Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 71
l_A.UGARDA.OUR 21. DESEN/IBER 2002
11 I c) a rb la ö I>V
75
Myndagátur
Myndirnar tvær virð-
ast við fyrstu sýn eins
en þegar betur er að
gáð kemur íljós að á
annarri myndinni hef-
ur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi
fimm atriði skaltu
merkja við þau með
krossi og senda okkur
ásamt nafni þfnu og
heimiUsfangi. Að
tveimurvikum liðnum
birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
Verðlaun:
United
ferðageislaspilarar
með heyrnartólum frá
Sjónvarpsmiöstöðinni,
Síðumúla 2, að
verðmæti 4990 kr.
Vinningarnir verða
sendir heim til þeirra
sem búa úti á iandi.
Þeir sem búa á
höfuðborgarsvæöinu
þurfa að sækja
vinningana til DV,
Skaftahlíð 24.
Ég verð að búa mig undir svona legu þar sem sagt er að
helmingur karlmanna endi hjá sálfræðingi eftir meira en 20
ára hjónaband.
Svarse&lll
Nafn:_________________________________;_______________
Heimili:______________________________________________
Póstnúmer:----------Sveitarfélag:--------------:------
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? nr. 697,
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík.
Verðlaunahafi fyrir getraun nr. 696:
Júiía Guöjónsdóttir,
Skiphoiti 51,
105 Reykjavík.
Lífiö eftir vinnu
• T ónleikar
■Sænskt á Hverfisbarnum
Svínn Stefan Larson verður með tónleika á
Hverfisbarnum í kvöld kl. 21. Stefan hefur
tekið skiptiönn í lögfræði í Háskóla Islands nú
í haust en heldur nú til síns heima.
BKór Langholtsskirkiu
Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju verða kl. 23. Auk Kórs Langholts-
kirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju á
tónleikunum. Kórinn býður tónleikagestum
upp á jólasúkkulaði og piparkökur í hléi. Ein-
söngvarar verða Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig koma fram
einsöngvarar úr röðum kórfélaga og hljóðfæra-
leikarar leika með kórunum. Stjórnandi er Jón
Stefánsson.
BLúðrasveitin Svanur
Jólatónleikar Lúðrasveitarinnar Svans verða
haldnir í dag kl. 16 í Ými tónleikahúsi. Rutt
verða ýmis þekkt og óþekkt jóla- og hátíðar-
tónlist. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Tónleikar I Fríkirkiunni
Nú fagna himins englar er yfirskrift tónleika
sem fram fara í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 17.
Þar koma fram söngvararnir Margrét Slgurðar-
dóttir, Edda Hrund Harðardóttir, Hafsteinn
Þórólfsson og Þorbjörn Sigurðsson sem
einnig leikur á gítar en Anna Rún Atladóttir
leikur á píanó. í sumum lögum mega gestir
giarnan taka undir og boðið er upp á léttar
veitingar í hléi.
■15:15 að kvöldi til
Kl. 22 verða áttundu og síðustu tónleikar
15:15 syrpunnar á Nýja sviöi Borgarleikhúss-
ins undir yfirskriftinni Næturtónleikar á vetrar-
sólstöðum. Slagverkshópurinn Benda ásamt
gestum mun þá flytja þrjú tónverk: „Rain Tree"
fyrir þrjá slagverksleikara og „Litany" fyrir pí-
anó eftir japanska tónskáldið Toru Takemitsu
(1930-1996) og „Dream Sequence (Images
II)" eftir Bandarikjamanninn George Crumb
(1929). Flytjendur verða Steef van Ooster-
hout, Pétur Grétarsson, Eggert Pálsson,
Snorri Sigfús Birgisson og gestir.
■Jólasóngvar í Langholtskirkiu
Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar Kórs Lang-
holtskirkju verða haldnir kl. 23. Auk Kórs
Langholtskirkju syngur Gradualekór Langholts-
kirkju á tónleikunum. Kórinn býður tónleika-
gestum upp á jólasúkkulaði og piparkökur í
hléi og finnst mörgum gott að koma í Lang-
holtskirkju og hlusta á falleg jólalög eftir
búðaráp kvöldsins.
