Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Síða 52
56
Heigctrbladí H>'V"
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
I
Kraftmihil vél í
ftflvöxnum jeppa
á góðu verðí
Kostir: Öflug vél, rafstýröur millikassi
Gallar: Staðsetning klukku og sœtishitara
Hyundai Terracan er fullvaxinn jeppi sem kom á
markað árið 2001 og hefur fengið ágætar viðtökur.
Hann er nú fáanlegur með öflugri V6 bensínvél og
þannig reyndum við bílinn á dögunum, meðal ann-
ars í nýföllnum snjó í hlíðum Úlfarsfellsins. Kom þar
í ljós að um hörkuduglegan jeppa er að ræða þótt
hann kunni að virka gamaldags á suma.
Nýtískulegri innrétting
Þótt Terracan sé kannski ekki sá rúmbesti í sín-
um flokki er lítið út á hann að setja innandyra í
heildina. Terracan byggist aö nokkru leyti á Gall-
oper og hefur marga af kostum hans, eins og vel
staðsett handfóng sem auðvelda inn- og útstig, sér-
staklega þegar búið er að breyta bílnum. Innrétting-
in er mun nýtískulegri en í Galloper og efnisval nú-
tímalegra. Framsæti eru fjölstillanleg og því auðvelt
að finna sér góða stellingu bak við stýrið. Tvennt
mætti þó betur fara í innréttingu bilsins en það er
staðsetning á klukku, sem er aftarlega fyrir ofan
baksýnisspegilinn, og einnig staðsetning takka fyrir
sætisupphitun sem eru bak við gírstöngina. Hins
vegar eru mikil þægindi af rafstýringu fyrir milli-
kassa en þar er hægt að skipta yfir í fjórhjóladrif eða
lággír með því einu að snúa takka.
Þrælöflug vél
í akstri virkar bíllinn nokkuð þéttur en gæta þarf
þó að því að þetta er jeppi með aksturshreyfingar
jeppa. Ekki bætir úr skák að vélin er þrælöflug og
auðvelt að láta hann spóla af stað, jafnvel á malbiki.
Stýrið er nákvæmt og þægilegt, sem hjálpar mikið
til, og hann leggur sig ekki miera til hliðar í beygj-
um heldur en búast má við af bíl í þessum fiokki.
Fjöðrunin er samt í mýkra lagi og þá sér í lagi að
framan, þar sem hún getur átt það til aö slá saman
ef groddalega er farið yfir ójöfnur. Aðalkostur bíls-
ins í akstri er samt öflug vélin, eins og komið hefur
fram, og fjögurra þrepa sjálfskiptingin sem er með
yfirgír. Driflínan er einnig traustvekjandi og virtist
ekki eiga í neinum vandræðum með aflið frá vélinni.
Af því leiðir að geta hans í torfærum er þónokkur og
ekki skemmir fyrir tregðulæsing í afturdrifi.
Gott verð
Kannski er aðalkosturinn við þennan stæðfiega
jeppa verðið: 3.400.000 sjálfskiptur, sem verður varla
betra í þessum stærðarflokki. Að vísu fæst Suzuki
Grand Vitara V6 á verði sem er undir þessu en þar
er um minni bíl að ræða. Aðrir jeppar í sama stærð-
arflokki með V6-vélum eru til dæmis Toyota Land
Cruiser og Mitsubishi Pajero, en þeir kosta báðir vel
yfir fimm mifijónir króna, enda um mun betur út-
búna bíla að ræða. Aðrir hugsanlegir keppinautar
eru einnig Kia Sorento V6, sem kostar 3.525.000 kr„
SsangYong Rexton, sem með sex strokka Benz-vél-
inni kostar 4.190.000 kr„ og hugsanlega annar Mitsu-
bishi, en Pajero Sport með 177 hestafla V6 vél kostar
3.630.000 kr. -NG
O Rafst rt fj rhj ladrifi er einfalt notkun og er
h gt a skipta beint a fer . Setja ver ur
hlutlausan ur en skipt er og r 1 ga drifinu.
© Stigbretti eru sta alb na ur Terracan.
© V6-v lin skilar vel s nu og tryggir b lnum getu
utan vega.
© R mi fyrir farangur er okkalegt og farangurs-
net er kostur.
© Innr ttingin er nokku n t skuleg og efnisval
me g tum.
HYUNDAI TERRACAN V6
Vél: 3,5 lítra bensínvél
Rúmtak: 3497 rúmsentímetrar
Ventlar: 24
Þjöppun: 10:1
Gírkassi: 4ra brepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Snúninqsöxlar
Fjöðrun aftan: Gormafiöðrun
Bremsur framan/aftan: Diskar/diskar, ABS, EBD
Felqur/dekk: 255/75 R15
YTRI TÖLUR:
Lenqd-breidd-hæð:_________________4710/1860/1790 mm
HjólahafA/eqhæð:________________________2750/211 mm
Beyqjuradíus:_____________________________11,8 metrar
INNRI TÖLUR:
Farþeqar með ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/örvqqispúða: 5/2
Faranqursrými: 760 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla pr. 100 km: 13,9 lítrar
Eldsnevtisqevmir: 75 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn: 3/8 ár
Verð: 3.400.000 kr.
Umboð: B&L
Staðalbúnaður: Rafknúnar rúður og speglar, fjarstýrðar
samlæsingar, þjófavörn, vökva- og veltistýri, þurrka í aft-
urrúðu, þokuljós, tvö 12 volta tengi, lesljós, farangursnet,
glasabakkar, fjölstillanleg upphituð framsæti, rafhitaðir
hliðarspeglar, stigbretti, toppgrindarbogar, álfelgur, vind-
skeið oq leðurklæðninq á stýri.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 200/5500
Snúninqsvæqi/sn.: 302 Nm/3500
Hröðun 0-100 km: 9,5 sek.
Hámarkshraði: 185 km
Eiqin þynqd: 1990 kg
! .......