Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Page 7
MIÐVKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
7
I>V
Fréttir
Ólíkar niðurstöður um stærð jarðskjálfta fyrir norðan:
Mismunandi mæliaðferðir notaðar
- ætlaðar mismunandi aðstæðum
Stærsti jarðskjálftinn i hrin-
unni sem varð norður af Eyja-
firði i fyrradag kom fram á
skjálftamælum víða um heim. Á
mælum jarðskjálfta-upplýsinga-
miðstöðvarinnar U.S. Geological
Survey, USGS í Denver í Banda-
ríkjunum, mældist skjálftinn sem
varð klukkan 18.48 vera 5,8 á
Richter. Voru upptök hans á um
10 km dýpi. Á vef EMSC-CSEM,
samtaka jarðskjálftafræðistofn-
ana í Evrópu, sem Veðurstofu Is-
lands er aðili að, var greint frá
skjálfta á þessum slóðum á sama
tíma frá 5,2 og upp í 5,6 á
Richtersskala en Veðurstofan gaf
upp töluna 5,5.
Á vef Veðurstofunnar er að
finna upplýsingar um ástæður
sem geta leitt til mismunar á upp-
gefnum styrkleikatölum jarð-
skjálfta. í grófum dráttum eru
stærðir skjálftanna ýmist reikn-
aðar út frá bylgjum sem fara í
gegnum jörðina þ.e. Mb-bylgjum
(b=body), eða yfirborðsbylgjum
Ms (s=surface).
Mb-kvarðinn er talinn ágætur
fyrir skjálfta minni en 5,6 á Richt-
er en vanmetur oftast stærri
skjálfta. Fyrir skjálfta stærri en
5,5 á Richter er Ms-kvarðinn tal-
inn heppilegri. Hann er reiknað-
ur út frá bylgjum sem berast eft-
ir yfirborði jarðar (s=surface).
Einnig er til M1 stærð (l=local),
fyrir skjálfta í næsta nágrenni
mælanna. Hann vanmetur oftast
stærðir jarðskjálfta sem eru
meira en 5,5 á Richter. Til að
mæla stærðir stórra skjálfta er
talið best að miða við svokallaða
breiðbandsmæla sem eru langt
frá upptökunum, þ.e. i meiri fjar-
lægð en 1/18 af ummáli jarðar.
-HKr.
Kærir til ráðherra
Meirihluti sveitarstjómar Skeiða-
og Gnúpveijahrepps hefur ákveðið að
kæra úrskurð Skipulagsstofnunar um
mat á umhverfísáhrifum vegna fyrir-
hugaðrar Norðlingaölduvirkjunar til
umhverfisráðherra.
Meðal þess sem sveitarstjómin nefn-
ir í kæru sinni er að mótvægisaðgerð-
ir, sem nái langt út fyrir skilgreind
áhrifasvæði virkjunarinnar, hafi ekki
verið metnar í skýrslu Skipulagsstofn-
unar. Þá er á það bent að Skipulags-
stofnun meti umtalsverð umhverfis-
áhrif vegna virkjunarinnar en faHist
eigi að síður á framkvæmdina. Þá sé
reglu um varúðar- og vemdarsjónar-
mið ekki fylgt.
Minnihluti hreppsnefndar var
andsnúinn kærunni og telur að mála-
rekstur muni skaða sveitarfélagið. -rt
Starfsleyfisskylt
Niðurrif bygginga er starfsleyfisskylt
Áminning vegna niðurrifs
Heilbrigðisefthlit Reykjavíkur hef-
ur áminnt fýrhtæki fyrir að hafa ekki
farið að fyrhmælum efthlitsins við
niðurrif gamallar lýsisverksmiðju sem
stóð við Sólvallagötu 80. Niðurrif bygg-
inga er starfsleyfisskylt og heilbrigðis-
efthlitið gefur ákveðin fyrirmæli um
hvemig standa skuli að verki og hvað
skuli gera við niðurrifsefnin. Fyrh-
tækið fór ekki að þessum fyrirmælum
en vann verkið án samráðs við heil-
brigðisefthlitið. Það fargaði lýsis-
menguöum jarðvegi sem fjarlægður
var af staðnum án þess að heilbrigðis-
efthlitið vissi af. Ekki liggur fyrh
vissa um hvort forguninni var ábóta-
vant en fyrirtækið fór ekki þær boð-
leiðir sem því bar að gera, að sögn
Lúðvíks Gústafssonar, deildarstjóra í
heilbrigðisefthlitinu. Áminningin hef-
ur verið kynnt umhverfis- og heil-
brigðisnefiid. -JSS
Kúfiskur á vegi
Vöruflutningabílstjóri dottaði
undh stýri í Öxnadal í fyrrinótt og
rumskaði ekki fyrr en komið var út
í vinstri vegkant. Þá rykkti hann
bílnum aftur inn á hægri vegar-
helming og urðu afleiðingamar þær
að kassi með farminum féll á veg-
inn af tengivagni flutningabílsins
sem hann ók. Farmurinn var lax og
kúfiskur sem hann var að flytja frá
Ákureyri og suður i flug. Fiskurinn
dreifðist um veginn og þurfti að
loka fyrh umferð um tíma.
Lögreglan á Akureyri fékk til-
kynningu um atburðinn um klukk-
an hálfþrjú en unnið var að hreins-
unarstarfi á vettvangi fram undh
morgun. Engin slys urðu á fólki í
þessu óhappi. -sbs
Best geymda leyndarmálið
Myndlistarmaðurinn Guðráður
B. Jóhannsson, frá Beinakeldu í
Austur-Húnavatnssýslu heldur
fyrstu einkasýningu utan héraðs
um þessar mundir. Áður hefur
hann sýnt fjórum sinnum heima í
héraði. Hann sýnh nú 30 olíumál-
verk í Eden í Hveragerði og verður
sýningin opin til 23. september. Sýn-
inginn er sölusýning. Guðráður er
sjálfmenntaður listmálari en hefur
notið leiðsagnar Bjama Jónssonar.
Gagnrýnendur hafa sagt að Guðráð-
ur sé eitt best geymda leyndarmálið
í íslenskri myndlist, „sjálfmenntað
náttúrutalent" var sagt um hann og
stendur hann fyllilega undh þvi
með þessari sýningu. -JÖA