Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Side 4
4
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Hlutafélag um
Vaölaheiðargöng
Stefnt er að því að stofna hlutafé-
lag um gerð jarðganga undir Vaðla-
heiði og hafa verið skipaðir þrír
nefndarmenn af stjórn Eyþings,
samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, til að undirbúa
stofnun félagsins. Stefnt er að þvi að
stofnfundur verði eigi síðar en i jan-
úarmánuði nk. I nefndinni eiga sæti
Ásgeir Magnússon, sem er formað-
ur, og Kári Amór Kárason, báðir
frá Akureyri, og Helgi Kristjánsson
á Húsavík. Með nefndinni starfar
Pétur Þór Jónsson, framkvæmda-
stjóri Eyþings. Hugmyndin er að
stofnfé félagsins verði allt að 25
milijónir króna sem eins konar
áhættufé, en stefnt er aö því að sem
flest sveitarfélög á svæðinu gerist
stofnfélagar, en þau era 20 talsins.
Samson vill ekkert segja
Aðstandendur eignarhaldsfélags-
ins Samson vilja ekkert blanda sér í
umræður sem skapast hafa í kjölfar
greinar í nýjasta hefti breska tíma-
ritsins Euromoney. Þar er fjaUað
um Landsbanka íslands hf., kaup
Samsonar ehf. á hlut í bankanum og
verkefni sem eigendur Samsonar
hafa fengist við siðustu ár. „í grein-
inni er að finna fjölmargar rang-
færslur og er þar farið afar frjáls-
lega með staðreyndir," segir í yfir-
lýsingu Samsonarmanna vegna
greinarinnar þar sem segir að eðli-
legar efasemdir vakni um ærlegan
tilgang greinarhöfundar og eða
heimildarmanna hans með grein
þessari.
I gær var í Útvarpinu rætt við
Ingimar Hauk Ingimarsson arkitekt
þar sem hann greindi frá samskipt-
um sínum við aðstandendur Sam-
sonar um miðjan síðasta áratug. „Af
því tilefni vill Samson taka fram að
þau mál sem hann drepur á hafa
verið rekin fyrir dómstólum. VUji
Ingimar Haukur Ingimarsson arki-
tekt taka þessi mál upp á ný á þeim
vettvangi verður honum mætt þar“,
segir í yfirlýsingunni.
Kannabis haldlagt
Lögreglan á Akureyri hefur nú tU
rannsóknar tvö fikniefnamál þar
sem haldlögð hafa veriö samtals 334
g af kannabisefnum, 65 e-pUlur,
nokkur e-piUumvdningur og 12 g af
amfetamíni, auk slatta af sveppum.
Fyrra málið kom upp 25. október sl.
er kona á fertugsaldri var handtek-
in i heimahúsi. Rannsókn þess máls
er að mestu lokið.
Síðara málið kom upp sl. mið-
vikudagskvöld er lögreglan handtók
þrjá unga menn í miðbæ Akureyr-
ar. Tveir þeirra voru 16 ára en sá
þriöji á þrítugsaldri. Þeir yngri hafa
ekki komið við sögu fíkniefnamála
en sá þriðji hefur áður komið við
sögu. Hann var í gær úrskurðaður i
viku gæsluvarðhald. Það mál er enn
í rannsókn.
Potturinn 50 milljónir
Lottóvinningur kvöldsins er
sexfaldur og gera menn ráð fyrir að
vinningspotturinn verði á bilinu 45
til 50 miUjónir króna. „Þetta er ansi
há upphæð. Það er þó allt eins lík-
legt þykir mér að vinningsupphæð-
in nú rjúfi fimmtíu milljóna króna
múrinn," sagði Stefán Pálsson,
markaðsstjóri íslenskrar getspár, í
samtali við DV í gærkvöld. Síðast
var vinningsupphæðin á svipuðu
róli í apríl á þessu ári.
Stefán segir að fengin reynsla
segi að búast megi við að biðraðir
verði á sölustöðum Lottósins síðdeg-
is í dag. Slíkt sé hefðin. „Það er bara
um að gera fyrir fólk að mæta á
staðinn og næla sér í miða,“ sagði
Stefán. -GG/sbs
Prófkjör setja svip á helgina:
Félagatala Samfylkingar
hækkað um 40 prósent
Hafnarfjörður:
Matarsending
að norðan
Landsþing hestmannafélaga:
Prófkjör Samfylkingarinnar nær
hámarki í dag og frambjóðendur
eru á ferð og flugi um sín kjör-
dæmi. Félagatala Samfylkingarinn-
ar hefur hækkað um 40% um allt
land að undanförnu og á eflaust eft-
ir að hækka töluvert í dag. Þannig
eru félagsmenn á Siglufirði orðnir
liölega 400 talsins en Siglufjarðar-
listinn, sem Samfylkingin átti aðild
að í síðustu sveitarstjórnarkosning-
um, fékk þá 451 atkvæði. Kosið er í
öllum kjördæmum landsins hjá
Samfylkingunni nema í Norðvest-
urkjördæmi. Þar var ákveðiö að
hafa uppstillingu en sú ákvörðun
olli nokkrum taugatitringi meðal
nokkurra þingmanna flokksins í
þeim þremur kjördæmum sem
mynda nýja kjördæmið.
