar Skipulagsstofnun
miði við lónshæð sem sé 575
metra yfir sjávarmáli þegar lóns-
hæðin verði 578 metrar. Þá segir
að í úrskurði Skipulagsstofnunar
komi skýrt fram að umhverfisá-
hrif Norðlingaölduveitna séu í
fjölmörgum þáttum veruleg og
óafturkræf þrátt fyrir mögulegar
mótvægisaðgerðir framkvæmda-
aðila.
Loks segir: „Stjórn Landvernd-
ar tekur undir þau niðurstöðuorð
Skipulagsstofnunar að ekki megi
ganga á friðlýst svæði nema
brýnir almannahagsmunir séu
fyrir hendi. Að mati stjórnar
Landverndar hafa ekki verið lögð
fram nein gögn sem benda til
þess að Norðlingaölduveitur
varði brýna almannahagsmuni."
-hlh
utandyra og fór því með hann á
þennan stað sem ég ætla að opna á
Gylfaflötinni.“
- Hvað ef samningar nást ekki við
Þjóðleikhúsið?
„Nú er þetta algjörlega í höndum
lögmanna og komið úr minni umsjá.“
Hilmar Ingimundarson hrl., lög-
maður Stefáns Axels, segir að það
verði bara að koma i ljós hver næstu
skref verða ef samningar nást ekki.
„Ég hef trú á því að þeir vilji semja
við okkur."
- Er líklegt að Þjóðleikhúsið dragi
samningsriftun sína til baka?
„Það verður bara að koma í ljós
hvort grundvöllur sé fyrir áfram-
haldandi samstarfi, en ég veit að þeir
eru að leita eftir nýjum veitingaað-
ila.“
Sködduð ímynd
Stefán Axel segir að þetta mál hafi
skaðað mjög imynd fyrirtækis síns.
„Ef það væru sannindi í þessum
Umhverfls- og heilbrigðisstofa hefur
veitt hundaræktinni í Dalsmynni
áminningu og jafhframt ítrekað kröfu
sína um að forráðamenn hundarækt-
arbúsins ljúki tilteknum úrbótum eigi
síðar en 24. september næstkomandi.
Ella muni stofnunin grípa til aðgerða.
Áminningin hefur verið kynnt um-
hverfls- og heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur.
Mikill ófriður hefur verið um Dals-
mynnisbúið í gegnum tíðina. Fullyrð-
ingar hafa gengið um að þaðan hafi
verið seldir gallaðir hvolpar og einnig
að umhirða hundanna væri engan
veginn viðunandi. Eigendur búsins
hafa hótað kærum vegna atvinnurógs.
Frá árinu 1999 hefur Umhverfis- og
heilbrigðisstofa Reykjavíkur sent bú-
inu tíu bréf þar sem fyrirtækinu var
m.a. tilkynnt að það þyrfti að sækja
um starfsleyfi til Umhverfls- og heil-
brigðisstofu, sækja um breytta notkun
húsnæðis til byggingarfulltrúa Reykja-
vikur og senda inn til Umhverfis- og
heilbrigðisstofu samþykktar teikning-
ar þar sem fram kæmu frárennsl-
ásökunum þjóðleikhússtjóra þá vær-
um við ekki hér á blaðamannafundi.
Það að stela tíu ára gömlum bar úr
Þjóðleikhúsinu er ekki alveg stíll fyr-
irtækis sem búið er að vera með á
bilinu 70-120 manns í vinnu og er nú
að innrétta veitingahús fyrir tæpar
50 milljónir króna. Það er fjórði stað-
urinn okkar ef Þjóðleikhúskjallarinn
er talinn með. Við munum opna
þennan nýja sportbar að Gylfaflöt 5 i
Grafarvogi hinn 10. næsta mánaðar.
Síðan erum við með Nelly’s Cafe og
Sportbar að Jafnarseli i Breiðholti."
Tengist líka Árnamáli
Á blaðamannafundinum á
Kornhlöðuloftinu í Lækjarbrekku
í gær voru lögð fram gögn um
málið. Þar á meðal er ljósrit af
reikningi upp á 3.154.419 krónur
vegna endurnýjunar eldhústækja
sem einnig var lagður fram i
meintu mútumáli er tengdist
sakamáli gegn Árna Johnsen.
islagnir og loftræsting í ræktunarhús-
um. Þarna er ekki um að ræða starfs-
leyfi fýrir dýrahald í atvinnuskyni
sem er gefið út af lögreglunni i Reykja-
vík.
Samkvæmt upplýsingum frá Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu hefur ekki
verið sótt um starfsleyfi né hefur ver-
ið sótt um breytta notkun húsnæðis til
byggingarfulltrúa. Umbeðnar teikn-
ingar hafa ekki verið sendar Umhverf-
is- og heilbrigðisstofu og úrbætur síð-
an 10. júlí eru engar i húsum þar sem
Kvittað er fyrir reikninginn af
Árna Johnsen, þáverandi for-
manni bygginganefndar Þjóðleik-
hússins. Hilmar Ingimundarson
hrl., lögmaður Stefáns Axels, seg-
ir að reikningurinn sýni að Þjóð-
leikhúskjallarinn ehf. og Björn
Leifsson, sem seldi Stefáni og fyr-
irtæki hans rekstur sinn árið
2000, hafl fengið tvíborgað fyrir
sama búnaðinn og tiltekinn er á
reikningnum. Þessi búnaður sé
líka tiltekinn á tækjalista sem
gerður var vegna kaupanna á
rekstri Þjóðleikhúskjallarans ehf.
og Forum hafi greitt fyrir. Þenn-
an búnað telji Þjóðleikhúsið sig
hins vegar eiga. Ýmsan annan
búnað á tækjalista vanti einnig og
flygill sem nefndur hafi verið í
þessu máli sé ekki á umræddum
lista og ekki eign Þjóðleikhússins.
