Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
45
DV
Tilvera
JWfflaiHillfflTffl
James Gandolfini 41 árs
James Gandolfmi,
sem hefur hlotiö miMa
frægð fyrir túlkun sína á
mafluforingjanum Tony
Soprano i sjónvarpsserí-
unni The Sopranos á af-
mæli í dag. Gandolfmi fæddist í New
Jersey þar sem hann ólst upp. Áður
vann hann á börum á Manhattan auk
þess sem hann reyndi fyrir sér í leiklist-
inni. I raunveruleikanum er Gandolfmi
ólíkur Soprano og vinir hans segja að
ekki sé til meira gæðabióð. Sjálfur segist
hann vera ein taugahrúga: „Ég er í raun
200 punda Woody AUen“. í fristundum
leikur Gandolfini á trompet og saxófón.
Gildir fyrír fímmtudaginn 19. september
Vatnsberlnn (20. ian.-i8. febr.t
, Þér mun reynast erfitt
' að leyna tilfinningum
þínum. Ef þú átt
stefnumót skaltu búast
i seinkim vegna umferðartafa.
Happatölur þínar eru 2, 8 og 17.
Fiskarnil’(19. febr.-20. marsl:
^USf Þetta er góður dagur
Ifyrir rökræður og þær
munu leiða til þess að
áætlanir þínar ná fram
að ganga. Rólegt er á félagslega
sviðinu en það varir ekki lengi.
Hrúturinn (21. mars-19. apríO:
. Það sem gerist í dag
I gerir þér auðveldara
fyrir að taka
_ ákvörðun. Samband
þitt við ástvin þinn er gott um
þessar mundir.
Nautið (20. april-20. mail:
Þú tekur skyndi-
ákvörðun og það er
sérstaklega óheppilegt
þar sem hætt er við
[ eyðir peningum í óþarfa.
Betra er að bíða með innkaup.
Tvíburarnir (21, maí-21. iúní);
Gagnleg þróun á sér
' stað og þú færð
tækifæri sem þú
skalt nýta vel.
Hætta'er á misskilningi.
Happatölur þinar eru 2, 21 og 29.
Krabbinn (22. iúni-22. iúlíl:
| Ekki láta smávægileg
| atvik hindra þig
' í að skemmta þér.
_____ Leggðu lítilræði af
peningum til hliðar til síðari
nota. Það kemur sér vel.
Uónið (23. iúlí- 22. áaúst):
Skilningur þinn er
ekki með besta móti.
Sennilega ert þú í
vafa um hvað sé best
að gera í erfiðu máli. Kvöldið er
hagstætt til að skemmta sér.
Mevian (23. áaúst-22. seot.l:
Það er ekki víst að
ástandið sé eins og
þér virðist það vera
^ r vegna þess að eitthvað
er hulið og sannleikurinn kemur
ekki í ljps fyrr en síðar.
vucm l^J. st
ý
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
Ný viðhorf og það
hvemig þú tekur á
málunum getur orðið
til þess að þú fáir
þá niðurstöðu sem þú vilt. Ekki
fiýta þér um of.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
[Atburður sem gerist
! gerir þig mjög
jraunsæjan, kannski í
sambandi við peninga
eða hvemig þeim er varið.
Happatölur þínar em 8, 24 og 34.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
|Þú hefúr sérstakan
rhæfileika í dag til að
[ komast framhjá
vandræðum. Þetta er
■ til skapandi verkefna
og kvöldið verður ánægjulegt.
Steingeltln (22. des.-l9. ian,):
Þetta verður rólegur
dagur hjá þér. Þú
munt nota hann til að
hjálpa öðrum. Fréttir
sem þér berast staðfesta grun
sem þú hefur haft lengi.
góður
DV heimsækir safnið á Hnjóti í Örlygshöfn:
Berum okkur aöeins
saman við þá bestu
„Við stefnum að því að ná Þórði í
Skógum í aðsókn á safnið, við ber-
um okkur aðeins saman við þá
bestu,“ segir Magnea Einarsdóttir,
safnvörður á Hnjóti í Örlygshöfn.
„Við höfum fengið fimm þúsund
gesti í sumar svo við eigum enn
langt í land að ná Þórði en meðan
heimsmeistarakeppnin í fótbolta
stóð yfir datt öll aðsókn að safninu
niður," segir hún.
Magnea og Jóhann Ásmundsson,
eiginmaður hennar, hafa haft veg og
vanda af safninu frá 1984 en Egill
Ólafsson var áður byrjaður á að
safna ýmsu sem viðkom flugi og var
safnið formlega opnað 1983.
