Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Síða 26
50
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Björgvin lék á pari
Björgvin Sigurbergsson hóf keppni á úrtökumóti
fyrir evrópsku mótaröðina á Five Lakes-golfvellinum
í Englandi í gær. Hann lék fyrsta hringinn á 72 högg-
um eða á pari vallarins og er í 44.-55. sæti. Hann fór
13 holur á pari, þrjá fugla, einn skolla og einn
skramba.
Félagi hans úr Keili, Ólafur Már Sigurðsson, tek-
ur einnig þátt í sama móti og fór fyrsta hringinn á 77
höggum. Þeir halda keppni áfram í dag og eftir ann-
an hring kemur í ljós hvort þeir komast í gegnum nið-
urskurðinn.
-JKS
Start leitar að
nýjum þjálfara
Norska liðið Start leitar að þjálf-
ara til að rétta félagið við og koma
þvl upp í efstu deild í fyrstu at-
rennu. Start er langneðst í norsku
úrvalsdeildinni og er þegar fallið
þótt Qórum umferðum sé enn ólok-
ið. Guðjón Þórðarson tók sem kunn-
ugt er við liðinu í júlí en þá var
staða liðsins allt önnur en glæsileg.
Forráðamenn báru þá von í
brjósti að Guðjóni tækist að koma
liðinu inn á réttar brautir og bjarga
liðinu hið minnsta frá falli. Það hef-
ur ekki gengið eftir en samningur
sem Guðjón gerði við Start var þó
aðeins út þetta tímabil.
Nú er ljóst að Start ætlar að ráða
nýjan þjálfara og þykir ekki ólíklegt
að Bárd Wiggen, aðstoðarþjálfara
verði boðin staðan en það er þó alls
ekki víst. Wiggen er gamall heima-
maður og hefur verið aðstoðarþjálf-
ari hjá Start í þrjú ár.
-JKS
Símadeild karla í knattspyrnu:
Tíu fengu bann í
lokaumferðinni
Á fundi aganefndar Knattspymu-
sambands íslands i gær voru tíu
leikmenn í Símadeild karla dæmdir
í eins leiks bann en lokaumferðin í
deildinni fer fram á laugardaginn
kemur.
Leikmennimir sem hér um ræð-
ir, Bjami Geir Viðarsson, Ingi Sig-
urðsson og Kjartan Antonsson, allir
úr ÍBV, verða því fjarri góðu gamni
í leiknum gegn FH. Framarar, sem
etja kappi við KA í lokaumferðinni,
verða án þeirra Bjama Hólm Aðal-
steinssonar og Sævars Guðjónsson-
ar en KA leikur án Dean Martins.
Gunnar Þór Pétursson úr Fylki og
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari
liðsins, verða í banni þegar Fylkir
sækir ÍA heim á Skagann og Kefl-
víkingurinn Kristján Helgi Jó-
hannsson og Þórsarinn Óðinn Áma-
son fengu sömuleiðis leikbann.
Þá var Fylkir dæmdur til að
greiða 10 þúsund króna sekt vegna
brottvísunar þjálfara liðsins í leikn-
um gegn KR um síðustu helgi.
-JKS
Körfuknattleiksliö Þórs:
Pétur hættur
Pétur Guðmundsson hefur sagt
upp störfum sem þjálfari og
framkvæmdastjóri Körfuknatt-
leiksdeildar Þórs frá Akureyri,
en þetta kemur fram á heimasíðu
félagsins. Ekki er skýrt frá
ástæðum uppsagnar öðravísi en
á þann hátt að þetta sé vegna
fjárhagsstöðu félagsins.
Pétur var ekki við störf hjá fé-
laginu nema í um hálfan mánuð,
en hann var ráðinn í byrjun sept-
ember. Þórsarar ætla að hefja leit
að nýjum þjálfara nú þegar enda
styttist óðum í að keppni í úr-
vailsdeildinni hefjist.
-PS
Körfuknattleikur:
Harlem Globetrotters
til íslands í nóvember
- sýningar á fimm stööum á landinu
Hinir heimsþekktu körfuknatt-
leikssnillingar í bandaríska sýn-
ingarliðinu Harlem Globetrotters
koma til íslands í nóvember og
^ verður þetta fjóröa heimsókn
liðsins til landsins. Ákveðið hef-
ur verið að vera með fimm sýn-
ingar víðs vegar um landið;
Reykjavík, Reykjanesbæ, Egil-
stöðum, Sauðárkróki og á Akur-
eyri.
