Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
11
DV
Þetta helst
! HEILDARVIÐSKIPTI 2.688 m.kr.
Hlutabréf 307 m.kr.
Húsbréf 1.155 m.kr.
| MEST VIÐSKIPTI
i Q Össur 109 m.kr.
| © Delta 43 m.kr.
! © Baugur 39 m.kr.
MESTA HÆKKUN
: ©SÍF 3,9%
© Marel 2,2%
l © Kaupþing 0,8%
MESTA LÆKKUN
j © Baugur 3,0%
© Össur 2,9%
| © Alþýðubankinn 2,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.297
- Breyting ©0,67%
Tap hjá Auðlind
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf.
var rekinn með 111 milljóna króna
tapi á ársfjórðungnum sem lauk 31.
júlí sl. Tap fyrir skatta var 134 miRj-
ónir króna.
Þetta er þó betri afkoma en á
sama tímabili árið áður en þá varð
481 milljónar króna tap af rekstri
sjóðsins.
Eigið fé Auðlindar 31. júlí 2002 er
2.696 milijónir króna en heildareign-
ir 2.726 miiljónir. Þar af eru eignar-
hlutir i innlendum félögum 1.478
milijónir króna, skuldabréf og hlut-
deiidarskirteini í verðbréfasjóðum
545 milljónir og eignarhiutir í er-
lendum félögum og hlutdeildarskír-
teini 463 milljónir króna.
Þokkalegar
horfur í flugi
Gert er ráð fyrir talsverðri aukn-
ingu í flugumferð á næstu árum
samkvæmt fréttatilkynningu frá Al-
þjóðaflugmálastjórninni (ICAO).
Samkvæmt spá stofnunarinnar er
gert ráð fyrir 7,1% vexti í farþega-
flutningum á árinu 2003 og 5,6%
vexti á árinu 2004. Stofnunin telur á
hinn bóginn að umsvif í flugi, mælt
í framleiddum sætiskílómetrum
muni standa í stað á þessu ári. Um
2,9% samdráttur varð á þennan
mælikvarða á árinu 2001. Þetta kom
fram í Morgunpunktum Kaupþings
í gær.
Flugumferð minnkaði um þriðj-
ung á fjórða ársfjórðungi ársins
2001 og má sem kunnugt er rekja þá
þróun til áhrifa hryðjuverka-
árásanna I Bandaríkjunum. Mikið
tap varð á rekstri margra flugfélaga
á síðasta ári vegna minnkandi eftir-
spurnar og hækkandi kostnaðar
m.a. við eldsneytiskaup og trygging-
ar. Hefur verið áætlað að tapið nemi
samtals um 12 milljörðum Banda-
ríkjadala.
Nú virðist sem eftirspum í flugi
hafi almennt náð sér á strik og hef-
ur það gerst mun hraðar en margir
bjuggust við fyrst eftir hryðjuverka-
árásirnar. Alþjóðaflugmálastjómin
telur að með aukinni tiltrú neyt-
enda á þróun efnahagslífs í heimin-
um og stööugra efnahagsumhverfi
megi að jafnaði búast við 5% aukn-
ingu í fluggeiranum á næstu ámm.
Flugfélög í Bandaríkjunum komu
verst allra flugfélaga út úr voðaat-
burðunum þar í landi. Er ekki gert
ráð fyrir aö flugumferð í Bandarfkj-
unum nái þeim hæðum sem hún
var í á árinu 2000 fyrr en í árslok
2004. Er jafnvel búist við minnkun
flugumferðar í Bandaríkjunum á yf-
irstandandi ári og er það þá annað
árið í röð sem flugumferð minnkar
þar í landi.
Viðskipti
. Umsjón: Vidskiptabladið
Islandsbanki í hópi
„bestu banka heims“
íslandsbanki hefur verið valinn
í hóp „bestu banka heims“ og út-
nefndur besti bankinn á íslandi
árið 2002 af tveimur fagtímaritum
um bankamál og fjármálamark-
aði, The Banker og Global Fin-
ance. Þar með hafa þrjú af helstu
bankatímaritum heims valið ís-
landsbanka sem banka ársins hér
á landi en fyrir nokkrum vikum
tilkynnti Euromoney val sitt á ís-
landsbanka sem besta banka
landsins.
