Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Side 47
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
/ / e / c) a rb l a cJ H>"V
5
V
Sérstæð skaðabótamál:
Aular stór-
græða á eigin
asnaspörkum
I þessari i/iku munu unnendur sérstæðra
sakamála fara á mis við lostafullar lýsingar
á hvernig morðingjar nauðga fórnarlömbum
sínum fgrir aftöku og brgtja íspað á eftir
og hvernig tæknivædd lögregla kemur upp
um ódæðin og réttvísin hegnir fgrir þau.
Þess ístað verður skgrt frá nokkrum sér-
stæðum skaðabótamálum. I Bandaríkjunum
eru árlega veitt svonefnd Stelluverðlaun,
sem kennd eru við 81 árs gamla konu, Stellu
Liebeck, sem fékk sér dæmdar skaðabætur
fgrir að hella ofan á sig kaffi íveitingahúsi
McDonald’s. Kerlingin brenndi sig þvíkaffið
var heitt og voru henni dæmdar bætur á
þeim forsendum að kaffið sem hún dembdi
gfirsjálfa sig hefði verið hættulega heitt og
gestir ekki verið varaðir við að það væri
varasamt að missa það ofan á sig ístað
þess að drekka það. I ár eru sjö skaðabóta-
þegar útnefndir til Stelluverðlauna og hafa
allir sgnt sérstaka hæfileika til að fá sér
dæmdar skaðabætur
Násltyldur söltudólgur
Kathleen Robertson, Austin, Texas, voru dæmdar
750 þúsund dollarar í skaðabætur fyrir að ökkla-
brotna í húsgagnaverslun þar sem hún var að skoða
mublurnar. Hún hrasaði þegar smábam hljóp fyrir
fætur hennar inni í versluninni.
Eigendur verslunarinnar voru ekki lítið undrandi
á úrskurðinum þegar tekið er tillit tO þess að smá-
peyinn sem konan datt um er sonur hennar.
Bandarískir dómstólar fá hin undarlegustu mál til ineðferðar og eru skaða-
bótakröfur fyrirferðarmiklar í því málavafstri öllu. Oft er það orðfæri í
lagabókstaf sein lögfræðingar hengja hatt sinn á þegar þeir krefjast liárra
skaðabóta fyrir liönd uinbjóðenda sinnar. bað mun oftast ráða furðulegum
úrskurðum dóinstólanna.
Stelluverðlaunin eru kennd við konu sem fékk sér dæmdar skaðabætur fyrir að hella niður á sig kaffi sem
hún ætlaði að neyta í MeDonald’s veitingastað.
Eigandi 10 metra húsbíls var ekki tæknilega hugsandi þegar hann ók á 100 kin hraða á þjóðvegi og stóð upp
frá stýrinu til að hella upp á kaffi í eldhúsinu aftur í. En liann fékk nær tvær milljónir dollara í skaðabætur
og nýjan bíl. f leiðarvísi um notkun bílsins stóð nefnilcga ekkert um að bílstjórinn niætti ekki fara aftur í
eldhús þegar farartækið væri á ferð.
Heppinn hjólkoppaþjófur
19 ára pilti í Los Angeles, Carl Truman aö nafni,
voru úrskurðaðar 74 þúsundir dollara í skaðabætur
og allur kostnaður við læknishjálp eftir að nágranni
hans ók Honda Accord yfir hönd hans.
Truman hafði augljóslega ekki tekið eftir þegar
hann var að reyna að stela hjólkoppi af bílnum að
eigandinn sat undir stýri hans og var að leggja af
stað í ökuferð.
Enn heppnari innbrotsþjófur
Terance Dickson í Bristol í Pennsylvaníu datt í
lukkupottinn þegar hann var að ræna hús. Innbrot-
ið heppnaðist með ágætum en útbrotið fór allt í
handaskolum. Þegar hann var búinn að stela ætlaði
hann út um bílskúrsdyrnar. En þær reyndust kirfi-
lega læstar og var sjáífvirkt opnunarkerfi bilað. Þá
ætlaði Dickson að fara aftur inn í eldhúsið, þaðan
var innangengt í bílskúrinn. En læsingin var með
þeim ósköpum gerð að ekki var hægt að opna dyrn-
ar bílskúrsmegin og þjófurinn komst ekki út.