Safnið á Hnjóti er ekki bara til-
einkað flugi því þar er margt merki-
legra muna tengt sjósókn og hús-
búnaður Gísla heitins á Uppsölum
er þar og vekur alltaf jafn mikla at-
hygli. Kvikmyndin Björgunarafrek-
ið við Látrabjarg er sýnd í safninu
og segir Magnea að myndin veki
alltaf mikla athygli, ekki síst hjá út-
lendingunum og fyrir því fólki sem
hefur séð myndina á safninu verður
atburðurinn ljóslifandi þegar það
virðir fyrir sér sögusviðið á bjarg-
inu. Um 3 þúsund munir eru í safh-
inu og í stórri skemmu er rússnesk
flugvél, tvíþekja sem safnið á.
DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND
Hornið hans Gísla
Magnea er hér í horninu hans Gísla á Uppsölum.
Nokkrir gamlir trébátar eru utan
dyra við safnið.
Magnea og Jóhann eru Reykvík-
ingar sem fluttu vestur þegar Jó-
hanni bauðst vinna við safnið.
Magnea segist hafa verið í sveit
þama fyrir vestan og unnið í fiski á
Patró þegar hún var krakki og líkað
vel og í vetur ætlar hún að kenna
börnum á Barðaströnd því hér á
ströndinni verður enginn skóli í
vetur eins og verið hefur og fólk er
ákaflega óhresst með skólamálin
hér því nú verða bömin að fara í
skóla á Patreksfirði.
-JI
Rósaballið í Hveragerði:
Hver skyldi sækja mig?
Það ríkti mikil eftirvænting hjá
nemendum í Grunnskóla Hvera-
gerðis þegar haldið var hið árlega
Rósaball í skólanum. í upphafi
dags draga 10. bekkingar um hverj-
ir eigi að sækja hvem á ballið, en
karlkyns 10. bekkingar ná í stúlk-
ur í 8. bekk og færa þeim rósir en
kvenkyns 10. bekkingar sækja
pilta í 8. bekk og fá þeir einnig af-
hentar rósir. Þetta er árlegur við-
burður hjá grunnskólanum í
Hveragerði í byrjun skólaárs. Ekki
er hlutfall kynjanna afltaf jafnt
þannig að stundum þarf einn
strákur að „sinna" fleiri en einni
stúlku með rósir og akstur á ballið
og öfugt. Svo veit stúlkan/piltur-
inn, sem bíður heima
heldur ekki hver
sækir hana eða hann
- nú eða hvort ein-
hver kemur!
Áður en sjálft ball-
iö hófst var keppt um
ýmsa titla. Sem dæmi
má nefna flottustu
varirnar, bjartasta
brosið, mesta krúttið,
flottustu augun,
bjartasta vonin og að
sjálfsögðu ungfrú
Gaggó og herra
Gaggó. -eh
DV-MYND EVA HREINSDÓTTIR
Slgruöu
Ungfrú og herra Gaggó 2002: Fríöa Margrét Berg-
steinsdóttir og Kristján Sveinsson.
Anna Nicole
fær reisupassann
Bandariska fyrirsætan, Anna Nicole
Smith, hefur gengið svo fram af vinnu-
veitendum sínum í tískusýningar-
bransanum með hneykslanlegri fram-
komu sinni í eigin sjónvarpsþáttum að
þeir hafa gefið henni reisupassann.
Fataframleiðandinn Lane Bryant
hefur sem sé sagt lausum samningi sín-
um við Playboyleikfangið fyrrverandi,
fatafelluna og olíumillaekkjuna frá
Texas.
„Þeir notuðu hana bara fyrir tísku-
sýningar. Ég efast um að hún verði
með í ár. Guð minn almáttugur, það
þarf fleiri metra af klæði til að hylja
hana,“ segir heimildarmaður banda-
ríska blaðsins New York Post.
Bíogagnryni
Gwen Stefani
gifti sig í hvítu
Poppsöngkonan Gwen Stefani var
ekki í nokkrum vafa þegar hún valdi
brúðarkjólinn sinn. Hvítur skyldi
hann vera og hvítur var hann, hann-
aður af ekki ómerkilegri manni en
John Galliano.
Gwen gekk að eiga unnusta sinn til
sex ára, tónlistarmanninn Gavin Ross-
dale, i London um síðustu helgi.
Vígsluathöfnin fór fram í kirkju
heilags Páls í Covent Garden. Við-
staddir voru aðeins nokkrir útvaldir
og skal þar fyrstan telja fjórleggjaðan
vin skötuhjúanna, hundinn Winston.
