Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Fréttir I>V
Herbergjanýting hótela í ágúst:
Yfir 90% nýting í Reykjavík
- hundruð gistirýma í byggingu
Hótel Esja við Suöurlandsbraut
Fjölga mun um 138 herbergi á hótelinu næsta vor og víöa um borgina er ver-
iö aö bæta viö gistirými.
Þorleifur Þór Jónsson, hagfræð-
ingur Samtaka feröaþjónustunnar,
segir ekkert benda til annars en að
menn geti leyft sér að vera bjartsýn-
ir varðandi hótelrekstur, allavega á
höfðuðborgarsvæðinu, á næstu
árum. Þar er nú verið að bæta við
hundruöum gistirýma eftir tölu-
verða stöðnun undanfarin ár.
„Á undanfomum árum hefur hót-
elrými í Reykjavík ekki vaxið eins
hratt og fjöldi ferðamanna til lands-
ins. Því hefur afkoman í greininni
batnað með betri nýtingu. Menn
hafa þá hugað að fjölgun gisti-
rýma,“ segir Þorleifur Þór Jónsson.
Góð nýting
Samkvæmt tekjukönnun var með-
alherbergjanýting hótela í Reykjavík
í ágústmánuöi 90,08%. í sama mán-
uði í fyrra var nýtingin talsvert
minni, eða 88,83%, en þá hafði nýt-
ingin minnkað frá tveimur árum þar
á undan. Þetta kemur fram í nýjustu
upplýsingum Samtaka ferðaþjónust-
unnar. Meðalverð á þjónustunni
hækkaði um 2%. Meðalherbergjanýt-
ingin á landsbyggðinni er hins vegar
sú versta um árabil, ef gististaðir á
Akureyri og í Keflavík em undan-
skildir.
Fjöldi gistirýma í byggingu
I Reykjavík er nú verið að bæta
við fjölda gistiherbergja. Þar er um
að ræða 100 herbergi sem bætast við
á Hótel 101 á Hverfisgötu i haust. Á
Hótel Baron er verið að bæta við 60
herbergjum á þrem hæðum. Við Að-
alstræti 4 og Aðalstræti 16 standa
framkvæmdir yfir við tvö hótel. Þá
munu bætast við 138 herbergi á Hót-
el Esju næsta vor. Síðan eru áætlan-
ir um frekari aukningu á gistirými
í borginni mislangt á veg komnar
en fyrirséð er að ekkert stórvægi-
legt hótelrými verður komið í gagn-
ið, fyrir utan Hótel Esju, fyrr en í
fyrsta lagi 2004.
Við Grand Hótel er fyrirhugað að
byggja tvo 13 hæða hóteltuma með
200 herbergjum sem búið er að fá
samþykki fyrir í skipulags- og bygg-
inganefnd. í Kjörgcirði við Laugaveg
er búið að teikna hótel sem fyrir-
hugað er að ráðast i. Hóteltum við
Kringluna er einnig á hugmynda-
stigi, sem og Hafnarhótel svokallað
með 250 herbergjum og ráðstefnuað-
stöðu við Reykjavíkurhöfn. Þorleif-
ur segir mjög mikið búið aö vinna í
því máli en enn sé ekkert fast í
hendi með hvenær ráðist verði í
framkvæmdir.
Lélegra á landsbyggðinni
Meðalherbergjanýting á lands-
byggðinni i ágúst var talsvert lakari
en í Reykjavik, eða 78,52%, en árið
2001 var nýtingin 77,34%. Meðalverð-
ið hækkaði aftur á móti um 10% og
talsverð fjölgun varð á gistirýmum.
Ef Akureyri og Keflavík eru tekin út
úr þessum tölum lækka herbergja-
tekjur á landsbyggðinni um 25% og
hefur meðalherbergjanýtingin ekki
verið minni í ágústmánuði á lands-
byggðinni í fjöldamörg ár. Ársþriðj-
ungurinn, þ.e. tímabilið maí tO
ágúst, er þó svipaður og verið hefur
síðustu þrjú ár. Nýtingin á Akureyri
hefur verið á svipuðu róli og í
Reykjavík en í Keflavík var hún jafn-
vel enn betri í ágúst. -HKr.
500 framsæknustu fyrirtæki Evrópu:
Bakkavörí
toppsæti
- er númer tvö á listanum og Baugur í 57. sæti
Bakkavör hf. er í öðru sæti á
nýjasta „Europe’s 500“ lista Growth-
Plus yfir 500 framsæknustu fyrir-
tæki Evrópu. Þá má geta þess að
margumtalaður Baugur hf. er í 57.
sæti á listanum sem þykir dágott en
átta íslensk fyrirtæki eru á listan-
um. Iðnaðarráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir, afhenti fyrirtækjun-
um átta viðurkenningu fyrir þenn-
an árangur í gær frá Samtökum iðn-
aðarins og iðnaðarráðuneytinu.
