Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Side 18
42
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Tilvera
DV
Þegar haustar ad, kvöldin lengjast og veður kólnar eyðir þjóðin meiri tíma fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Vetrardag-
skrá íslensku stöðvanna þriggja hefur nú verið kortlögð og þar sem okkur lék forvitni á að vita hvað þar bœri hœst af
íslensku efni höfðum við samband við forsvarsmenn innlendra deilda og inntum frétta.
Viljum hreyfa viö fólki
- segir Heimir Jónasson á Stöð 2
Ætlum að skemmta
Islendingum
- segir Árni Þór Vigfússon á Skjá einum
Ámi Þór Vigfússon
sjónvarpsstjóri varð
sjálfur fyrir svörum á
Skjá einum. Hann sagði
meðal annars þetta::
„Nýjungamar á dag-
skránni hjá okkur nú á
haustdögum eru Popp-
Punktur, skemmtiþátt-
ur með fræðilegu í vafi
sem fór í loftið í fyrsta
sinn síðasta laugardag.
Þetta er spurninga- og
þrautaþáttur sem snýst
um popptónlist og popp-
menningu síðustu 50
ára, í umsjá Dr. Gunna
og Felix Bergssonar.
Liðin verða skipuð fólki
úr þekktustu hljóm-
sveitum landsins og
öðrum úr skemmtigeir-
anum. Miðað við við-
brögðin sem við höfum
fengið sýnist okkur
þátturinn eiga alveg
upp á pallborðið hjá
Ámi Þór Vigfússon á Skjá einum
„Allir þessir þættir munu skemmta íslendingum í vetur, ásamt þvi aö
fræða þá um allt það fjölbreytilega og skemmtilega sem er aö gerast. “
„Lykilorðið hjá okkur em gæði og stöðugleiki.
Þess vegna erum við yfirleitt með marga þætti af
einhverju efni og keyrum þá allan veturinn,"
segir Heimir Jónasson, dagskrárstjóri innlends
efnis á Stöð 2. Hann hefur orðið áfram: „Byrjum
á þáttaröðum. Einn tveir og elda er ein þeirra.
Þar fær Bryndís Schram snilldarkokka i lið með
sér. Hún er að byrja núna í kvöld. Það er stefn-
an hjá mér að vera með fólk á aldrinum 25-40
ára sem þáttastjómendur, Bryndis, Siggi Hall og
Jón Ársæll eru undantekningar. Þau eru tíma-
laus! Bryndís hættir í mars og þá kemur Siggi
Hall með ferðaþættina sína. Hann fer til Þýska-
lands - á Rínarsvæðið, í Norðurlandaborgirnar,
til Ítalíu og hugsanlega Mexíkós. Hittir marga
skrýtna fugla og kíkir i pottana hjá þekktum
kokkum.“
Tvíburar keppa
„ísland í dag og ísland í býtið eru þættir í mik-
illi sókn. Við hættum með helgarfléttuna og
veröum með Island í dag um helgar líka. Þáttur-
inn Viltu vinna milljón? er orðinn stór hluti af
imynd Stöðvar tvö. Við teljum að með þeim
þætti höfum við brotið blað því hann er mjög
dýr og tæknilega flókinn í vinnslu. I vetur ætl-
um við meðal annars að velja tvíbura í stólinn
sem keppa saman og við ætlum líka að vera með
barnaþátt og kosningamessu, ætlum að reyna að
fá ráðherrana í stólinn og láta þá gefa innkom-
una til góðgerðarmála. Þættimir Sjálfstætt fólk
hafa fengið sterk viðbrögð og hann rúllar í allan
vetur. Jón Ársæll tekur viðtöl við þekkt fólk í
þjóðfélaginu og athafnafólk erlendis. Jón Ásgeir
Jóhannesson er fyrstur.
Svo er það Jón Gnarr. Hann verður á besta
tíma um helgar og mun koma á óvart því hann
sýnir á sér algerlega nýja hlið. Andrea verður
áfram í vetur kl. hálfátta á fimmtudögum með
það nýjasta sem er að gerast í tísku, tónlist og
listum. Panórama er bíóþátturinn hennar Vig-
disar Jóhannsdóttur, á dagskránni frá mánudög-
um til fimmtudags. Afi er áfram hjá okkur, bú-
inn að fylgja krökkunum i flmmtán ár og á næst-
unni verður hann með Ýmu tröllastelpu að
kenna umferðareglurnar.“
Gosiö í Eyjum
„Stærsta trompið okkar í heimildaþáttunum
nefnist Ég lifi og þér munuð lifa. Þeir þættir
fjalla um Vestmannaeyjagosið. Eftir seríuna um
þorskastríðið ákváðum við að taka fyrir annað
efni sem skipti aila þjóðina máli. Hingað til hef-
ur verið fókuserað á hraunflæði, eldvirkni og
annað slikt þegar fjallað hefur verið um gosið en
aldrei á fólkið sjálft. Það fékk enga áfallahjálp og
þama heyrum við sögur sem aldrei hafa verið
áður sagðar. Við ætlum að frumsýna í janúar,
helst daginn sem gosið hófst fyrir 30 árum.
