Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 27
MIÐVTKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
51
<
DV
Sport
Stærsti urridinn
á flugu í Veiðivötnum
- síðan veiðar hófust í vötnunum, 12,6 punda
Veiðin hefur verið mjög góð í
Veiðivötnum í sumar og margir
veiöimenn fengið þar fína veiði.
Við fréttum af nokkrum um dag-
inn sem veiddu 20 fallega silunga
og öðrum sem veiddu 35 silunga.
Þetta voru fínar stærðir í silungn-
um.
„Það var meiri háttar að veiða
þennan stóra silung en hann veidd-
ist í Hraunsvötnum á flugu sem er
nefnd Stórfiskaflugan. Ég var ekki
lengi með fiskinn, stuttan tíma,“
sagði Jón Ingi Kristjánsson í sam-
tali við DV-Sport en hann veiddi
stærsta silunginn á flugu síðan
veiðar hófust í Veiðivötnum. Fisk-
urinn var 12,6 punda og veiddist í
Hraunsvötnum.
„Við vorum að veiða þarna, ég
og Ingólfur Kolbeinsson, í Vestur-
röst og við fengum þrjá aðra fiska
þama en þeir voru ekki eins stórir
og þessi stóri bolti. Það er búið að
setja fiskinn stóra í uppstoppun,
enda ekki á hverjum degi sem mað-
ur veiðir svona stóran fisk og það
á fluguna," sagði Jón Ingi enn
fremur.
„Það er alltaf gaman að veiða
þarna í vötnunum og þessi fiskur
hjá Jóni Inga var verulega fallegur
og þéttur. Veiðin hefur verið góð í
sumar þarna inn frá og vænir fisk-
ar til þama,“ sagði Ingólfur sem
ætlaði I Grímsá i Borgarfirði
seinna i vikunni.
Grímsá aö komast í 1.005
laxa
Grimsá í Borgarfirði er að kom-
ast 1 sömu tölu og hún var í í fyrra,
1005 laxa.
Veiðimaður sem var þar fyrir
tveimur dögum veiddi flmm laxa
en lax er aðeins að ganga í ána
enn þá.
Jöfh og góð veiði hefur verið í
Grimsá.
Þverá og Kjarrá enduðu í 1.453
löxum og Norðurá 2.310, sem er
miklu betra í báðum þessum veiði-
ám miðað við árið í fyrra.
Laxá í Kjós bætti sig um 650 laxa
og rosalega mikiö veiddist af sjó-
birtingi, 4 til 8 punda.
G.Bender
Jón Ingi Kristjánsson meö 12,6 punda urriöa sem hann veiddi í Veiöivötnum
fyrir fáum dögum og fluguna sem hefur verið nefnd Stórfiskaflugan.
DV-mynd Ingólfur Kolbeinsson
Magnús Gylfason stjórnar æfingu liösins í gær en í dag mæta íslensku strákarnir liði ísraels á Akranesi kl. 16.
DV-mynd Hari
íslendingar leika í undankeppni EM í knattspyrnu u-17 ára hér á landi:
Stefnum ótrauðir í úrslit
- segir Magnús Gylfason, þjálfari Norðurlandameistaranna
ísland u-17 ára:
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Jóhann Ólafur Sigurðsson
Selfoss
Guðmundur Þórðarson Keflavlk
Aðrir leikmenn:
Aron Bjamason Fram
Hrólfur Öm Jónsson Fram
Kristján Hauksson Fram
Kjartan Ágúst Breiðdal lFylkir
Ragnar Sigurðsson Fylkir
Hiimar T. Amarsson Haukar
Hafþór Æ. Vilhjálmsson ÍA
Kristinn Darri Röðulsson ÍA
Ólafur Þór Berry ÍBV
Helgi Örn Gylfason ÍR
Kjartan Finnbogason KR
Ingólfur Þórarinsson Selfoss
Guðjón Baldvinsson Stjaman
Sigurbjöm Ingimundarson Stjaman
Þórður S. Hreiðarsson Valur
Hjálmar Þórarinsson Þróttur
í dag hefst hér á landi einn riðill
undankeppni Evrópumóts landsliða
í knattspymu, skipuðum leikmönn-
um 17 ára og yngri, en auk íslend-
inga leika ísrael, Sviss og Armenía
í þessum riðli. Stærsti hluti ís-
lenska liðsins varð Norðurlanda-
meistari í þessum aldursflokki í
sumar en lítils háttar breytingar
hafa þó orðið á liðinu síðan. Magn-
ús Gylfason, þjálfari liðsins, sagði
að sér litist vel á komandi leiki og
stefnan væri að komast áfram upp
úr riðlinum en tvær efstu þjóðimar
komast áfram í keppninni.
