Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Qupperneq 29
MIÐVKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
53
Floro á kunnuglegar slódir
Spænska 1. deildarlið-
ið ViIIarreal, sem lék
gegn FH-ingum í Inter-
toto-keppninni i sumar,
hefur ráðið nýjan þjálf-
ara í stað Victor Munoz
sem rekinn var frá félag-
inu í síðustu viku. Hinn
nýi þjálfari heitir Benito
Floro og er fyrrum þjálf-
ari hjá Real Madrid en
var vikið þar úr starfl
fyrir um tíu árum síðan.
Floro er ekki ókunnugur
hjá Villarreal en hann
þjálfaði liðið fyrir 13 ár-
um þegar það lék í 3.
deild. Hann segist
hlakka til starfsins sem
er spennandi en um leið
mjög krefjandi. Liðið
hefur eitt stig úr
tveimur leikjum í
deildinni. -JKS
Rafpóstur: dvsport@dv.is
Meistaradeild Evrópu heldur áfram í kvöld:
keppni í hverju orði
Maccabi Haifa á Old Trafford
- Rivaldo leikur sinn fyrsta leik með AC Milan
Boltinn heldur áfram að rúlla í
meistaradeildinni í kvöld með
átta leikjum í E-, F-, G- og H-riðl-
um, en það eru mörg stórliðin i
þessum riðlum, á borð við
Juventus, Man.Utd og Bayern
Munchen svo einhver séu nefnd.
Það bíður Bobby Robson og
lærisveina hans í Newcastle
erfitt verkefni í Kænugarði, þar
sem þeir mæta heimamönnum í
Dynamo Kiev. Líklegt er talið að
Robson tefli fram sama liði og
steinlá fyrir Chelsea um síðustu
helgi, sem þýðir að Craig Bella-
my heldur sæti sínu, en hann er
nýstiginn upp úr meiðslum. Ekki
er líklegt að Newcastle ríði feit-
um hesti frá Kænugarði enda er
byrjun liðsins á ensku úrvals-
deildinni ekki glæsilegt, fjögur
stig eftir fimm leiki.
Hinn leikurinn í riðlinum er
viðureign Feyenoord og Juventus
í Rotterdam, en Feyenoord er nú-
verandi Evrópumeistari félags-
liða. Feyenoord hefur byrjað leik-
tíðina vel í Hollandi og lögðu
þeir Twente með sannfærandi
hætti um helgina, en þó verður
fyrirliði þeirra Paul Bosvelt ekki
með í kvöld. Sömu sögu má segja
um Juventus sem sigraði sann-
færandi i sínum fyrsta deildar-
leik á tímabilinu og stilla þeir að
venju upp mjög sterku liði með
þá Edgar Davids, Del Piero, Di
Vaio, Thuram, Pavel Nedved svo
einhverjir séu nefndir.
Neville og Veron inn
í F-riðli tekur Man.Utd á móti
ísraelska liðinu Maccabi Haifa á
heimavelli sínum. Liðið verður
eitthvað breytt frá því í leiknum
Alex Ferguson áhyggjufullur á leik Leeds og Man.Utd á laugardag. Nær hann
liöinu í gang gegn Maccabi Haifa á Old Trafford í kvöld?
gegn Leeds á laugardag og búist
er við því að bæði Gary Neville
og Veron komi inn í liðið að nýju
eftir meiðsli. Enn eru þó fjarver-
andi þeir Paul Scholes, sem er
meiddur á hné, og Roy Keane
sem er enn frá eftir aðgerð á
mjöðm. Ef allt væri eðlilegt ætti
Maccabi-liðið að vera auðveld
bráð, en miðað við gengi
Manchester-liðsins undanfarið
má kannski búast við hverju sem
er úr herbúðum Man. Utd.
Bæjarar til Aþenu
í sama riðli heimsækir Bayer
Leverkusen gríska liðið Olympi-
akos, Þjóðverjarnir léku til úr-
slita í meistaradeildinni á síðasta
keppnistímabili og töpuðu fyrir
Real Madrid. Með gríska liðinu
leikur Christian Karembu sem
áður lék með Real Madrid.
Grikkirnir eru ávallt erfiðir
heim að sækja og það er ljóst að
róðurinn verður erfiður fyrir
Leverkusen sem hefur byrjað
þýsku deildina með skelfilegum
hætti. Liðið tapaði nú um helg-
ina fyrir Hannover, sem flestir
hafa spáð falli úr Úrvalsdeildinni
á þessu keppnistímabili. Nokkra
lykilmenn vantar í lið Leverku-
sen s.s. Nowotny, Placenta og Ju-
an sem allir eru meiddir.