Átta íslensk fyrirtæki voru valin
á listann og hafa þau aldrei verið
fleiri. Fyrirtækin eru Bakkavör hf.
(nr. 2), Baugur hf. (nr. 57), Opin
kerfi hf. (nr. 79), íslensk erfðagrein-
ing hf. (nr. 120), TölvuMyndir hf.
(nr. 129), Össur hf. (nr. 183), Delta
hf. (nr. 385) og Teymi hf. ( nr. 420 á
listanum).
Árangur Bakkavarar hf. þykir
sérlega glæsilegur, en fyrirtækið er
skráð í annað sæti listans. Er
Bakkavör hf. þar með búið að
stimpla sig inn í fremstu röð fram-
sækinna frumkvöðlafyrirtækja í
Evrópu.
TölvuMyndir hf. ná einnig eftir-
tektarverðum árangri en fyrirtækið
er nú flórða árið í röð á listanum.
Sama má segja um Össur hf. sem
birtist nú í fjórða skiptið á listanum
eftir tveggja ára hlé.
Samtökunum Europe’s 500 var
komið á fót að frumkvæði Evrópu-
sambandsins með það að markmiði
að efla starf frumkvöðla í Evrópu.
Markmiðið er að draga fram
reynslu þeirra sem bestum árangri
ná til þess að nýta hana til að búa í
haginn fyrir frumkvöðla framtíðar-
Vlöurkennng fyrir framsækn!
Valgeröur Sverrisdóttir, iönaöar- og viöskiptaráöherra, afhenti fulltrúum átta
íslenskra fyrirtækja viöurkenningu fyrir aö vera komin á lista yfir 500 fram-
sæknustu fyrirtæki Evrópu.
innar. Er árlega birtur listi yfir 500
vaxtarmestu fyrirtæki Evrópu. Val-
ið er úr fyrirtækjum 1 15 Evrópu-
sambandslöndum auk Noregs, ís-
lands og Liechtenstein m.a. á grund-
velli vaxtar, eignaraðildar frum-
kvöðuls, veltuaukningar, fjölgunar
starfa og stærðar. Samtök iðnaðar-
ins og iðnaðarráðuneytið hafa stutt
þetta starf og aðstoðað við að aug-
lýsa eftir fyrirtækjum sem til greina
koma á Islandi. -HKr.
Sameiginlegt prófkjör
Flest bendir til
að Samfylkingin
efni til sameigin-
legs prófkjörs í
Reykjavíkurkjör-
dæmum suður og
norður. Kjördæm-
isráð tekur end-
anlega ákvörðun
um fyrirkomulag-
ið 30. þessa mán-
aðar.
Bryndís
Hlöðversdóttir
lýsti því yfir um helgina: að hún
byði sig fram til forystu í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæmanna.
Hún gaf ekki upp á hvort kjördæm-
ið hún setti stefnuna en segir ástæð-
una þá að sér sýnist stefna í sameig-
inlegt prófkjör. „Verði það niður-
staðan stefni ég á 2. sæti í slíku
prófkjöri,“ segir Bryndís og segist
ekki taka annað kjördæmanna fram
yfir hitt.
Til greina kemur að sigurvegari í
prófkjörinu velji sér kjördæmi og
næsti maður hafi val um hvort
hann tekur annað sæti í sama kjör-
dæmi eða fyrsta sæti í hinu.
Jóhanna Sigurðardóttir sagðist í
sumar sækjast eftir stuðningi til for-
ystu fyrir Samfylkinguna í Reykja-
víkurkjördæmi suður.
Bryndís
Hlööversdóttir.
Bændur í Skaftafellssýslu ósáttir við kröfulínu fjármálaráðuneytis:
Eðlilegt að menn fyllist tortryggni
- segir lögmaður ríkisins, Ólafur Sigurgeirsson
Ólafur Sigurgeirsson,
lögmaður fjármálaráðu-
neytisins, segir að ánd-
staða bænda og annarra
landeigenda í Austur-
Skaftafellsýslu 'viö kröfu-
línu ríkisins varðandi þjóð-
lendur komi ekki á óvart.
Eðlilegt sé að heimamenn
fyllist tortryggni þegar
nýir menn koma inn í hér-
uð og flytja sitt mál. Fund-
irnir undanfarið hafi verið
til upplýsingar og menn hafi virst
sáttari viö lok málflutnings.
Óbyggðanefnd hefur verið að
störfum í Austur-Skaftafellssýslu til
að kynna sér viðbrögð landeigenda
við kröfulínu fjármálaráðherra.
Síðar mun nefndin úrskurða um
þjóðlendulínuna en bændur undir
jökli hafa brugðist hart við opnun
málsins og talað um stórfellda
eignaupptöku ef tillögur nái fram
að ganga.
