Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 29
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Helcjarb/aö I>V
29
Gamlar hefðir skína í gegn
Angéica Cantú Dávila segir að jólasiðir í Mexíkó séu
nátcngdir trúnni. „Þegar Spánverjar komu til lands-
ins kristnuðu þeir indíánana í kaþólskum sið og jólin
bera þess sterk inerki þrátt fyrir að gamlar hefðir
skíni í gegn.“
Rússar halda upp á jólin sjötta janúar
Yelena Yershova koni til íslands frá Rússlandi fvrir
fimm árum til að læra bókmenntir og ætlar að ljúka
meistaranámi með þulur sem sérgrein.
Klementínur
besta gjöfin
- segir Yelena Yershova frá Rúslandi
„Ég kom til íslands fyrir fimm árum til að læra ís-
lenskar bókmenntir og lýk að öllum líkindum meist-
aranámi í vor,“ segir Yelena Yershova á góðri íslensku
en með áberandi rússneskum hreim. Yelena er fædd og
uppalin í Moskvu og læröi íslensku við Moskvuhá-
skóla. Hún segist tilheyra rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unni en ekki vera mjög kirkjurækin.
Jólin sjötta janúar
„Rússar halda jólin sjötta janúar en ekki i desember
eins og íslendingar vegna mismunandi dagatals. Rétt-
trúnaðarkirkjan lítur á páskana sem stærri hátíð en
jólin og áramótin hafa einnig meira vægi en jólin í
huga Rússa. Við setjum jólatréð upp rétt fyrir áramót
og gefum hvert öðru gjafir fyrsta janúar."
Yelena segist muna vel þegar hún var barn og vakn-
aði fyrsta janúar og hljóp fram úr rúminu til að sækja
gjöfina undir jólatréð.
„Jólahald hefur breyst mikið á síðustu árum og er
orðið mun vestrænna en áður var. Ég sá til dæmis í
fyrsta skiptið jólaljós í Moskvu í sjónvarpinu í fyrra
þegar fólk safnaðist saman á Rauða torginu með blys
og enn sjást varla jólaljós í gluggunum."
Jólin eldíi til
Yelena segir að í bernskuminningunni séu jólin ekki
Einn dagur fyrir
hvern mánuð
meðgöngunnar
- Angéica Gantú Dávila segir
frá jólasiðum í Mexíkó
„Ég fæddist rétt norðan við höfuðborgina en er alin
upp í Mexíkóborg," segir Angéica Cantú Dáviia sem
kom fyrst til íslands frá Mexíkó sem skiptinemi árið
1986. Hún segist hafa farið heim í rúmt ár en ástin hafi
dregið hana aftur hingað. „Ég kynntist manninum sem
ég bý með á meðan ég var skiptinemi og kom aftur hans
vegna.“
Gainlar hefðir skína í gegn
Angéica segir að jólasiðir í Mexíkó séu nátengdir
trúnni. „Þegar Spánverjar komu til landsins kristnuðu
þeir indíánana í kaþólskum sið og jólin bera þess sterk
merki þrátt fyrir að gamlar hefðir skíni í gegn. Jólasið-
irnir eru því mjög sérstakir og athyglisverðir.
Opinberlega byrja jólin eða posada eins og hátiðin er
kölluð í Mexíkó 16. desember og standa til 24. desember.
Einn dagur fyrir hvem mánuð meðgöngunnar hjá Mar-
íu.
Fyrsta kvöldið er minnt á erfiðleika Jóseps og Maríu
þegar þau komu til Betlehem. Stundum eru nokkrar göt-
ur lokaðar og fólk safnast saman með kerti og stjömu-
ljós og syngur. Fólk gengur á milli húsa og bankar upp
á til að biðja um gistingu eins og Jósep og Maria. Að lok-
um opnar fyrirfram ákveðin fjölskylda dymar og býður
fólkið velkomið. Þegar það gerist hefst veislan með því
til, enda var hún alin upp á trúleysingjaheimili. „En það
var jafnan hátíð heima um áramótin. Mamma hélt fast í
þann sið að hafa borðhaldið klukkan níu á gamlárskvöld
og aftur á miðnætti. Það var yfirleitt kalkúni eða gæs og
kavíar á borðum þar til perestrojka kom þá fengum við
kjúkling og foreldrar mínir settu alltaf upp lifandi og
skreytt jólatré fyrir fjölskylduna rétt fyrir áramótin."