Breska fjármálatímaritið The
Banker rökstyður val sitt á ís-
landsbanka sem banka ársins á ís-
landi með þvf að benda á breitt
þjónustuúrval bankans og góðan
rekstrarárangur. Samruni ís-
landsbanka og FBA hafi verið ár-
angursríkur og sterk fjárhags-
staða íslandsbanka og hærra láns-
hæfismat en hjá keppinautum
veiti bankanum forskot f þjónustu
við leiðandi fyrirtæki. The Banker
er geflð út af útgáfufýrirtæki Fin-
ancial Times og voru' verðlaun
tímaritsins afhent við athöfn í
Lundúnum fyrir skömmu.
Bandaríska tímaritið Global
Finance velur árlega „bestu banka
heims“ og er íslandsbanki einn 32
banka frá 27 löndum í þeim hópi í
ár. Verðlaunin verða afhent í
Washington í lok mánaðarins í
íslandsbanki
Bandaríska tímarítiö Global Finance velur áríega „bestu banka heims“ og er
íslandsbanki einn 32 banka frá 27 löndum í þeim hópi í ár.
tengslum við ársfund Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða-
bankans. Bankamir eru valdir
m.a. á grundvelli rekstrarárang-
urs, orðspors og góðrar stjómunar
samkvæmt tillögum bankamanna
og fjármálastjóra víða um heim.
Þetta eru jafnframt þeir bankar
sem að mati tímaritsins hafa sett
þau viðmið á heimamarkaði sem
keppinautar miða sig við, þeir em
jafnan markaðsleiðandi og í for-
ystu við að innleiða nýjungar.
Afkoma Norðuráls fyrstu sex mánuði ársins:
Hagnaður 404 milljónir króna
Rekstur Norðuráls skilaði 404
milljóna króna hagnaði fyrstu sex
mánuði ársins. Nettóvelta fyrir-
tæksins var 4,2 milljarðar króna
eða 48 milljónir dollara fyrstu sex
mánuðina. Á sama tímabili árið
2001 var velta fyrirtækisins 3,8
milljarðar króna eða 36 milljónir
dollara. Framleiðsla á áli var 45
þúsund tonn á tímabilinu en árið
áður höfðu verið framleidd 30 þús-
und tonn. Á miðju ári 2002 var eitt
ár síðan stækkun úr 60 þúsund
tonna ársframleiðslu í 90 þúsund
tonn var tekin í notkun.
Álverð var 1367 dollarar á tonn
fyrstu sex mánuði yfirstandandi
árs en var 1550 dollarar á sama
tímabili í fyrra. Áætlun gerði ráð
fyrir 1500 dollumm á tonnið. Útlit
er fyrir fremur lágt álverð það
sem eftir er ársins og er verðið lið-
lega 1300 dollarar á tonn um þess-
ar mundir. Þess má geta að erlent
ráðgjafarfyrirtæki hefur unnið
spá fyrir Norðurál um þróun ál-
vers næstu 5 árin. Þar er því spáð
að meðalverð verði rétt rúmlega
1500 dollarar á tonn en jafnframt
er gert ráð fyrir nokkrum sveifl-
um á milli einstakra timabila.
Horfur eru á áframhaldandi aukn-
ingu á spum eftir áli í heiminum
og er gert ráð fyrir að framleiðsl-
an þurfi að aukast árlega um
700-800.000 tonn á ári að meðal-
tali.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að nokkur breyting hafl orð-
ið á ytra rekstrarumhverfi Norð-
uráls miðað við fyrstu sex mánuði
ársins 2001. í lok júní í fyrra feng-
ust 104 krónur fyrir hvem dollar
en ári síðar 86 krónur fyrir hvem
dollar. Tekjur félagsins og bók-
hald era í dollurum sem veldur
því að innlendur kostnaður hefur
hækkað. Kostnaður við rafskaut
er umtalsverður þáttur í rekstri
álversins en verð rafskauta er í
evrum. Evran hefur styrkst um
18% frá miðju ári 2001 til miðs árs
2002. Eignir og skuldir fyrirtækis-
ins eru bókfærðar í dollurum og
hafa gengisbreytingar því ekki
umtalsverð áhrif á efnahag félags-
ins.
