Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2002, Page 34
34
H <3 hga rb lod> JO'V LAUCARDAGUR s>. NÓVEMBER 2002
Ætla að
drepa einn
fyrir jól
Ævar Örn Jósepsson gaf nýlega út bæk-
urnar Taxi og Skítadjobb. I viðtali við DV
segir hann frá ást sinni á glæpasögunni,
hinni vangttu auðlind sem leigubílstjórar
eru og rithöfundardraumnum sem hann
hefur gengið með ímörg ár.
Einhvern tímann skrifaði bandaríski blaðamaðurinn
og rithöfundurinn Tom Wolfe að það væri draumur allra
sem tilheyra blaðamannastéttinni að skrifa skáldsögu.
Fyrst myndu ménn reyna sig á gólfinu og þræla út frétt-
um í gríð og erg og að lokum myndu þeir koma sér fyrir
í einhverjum þægilegum kofa uppi í sveit og skrifa bók.
Ævar Örn lét draum blaðamannsins rætast eftir átta ára
starf sem fjölmiðlamaður. Núna í haust koma út tvær
bækur eftir hann. Annars vegar bókin Taxi sem geymir
frásagnir leigubílstjóra og hins vegar glæpasagan Skíta-
djobb sem fjallar um lögreglumennina Árna og Stefán
sem þurfa að leysa dularfullt morðmál í Reykjavík.
„Ég get ekki talað fyrir alla blaðamenn en þetta hefur
verið draumur minn lengi,“ segir Ævar Örn glottandi
þegar ég spyr hann hvort Tom Wolfe hafi haft rétt fyrir
sér.
„Ég hugsa að hálf þjóðin gangi með skáldsögu í magan-
um en ég er með svo stóran maga að ég hef getað gengið
með hana ansi lengi án þess að hún fyndi þörf hjá sér til
að brjótast út. Annars hefur þetta komið svona í bylgjum
hjá mér. Ég hef sest niður ótal sinnum og byrjað að skrifa
sögu en hef haft þá reglu að geyma textann í nokkra mán-
uði og líta síðan aftur á hann - og henda honum umsvifa-
laust. Þangað til núna, sem sagt.“
Latur að eðlisfari
Hugmyndin að Skítadjobbinu kviknaði eitt kvöld sum-
arið 2000 í Mosfellsbænum þar sem Ævar Örn er búsett-
ur. Hann sat fyrir framan tölvuna og skoðaði landakort og
allt í einu fór hann að hugsa um Bilbaó á Spáni.
„Þetta voru svona dagdraumar, og ég skrifaði fyrstu
síður bókarinnar, nokkurs konar formála, út frá þeim.
Þegar ég las þetta aftur um haustið gerðist eitthvað, ekki
spyrja mig hvað eða hvernig, því þetta er nánast ótengt
þvi sem gerist seinna í sögunni, en þetta varð allavega
kveikjan að henni.“
„En af hverju vildirðu skrifa krimma?" spyr ég.
„Ég hef alltaf haft gaman af bókmenntum yfirleitt,"
svarar hann.
„Ég lærði heimspeki og bókmenntafræði í Þýskalandi
og las þar mikið af svokölluðum fagurbókmenntum í
bland við fræðin. En ég leitaöi alltaf í krimmann því ég
er latur að eðlisfari og ég nennti ekki alltaf að vera lesa
þessar heimsbókmenntir. Svo má kannski segja að ég hafi
komist í félagsskap sem ýtti enn frekar við mér. Félags-
skapurinn kallast Hið íslenska glæpafélag og í því er fólk
sem vill veg þessarar bókmenntagreinar sem mestan. Þá
varð ásetningurinn enn meiri og kannski má segja að það
sé ásetningsglæpur að skrifa þessa bók,“ segir Ævar Örn
og bætir við að áhugi hans á glæpasögunni hafi kviknaö
snemma því sem krakki í sveit austur á Héraði hafi hann
lesið Agöthu Christie á dönsku. Ég spyr hann því hvort
Agatha hafi haft áhrif á hann.
„Nei, þvert á móti,“ svarar hann undireins.
„Ég get ekki lesið bækur eftir hana lengur, jafnvel þó
að það sé full hilla undirlögð af bókum eftir hana heima
hjá mér. Ég hugsa að bókin mín passi ágætlega inn í hina
skandinavísku hefð en Norðurlandabúarnir standa að
minu mati fremst í þessari bókmenntagrein ásamt hinum
skoska Ian Rankin og Hákan Nesser, þetta eru gúrúarnir.
Þess verður þó að geta að ég hef ekki lesið glæpasögur frá
sunnanverðri Evrópu eða Kína ef út í það er farið.“
Söguhetjan hlustar ekld á Phil Collins
Það sem greinir Skítadjobb frá öðrum skandinavískum
glæpasögum er ef til vill að Ævar Örn stundar ekki þá
áköfu þjóðfélagsgagnrýni sem oft einkennir sögur höf-
unda frá Norðurlöndunum.
„Það var gert meðvitað," útskýrir hann.
„Það er mjög freistandi að nota þennan vettvang til
þess og ég pota örugglega meira í næstu bók en ég var
orðinn örlítið þreyttur á þessum predikunartóni. Ég beit
það því í mig að einbeita mér frekar að sálarlifi lögreglu-
mannanna og hvernig þeim tekst að takast á við starfið."
Ævar Örn Jósepsson er tveggjabókamaður fyrir þessi jól. Önnur er skáldsaga seni lýsir raunveruleikanum en
hin er safn sannra sagna sem suinar hljóina eins og skáldsögur. DV-mynd E.Ól.