Þegar Yelena er spurð hver sé minnisstæðasta ára-
mótagjöfin frá því að hún var barn, brosir hún feimnis-
lega, lækkar róminn og segir „klementínur". „Ég hef
alltaf haft mikið dálæti á ávöxtum. Ég gat fengið bók
hvenær sem var, það var fullt af þeim á heimilinu, en
klementínur fékk ég bara um áramótin."
Afi Frosti og Snjóinærin
Annars vegar eru áramót sem allir halda hátíðleg og
hins vegar rússnesku jólin sem eru fyrst og fremst
kirkjuhátíð fyrir trúað fólk. Þeir sem sækja kirkju fara
í tvær til þrjár guðsþjónustur sama daginn og þegar
þeirri síðustu er lokið er borðuð hátíðarmáltíð.
Trúleysingjarnir líta á jólin hjá rétttrúnaðarkirkjunni
meira sem tilefni til að koma saman og gera sér glaðan
dag því sjötti janúar er almennur frídagur.
Rússland er gríðarlega stórt land með mörgum
þjóðabrotum og því ekki hægt að setja alla Rússa undir
sama hattinn.
Að sögn Yelenu eiga Rússar þjóðsagnapersónu sem
nefnist Afi Frosti og tengist áramótunum og færir
börnum gjafir á nýársnótt.
„Hann er með mikið silfurlitað skegg og í fylgd með
honum er ung og falleg snjómær í fölbláum kjól. Það var
Pétur mikli sem innleiddi Afa Frosta og Snjómeyna i
rússneska menningu. Hann eyddi hluta ævinnar í
Hollandi og komst í kynni við jólasveininn þar og
jólasveinninn er fyrirmyndin að Afa Frosta. Pétur flutti
líka áramótin tO samræmis við vestræna venju en í
gamla daga voru þau fyrsta mars. Honum var mikið í
mun að flutningurinn tækist vel því hann skipaði svo
fyrir að fólk skyldi skemmta sér á nýju áramótunum,
drekka og dansa dátt.“ -Kip
að fólk slær „köttinn úr tunnunni" eða pinata eins og
það heitir á spænsku. Pinata er sjö arma stjarna sem
táknar dauðasyndirnar sjö.“
Að sögn Angélicu hafa börnin mjög gaman af því að
slá pinata. „Það er bundið fyrir augun á þeim til að sýna
fram á blindu og ráðaleysi mannsins án guðs og prikið
táknar hið slæma í heiminum. Þegar stjarnan brotnar
hrynur niður ýmislegt góðgæti sem tákn um sigur
mannsins yflr syndinni og eftir það safnast fjölskyldan
saman og borðar hátíðarmáltíð."
Nacimiento
Posada nær hámarki með fæðingu Jesúbamsins 24.
desember en þá safnast fólk sama í miðbænum með söng
og dansi. „Fólk fer í stutta messu klukkan ellefu um
kvöldið og að henni lokinni er máltíð. í seinni tíð eru
Mexíkanar famir að setja upp jólatré og jólasveinninn
kemur 24. desember og fólk opnar gjafimar tuttugasta og
fimmta en samkvæmt gamalli hefð í Mexíkó koma vitr-
ingarnir þrír 6. janúar og þá fá börnin líka gjafir. í
gamla daga setti fólk upp lítil hús 16. desember sem kall-
ast nacimiento og tók þau niður 6. janúar. Nacimiento er
skreytt með litlum dýrum og brúðum sem líkjast vitring-
unum og Jósep og Maríu en samkvæmt hefð er Jesú-
bamið ekki sett í húsið fyrr en 24. desember."
Þegar Angélica er spurð um áramótin í Mexíkó lifnar
yfir henni og hún hrópar „æðislegt". „íslendingar tala
mikið um hvað þeir skjóta upp miklu af flugeldum um
áramótin en það gera Mexíkanar líka, að minnsta kosti
í höfuðborginni.“ -Kip
Gefóu henni eitthvab unaðslegt í jólagjöf
Vorum aðfá nýja sendingu af unaðslegum jólagjöfum.
Afgreiðslutími fyrir jól:
laugardaginn 21/12 10-22
sunnudaginn 22/12 13-22
þorláksmessu 23/12 10-23
aðfangadag 10-13
Rómeó & Júlía
Askalind 2, 201 Kópavogur
Established in Switzerland 1895
„Margir heillast
af útliti og fegurð
ROTARY úranna."
Útsölustaðir:
Helgi Sigurðssoti, Skólavörðustíg 3.
Gullstniðja Óla, SmúralincL
Jens, Kringlunni.
Georg Hatinab, úrsmiður, Keflavík.