Útlit er fyrir áframhaldandi
hagnað af rekstri Norðuráls út
árið 2002 þrátt fyrir lækkun ál-
verðs. Norðurál áætlar að fram-
leiða rúmlega 90.000 tonn á árinu.
Búr hefur dreifingu á
grænmeti og ávöxtum
Innkaupa- og dreiflngarfyrirtæk-
ið Búr ehf. hefur fest kaup á hús-
næði að Bæjarflöt 2 í Reykjavík í
þeim tilgangi að koma þar upp að-
stöðu fyrir innkaup og dreifingu á
ávöxtum og grænmeti. Húsnæðið
hefur verið innréttað með tilheyr-
andi tækjabúnaði, svo sem
kælibún- j*.
aði og v
þroskun-
araðstöðu
fyrir ban-
ana. Starfsem-
in fer í gang í
byrjun októ-
ber.
Tilgangurinn *
með þessari íjár-
festingu er að
bæta samkeppnis-
stöðu viðskiptavina
Búrs með beinum inn-
kaupum og auka gæði og
vöruval í verslunum þeirra, að því
er segir í frétt frá Búr. Með þessu
móti er fyrirtækinu gert "kleift að
mæta síauknum kröfum viðskipta-
vina um ferskleika og fjölbreytni í
þessum mikilvægu vöruflokkum.
Samanlögð ársvelta félagsins með
ávexti og grænmeti er áætluð rúm-
lega einn milljarður króna.
íslenskt grænmeti skipar mikil-
vægan sess hjá neytend-
um og mun Búr
svara kröfum
markaðarins
með því að
hafa á boðstól-
um islenskt
grænmeti í
eðlilegu sam-
ræmi við árs-
tíðabundna
framleiðslu.
Með breytingum
á tollalöggjöf og
beingreiðslum til
garðyrkjubænda fyrr á
þessu ári hefur innflutn-
ingur veriö gerður auðveldari.
Búr mun því kappkosta að flytja til
landsins fjölbreytt úrval af erlend-
um grænmetistegundum og gefa þar
með viðskiptavinum sínum valkosti
í vöruúrvali eins og tíðkast í mat-
vöruverslun í nágrannalöndunum.
Búr hefur gert samninga við öfl-
ug dreifingarfyrirtæki í Evrópu og
Bandaríkjunum um innkaup á þess-
um vörum. Samið hefur verið við
Eimskip um flutninga til landsins á
öllum innflutningi Búrs, en um
flutninga með flugi hefur verið gert
samkomulag við Icelandair Cargo.
Öll dreifing innanlands frá birgða-
húsi til verslana á ávöxtum og
grænmeti verður í höndum Land-
flutninga, dótturfélags Samskipa,
samkvæmt nýgerðum samningi þar
um.
Búr ehf. hefur sl. sjö ár starfað á
svoköOuðum þurrvörumarkaði og
séð um innkaup og birgðahald fyrir
Kaupás, Samkaup, Oliufélagið,
kaupfélögin og fleiri aðila. Áætluð
velta Búrs á yfirstandandi ári er 4,5
milljaðar króna.
Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk.
Skr. 5/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 890 þus.
Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 790 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 59 þús.
Verð kr. 1380 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/00, ek. 32 þús.
Verð kr. 1200 þús.
Toyota Yaris Terra, 5 d.,
bsk. Skr. 6/01, ek. 32 þús.
Verð kr. 950 þús.
VW Polo Comfortline, 5 d.,
bsk. Skr. 7/01. ek. 40 þús.
Verð kr. 1050 þús.
Baleno Wagon 4x4
6/98, ek. 42 þús.
kr. 1030 þús.
Suzuki Baleno GL, 3 d., sjsk.
Skr. 10/98, ek. 21 þus.
Verð kr. 790 þus.
Alfa Romeo, 5 d., bsk.
Skr. 11/98, ek. 34þús.
Verð kr. 890 þus.
Isuzu Trooper 3,0 disil, bsk.
Skr. 4/99, ek. 64 þús.
Verð kr. 2490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---///>--------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100