Að sjálfsögðu var hvuttinn puntaður
með rósum í tilefni dagsins.
Regnboginn/Spænsk kvikmyndhátíð - Gifstu mér loksins (El hijo de la novia:
Grátur, hlátur og rómans
Roberto er stressaður karlmaður á
flmmtugsaldri. Hann er búinn að taka
yfir veitingastaðinn sem foreldrar
hans ráku í mörg ár. Hann er fráskil-
inn og á eina dóttur sem hann sækir
alltaf of seint á fimmtudögum og veit
síðan ekki alveg hvemig hann á að
hafa ofan af fyrir meðan hún er hjá
honum. Fyrrverandi konan hans þolir
hann ekki en fallega, unga kærastan
hans virðist elska hann heitt sem er
óskiljanlegt af því hann er svo mikil
sauður. Pabbi hans, sem er reffilegur
og sjarmerandi karl í flottum jakkafot-
um, elskar enn þá móður hans af öllu
hjarta þótt hún sé komin á sjúkrahús
langt leidd af alzheimer. Roberto hefur
ekki tíma fyrir foreldra sina frekar en
nokkuð annað, hann verður nefnilega
alltaf að vera á veitingastaðnum því
þar eru allir algjörir asnar nema
hann. Hann þarf að sjarmera gestina,
múta vínkaupmanninum og hóta
starfsfólkinu.
Ykkur er væntanlega orðið ljóst að
Roberto karlinn er leiðindagaur en
þegar lif hans virðist ekki geta orðið
miklu ómerkilegra gerast þrir hlutir
sem hrista rækilega upp í honum:
pabbi hans ákveður að giftast mömmu
hans aftur áður en hún gleymir hon-
um alveg, æskuvinur birtist eins og
skrattinn úr sauðarleggnum og rifjar
Roberto
Ricardo Darin leikur soninn sem hefur lítinn tíma til aö spá í tilfinningar.
upp gamlar minningar og hann fær
hjartaáfafl - minna má nú gagn gera
til að koma manni á sporið!
Krísa karlmanna á fímmtugsaldri
er afskaplega vel þekkt og vinsælt
þema bæði í bókmenntum og kvik-
myndum enda er það alþjóðlegt - við
þurfum ekki að setja okkur í stelling-
ar til að skilja Roberto þótt hann komi
frá jafn fjarlægu og eksótísku landi og
Argentínu. Gifstu mér loksins er vel
heppnuð mynd um þetta þekkta efni,
hún er jöfn blanda af húmor, sorg og
rómantík. Persónumar eru vel skrif-
aðar og einstaklega ekta í hamingju-
leit sinni og samtölin bæði hjartanleg
og hnyttin. Ricardo Darin er góður í
hlutverki Robertos, þreytandi og
ómögulegur en ekki svo vonlaus að
við viljum honum ekki vel. Hector Alt-
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
erio er yndislegur í hlutverki pabbans
glæsilega sem gat aflt sem sonurinn
ekki getur: byggt upp eigið fyrirtæki
og elskaö konu í meira en fimm min-
útur. Campanella leikstýrir þessu ást-
úðlega og af húmor og kemur boð-
skapnum vel til skila - það er aldrei of
seint að sjá að sér.
Gifstu mér loksins er spænskumæl-
andi kvikmynd sem hefur hlotið hylli
í heimalandi sínu og víðar - meira að
segja verið tilnefnd til óskarsverð-
launa sem besta erlenda kvikmyndin.
Ég spái amerískri endurgerð innan
fárra ára - en bíðið ekki eftir henni,
sjáið ffekar frummyndina.
Lelkstjórl: Juan José Campanella. Aöal-
lelkarar: Ricardo Darin, Héctor Alterio,
Norma Aleandro, Natalia Verbeke, Edu-
ardo Blanco
P.s. Ég varð þeirrar ánægju aðnjót-
andi að frumsýningin á Ræddu mál-
in eftir Almodóvar í síðustu viku var
hlélaus - og þvílík nautn. Það iá við
að ég hefði verið búin að gleyma því
hvað það er gaman að vera í bíó
þegar myndin er ekki rofin með Ijós-
um og látum yfirleitt á hræðilega
spennandi stað. Ég skora á kvik-
myndahúsaeigendur að hafa eina
auglýsta hlélausa sýningu á dag fyr-
ir okkur sem getum keypt allt nam-
mið áður en myndin byrjar.
M