■Mozart við kertaliós
Kammerhópurinn Camerarctica heldur nú
sína tíundu kertaljósatónleika en hópurinn
hefur frá árinu 1993 haldið siíka tónleika síð-
ustu dagana fyrir jól. Leikin er Ijúf tónlist við
kertaljós í Dómkirkjunni í Reykjavík I kvöld,
kl. 21, og eru þeir um klukkustundarangir. í
lok tónleikanna verður að venju leikinn jóla-
sálmurinn „I dag er glatt i döprum hjörtum"
sem einnig er eftir Mozart.
■Megasukk á Grand Hokk
Nú situr enginn heima í kvöld því það er boðið
upp á stórfenglega tónleika á Grand Rokk.
Megas og Súkkat mætast enn og aftur undir
nafninu Megasukk. 1.200 kr. inn og léttar
veitingar í boði. Tónleikarnir hefjast á mið-
nætti.
•Uppákomur
■Stærsta blót ásatrúarmanna
Jólablót ásatrúarmanna verður haldið i hús-
næði félagsins að Grandagarði 8 í kvöld. Jóla-
blótið er stærsta hátíð ásatrúarmanna og
verður mikið um dýröir á blótinu. Blótið hefst
með Ijósaathöfn sem sérstaklega er ætluð
börnunum og undir borðhaldi verður skemmt
með rímum, rappi ogfrásögnum. Meðal þeirra
sem koma fram eru kvæðamaðurinn Stelndór
Andersen, rappararnlr Erpur og Eyjólfur Ey-
vlndarsynir, Hllmar Örn Hilmarsson, Þorri Jö-
hannsson, Jóhanna Harðardóttir og Eyvindur
Eyþórsson. Húsið verðuropnað klukkan sjö en
borðhald hefst klukkan átta. Aðgangseyrir er
1500 krónur fyrir fullorðna en 750 krónur fyrir
börn eldri en 12 ára.
J ólaþr au tir
og j ólamót
Að venju skulum við líta á tvær
jólaþrautir yfir jólahelgina en
lausnirnar munu birtast í næsta
þætti.
1. Sveitakeppni
S/A-V
Suður Vestur Norður Austur
4 ÁK53
*> K85
♦ 763
* ÁD2
♦ DG10972
V ÁD2
-f ÁD42
* -
14 pass 2 grönd* pass
4*** pass 4 4 pass
64 pass pass pass
* Geimkrafa og flóriitarstuðningur í spaða
** Eyöa í laufi
Vestur spilar út spaðafjarka.
Félagi þinn var fljótur að segja
Qóra spaða eftir að þú sýndir
eyðu í laufi:
Hann ályktaði sem svo að ÁD
í laufi væru ekki eins þýðingar-
mikil og hann vænti.
Það er sorglegt að hann skuli
eiga hjartakóng frekar en tígul-
kóng, en þá væri slemman upp-
lögð.
Auðvitað eru engin vandræði
ef tígulkóngurinn liggur fyrir
svíningu.
Sérðu einhverja leið til að
bæta möguleikana?
2. Sveitakeppni
S/A-V
4 542
V K76
♦ 8742
4 Á85
4 ÁKD87
* ÁD4
f Á
4 KD43
Suður Vestur Norður Austur
2 4 pass 24 pass
24 pass 3 4 pass
44 pass 4 44 pass
44 pass 54 pass
64 pass pass pass
Vestur spilar út tíguldrottn-
ingu.
Þú drepur á ásinn, tekur ás og
kóng í trompi en vestur er ekki
með.
Þetta er ágætis slemma og
ágæt sagnröð. Þótt norður ætti
ás og kóng þá vildi hann ekki
segja tvö grönd og hætta á að
enda sem sagnhafi með sterku
höndina upp í loft. Betra að segja
biðsögn og reyna að bæta það
síðar. Eftir að þú sýndir spaðalit
og hann tók undir, hann sýndi
hjartafyrirstöðu, og þú slóst af í
geimi, þá reyndi hann enn þá
með fimm laufum.
Augljóslega eru engin vand-
ræði ef laufin liggja 3-3. Geturðu
fundið leið til vinnings ef þau
liggja illa?
Jólamót
Jólamót Bridgefélags Hafnar-
fjarðar og Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar verður spilað föstudag-
inn 27. desember.
Jólamót Bridgefélags Reykja-
víkur og SPRON verður spilað
sunnudaginn 29. desember og er
þátttakan skorin niður við 60
pör. 4»
Vegleg verðlaun eru veitt í
báðum þessum mótum. Gleðileg
jól.