Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Qupperneq 43
að fjalla um ReykjavíkurflugvöU í
Bylgjufréttum og deilurnar varðandi
staðsetningu hans í framtíðinni. Jók
hún sífellt lestrarhraðann eftir þvi
sem á fréttina leið, þar til hún fór á
endanum fram úr sjálfri sér og sagði
undir lok fréttarinnar:
„Vinstri greiningin hreint fram-
boð hefur boðað til fundar um flug-
vallarmálið ..."
Augnaðgerðin
Það var óhemju mikið að gera á
Vísi í tengslum við alþingiskosning-
arnar 1979. Birtar voru myndir af öll-
um helstu frambjóðendum flokkanna
um allt land og annaðist Jens Alex-
andersson á Ijósmyndadeildinni úr-
vinnslu myndanna fyrir blaðið.
Þurfti hann vitaskuld að lagfæra eitt
og annað, svo að prentgæði þeirra
yrðu sem best, og dó þá aldrei ráða-
laus.
Mitt í þessu kosningaamstri fékk
Jens í hendur andlitsmynd af fram-
bjóðanda úti á landi, sem virtist alls
ekki nægilega vakandi yfir framhoði
sínu að mati ljósmyndarans, enda
var annað auga hans lokað. Jens tók
sig því til og „opnaði“ það, vitaskuld
með tækni þessa tíma. Skemmst er
frá því að segja, að „uppskurðurinn"
tókst vel, en daginn sem þessi mynd
birtist í Vísi voru símalínumar hins
vegar rauðglóandi á skrifstofu blaðs-
ins. Umræddur frambjóðandi var
nefnilega eineygður.
íkomamir
Það var einnig í morgunþætti
Bylgjunnar. Þorgeir Ástvaldsson,
annar stjórnandi þáttarins, las upp
úr Morgunblaösfrétt í rauðabítið og
greindi þannig frá innihaldi hennar í
fyrstu, að hlustendur héldu vafalítið
að undur og stórmerki hefðu gerst í
Rússlandi. Samkvæmt upplestri
hans, þá höfðu nýlega fundist fjögur
hundruð ára gamlir íkornar þar í
landi og hafði hann lesið meira en
helming fréttarinnar þegar honum
urðu ljós mistök sín. í fréttinni var
nefnilega ekkert minnst á þessa
dýrategund, heldur fjallaöi hún um
fund á fjögurra alda gömlum íkon-
um, en það munu vera grísk-kaþólsk-
ar helgimyndir.
Svín og mjólk
Ævar Kjartansson, þulur og dag-
skrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarp-
inu til margra ára, átti einhverju
sinni að lesa auglýsingu frá Kjötbúð
Tómasar, þess eðlis, að þar fengjust
í fréttam cr þetta helst
ný svínarif. Ævari urðu hins vegar á
smávægileg mistök við lesturinn og
hljómaði auglýsingin svo:
„Nýtt svínarí! Kjötbúð Tómasar."
Skemmst er frá því að segja, að
kjötbúðin fylltist á augabragði af
fólki á öllum aldri, enda vildi enginn
missa af svínaríinu og ekki harmaði
starfsfólk búðarinnar þennan mis-
lestur Ævars - sem vonlegt var, mið-
að við athyglina sem þessi auglýsing
vakti.
Kalið
Eitt vorið þegar miklar fréttir bár-
ust úr Eyjafirði um verulegt kal í
túnum var Stefán Jónsson, frétta-
maður hjá Ríkisútvarpinu, orðinn
svo leiður á að skrifa um kal-
skemmdirnar, að í einni frétt breytti
hann orðalaginu og skrifaði að það
væri „mikið tal í kúnum“.
Jón Múli las þetta síðan upp fyrir
alþjóð án þess að hika.
Klámsstaðir
Ósjaldan voru sagðar fréttir i út-
varpinu af ræktunarafrekum Klem-
enzar á Sámsstöðum. Þegar Stefán
Jónsson fréttamaður pantaði símtöl
við Klemenz í 02, þá bað hann ávallt
um Semens á Klámsstöðum - og fékk
samband.