Miðasala á sýningarnar hefst
fljótlega en hægt verður að nálg-
~4
ast aðgöngumiða á sölustöðum
Heklu um allt land og í síma
5907270. Þá verður áskrifenda-
klúbbur ÍU, M12, með sértilboð
til áskrifenda sinna.
Harlem Globetrotters vekur
gríðarlega athygli hvar sem liðið
kemur fram til sýningar enda
hafa liðsmenn skemmt áhorfend-
um um árabil fyrir snilli sína og
tækni sem ekkert annað lið getur
státað af.
-JKS
»
mm
saBBí1; 12*
■
mm
f £ v '<
mss&.
Sigurður Donys fyrir utan grunnskólann á Vopnafiröi í gær en hann heldur utan að nýju eftir hálfan mánuð og æfir
með Middlesbrough í sex vikur. Fleiri lið sýna þessum 16 ára Vopnfiröingi áhuga. DV-mynd Jón
Sigurður Donys, 16 ára gamall leikmaður Einherja á Vopnafirði:
Boðinn samningur
hjá Middlesbrough
- Newcastle og Manchester United fylgjast einnig með stráknum
Sigurði Donys, 16 ára gömlum
Vopnflrðingi, hefur verið boðinn
samningur hjá enska úrvalsdeild-
arliðinu Middlesbrough. Enska
liðið bauð Sigurði utan til æfinga
fyrir skömmu og eftir fjögurra
daga veru hjá félaginu var honum
boðinn samningur. Sigurður hreif
Steve McClaren, knattspyrnu-
stjóra Middlesbrough, upp úr
skónum en Sigurður lék einn æf-
ingaleik með 19 ára liði félagsins
og skoraði tvö mörk.
Vitað er um áhuga fleiri liða og
á enskum netmiðlum í gær kom
fram að Newcastle fylgdist vel
með gangi mála og Steve McCl-
aren yrði því að vera fljótur til en
þess má geta að leikmannamark-
aðurinn í Englandi opnast ekki
fyrr en eftir áramótin. Sigurður
staðfesti í samtali við DV f gær að
Manchester United hefði óskað
eftir að fá hann til æflnga fyrir
skömmu en ekki hafi orðið af því
þar sem aðilar hefðu ekki komið
sér saman um tímasetningu. Af
því gæti orðið síðar en Sigurður
er aftur á leiðinni utan til Eng-
lands.
Lék í utandeildinni í sumar
Sigurður lék með Einherja í
sumar í utandeildarkeppninni
auk þess sem hann lék með 3.
flokki félagsins í keppni sjö
manna liða. í fyrravetur lék hann
með Þór frá Ákureyri i íslands-
mótinu innanhúss og það var þar
sem hjólin fóru að snúast og í
framhaldinu var honum boðið ut-
an til æfinga hjá Middlesbrough.
Sigurður hefur æft með 17 ára
landsliði íslands en var ekki val-
inn f hópinn sem keppir í riðla-
keppni Evrópumótsins sem fram
fer hér á landi um helgina. Hann
tók sér frí frá skólanámi í vetur
og vinnur í sláturhúsinu á Vopna-
firði þessar vikurnar.
Spenntur fyrir aö leika er-
lendis
„Það var mjög spennandi að
æfa með Middlesbrough og mér
gekk bara vel á æfingum og eins í
æfmgaleiknum sem ég tók þátt í.
Enska liðið bauð mér samning áð-
ur en ég fór heim en ég vil hugsa
mitt mál áður en ég tek ákvörðun
um slíkt. Ég er hins vegar mjög
spenntur fyrir því að leika erlend-
is en tíminn á eftir að leiða þetta
allt saman i ljós. Middlesbrough
hefur boðið mér aftur til æfinga í
sex vikur og fer ég aftur utan eft-
ir hálfan mánuð,“ sagði Sigurður
Donys í samtali við DV.
Hann sagði að Newcastle hefði
einnig fylgst með sér þegar hann
lék umræddan æfíngaleik og
Manchester United hefði boðið
honum að æfa með félaginu en
það hefði ekki gengið eftir. Hann
sagðist vita að United myndi fylgj-
ast með honum þegar hann færi
aftur til Middlesbrough.
Atvinnumaöur eöa á leik-
skóla eins og mamma
„Ég hef svona innst inni gengið
með það í maganum að gerast ein-
hvern tímann atvinnumaður í
knattspyrnu eða þá að vinna á
leikskóla eins og mamma. Ég hef
lengi fylgst með ensku knatt-
spyrnunni og hef fylgt Manchest-
er United að málum og þá sérstak-
lega vegna þess að David Beck-
ham er í miklu uppáhaldi hjá
mér,“ sagði Sigurður Donys.
-JKS