Stórleikur í Munchen
Stórleikur G-riðils er leikur
Bayern Munchen og Deportivo
Coruna á ólympíuleikvanginum í
Munchen. Nær öruggt er talið að
Michael Ballack verði ekki með
Bæjurum í kvöld en hann meidd-
ist í viðureign liðsins gegn Nurn-
berg um helgina. Ballack er þó
þrjóskan uppmáluð og segir: „Ég
mun leika.“ Þá eru blikur á lofti
með Bixente Lizarazu vegna bak-
meiðsla en það verður þó látið á
þau reyna í dag fyrir leik.
Meiðsli setja einnig svip sinn á
lið Coruna fyrir leikinn, en telja
má líklegt að þrátt fyrir meiðsli
stórstjörnu á við Ballack, þá
verði róðurinn erfiður fyrir
Spánverjana, enda er lið Bayern
Munchen einstaklega vel skipað
og vart veikan hlekk að finna.
„íslendingurinn" í kuldann
í sama riðli tekur AC Milan á
móti Lens. Talið er nær öruggt
að Rivaldo leiki sinn fyrsta leik
með ítalska liðinu og að hann
muni koma inn fyrir „íslending-
inn“ Jon Dahl Tomasson, en það
hafa eflaust margir aðdáendur
beðið eftir því að fá að sjá snill-
inginn Rivaldo leika í AC Milan-
búningnum.
Barcelona tekur á móti Club
Brugge á heimavelli sínum, Nou
Camp. Ef allt er eðlilegt ætti
Barcelona ekki að eiga í vand-
ræðum með belgíska liðið, en
Luis van Gaal nær að stilla upp
mjög sterku liði í kvöld með þá
Luis Enrique, Saviola og Klui-
vert fremsta í flokki. Hinn leik-
urinn í H-riðli er viðureign
Lokomotive og Galatasaray en
leikurinn fer fram í Moskvu.
Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir
viðureign Bayern Munchen og
Deportivo Coruna í beinni út-
sendingu kl. 18.30 en að honum
loknum verður sýndur leikur AC
Milan og Lens.
-PS
Taekwondosambandið stofnað
- Snorri Hjaltason einróma kjörinn formaður
Um 50 manns frá ÍBR, HSK,
Fjölni, ÍR, Ármanni, Björkum,
Þór Akureyri og Keflavík sátu
stofnþing Taekwondosambands
íslands, skammstafað TKÍ, í gær.
Taekw.ondosambandið verður
þar með 24. sérsamband innan
ÍSÍ. Mikil einurð og sóknarhugur
einkenndu störf þingsins en
þessi íþróttagrein er í mikilli
sókn og langflestir iðkendur eru
ungt fólk.
Á stofnþinginu var Snorri
Hjaltason einróma kjörinn for-
maður hins nýja sérsambands.
Með honum í stjórn voru kosnir
Jón Ragnar Gunnarsson, Sigur-
steinn Snorrason, Kjartan Sig-
urðsson og Sverrir Tryggvason. í
Patrick Ewing hefur tilkynnt að
hann sé hættur að leika körfuknatt-
leik en hann er einn af 50 bestu
körfuknattleiksmönnum sögunnar i
bandarískum körfuknattleik. Það
kemur í sjálfu sér ekki á óvart að
hann skuli vera hættur en hann lék
I fyrra með Orlando Magic þar sem
hann átti ekki gott keppnistímabil.
varastjórn voru kosin Ari Norm-
andy, Del Rosario, Þórdís Úlfars-
dóttir og Björn Þorleifsson. End-
urskoðendur sambandsins voru
Haukur Bjarnason hefur verið
ráðinn þjálfari Evrópubikarlands-
liðs Noregs í kvennaflokki á skíð-
um og lætur hann þar með af
störfum sem landsliðsþjálfari ís-
lenska skíðasambandsins.
Bestu ár sín átti hann með New
York Rnicks, en hann lék með lið-
inu í 15 ár af þeim 17 sem hann lék
í NBA-deildinni en hann náði aldrei
að veröa NBA-meistari með liðinu.
Eins og áður sagði lék hann eitt ár
með Orlando Magic og þar áður eitt
tímabil með Seattle Supersonics.
-PS
kosnir Friðjón B. Friðjónsson og
Hörður Gunnarsson.
-JKS
Haukur mun hefja störf þann 1.
október en Linda Kristjánsdóttir
mun æfa með norsku sveitinni í
vetur. Þess má geta að Haukur
var þjálfari Kristins Björnssonar
á sínum tíma. -JKS
Patrick Ewing lék 17 ár í NBA.
NBA-deildin í körfuknattleik:
Ewing hættur
Haukur til Noregs
- þjálfar Evrópubikarlið kvenna á skíðum
-íWT"
ltV9QMa'SnC,a
Þar sem
. DraumadeOdt113
VtSTsra^nnUvi6 0V.
Enski bottinn