Þjóðlendulínan getur ákvarðað
mikla hagsmuni, eins og t.d. viö
virkjun fallvatna og þegar bitist er
um lönd undir ferðáþjón-
ustu. Ólafur segir hins veg-
ar að bændur muni halda
öllum hefðbundnum nytja-
löndum sínum. Þegar ís-
land hafi verið numið hafi
eignalönd verið afmörkuð
en annað land látið liggja
milli hluta, öfugt við það
sem gert var t.d. í Noregi og
Norður-Ameríku. „Við
ervun raunverulega að
finna út núna hvað þjóðin
átti þegar landnámi lauk. Þetta
land var eigendalaust þangað til
sett voru lög árið 1998 um að þjóðin
ætti landið líkt og fiskimiðin," seg-
ir Ólafur.
Alltaf hægt að kæra
Þrúðmar Þrúðmarsson, landeig-
andi á Hoffelli 2, sagði í samtali við
DV fyrir helgi að þar væru öll lönd
sunnan jökla talin eignarlönd og
þess vegna væru menn ósáttir ef
ríkið ætlaði að taka einhvem hluta
af þeim.
Ef kröfulína ríkisins gengi eftir
væri um hreina eignaupptöku að
ræða.
Vegna þessa segir Ólafur að lög-
fræðimenntaðir fræðimenn hafi
verið ósammála um inntak land-
réttar á afréttum allan fyrrihluta
20. aldar þannig að hann sé ekki
hissa á að bóndi í Skaftafellssýslu
telji allt land eignarland. „Þetta er
mikið torf og þess vegna er þessi
fjölskipaða nefnd að fjalla um þetta.
Við erum raunverulega bara að
opna málið og ef menn una ekki
niðurstöðu Óbyggðanefhdar getur
hver sem er farið með niðurstööuna
fyrir dómstóla.”
Óbyggðanefnd hefur engin tíma-
mörk til úrskurða en fyrir árið 2007
á greiningu í þjóðlendur og eignar-
lönd að vera lokið. Þegar er búið að
afgreiða Árnessýslu og lýsa kröfum
og flytja mál munnlega í Austur-
Skaftafellssýslu. Fjármálaráðuneyt-
ið hefur einnig opnað málið í Rang-
árvallasýslu og Vestur-Skaftafells-
sýslu en ekki verður um frekari
málflutning að ræða af hálfu ríkis-
ins fyrr en næsta ár. -BÞ
Ólafur
Sigurgeirsson.
;jíiÆ/ÍZ<JJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.44 19.29
Sólarupprás á morgun 07.01 06.46
Síödegisflóó 17.03 21.36
Árdegisflóó á morgun 05.21 09.54
Dálítil rigning
Suðlæg eöa breytileg átt, 3 til 8
metrar á sekúndu og súld eða dálítil
rigning. Hægviðri, skýjað og þurrt að
mestu í kvöld og nótt, en víða þoku-
súld við norður- og austurströndina.
ývjiiúfiíijjj
Þurrt aö kalla
Suðaustan 5 til 10 metrar á sek-
úndu og rigning sunnan- og vestan-
lands, en annars hægari, skýjað
með köflum og þurrt aö kalla.
Fimmtudagur Föstudagur
Laugardagur
Vindur: Vindur: Vindur:
5-10i8 5-10 "V* 5-10 °v*
t t t
Vætusamt, Vætusamt, Vætusamt,
einkum einkum einkum
sunnan- og sunnan- og sunnan- og
vestanlands. vestanlands. vestanlands.
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveóur 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
Veörið kl. 6
AKUREYRI alskýjaö 7
BERGSSTAÐIR rigning 7
BOLUNGARVÍK rigning 9
EGILSSTAÐIR skýjaö 5
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 8
KEFLAVÍK rigning 9
RAUFARHÖFN alskýjaö 6
REYKJAVÍK skúr á síö. klst. 8
STÓRHÖFDI súld 8
BERGEN skúr á síö. klst. 10
HELSINKI rigning 9
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 14
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR 9
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 10
ÞRÁNDHEIMUR skúr 10
ALGARVE skýjaö 19
AMSTERDAM skúr á síð. klst. 13
BARCELONA þokumóöa 20
BERLÍN skýjaö 14
CHICAGO alskýjaö 21
DUBLIN þokumóöa 13
HALIFAX léttskýjaö 9
FRANKFURT léttskýjað 12
HAMBORG skýjaö 13
JAN MAYEN skýjaö 2
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG léttskýjaö 10
MALLORCA hálfskýjaö 18
MONTREAL heiöskírt 13
NARSSARSSUAQ alskýjaö 12
NEW YORK skýjaö 21
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS léttskýjaö 11
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON þokumóða 16
WINNIPEG heiðskírt 20
29E13S1