Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Page 2
2
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Fréttir
1DV
Áhrif storksins á starfsfólk Húsdýragarösins?
Þpíp stapfsmenn
eiga von á böpnum
Þrír starfsmenn Húsdýragarðsins í
Laugardal eiga von á bömum og er
þetta allríflegt hlutfaU því starfsmenn
eru aðeins rétt á annan tuginn. Auð-
vitað er þetta tengt þeirri staðreynd
að ailt fór af stað eftir að storkurinn
Styrmir varð heimilisfastur í garðin-
um. Mörgun var kennt í æsku að
storkamir komi fljúgandi með iitlu
bömin. Þama er um að ræða tvær
stúlkur og karlmann sem á von á
bami með konu sinni.
Það er annars af storkinum að
segja að hann er gestur garðsins síð-
an í desember og sagði Tómas Guð-
jónsson, líffræðingur og forstöðumað-
ur garösins, að storkurinn væri ekki
ánægður með prísundina en engu að
síður hefði hún orðið honum til lífs.
„Þaö hefur verið gaman af að hafa
DV-MYND GVA
Segiö svo að storkurinn
komi ekkl meö börnin
Hér má sjá þrjá starfsmenn
Húsdýragarösins í Laugardal sem
allir eiga von á börnum. Þaö eru þau
Berglindi Ágústsdóttir, dýrahirðir,
Sigrún Gréta Helgadóttir, kennari t,
báöar komnar meö barn í maga.
Meö þeim á myndinni er Einar Þór
Karlsson, markaösstjóri, sem aö
vísu er sjátfur ekki óléttur, en á von
á barni meö konu sinni.
storkinn, en hann verður örugglega
feginn þegar hann losnar úr prísund-
inni. Við héma verðum fegin hans
vegna að sjá hann fljúga í frelsið,"
sagði Tómas. Styrmir, sem reyndar
enginn veit hvers kyns er, er í góðu
formi. Hann flögrar um nýja flökku-
fuglabúrið og æfir sig í flugi, einkum
þegar blæs. Hann er styggur og laðast
ekki að gæslumönnum.
Fuglinn er í umsjá umhverfisráðu-
neytis og fuglafræðinga á vegum
ráðuneytisins. Tómas sagði að eflaust
yrði Styrmi storki sleppt í frelsið í
næsta mánuði, þegar storkar koma
almenn til Norðurlandanna. Þá yrði
að fljúga með hann til Danmerkur og
sleppa honum innan um aðra storka,
sem þá eru að koma frá Afríku.
Húsdýragarðurinn hefur fengið
fjölda ábendinga um storka hér og
þar síðan Styrmir kom til landsins.
Einn maður eltist við stork í Grafar-
voginum á bíl sinum. Þama hefur
verið um að ræða gráhegra, flökku-
fugla sem eru ekki ólíkir storkum í
útliti á jörðu niðri, en gjörólíkir á
flugi.
Metaðsókn hefur verið að Hús-
dýragarðinum undanfama mánuði.
Eflaust á storkurinn sinn þátt í því
sem og ágætt vetrarveður. -JBP
Seðlabankastjóri:
Varar við léttúð
um verðbólgu
Birgir ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri sagði á aðalfundi
bankans í gær að vissulega hefði
náðst ánægjulegur árangur í ís-
lenskum efnahagsmálum með því
að sigur vannst á verðbólgunni.
„Ég get hins vegar ekki látið hjá
líða að nefna það hér að mér flnnst
að margir tali af helst til mikilli
léttúð um verðbólgu og telji að of
mikil áhersla sé lögð á að stemma
stigu við henni. Ég vara við þeim
sjónarmiðum og tel að hið sama
eigi við hér og í öllum þeim iðn-
ríkjum sem við viljum bera okkur
saman við, að lítil verðbólga sé
einn af homsteinum hagvaxtar og
velmegunar í þjóðfélaginu - og því
eigi Seðlabankinn áfram að hafa
það sem aðalmarkmið aö halda
verðlagi stöðugu eins og gildandi
lög segja fyrir um. Framvinda ann-
arra þátta, svo sem opinberra fjár-
mála og launaákvarðana, ræður
síðan miklu um það hvert aðhald
peningastefnunnar þarf að vera
hverju sinni.“
-HKr.
DV-MYND E.ÓL
Fyrrverandi seölabankastjórar á ársfundi bankans í gær
Ársfundur Seölabanka íslands var haldinn síödegis í gær. Meöal gesta voru þessir herramenn á fremsta bekk sem
allir þrír hafa veriö seöiabankastjórar. Frá vinstri er Jóhannes Nordal sem var bankastjóri frá 1961 til 1993, Stein-
grímur Hermannsson frá 1994 til 1998 og Tómas Árnason sem var seölabankastjóri á árunum 1985 til 1993. Aö
baki þeim má sjá Magnús Jóhannssn ráöuneytisstjóra, Stefán Páisson, fyrrverandi bankastjóra Búnaðarbankans, og
Sólon R. Sigurösson, núverandi bankastjóra BÍ. Kynnt var ársskýrsla bankans fyrir áriö 2002 en fundurinn hófst meö
ávarpi Ólafs G. Einarssonar, formanns bankaráös. Þá flutti Birgir ísl. Gunnarsson, formaöur bankastjórnar, ræöu og í
lokin var á dagskrá ávarp Davíös Oddssonar forsætisráöherra.
