Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 50
H & Iga rb iað 3D»V LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Snjókeðjur fyrir öil farartæki.... Aðeins vara frá viðurkendustu framleiðendum Tellefsdal - Trygg - OFA Gunnebo- Weed ^iMEUUUfLttm einum grænum 04 Smiöjuvegur 8 - Kóp § Sími: 577 6400 1 Skuggaleg jól Jólin eiga sínar skugga- hliðar þi/íþau eru ekki bara hátíð Ijóss og friðar. Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Þetta vita menn. En alls staðar þar sem er ljós þar eru skuggar og andhverfa friðar er ófriður. Við skulum skyggnast bak við bjarta og friðsæla framhlið jólanna og sjá hvað leynist í skúma- skotum aðventunnar, hverjar eru skuggahliðar jólanna. Jólin grafa undan skógrækt Á hverju ári eru 6-10 ára gömul grenitré höggvin upp í stórum stíl og þar lýkur þeirra háleita hlutverki við að klæða landið. Þeim er rótslitnum komið fyrir í áhaldi sem heitir jóla- trésfótur og litur út eins og pyntingartæki frá miðöldum. Tré eru lifandi verur sem liggja í dvaia á köldum vetri en rumska í stofuhitanum örkumluð, klemmd í járnþvingur og þar er murkað hægt úr þeim lífið með stopulli vatns- gjöf. Undir áramót er tréð örent og því er hent á öskuhaugana á þrettándanum. Það er síðan kurlað niður í trjámusl sem er dreift á skógar- stíga til skrauts. í ljósi þeirrar áherslu sem lögð er á skógrækt og starf gegn landeyðingu á íslandi er þetta einkennilegt framferði. Sennilega væri betra að vernda landið með því að neita sér um jóla- tré og bjarga þannig einu rofabarði um hver jól. Líklega gengi starf skógræktarmanna hraö- ar ef jólahald tefði ekki fyrir þeim í þeim mæli sem nú er. Jólin brjóta sjálfsmyndina Á jólum borða sennilega flestir meira en þeir ætluðu að gera. Hærra hlutfall dýrafitu og syk- urs í fæði okkar samfara hreyfingarleysi við bóklestur vinna gegn yfirlýstum manneldis- markmiðum og gera þrotlaust starf fjölda fólks á þrekhjólum mánuðum saman að engu. Það hlýtur að vera til þess fallið að brjóta niður sjálfsmynd þeirra sem berjast við aukakílóin og fara á sérstakt átaksnámskeið á aðventunni að standa þrútin og bólgin á ann- an í jólum og komast ekki í jólakjólinn vegna vökasöfnunar • eftir allan salta og reykta matinn. Sá sem er dapur leitar huggun- ar og hvar finnst hún nema í smákökuboxun- um og jólakonfekts- bingnum sem var gerð- ur í örvæntingarkasti til þess að þjappa fjöl- skyldunni saman því jólin eru hátíð fjöl- skyldunnar. Það elur á beiskju og depurð að þurfa að ganga um verslanir á að- ventunni og neita sér um alla sælgætismolana og gómsætu sýnishornin sem frávita sölumenn ota að vegfarendum. í hverju umframkílói af fituvef eru átta þúsund kaloríur sem eru ígildi þriggja daga samfellds sveltis svo þarna þarf mikið starf og óeigingjarnt. Allt þetta brjóta jólin niður og þjóðin fitnar jafnt og þétt. Jólin gera ganialt fólk dapnrt Samkvæmt nýlegum fregnum Ólafs áður landlæknis eru 75% gamals fólks sem dvelur á stofnunum á þunglyndislyfjum. Fátt talar gam- alt fólk meira um en peninga og sérstaklega nískulegar bætur og ellilaun. Það fær engan þrettánda mánuð og verður því að neita sér um að gefa flestum sem því finnst vænt um eitt- hvað í jólagjöf. Slíkt eykur engum gleði og þeim hlýtur að fjölga á aðventunni sem auka við sig lyfjaskammtinn eða ganga í raðir pillu- ætanna. Á aðventunni má enginn vera að því að heimsækja gamla fólkið og hjálpa því við að umbera jólin. Það húkir aleitt á rúmi sínu und- ir flóði auglýsinga um aðventukvöld, skemmt- anir og jólatilboð. Þegar jólaboðið árlega rennur svo upp er gamalmenni fjölskyldunnar sótt á fjórhjóla- drifnu bílaláni frá Glitni og drifið í fjölskyldu- boðið til að lina sektarkennd ættarinnar yfir vanrækslu ársins. Þar er flaumósa, illa baðað gamalmenni kynnt fyrir helstu afkomendum sínum í þrjá eða fjóra ættliði og reynt að stappa í hann eða hana sem mestu af hangi- kjöti, smákökum og konfekti og æpt á hann nýjum fréttum af atvinnu, gjaldþrotum og hjónaskilnuðum hópsins. Svo er trillað með afa aftur á Grund þar sem hann verður næstu 11,9 mánuði. Þannig minna jólin þá öldruðu á það hvernig þeir hafa verið settir til hliðar og eru öllum gleymdir að mestu. Jólin valda þannig depurð og uppnámi hjá flestu gömlu fólki og auka þörf þess fyrir þunglyndislyf. PÁÁ/sm Fyrst og fremst nmmm 9.900 Magnús Ver Magnússon Sterkasti maður heims, fjórum sinnum Ég vei Sekonda af því að þau eru sterk, traust og á fínu verði. Varist dýrarl e f t i r I í k i n g a r Útsölustaðir: Helgi Sigurðsson, Skólavörðustíg 3. Gullsmiðja Óla, Smáralind. Jens, Kringlunni. Georg Hannah, úrsmiður, Keflavík. '---~ —4fl* tStæsMmar z GjstWir : Hladborö Jólasveinar : Jólasöngvar Kvikmyndir = : Messur f>lc>,l:«L*«'fSáiilinnisa»r : Sk|ámyndir Sc»gi«jir ; TTók»Til«>ilc4ar ; TTó«r»lis* Uppskriftir JoIí:*)gijí»-*:£'»t»«*r»cifc»c»lc DV www.j ol.i s SUÐURNESJAMENN SAGA SJAVARUTVEGS 1 „Saga Jóns Þ. Þór er afar vel unnin og skipuleg ... Lesandinn er svo óendanlega miklu nær eftir lesturinn ... Það er hreinlega eins og ný Islandssaga hafi verið skrifuð ..." Hjörtur Gislason Mbl. 18. des. 2002 PIXEL PLU S Ótrúlegt ^satt Nýja Pixel Pius tæknin frá Philips kallar fram mun betri myndgæði en áður hefur þekkst. (jý Heimilistæki 32" Philips Pixel Plus tækið hefur sópað að sér verðlaunum og fékk nýverið EISA verðlaunin sem besta sjónvarp Evrópu 2002-2003. UMBODSMENN UMLANDALLT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.