Hins vegar hafi eigi að síður ver-
ið ákveðið að skOa honum.
hunda- og kattaræktun fer fram.
Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri hjá
Umhverfis- og heilbrigðisstofu, sagði
við DV að meðal úrræða sem stofnun-
in hefði yflr að ráða til að knýja fram
úrbætur væri að stöðva eða takmarka
viðkomandi starfsemi eða notkun og
þar með að leggja hald á vörur og fyr-
irskipa forgun þeirra. Slíku úrræði
væri einungis beitt í alvarlegri tilvik-
um, þegar um ítrekuð brot væri að
ræða eða aðilar sinntu ekki úrbótum
innan tiltekins frests. -JSS
Fjölgun ferða
Samgönguráðherra hefur falið
Vegagerðinni að ganga til samninga
við Samskip hf. um fjölgun ferða
Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Samskip hf. sjá um daglegan rekstur
ferjunnar. Gert er ráð fyrir að samið
verði um fjölgun ferða í samræmi
við tillögur starfshóps ráðherra.
Starfshópurinn var skipaður í sum-
ar og skilaði nýverið áfangaskýrslu
til ráðherra líkt og þegar hefur ver-
ið kynnt í fjötmiðlum. -aþ
breytt
Valgerðru
Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðar-
ráðherra, segir
mikilvægt að
skoða allar hliðar
þátttöku íslend-
inga í Evrópumál-
um. Ef Danmörk
Svíþjóð og Bret-
land gerist aðilar
að myntbandalag-
inu sé um að ræða um þriðjung heild-
arutanríkisviðskipta íslendinga og því
sé brýnt að fara í saumana á málinu
með hagsmuni íslands að leiöarljósi.
„Það er þetta
sem gerir svo
brýnt að skoða
málið af alvöru.
Þvi hefur verið
haldið fram að í
rauninni þyrftum
við að breyta
stjóma>-skránni
fyrir kosningar í
vor þannig að
hægt væri að hefja undirbúning að að-
ild á næsta kjörtímabili ef þannig
skipast veður í lofti. Ég ætla ekki að
fullyrða um það að slík skref skuli
stigin en minni á að þjóðin á í öllum
tilfellum síðasta orðið í þessum efn-
um,“ segir Valgerður í pistli á heima-
síðu sinni.
í Morgunblaðinu um helgina voru
rifluð upp ummæli Davíðs Oddssonar
forsætisráðhera sem lét þau orð falla
2. júlí 1998 að ef Danir, Svíar og Bret-
ar myndu ganga í myntbandalagið
væri heimskulegt að við endurskoðuð-
um ekki afstöðu okkar. Þessi ummæli
segir Valgerður athyglisverð. -BÞ
í samstarf við ESB
Jafnréttisstofa
hefur undirritað
samning um
möguleika karla
og kvenna til for-
eldraorlofs sem
fellur undir jafn-
réttisáætlun Evr-
ópusambandsins.
Um er að ræða
eins árs verkefni í
samstarfi við
stofnanir í Noregi, Þýskalandi,
Frakklandi og á Spáni. Samstarfs-
stofnanir á Islandi eru Rannsóknar-
stofa í kvennafræðum og Rannsókn-
arstofnun Háskólans á Akureyri, auk
verktaka sem munu sjá um gerð sjón-
varpsmyndar og heimasíðu. Áætlað
er að verkefnið kosti um 25 milljónir
króna og fær Jafnréttisstofa styrk
sem nemur 80% kostnaðar.
Tilgangur verkefnisins er, að sögn
Valgerðar Bjarnadóttur, fram-
kvæmdastýru Jafnréttisstofu, að
skoða samspil kynjahlutverka, menn-
ingar og siðvenja, laga og reglugerða
og hvemig þessir þættir hindra eða
auka möguleika kvenna og karla til
að vinna saman að uppeldi barna
sinna. Sérstaklega verður horft til
fæðingar- og foreldraorlofsreglna og
nýtingar annars vegar kvenna og
karla hins vegar á þeim réttindum
sem í hverju landi bjóðast.
Jafnréttisstofa er jafnframt að
hefla vinnu við tvö norræn rannsókn-
arverkefni undir norrænu velferðar-
áætluninni. -BÞ
-HKr.
Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur:
Hundaræktin í Dalsmynni
fær áminningu
- krafa um úrbætur, ella verði gripið til aðgerða
Litli og stóri
Tveir hundar í hundaræktarbúinu í Dalsmynni kankast á.
Stjórnarskrá
Valgeröur
Sverrisdóttir.
Davíð Oddsson.