Takmark okkar er að hreyfa við áhorfandan-
um þannig að hann bæði hlæi og gráti, helst í
sama þættinum. Hrein og bein er slíkur þáttur.
Þar segir ungt samkynhneigt fólk frá því hvem-
ig það kemur út úr skápnum og lýsir sínu hug-
arástandi á mjög einlægan hátt.
Við erum með lítið af stökum þáttum. Sumar
í Tíról er undantekning. Guðrún Gunnarsdóttir
í íslandi í dag er elskuð og dáð af áhorfendum og
hún fylgdist með Sigurði
Dementz söngvara fagna
níræðisafmæli sínu í
Tiról. Þar voru Diddú og
þar var Kristján Jóhanns-
son. Allir í essinu sínu.
Mikið af söng og sól.
Undan ísnum, leitin að
Fairy Battle P 2330, er
þáttur um leitina að flug-
vélinni sem fórst milli
Eyjafjarðar og Skaga-
fjarðar í seinni heims-
styrjöldinni. Við fylgjum
Herði Geirssyni og og
sérsveitarmönnum
breska flughersins sem
meðal annars sækja lík-
amsleifar þeirra sem jök-
ullinn skilaði eftir öll
þessi ár og voru jarðaðir
við heiðursathöfh. Þama
er ævintýri, mystik og
dramatík. Þannig á það að
vera.“ -Gun
þjóðinni.“
Sérsmíðaður pottur
„Annar sterkur þáttur hjá okkur verður Heiti
potturinn sem sendur verður út í beinni á fóstu-
dagskvöldum. Umsjónarmaður hans er Finnur
Vilhjálmsson. Gestum verður boðið í sérsmíð-
aðan pott hér í stúdíói Skjás eins og þar munu
krauma spennandi umræður í bland við grín og
tónlist. Pottinum verður skipt niður í hólf.
Fyrsta hólfið er tileinkað málefhum líðandi
stundar, annað er eymamerkt menningunni og
í þriðja hólfinu verður „Séð og heyrt“-bragur
þar sem fjallað verður um „fræga“ fólkið. í
fjórða og síðasta hólfinu verður skoðað hvað
beri hæst um helgina og þátturinn endar á vel
völdu skemmtiatriði.
Haukur í homi er þegar kominn út á meðal
fólksins. Við sjáum honum bregða fyrir á hveij-
um degi í nokkrar mínútur og spyrja algengra
spuminga sem við höldum að við vitum en höf-
um gleymt. Umsjónarmaður er Haukur Sigurðs-
son.“
Súper húsfreyjan
„Við höfum alltaf byggt dagskrá okkar að
mikiu leyti á innlendu efni og þá fóstum þáttum
sem fólk gengur að sem vísum. Margir þessara
átta hafa öðlast þann sess i þjóðarsálinni að það
væri hrein goðgá að breyta „grunn-formatinu“.
Ég nefni þátt eins og Silfur Egils sem fólk frá
fermingu og upp úr horfir á. Hann fer í loftið nú
á sunnudaginn á sínum tíma kl. 12.30. Innlit út-
lit og Fólk era þættir sem höfða til breiðs hóps
og Djúpa laugin er þáttur sem allir sem ungir
eru í anda fylkir sér um.
Þessir þættir snúa aftur nú í haust og sumir
eru þegar famir að rúlla. Friðrik Wiesshappel
verður Völu Matt til halds og trausts í Innliti -
útliti, ásamt nýjum liðsmanni sem er Kormák-
ur Geirharðsson. Meðal nýjnga verða leiknir
gamanleikir sem nefnast Súper húsfreyjan og
Handlaginn heimilisfaðir. Sirrý verður áfram
með Fólk og er ekkert mannlegt óviðkomandi,
frekar en fyrri daginn en nýir umsjónarmenn
taka við Djúpu lauginni í vetur, þau Háifdan
Steinþórsson og Kolbrún Bjömsdóttir. Þau voru
meðal þeirra tíu úr hópi 200 umsækjenda sem
fengu að stjóma prufuþáttum sl. sumar i beinni.
Áhorfendur völdu þau tvö. Síðar í vetur koma
fleiri þættir á skjáinn og þá ber hæst hæfileika-
keppni framhaldsskólanna, heimildaþáttaröð
með Erpi Eyvindarssyni og heimildaþátt um
Stein Steinarr.
Allir þessir þættir munu skemmta íslending-
um í vetur, ásamt því að fræða þá um allt það
fjölbreytilega og skemmtilega sem er að gerast
á okkar litla en þó spennandi landi.“ -Gun.
DV-MYND HARI
Dagskrárstjórinn
„Við viljum að fólk bæöi hlæi oggráti, helst í sama þættinum, “ segir
Heimir Jónasson.