Sviss og ísrael sterk
íslenska liðið hefur æft vel fyrir
þessa keppni og liðið á erfitt verk-
efni fyrir höndum en Sviss og ísrael
hafa sterkum liðum á að skipa en
lítið sem ekkert er vitað um styrk-
leika armenska liðsins.
„Það er hugur í okkar mönnum
og ég veit að strákamir ætla að
standa sig vel. Svissneska liðið er
ábyggilega mjög sterkt en Svisslend-
ingar léku til úrslita í þessum ald-
ursflokki á Evrópumótinu í fyrra.
Eins veit ég vel að ísraelsmenn era
mjög sterkir en þeir unnu æflnga-
mót á dögunum sem haldið var í
Englandi. Ég hef ekki undir hönd-
um neinar upplýsingar um arm-
enska liðið svo við rennuum blint í
sjóinn gagnvart þeim,“ sagði Magn-
ús Gylfason skömmu fyrir æflngu
liðsins síðdegis í gær.
Magnús sagði að tveir leikmenn
hefðu gengið upp eftir sigur á opna
Norðurlandamótinu í ágúst sl. og
eins væri Skagamaðurinn Ágúst
Örn Magnússon fjarri góðu gamni
vegna meiðsla og væri það skarð
fyrir skildi enda sterkur leikmaður
þar á ferö. Islenska liðið mætir ísr-
ael á Akranesi klukkan 16 í dag en
annar leikur liðsins verður gegn
Sviss í Keflavík á fóstudaginn kem-
ur kl. 16. Lokaleikur liðsins í riðlin-
um verður háður á Víkingsveilin-
um á sunndag klukkan 16.
„Liðið á verðugt verkefni fyrir
höndum og það er ekkert launung-
armál að við stefnum leynt og ljóst
að tveimur efstu sætum riðilsins og
komast þannig áfram í keppninni,"
sagði Magnús.
-JKS
Bland i nolca
Enska knattspyrnusambandiö
greindi frá því í gær að sambandið
myndi setja af stað rannsókn vegna
atburða sem áttu sér stað í leik
Birmingham og Aston Villa á mánu-
dag. Markvörður Aston Villa fékk á
sig allsögulegt mark og í framhaldi af
þvi sáu aðdáendur Birmingham-liðs-
ins sig knúna til að ryðjast inn á völl-
inn þar sem þeir voru með dónalega
tilburði. Þá lenti einn áhorfendanna í
einhverjum handalögmálum við
Steve Staunton, fyrirliöa Aston
Villa. Forsvarsmenn Birmingham
hafa á undanfomum árum átt i vax-
andi vandamálum með hegðun stuðn-
ingsmanna sinna og hefur félagið
birt mynd af höfuðpaurnum á heima-
síðu sinni þar sem þeir fara fram á
það við „raunverulega" stuðnings-
menn sína að j)eir beri kennsl á hann
svo hægt verði að meina honum að-
gang að knattspyrnuleikjum i fram-
tíðinni. Liklegt er talið að Birming-
ham-liðiö fái í þaö minnsta sekt
vegna atviksins en heimaleikjabann
er einnig kostur í stöðunni.
Franz Beckenbauer er ófeiminn við
að viðra skoðanir sínar á mönnum og
málefnum og hafa þær margar falliö
í grýttan jarðveg. Nú hefur hann lýst
þvi yfir að Michael BaUack, leik-
maður Bayem Munchen, sé í það
minnsta jafngóöur og Zidane, ef ekki
betri. Hann sé ekki einungis fimm ár-
um yngri heldur einnig miklu ágeng-
ari við mark andstæðinganna en
franski starfsbróöir hans.
Roy Keane hefur fengið aukalega
tveggja daga frest til að svara fyrir
ummæli sín sem hann setti fram í ný-
legri ævisögu sem kom út á dögunum
og hefur valdið miklu íjaðrafoki í
Englandi. I bókinni lýsir hann því
hvemig hann hafi af ásetningi reynt
að slasa Alf Ingi Haaland, þáver-
andi leikmann Man.City. Ákæru-
atriði knattspymusambandsins em
tvíþætt. Annars vegar er það sá
ásetningur að ætla að meiða leik-
manninn, en hins vegar að segja frá
þvi í bókinni i hagnaðarskyni.
Þaö er einn leikur á dagskrá í Essó-
deildinni í handknattleik í kvöld, en
þá mætast lið Hauka og Gróttur/KR
og fer leikurinn fram á Ásvöllum og
hefst hann klukkan 20.00.
■*.
t
<*