Fjölskyldan sem Dickson var að ræna var í sum-
arleyfi og mátti þjófurinn dúsa í bílskúrnum í átta
sólarhringa. Þar nærðist hann á pepsí, en kassi af
drykknum var geymdur í bUskúmum, og þurrum
hundamat sem var þar í stórum poka.
Dickson kærði meðferðina á sér og varð trygg-
ingafélag húseigandans að greiða honum hálfa millj-
ón dollara fyrir að valda honum átta sólarhringa sál-
arangist.
Afsökun hundsms
Jerry Williams í Little Rock, Arkansas, fékk 14
þúsund dollara í skaðabætur og læknishjálp að auki
eftir að lágfættur og langur veiðihundur beit hann í
rassinn. Hundurinn var í eigu nágranna og var
tjóðraður við staur og lokaður innan girðingar.
ýtrustú .fikaðabótakröfu var hafnað þar sem dóm-
urinn taldi aö hundurinn ætti sér nokkrar málsbæt-
ur en Williams var búinn að skjóta á hann itrekað
með loftbyssu.
Féll á eigin bræði
Veitingahúseigandi í Philadelphiu var dæmdur til
að greiða Amber nokkurri Carson í Lancaster
113.500 dollara eftir að hún rann til á sleipum gos-
drykk sem var á gólfi veitingahússins. Hún rófu-
beinsbrotnaði.
Sullið á gólfinu átti sér þá orsök að hálfri mínútu
fyrir slysið skvetti Caron úr glasi sínu á unnusta
sinn þegar þau voru að rífast og henni hitnaði í
hamsi.
>
Misheppnað útbrot en vel lukkuð
bótakrafa
Kara Walton í Claymont, Delawere, kærði eiganda
næturklúbbs og fékk greiddar skaðabætur. Málsat-
vik voru þau að hún var að reyna að komast út um
glugga á kvennaklósettinu til að losna við að borga
reikninginn. Ekki vildi betur til en svo að hún datt
á gólfið og braut tvær framtennur.
Hún fékk 12 þúsund dollara í skaðabætur og allan
tannlæknakostnað greiddan.
Líklegur verðlaunahafi
Sá sem þykir líklegastur til að hljóta Stelluverð-
launin í ár er Merv Grazinski í Oklahomaborg.
Hann keypti nær 10 metra langan húsbíl af
Winnebago-gerð. f fyrstu ferð sinni út á þjóðveginn
setti hann hraðatakmörkunina á löglegan hámarks-
hraða, 70 mílur á klukkustund.
Þá yfirgaf hann bílstjórasætið og fór aftur í eld-
húsið til að hita sér kaftlsopa. Von bráðar yfirgaf
húsbíllinn akbrautina með skiljanlegum afleiðing-
um.
í leiðarvísinum með bílnum stóð ekkert um aö
ekki mætti skreppa aftur í eldhús og láta bílinn um
að aka sér sjálfur og hvergi var tekiö fram að híllinn
væri ekki með sjálfstýringu.
Kviðdómur verðlaunaði Grazinski með 1.750 þús-
und dollara skaöabótum og var framleiöandanum
gert að afhenda honum nýjan Winnibago-húsbíl að
auki. v
Framleiðandi húsbílsins bætti því inn í leiðarvís-
inn með þessari bílategund -að bílstjórinn mætti
ekki yfirgefa sæti sitt undir stýri þegar ekið væri á
þjóðvegi. Það þótti öruggara til að komast hjá skaða-
bótagreiðslum ef ske kynni að fleiri kjánar keyptu
svona bíl og héldu að í þeim væri sjálfstýring eins
og tíðkast í skipum og flugvélum. En sjálfstýrandi
bílar eru ekki enn komnir á markað, hvað sem síð-
ar verður.