Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 9
MIÐVKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
9
DV
Fréttir
Afhendingu frystiskipsins Hannover til Samherja seinkar um fimm mánuði:
Drátturinn raskar
áætlunum félagsins
- leitast við að koma áhöfnum í afleysingapláss
Mikil seinkun
hefur orðið á af-
hendingu frysti-
skipsins
Hannover sem
Samherji keypti
frá Deutsche
Fischfang
Union. Sam-
hliða sölu Bald-
vins Þorsteins-
sonar til DFFU I
Þýskalandi var ákveðið að kaupa
Hannover í staðinn sem er 1.225
brúttólestir að stærð og smíðað
árið 1994. Samið var við skipa-
smíðastöð í Riga í Lettlandi um
gagngerar breytingar á skipinu,
þar sem það yrði lengt um 18
metra og því breytt í fjölveiðiskip,
svipuðu Vilhelm Þorsteinssyni.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
Samherji gæti sent skipið á veið-
ar í lok maí en nú liggur fyrir að
skipið mun ekki komast á veiðar
fyrr en í fyrsta lagi í nóvember.
Kristján Vilhelmsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarsviðs Sam-
herja, sagði í samtali við DV i gær
að þessi seinkun hefði raskað
áætlunum félagsins. Ýmiss konar
tilfærslur væru þekktar innan út-
gerðarinnar vegna breytinga og
Kristján
Vilhelmsson.
hefði orðið nokkurt umrót í
rekstri félagsins á árinu. Búið
væri að selja Baldvin Þorsteins-
son, Kambaröstina og Akureyrina
og kaupa Sléttbak í staðinn og
fleira mætti nefna. Við sölu skipa
þarf að segja áhöfn upp en félagið
mun leitast við að finna sem flest-
um pláss á öðrum skipum.
Tæplega tvær áhafnir eru að
jafnaði á hverju skipi Samherja
og spurður hvort hluti skipverja
sé ekki í lausu lofti vegna seink-
unarinnar á afhendingu skipsins
segir Kristján að fyrirtækið hafi
leitast við að koma þessum mönn-
um í afleysingapláss á öðrum
skipum félagsins þar tiLnýja skip-
ið kemur og má þar nefna að
nokkur ný störf sköpuðust þegar
rekstri Þorsteins EA var breytt í
júní sl.
Kristján segir aðspurður að
drátturinn hafi vissulega óþæg-
indi i för með sér fyrir Samherja,
sé kostnaðaraukandi og veiðiáætl-
anir hafi raskast. Kristján tekur
enn fremur fram að ekki hafi ver-
ið búið að ráða áhöfn á skipið.
Samherji mun fara fram á dag-
sektir vegna málsins. -BÞ
Hannover til Samherja
Guöbjörg ÍS 46 kemur til landsins. Skipiö varö síöan eign Samherja, síöan
DFFU, undir nafninu Hannover, og er nú á leiö til Samherja aö nýju.
Baldur siglir til Eyja
Ferjan Baldur hefur hafið siglingar
milli lands og Eyja þar sem ferjan
Herjólfur er í slipp i Noregi næsta
mánuðinn. Vestmannaeyingar eru
margir afar óánægðir með stöðu sam-
göngumála milli Eyja og lands og hafa
1.600 manns skrifað á undirskriftar-
lista þar sem ófremdarástandi í sam-
göngumálum er mótmælt. Óttast Eyja-
menn að sitja uppi með vanmáttugan
og hægfara Baldur meðan Herjólfur er
úr leik. -hlh
Hrun á heilsugæslunnar
Óbreytt skipulag í heilsugæslu hér
á landi mun leiða til hruns að áliti
stjómar Félags íslenskra heimilis-
lækna. Það þýði aö á endanum muni
enginn læknir fást til að starfa innan
hennar.
Stjómin bendir hins vegar á að til-
lögur sem Heilsugæslan í Reykjavík
hefur lagt fyrir heilbrigðisráðherra
til lausnar vanda heilsugæslunnar
breyti engu um þá réttindabaráttu
sem heimilislæknar standi í. Grand-
vallarkrafa heimilislækna sé að þeir
fái að njóta sömu starfskjara og aðr-
ir sérfræðimenntaðir læknar. -JSS
DV-MYND GVA
Ný Europrisverslun
Europris opnar á næstunni nýja verslun aö Skútuvogi 2. Undirbúningur er í
fullum gangi en eftir er aö merkja húsnæöiö betur.
Europris opnar nýja verslun
Europris mun næstu daga opna nýja
lágvöruverðsverslun að Skútuvogi 2.
Verslunin verður ívíð minni en sú sem
opnuð var að Lynghálsi 4 um miðjan
júlí, um 1000 fermetrar, en vöruúrvalið
það sama. Lárus Guðmundsson, einn
aðstandenda Europris, er afar ánægður
með þær móttökur sem Europris hefur
fengið hér á landi.
„Við bjóðum það gott verð og mikið
vöruúrval að við vissum að það yrði
mikið að gera. En búðin hefur verið
full hjá okkur frá opnun og við viður-
kennum fúslega að móttökurnar eru
mun betri en við bjuggumst við,“ sagði
Lárus.
Opnun nýju verslunarinnar er ekki
nákvæmlega tímasett en undirbúning-
ur er í fullum gangi.
Europris er upphaflega norsk versl-
anakeðja með um 120 verslanir en
verslun Europris við Lyngháls var sú
fyrsta sem opnuð var utan Noregs.
Verslanimar hér verða í innkaupasam-
bandi við þær norsku og hafa aðgang
að lager þeirra. Megináhersla verslana
Europris er mjög lágt vöruverð. Aliar
verslanimar eru reknar með viðskipta-
leyfi eða „franchise", þ.e. hver verslun
er rekin af sérstöku fyrirtæki. Fram-
kvæmdastjóri Europris á íslandi er
Matthías Sigurðsson, gamalreyndur í
kaupmennskunni, oft kenndur við
verslunina Víði. Auk hans og Lárusar
kemur Ottó Guðmundsson að fyrirtæk-
inu. -hlh
Stolið úr bílum við bíó
Þjófar brutust inn í fimm bíla fyr-
ir utan kvikmyndahús borgarinnar
í fyrrakvöld meðan vammlausir
borgarar sátu og horfðu á stjömur
hvíta tjaldsins. Farið var inn í bíla
fyrir utan þrjú bíóhús og úr bílun-
um stolið ýmsu, svo sem geislaspil-
urum, farsímum og úr einum bíln-
um í gærkvöld var nánast allt tekið
sem hönd á festi, svo sem gleraugu,
fatnaöur og ýmislegt fleira. Aðferð-
in sem menn nota er yfirleitt sú
sama, það er að brjóta hliðarrúður
búa og táka svo til óspilltra mál-
anna. „Þjófnaður úr bílum við bíó-
húsin er vaxandi plága,“ sagði varð-
stjóri lögreglu við DV í morgun.
-sbs
ÞINN LEIKUR
Nýtt
kortatímabil
Bfldshöfða 20 • Sími: 577 2525
www.nevadabob.is
"þú færð verðið ef til vill neðar
ef þú prúttar við GAMLA DON"
ÞIN VERSLUN