Hauslausir Kóreumenn
Jörundur Áki Sveinsson knatt-
spyrnuþjálfari var einn af fjölmörg-
um fótboltaspekingum sem íþrótta-
fréttamenn Stöðvar 2 og Sýnar höfðu
sér til halds og trausts í lýsingum frá
siðustu heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu. Hafði hann vitaskuld
margt til málanna að leggja, eins og
þetta, sem skaust út úr honum í
viðureign Suður-Kóreu og Póllands:
„Þótt Kóreumennirnir séu höfðinu
styttri þá eru þeir að vinna alla
skallaboltana."
Ragnheiður Ásta syngur með
Pavarotti
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir var
einhverju sinni á vakt þegar leikið
var lagið „0 sole mio“ með Luciano
Pavarotti. Ragnheiður Ásta lifði sig
inn í tónlistina og söng með af hjart-
ans lyst inni í stúdíóinu. Þegar lagið
var að enda tók hún eftir þvi að hún
hafði gleymt að setja hlétakkann á,
græna ljósið hafði logað allan tím-
ann og söngur hennar því borist út
til hlustenda um leið og söngur
Pavarottis. En gamall og reyndur
þulur lætur slíkt ekki á sig fá. Ragn-
heiður Ásta afkynnti ofur rólega:
„Luciano Pavarotti og fleiri sungu
„0 sole mio“.
Raggi Bjama
Hinn ástsæli dægurlagasöngvari,
Ragnar Bjarnason, stjórnaði um tíma
útvarpsþætti á FM 957. Fékk hann
ýmsa góða gesti í spjall og kom það
eitt sinn í hlut Júlíusar Vífils Ingv-
arssonar óperusöngvara. Var glatt á
hjalla hjá Ragga og Júlíusi, hinn síð-
arnefndi reytti af sér hvern brandar-
ann af öðrum úr óperuheiminum og
veltust þeir um af hlátri, allt þar til
þættinum var í þann veginn að
ljúka. Þá gerðist Raggi alvörugefinn
og sagði:
„Svona í lokin, Július, segðu mér
nú frá einhverju sniðugu sem skeði i
óperunni!“
Nokkur mismæli sjónvarps-
fréttamanna - í beinni útsend-
ingu
Heimir Már Pétursson;
„Heilbrigðisráðherra tók
ákvörðunina að höfðu samrœði við
lœkna. “
Kolfmna Baldvinsdðttir:
„Ekki er vitað um upptök eldsins,
en fólk sem bjó í næsta húsi kallaði
á slökkviliðið frá Patreksfirði, sem
er 60 kílómetra frá, og var slökkvilið-
ið brunnið þegar það kom.“
Telma Tómasson;
„Fœrð hefur hvergi komið í veg
fyrir að kjósendur kœmust á kjör-
stað. “
Auöun Georg Ólafsson:
„Kvennalistinn heldur áfram eng-
um þingmanni.“
Haukur Hólm;
„Eins og sést, er ekkert að sjá. “
Sagt í blindbyl á Hellisheiði.
Elís Poulsen, fréttaritari Stöðvar 2
í Færeyjum:
„Allir limir eru harðir í verkfall-
inu.“
Er ekki færeyskan dásamleg?
Edda Andrésdóttir;
„Og talandi um snáka, hingað
er mœttur Halldór Runólfsson yf-
irdýralœknir til að rœða um
hrossasóttina. “
Það er svo Sigmundur Ernir Rún-
arsson sem slær botninn í þetta með
eftirfarandi áminningu:
„Við minnum á ellefu fréttir sem
hefjast stundvíslega klukkan 22.30.“
LAUCARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Hcí/cjct rb/ticJ DV
4~7
I Europris bjóðum
eingöngu svínakjöt
nýreyktir 1. fl. gæði
Nýtt svínakjöt í úrtfali
StfínalunJir
Nautalundir
Kalkúnn
Hátíðakjúklingur
1.fl. nýir og ófrosnir
úrbeinaður
úrbeinað
6 strengja
Stór handmáluð
Mörg mótív
í gylltum ramma 70 x 80 cm
mnmmmm
HAMBORGARHRYGGIR
SVINABOGAR
OLIUMALVERK
OPIO
í dag 10-22
Sunnuaag 10-22
Þorláksmessu 10-23
Aðfangadag 10-14
iim
250gr. €1