Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Utlönd
DV
Kim Jong-il
Kim Jong-il lofar aö refsa þeim sem
bera ábyrgðina á mannránunum.
Jong-il viöur-
kenndi rán á
tólf Japönum
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu-
manna, viðurkenndi í gær að útsend-
arar leyniþjónustu hersins hefðu rænt
tólf japönskum borgurum á áttunda
og níunda áratugnum í þeim tilgangi
að láta þá kenna norður-kóreskum
njósnurum japönsku.
Þetta kom fram á sögulegum fundi
hans með Junichiro Koizumi, forsæt-
isráðherra Japans, sem nú er í opin-
berri heimsókn í Norður-Kóreu, en
Japanar hafa lengi grunað Norður-
Kóreu-menn um að hafa rænt fólkinu.
Fjölskyldur þeirra rændu hafa
lengi vonað að takast mætti að finna
fólkið og heimta það aftur heim til
Japan, en Jong-il viðurkenndi fyrir
Koizumi að aðeins fjögur þeirra væru
enn á lífi og fengju þau nú að snúa
heim.
Koizumi fordæmdi ránin harðlega
en mun láta þar við sitja eftir að Jong-
il harmaði þau og lofaði að þeim sem
bæru ábyrgðina yröi refsað.
Sjúklingunum
gefið marijúana
Hundruð krabbameins- og al-
næmissjúklinga, svo og fjöldi sjúkra
sem bundinn er við hjólastól, komu
saman fyrir utan ráðhúsið í borg-
inni Santa Cruz í Kalifomíu í gær
til að mótmæla áhlaupi laganna
varða á bú þar sem ræktað er mari-
júana og því dreift til sjúkra. Mót-
mælendumir fengu marijúana.
Þeir sem dreiföu marijúananu
sögðu að ekki væri nóg til af því og
vöruðu við því að margir sjúklingar
myndu af þeim sökum verða að sjá
á bak árangursríkasta verkjastill-
andi lyfinu sem þeir gætu fengið.
Svo gæti því farið að sjúkir yrðu að
kaupa marijúana á götumarkaðin-
um ef stjómvöld héldu áfram aö
berjast gegn notkun marijúana í
lækningaskyni, sem yfirvöld í Kali-
forniu hafa leyft.
ísraelar halda enn áfram aðgerðum:
Sprengja sprakk í pal-
estínskum barnaskóla
— ísraelskir hryðjuverkamenn grunaðir um verknaðinn
ísraelskir hermenn skutu í morg-
un einn Palestínumann tO bana og
særðu annan þegar gerð var innrás
í bæinn Tamoun rétt sunnan við
bæinn Jenín á Vesturbakkanum, að
sögn talsmanna ísraelshers, í að-
gerð sem miðaði að því að hafa
hendur I hári grunaðra hryðju-
verkamanna í bænum.
Að sögn sjónarvotta var skotiö á
mennina þegar þeir reyndu að kom-
ast undan á bifreið en þeir munu
hafa verið liðsmenn Fatah-hreyfing-
ár Yassers Arafats.
Að sögn talsmanna hersins var
skotið á þá þegar þeir reyndu að
keyra inn í hóp hermanna í meintri
árás og var fullyrt að tveir rifílar
hefðu fundist í bílnum.
Eftir aðgerðir ísraela í bænum
fannst lík óþekkts Palestínumanns
við vegkant í nágrenninu og sögðust
Börnin mótmæla ofbeldinu.
íbúar nálægs þorps hafa séð ísra-
elskan herjeppa á svæðinu rétt áður
en líkið fannst.
Þá fann ísraelska lögreglan í
morgun hálfbrunnið og sundurskot-
ið lík ísraelsks borgara á öskuhaug-
um nálægt Maale Adumim-land-
nemabyggðinni í nágrenni Jerúsal-
em, en mannsins hafði verið leitað
eftir að fjölskylda hans tilkynnti um
hvarf hans fyrr í vikunni.
í gær sprakk öflug sprengja í pal-
estínsku barnaskólahúsnæði í ná-
grenni Hebron, með þeim afleiðing-
um að fimm nemendur slösuðust.
Sprengjunni haföi verið komið fyrir
á salemi skólans og sprengd þegar
börnin voru í frímínútum. ísra-
elskir öryggisverðir sem sjá um
gæslu á svæðinu tókst að aftengja
aðra sprengju í byggingunni og
komu þar með í veg fyrir enn meiri
skaða. Grunur leikur á að ísraelskir
hryðjuverkamenn hafi komið
sprengjunum fyrir.
REUTERSMYND
„Rls Enrons"
Nokkrir ungir og efnilegir fyrrum starfsmenn bandaríska orkurisans Enron, sem fór á hausinn fyrr á árinu eftir
fjármálamisferli stjórnenda fyrirtækisins, sátu nýlega fyrir klæöalitlir hjá tímaritnu Piaygiri og var afraksturinn birtur á
fjórtán síðum í síöasta tölubiaöi sem út kom í gær meö yfirskriftinni „Ris Enrons
Skrímsli HF.