Stuttar fréttir
Meirihlutaviðræður
Viðræður hófust í gær á milli Vest-
mannaeyjalistans og Framsóknar-
flokksins um myndun nýs bæjar-
stjómarmeirihluta í Vestmannaeyj-
um. Sjálfstæðisflokkurinn og Vest-
mannaeyjalistinn era með 3 fulltrúa
hvor í bæjarstjóm Vestmannaeyja en
Framsóknarflokkurinn einn. Meiri-
hluti sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna féll á bæjarstjómarfundi í
fyrrakvöld þegar beiðni samgöngu-
ráðherra um að skipa nýja nefnd til
að fara yfir tillögur í samgöngumál-
um Eyjamanna var vísað frá með at-
kvæðum framsóknarmanna og full-
trúa Vestmannaeyjalistans. - RÚV
greindi frá.
Skrifað upp á göng
Sturla Böðv-
arsson sam-
gönguráðherra
undirritar i dag á
Fáskrúðsfirði
verksamning um
gerð jarðganga
milli Reyðar-
ijarðar og Fá-
skrúðsfjarðar en
samið hefur verið við ístak og danska
fyrirtækið E.Phil og Son um gerð
ganganna. Göngin stytta leiðina milli
þessara staða um 31 km, en þau
verða tvíbreið, 5,7 km á lengd og með
200 metra löngum forskálum. Munu
göngin kosta um 3,8 milljarða króna.
Samið um sjómælingar
Fulltrúar Sjómælinga íslands og
Siglingastofiiunar Malaví skrifuði í
gær undir samning um tæknilega að-
stoð og ráðgjöf við mælingar og
kortagerð af Malaví-vatni. Kostnaður
við samninginn er hluti þróunarað-
stoðar íslands.
Launavísitala hækkar
Launavísitala hækkaöi um 0,2%
frá janúar til febrúar samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar. Launa-
vísitalan hækkaði um 5,6% frá febrú-
ar í fyrra til síðastliðins febrúar.
Aðalfundur SÍF hf.:
Verni afkoma en
stefnt var að
Aðalfundur SÍF hf. var haldinn í
gær. Þar kom fram aö heildarvelta fé-
lagsins á árinu 2002 var, að teknu til-
liti tfl millifyrirtækjaviðskipta, um
714 mflljón evrur. Svokallaður
EBITDA-hagnaður var um 20 milljón-
ir evra, eða tæplega 3 prósent af
hefldarveltu. Þá var hagnaður félags-
ins eftir skatta um 4,6 milljón evrur
og veltufé frá rekstri 7 milljón evrur.
Var samþykkt tillaga stjórnar um að
greiða tfl hluthafa 7% arð af nafn-
virði hlutafjár vegna ársins 2002.
Fram kom að stjórnendur stefndu
að betri afkomu á árinu 2002, en þeir
telja að árið hafi á margan hátt verið
andsnúið félögum í svipuðum rekstri
og SÍF. Þrátt fyrir það hafi tekist að
halda rekstri SÍF í því horfi að arð-
semi eigin fjár er um 10 tfl 11%.
í ræðu Gunnars Arnar Kristjáns-
sonar, forstjóra SÍF hf„ kom fram að
þó svo að upptaka evrunnar hjá þeim
ellefu ríkjum Evrópu sem þátt tóku í
breytingunum virki á okkur hér uppi
á íslandi sem frekar einföld og sak-
laus aðgerð hafi raunin ekki orðið sú
fyrir neytendur og fyrirtæki á svæð-
inu.
„Fljótlega kom í ljós að hinn al-
menni neytandi hafði ekki náð að að-
laga sig nýju myntkerfi á þeim
tveimur árum sem hann hafði tfl
þess og áfallið við að fá mun færri
mynteiningar útborgaðar en áður
varð meira en færustu sérfræðingar
gátu spáð fyrir um. Þá fylgdu í kjöl-
farið verulegar hækkanir á verði alls
kyns þjónustu og hafði það töluverð
áhrif á ráðstöfúnartekjur neytenda.
Neysla á matvöru dróst saman, sem
og á flestum öðrum neysluvörum.
Árið 2002 var þar af leiðandi afar
erfitt mörgum framleiðslufyrirtækj-
um á myntsvæðinu." -HKr.
Lyfjuþjófur
ófundinn
Enn hefur lögreglunni ekki tekist
að hafa hendur í hári manns, sem
hún grunar um að hafa brotist inn
í Lyfju í Lágmúla um síðustu helgi.
Lögreglan hefur undir höndum
myndir úr eftirlitsmyndavél og tel-
ur sig þekkja manninn af þeim.
Hann virðist hins vegar hafa gufað
upp eftir að ránið var framið.
Talið er að ungur maður hafi
verið einn á ferð. Hann ógnaði
starfsfólki Lyfju með kylfu og rudd-
ist inn í lyfjageymslu. Þar náði
hann að hrifsa með sér töluvert
magn af lyfjum. Hann komst undan
lögreglu á stolnum bíl sem síðan
fannst mannlaus í Ármúla. -JSS
Hundruð milljóna til Vestfjarða
Áætlun um fjárveitingar ríkisins
til skógræktarverkefna á næstu sex
árum er bundin í tillögu til þingsá-
lyktunar sem afgreidd var fyrir þing-
lok. Þar er gert ráð fyrir að Skjól-
skógaverkefnið á Vestfjörðum fái 276
milljónir króna.
5 km borholur
Hitaveita Suðumesja, Landsvirkj-
un og Orkuveita Reykjavíkur hafa
undanfarin tvö ár staðið að forathug-
un á því hvort orkuöflun úr háþrýst-
um 5 kílómetra djúpum borholum,
400 til 600 gráða heitum, geti verið
álitlegur virkjanakostur. Þær eru
taldar geta skflað margfaldri þeirri
orku sem borholur gefa af sér núna.
- RUV greindi frá. -HKr.