Þéttasta dagskrá í sögu Sjónvarpsins
- segir Rúnar Gunnarsson dagskrárstjóri
Fram til vors eru vel yfir 300 ís-
lenskir dagskrárliðir fyrir utan dag-
legt Kastljós í Sjónvarpinu og segir
Rúnar Gimnarsson, yfirmaður inn-
lendrar dagskrárdeildar, það verulega
aukningu frá fyrra ári. Ég tel að þetta
verði þéttasta og mest spennandi vetr-
ardagskrá í sögu Sjónvarpsins," segir
hann. Rúnar ætti að vita hvað hann
syngur því að hann hefur starfað við
fyrirtækið frá því það hóf göngu sina
1966 og þetta er þriðja vetrardagskrá-
in sem hann skipuleggur. Gefum hon-
um orðið:
Á
Spaugstofan glaðbeitt
„Ég vil byrja á að nefna nýjan, létt-
an spjallþátt Gisla Marteins sem kem-
ur i stað Kastjóss á laugardagskvöld-
um. Spaugstofan mætir svo glaðbeitt
til leiks strax á eftir. Tvö leikrit eru á
dagskrá núna í september. Allir hlut-
ir fallegir, eftir Ragnar Bragason og
Hvemig sem við reynum, eftir Hrafii-
hildi Hagalín." Af föstum þáttum er
sjálfsagt að nefiia hið sívinsæla Kast-
Ijós, unglingaþáttinn Atið, Maður er
nefndur og menningarþáttinn Mósaík.
Jón Ólafsson heldur áfram með þátt-
inn Af fingrum fram á föstudagskvöld-
um. Stundin okkar verður í höndum
nýrra umsjónarmanna, Jóhanns G.
„Við erum með velyfír 300 íslenska dagskrárliði, fyrir utan Kastljósið,“ segir
Rúnar Gunnarsson.
Jóhannssonar og Þóru Sigurðardóttur
og Viltu læra íslensku? er nýr viku-
legur þáttur sem byrjar eftir áramót-
in.
Þá eru það styttri þáttaraðir: Líf og
læknisfræði er á fimmtudögum kl. 20,
fyrsti þátturinn af sex er farinn í loft-
ið. Vönduð fjögurra þátta heimilda-
þáttaröð um Flugsögu Islands verður
spennandi að sjá í október, þar er
áhersla á áður óbirt myndefhi. I þátt-
unum Heima er best eru eldaðar ljúf-
fengar krásir. Tuttugasta öldin er nýr
heimildamyndaflokkur sem verður á
skjánum í skammdeginu en nýir vís-
indaþættir verða á dagskrá þegar dag
fer að lengja. Sömuleiðis þriggja þátta
heimildaþáttaröð um ferðir viking-
anna.“
$auöaþjóöin og
Isaldarhesturinn
„Af stökum þáttum má nefha beina
útsendingu frá afhendingu Camegie
art award og Edduverðlaunanna og
upptökur frá Listahátíð, svo sem af
sígaunahljómsveit, tangóhópi og tón-
leikum rússneska fiðlusnillingsins
Maxims Vengerovs. Á jóladag mynd-
skreyta tíu íslenskir kvikmyndaleik-
stjórar lesinn kafla að eigin vali úr
verkum Laxness og íslensku sönglög-
in verða flutt í nýjum útsetningum af
ungum tónlistarmönnum annan í jól-
um.
Margar einstakar heimildamyndir
verða á dagskránni. Þar má nefna
Sauðaþjóðina eflir Guðnýju Halldórs-
dóttur, sem sýnd verður 1. desember,
og ísaldarhestinn eftir Pál Steingríms-
son á nýársdag. Hlemmur eftir Ólaf
Sveinsson mun vekja viðbrögð og líka
mynd um spilafikn á íslandi. Fæddur
í Paradís er um Guðmund Pál Ólafs-
son náttúrufræðing og íslandsmyndir
Hans Nicks eru eftir Svisslending sem
safnaði einstöku kvikmyndaefni hér á
landi um miðja síðustu öld. Jón Magn-
ússon hefur spilað á götum víða um
heim. Maðurinn með gítarinn er
mynd um hann og Lifandi dauðir fjall-
ar um hljómsveitina Ham.“
Björk of course
„Ný barnastuttmynd eftir Hauk
Hauksson verður frumsýnd á nýárs-
dag og leikritið Björk of course, eftir
Þorvald Þorsteinsson, verður unnið
upp á nýtt fyrir sjónvarp. Óskaböm
þjóðarinnar er hröð mynd með harð-
kjamatónlist um smákrimma sem
klúðra málum. Igingút og Regína eru
finar fjölskyldumyndir og Mávahlátur
verður sýnd á páskadag. Margt fleira
er fram undan og ég vil í lokin nefha
þætti sem hefð er komin á, eins og
jóladagatalið, sem er að þessu sinni
Hvar er Völundur? eftir Þorvald Þor-
steinsson, áramótaskaupið, sem verð-
ur í höndum Óskars Jónassonar eins
og í fyrra, spumingaþáttinn Gettu bet-
ur og með vorinu fógnum við með for-
keppni vegna evrópsku söngvakeppn-
innar.“ -Gun.