Bryndís Björk
Enok Orri
María D. Ólafsdóttir
RagnheiBur Eva
Hlynur D. Birgisson
Katrín Ósk
Halldóra E. Hilmarsd.
RÓshildur Hilmarsdóttir
Lilja Ý. GuSmundsdóttir
Elva Geirdal
nr. 220291
nr. 040297
nr. 250295
nr. 051292
nr. 240496
nr. 040192
nr. 051295
nr. 250492
nr. 010798
nr. 121098
Krakkaklubbur DV og Sam-myndbönd
oska vinningshöfum til hamingju.
Vinningshafar nólgist vinningana íþjónustuver
DV, Skaftahlíð 24, fyrir 11. október.
Þökkum þótttökuna.
Kveðja. TÍgri og Holldora
tCjtPiKicJ<'úb'0L'r
Hryðjuverkaárásirnar 11. september:
Hótanir um flug-
vélar sem vopn
Leyniþjónustustofnanir í Banda-
rikjunum urðu í fyrravor og fyrra-
sumar varar við hótanir um árásir
á skotmörk innan Bandarikjanna og
um að flugvélar yrðu notaðar sem
vopn. Starfsmenn þeirra einblíndu
hins vegar meira á þann möguleika
að árásir yrðu gerðar á erlendri
grundu.
Þetta kom fram í máli heimildar-
manns innan Bandaríkjaþings í við-
tölum við fréttamenn í gær. Ekkert
í upplýsingunum gaf hins vegar til
kynna árásirnar sem geröar voru á
New York og Washington 11. sept-
ember í fyrra.
Frekari upplýsingar um þetta
munu koma fram í dag þegar
Bandaríkjaþing hefur vitnaleiðslur
sínar í rannsókn sinni á því hvers
vegna leyniþjónustan hafði ekki
upplýsingar sem hefðu getað komið
í veg fyrir árásimar.
Vitnaleiðslurnar í dag verða
haldnar fyrir opnum tjöldum.
Vitnaleiöslur í dag
Vitnaleiöslur hefjast í Bandaríkja-
þingi í dag þar sem reynt veröur aö
komast aö því hvers vegna ekki lágu
fyrir upplýsingar til aö afstýra hryöju-
verkaárásunum í fyrra.
Pútín gagnrýnir Georgíu
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
sagði í gær að Edu-
ard Shevardnadze,
forseti Georgíu,
hefði ekki gefið
tryggingar fyrir
því að gripið yrði
til harkalegra að-
gerða gegn tsjetsjenskum uppreisn-
armönnum sem halda til í af-
skekktu fjallagljúfri í Georgiu. Ekki
er því útilokað að Rússar gripi til
loftárása handan landamæra sinna.
Leikur enn lausum hala
Lykilmaður í bandarískum hópi
meintra stuðningsmanna al-Qaeda,
sem hafa verið handteknir undan-
fama daga, leikur enn lausum hala,
að sögn fjölmiðla vestra.
Ber af sér fjöldamorö
Hollensk hjúkrunarkona neitaði í
gær að hafa drepið þrettán böm og
gamalmenni á sjúkrahúsum í Haag,
við upphaf réttarhaldanna yfir
henni í gær.
Reno játar sig sigraða
Janet Reno, fyrrum dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, játaði í
gær ósigur sinn í forkosningum
demókrata í Flórída um ríkisstjóra-
efni flokksins.
Þýskir kratar gefa eftir
Fylgi þýskra jafnaðarmanna hef-
ur dalað lítið eitt og njóta þeir nú
aðeins minna fylgis en íhaldsflokk-
arnir. Kosið verður í Þýskalandi á
sunnudag.
Fordæmir samsæri hvítra
Nelson Mandela,
fyrrum forseti Suð-
ur-Afríku, for-
dæmdi í gær meint
samsæri hvítra
öfgamanna um að
steypa stjórn
blökkumanna af
stóli með því að
kynda undir kynþáttahatri. Tíu
hvítir menn hafa verið ákærðir fyr-
ir drottinsvik.
ETA-foringjar teknir
Spænsk yfirvöld sögðu i gær að
tveir háttsettir foringjar basknesku
skæruliðasamtakanna ETA hefðu
verið handteknir í aðgerðum lög-
reglu í suðvestanverðu Frakklandi.
Sérfræðingar til Líbanons
Colin Powell, utan-
I ríkisráðherra Banda-
gfi ríkjanna, sagði í gær
aö stjórnvöld í Was-
■A hington ætluðu að
L Jl senc*a ^enn sérfræð-
Kl , inga til suðurhluta Lí-
'■ _ banons til að úr-
Hl_%______J skurða í deilu Libana
og ísraela um vatn úr ánni Wazzani.
Bandaríkjamönnum er mjög i mun
að afstýra hættuástandi.
Sprengt í Stokkhólmi
Einn maður slasaðist lítillega
þegar sprengja sprakk í tösku sem
skilin hafði verið eftir á gangstétt í
miðborg Stokkhólms. Lögreglan
rannsakar málið.
Óskirnar gætu ræst
Helsti samningamaður stjórn-
valda á Sri Lanka í friðarviðræðum
við tamíla sagði í morgun að vænt-
ingar uppreisnarmanna gætu ræst.