„Og hefur farið mikill tími í að skoða sálarlíf lögreglu-
manna," spyr ég.
„Nei, þetta er skáldsaga," segir hann og leggur áherslu
á síðasta orðið. „Oscar Wilde skrifaði einhvern tímann
ritgerð sem hét Hnignun lyginnar. I henni segist hann
hafa séð menn sitja í British Museum grúskandi í heim-
ildum um viðfangsefni sín án þess að skammast sín og
síðan kölluðu þeir sig skáld. Ég reyni bara að búa til heim
sem mér finnst sjálfum sannfærandi. Með því að lesa
fréttir og ekki síst úr minni eigin reynslu sem blaðamað-
ur veit ég svona nokkum veginn hvernig þessi heimur
virkar en sagan mín er ekki ofurraunsæ. Ef lögreglumenn
lesa bókina hrista þeir örugglega hausinn en sagan min
er skáldskapur og þess vegna hlýt ég að mega skálda."
í þessu ljósi spyr ég Ævar Örn hvort hann eigi ekkert
sameiginlegt með hinni áttavilltu söguhetju og hann svar-
ar á þann veg að eina ályktunin sem ég geti dregið af bók-
inni um höfund hennar sé brennandi áhugi á glæpasög-
um. Eftir smá bollaleggingar um tengsl höfundarins við
aðalsöguhetjuna samþykkir Ævar Örn þó að hann deili
sama tónlistarsmekk og Árni. „Ég læt nú ekki hetjuna
mína hlusta á Phil Collins eða eitthvað í þeim dúr,“ seg-
ir hann og bætir við: „Hún hlustar frekar á Peter Gabriel
og Genesis áður en hann hætti. Og við Árni erum líka
báðir með jarðgerðartunnu í garðinum enda umhverfis-
vænir með afbrigðum.“
Ekki freistandi að þrífa upp ælu
Eins og þegar hefur komið fram er Ævar Örn „tveggja-
bókamaður" fyrir þessi jól. Hin bókin geymir frásagnir
leigubílstjóra í Reykjavík, en eins og allir vita sem hafa
tekið leigubíl hafa þeir frá mörgu að segja enda líklega
séð margt i starfinu og jafnvel meira en þeir kæra sig um
að sjá. Sögurnar eru margbreytilegar, sumar segja frá til-
finningunni að bíða aðgerðalaus á stöðinni í nokkra
klukkutíma en aðrar fjalla um hin sígildu viðfangsefni
skáldskapar, þ.e. kynlíf og ofbeldi. í bókinni sannast klisj-
an að raunveruleikinn er oftast mun meira krassandi en
skáldskapur. Bókin endurspeglar ákveöinn veruleika
enda hafa allir íslendingar úr öllum stéttum einhvern
tímann tekið leigubíl. Og margir hafa gert sig að fíflum.
„Bjarni Þorsteinsson hjá AB hringdi í mig og bauð mér
að taka þetta verkefni að mér þannig að þetta er ekki mín
hugmynd þó hún sé góð,“ segir Ævar Örn þegar ég spyr
hann um tilurð bókarinnar.
„Það voru um þrjátiu bílstjórar sem settust niður með
mér, flestir á BSl, og sögðu sögu sína yfir kaffibolla. Þeir
voru jafn misjafnir og þeir voru margir. Á sumum kjaft-
aði hver tuska en stundum þurfti ég að toga sögurnar úr
þeim með logandi töngum."
„Eru leigubilstjórar vannýtt auðlind?" spyr ég
„Þú sérð að það eru um fimm hundruð leigubílstjórar á
höfuðborgarsvæðinu þannig að þetta er algerlega vannýtt
auðlind. Ef ég væri þannig þenkjandi þá væri örugglega
efni í fleiri sams konar bækur en ég er minnugur þess
hvernig fór fyrir Luc Besson þegar hann gerði Taxi 2 sem
var jafn hræðileg og sú fyrsta var góð.“
„Heldurðu að það fjölgi ekki í leigubílastéttinni eftir
jól,“ segi ég.
„Ég veit það ekki,“ svarar Ævar Örn hlæjandi. „Þeir
segja sjálfir að það sé ekki pláss fyrir fleiri en eflaust
virka sumar sögurnar hvetjandi á unga karlmenn en aðr-
ar munu örugglega virka letjandi. Það er t.d. ekkert mjög
freistandi að eyða föstudagskvöldi í það að þrífa upp ælu
í aftursætinu."
Ætla að drepa einn fyrir jól
„Þetta er bara byrjunin," segir Ævar Örn þegar hann
er inntur eftir því hvort fleiri bækur séu væntanlegar.
„Ég er þegar búinn að drepa einn og stefni að því að
drepa annan fyrir jól þannig að þeir félagar Árni og Stef-
án hafa nóg að gera á næstunni."
„Ertu kominn í draumadjobbið?" spyr ég.
„Veistu, ég held það bara. Mig hefur lengi dreymt um
að geta lifað á því að skrifa bara um nákvæmlega það sem
mér dettur sjálfum í hug. Láta hugann reika, drekka kaffi,
fá mér smók - og skrifa. Það er líka mjög fjölskylduvænt
starf að vera rithöfundur, maður er heima þegar börnin
koma úr skólanum og svona, en það kemur ekki í ljós fyrr
en í vor hvort ég get lifað á þessu. Aðrir glæpasagnahöf-
undar hafa þegar rutt brautina og fólk er farið að fá trúna
á að þetta geti virkað. Ég er því nokkuð bjartsýnn á fram-
tíðina.“
-JKÁ