í Reykjavíkurkjördæmunum
verða atkvæði talin í félagsheimili
íþróttafélagsins Þróttar í Laugardal
og ættu fyrstu tölur að vera kunnar
um kl. 22. í Suðvesturkjördæmi er
taliö í Þinghóli, Hamraborg 11 í
Kópavogi, og ættu fyrstu tölur að
birtast um kl. 22.00. í Suðurkjör-
dæmi er talið á Hótel Selfossi og
fyrstu tölur ættu að vera heyrum
kunnar milli kl. 22 og 22.30, en
kosningavaka Samfylkingarinnar
er hins vegar i Gamla pakkhúsinu,
bak við kaupfélagshúsið á Selfossi.
í Norðausturkjördæmi var póst-
kosning sem er lokið en talið verð-
ur i Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 á
Akureyri, og er vonast til að fyrstu
tölur verði ljósar um kl. 20.
Sjálfstæðismenn í Borgarnesi
Hjá Sjálfstæðisflokki er prófkjör í
Norðvesturkjördæmi en þar berjast
fimm þingmenn um þrjú örugg
sæti, að talið er. Atkvæði verða tal-
in i veitingahúsinu Búðakletti í
Borgamesi og er vonast til að
fyrstu tölur verði kynntar um kl.
20. Prófkjör í Reykjavikurkjördæm-
unum verður eftir tvær vikur en í
öðrum kjördæmum landsins ætla
sjálfstæðismenn að stilla upp fram-
boðslistum. -GG
Mlklð bæklingaflóö
Frambjóöendur í prófkjöri
Samfytkingarinnar hafa verið
duglegir aö kynna sig.
„Norðlenskar konur eru yfir-
höfuð vel vaxnar og ég hef
áhyggjur af holdafari þeirra
hafnfirsku," segir Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, í samtali við DV.
Kristján gekk á fund kollega
síns í Hafnarfirði, vinabæ Akur-
eyringa, i gær og afhenti Lúðvík
Geirssyni bæjarstjóra að gjöf
sperla og annað norðlenskt kjöt-
meti og mjólkurvörur. Allt voru
þetta vörur framleiddar af fyrir-
tækum í höfuðstað Norðurlands
sem eru, að sögn Kristjáns Þórs,
þekkt fyrir framleiðslu á stað-
góðum mat.
Tilefni heimsóknarinnar að
norðan voru fréttir af nýlegri
rannsókn sem sýnir að hafn-
firskar konur eru sýnu léttari en
þær norðlensku.Þá hafa einnig
birst fréttir um að heilinn í
konum á Akureyri væri þungri
en í þeim hafnfirsku. Hvort það
er vegna staðgóðrar fæðu skal
hins vegar ósagt látið.
Kristján sló á létta strengi í
heimsókninni til Lúðvíks og
bætti við: „Síðan eru Hafnfirð-
ingar auðvitað visir til þess að
snúa þessu í hina áttina og færa
okkur eitthvað sem getur grennt
norðlenskar konur. En það er þá
bara þeirra mál,“ sagði bæjar-
stjórinn á Akureyri. -sbs
DV-MYNDIR SIGURÐUR JOKULL
Sperlar, skyr og ijóml
Kristján Þór Júiíusson, bæjarstjóri á Akureyri, kom færandi hendi þegar hann heilsaöi upp á Lúövík Geirsson kollega
sinn í Hafnarfiröi í gær. Noröanmenn hafa áhyggur af holdafari þeirra hafnfirsku.
Þurrkuð epli
Möndlur
Blandaðir
ÞURRKAÐIR ÁVESTIR
Hagnaður af lands-
móti 9 milljónir króna
Frá landsmótl í sumar.
... allt sem þarfí baksturinn!
Hagnaður af Landsmóti hest-
manna 2002, sem haldið var á Vind-
heimamelum i sumar, nemur 9
milljónum króna, samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri sem nú liggur fyrir.
Þetta kom fram í máli Sveinbjöms
Sveinbjömssonar, formanns Lands-
móts hestamanna ehf., á 53. lands-
þingi Landssambands hestamanna-
félaga 2002 sem nú stendur yfir í
Fáksheimilinu í Reykjavík.
í máli Sveinbjamar kom fram að
heildartekjur landsmótsins námu 67
milljónum króna. Að frádregnum
ýmsum kostnaðarliðum var niður-
staðan hagnaöur upp á 9 milljónir
króna. Segja má að þetta sé kúvend-
ing frá fyrri landsmótum sem hald-
in hafa verið. Sem dæmi má taka að
hagnaður á síðasta landsmóti á
Hellu nam um það bil 2 milljónum
króna en tap varð á landsmóti í
Reykjavík sem nam um einni millj-
ón króna. Sveinbjörn upplýsti jafn-
framt að tekist hefði að ná niður
ýmsum kostnaðarliðum, svo sem
varðandi löggæslu og STEF-gjöld.
Fjölmargar tillögur liggja fyrir
landsþinginu. Þær verða afgreiddar
á þingfundi í dag en þinginu lýkur í
kvöld með veglegri uppskeruhátíð á
Broadway sem jafnframt er afmæl-
ishátíð hestamannafélagsins Fáks.
-JSS
Sími:
544 4556
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Símí: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJÓKEÐJUR
Fyrír flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða