Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Page 55
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
Helgœrhladi DV
59
framleiðandinn skotið Ferrari og
BMW ref fyrir rass. Ef í ljós kem-
ur að þetta séu staðreyndir er það
mikið áfall fyrir BMW sem hefur
útvegað Williams bestu keppnis-
vélarnar undanfarin tvö ár, án
þess að ná viðunandi árangri.
„Við báðum Mercedes að hugsa
hönnun vélar sinnar upp á nýtt,“
var haft eftir Adrian Newey. „Niö-
'urstaðan kemur til með að verða
lægri þyngdarmiðja og minni
heildarþyngd vélarinnar. Á móti
höfum við einbeitt okkur að því
að smíða bíl sem kemur til með að
virka betur á nýju Michelin-dekkj-
unum.“ David Coulthard hlakkar
mikið til að fá að prófa nýja bílinn
og sanna bæði getu sína og bíls-
ins: „Ég er þess fullviss að með til-
komu MP4-18 í vor komum við til
með að jafna árangur Ferrari. Þar
til komum við til með að njóta for-
ystunnar frá því í ástralska
kappakstrinum." Ferrari, sem hef-
ur lent í vandræðum með prófan-
ir á 2003-bíI sínum að undanförnu,
gæti loksins þurft að láta í minni
pokann eftir röð liða-titla síðan
1999. Nýr heimsmeistari verður
jafnvel krýndur í haust.
David Coulthard
Þrátt fyrir að hæfileikar Skot-
ans hægláta, sem hefur ekið fyrir
McLaren síðan 1996, hafi lent í
skugga félaga hans frá Finnlandi,
þá verður ekki fram hjá því litið
að David hefur á ferli sínum átt
magnaða daga, eins og sigur hans
í Mónakó á síðasta ári sannaði. í
siðustu keppni naut hann reynslu
sinnar og var réttur maður á rétt-
um stað þegar flaggið var látið
falla í lok keppninnar. Þrátt fyrir
að eiga ekki tilkomumesta akstur-
inn var það hann sem kom fyrstur
í mark. „Ég geri mér fulla grein
fyrir því að Kimi Raikkonen tap-
aði heilmiklum tíma vegna refs-
ingarinnar sem hann fékk og án
hennar hefði hann getað unnið,“
sagði David Coulthard eftir ástr-
alska kappaksturinn. „Ég held að
sigur minn sé tilkominn vegna
reynslu minnar og hæfileika
minna til að meta aðstæður í
kringum mig.“ Nú hefur hópur
manna, þó aðallega í Englandi,
sagt að David Coulthard komi til
með að leiða lið sitt til sigurs og
verða næsti heimsmeistari Eng-
lendinga. Ekki eru allir á sama
máli en ef allt smellur saman hjá
McLaren og David heldur fullri at-
hygli út keppnistíðina er ekki
ósennilegt að hann endi með
pálmann í höndunum í Japan í
haust. „Ef ég hefði einhveijar efa-
semdir um hæfileika Davids
Coulthards, heldur fólk þá virki-
lega að ég hefði hann í liði mínu?“
spyr Ron Dennis, liðsstjóri Skot-
ans. „Hann er frábær ökumaður
og hefur enn heilmikið að færa
liðinu. David er efni í heimsmeist-
ara og hann stefnir á titilinn.
Hann hefur aldrei verið sterkari
en nú,“ sagði Dennis að lokum.
-ÓSG
FOSTUDAGUR
8.45 til 10.45.
Prófanii'.
Á þessum tíma fá þau keppnislið
sem valið hafa takmarkaða prófun-
ardaga yfir keppnistímabilið. Jagu-
ar, Renault, Jordan og Minardi
keppnisliðin fá aðeins tíu prófunar-
daga utan hefðbundinnar keppnis-
helgar. í staðinn fá þau tvo tíma til
prófana á keppnisstað og mega þar
nota prufuökumenn sína og auka-
bíla. Hjólbarðar, sem liðin nota í
þessum prófunum, teljast ekki inn í
þær takmarkanir sem liðin hafa yf-
ir keppnishelgina.
11.00 til 12.00.
Frjáls æflng
Hér hefja öll liðin undirbúning
fyrir tímatökuna. Liðin mega ein-
ungis nota keppnisbíla sína. Vara-
bílar eru eingöngu leyfðir við sér-
stök tilefhi og með leyfi FIA.
13.00 til 14.00.
Fyrri tímataka
Hver ökumaður fær aðeins eina
tilraún til að gera sitt besta. Sá öku-
maður sem hæstur er að stigum í
stigakeppni ökumanna hefur tíma-
tökuna. í Melboume í Ástralíu fer
Michael Schumacher fyrstu ferð
þar sem hann var efstur í fyrra. Hér
beijast menn um rásröð fyrir seinni
tímatökuna.
LAUGARDAGUR
9.00 til 9.45
Frjáls æfing
Það er nóg að gera á laugardög-
um hjá Formúlu 1 ökumönnum.
Þeir verða að fara varlega því laski
þeir bíla sína er óvíst að þeir fái að
brúka varabíl hðsins.
10.15 til 11.00
Fjáls æflng
13.30 til 13.45
Upphitun
Þetta er síðasta tækifæri öku-
manna til að finstilla bíla sína fyrir
seinni tímatökuna og keppni. Hér
verða síðustu ákvarðanir teknar
varðandi keppnisáætlun og dekkja-
val. Upphitun var áður á sunnu-
dagsmorgnum en hefur verið felld
niður.
14.00 til 15.00
Seinni tímataka
Hér verður rásröð keppninnar
ráðin. Hægasti ökumaður úr fyrri
tímatökunni frá deginum áður fer
fyrstur af stað. Sá hraðasti fer síðast-
ur. Ökumenn fá aðeins eina tilraun
hér líkt og í fyrri tímatökunni. Út-
hringur, tímatökuhringur og síðast
innhringur. Bannað er að bæta við
eldsneyti á bílinn eftir tímatökumar
og því verður áhugavert að sjá mis-
munandi hraða á ökumönnum.
15.00
Park Farmé
Eftir tímatökur fara allir bílar í
vigtun og þaðan í Park Farmé,
vaktað af eftirlitsmönnum FIA.
Mjög miklar takmarkanir eru á
þeim lagfæringum sem liðsmenn
geta gert á bílum ökumanna sinna.
Eftir að eftirlitsmenn FIA hafa gert
þær mælingar sem af þeim er kraf-
ist geta liðin tekið bíla sína inn í
skúra sína.
18.00
Park Farmé
Nú skulu allir bílar vera komnir
á öryggissvæði FIA og fá að „gista"
þar yfir nóttina.
SUNNUDAGUR
08.00 til 14.00
Bflskúr keppnisliða
Keppnisliðin geta sótt bíla sína á
ný af næturstað og farið yfir helstu
öryggisþætti bílsins fyrir keppni.
Allar viðgerðir verða að vera sam-
þykktar af FIA. Engar loftflæði-
breytingar má gera á bílunum
nema að sérstakt leyfi komi frá
tæknimönnum FIA. Um leið og
græna ljósið fyrir upphitunarhring
logar mega bílar bruna út að rás-
stöðu sinni.
14.00
Keppni
Keppnin er ræst á hefðbundinn
hátt og bílamir öskra af stað. Það
verður mjög áhugavert að sjá mis-
munandi keppnisáætlanir liða og
ökumanna. Þeir sem óvænt áttu
góða tíma í tímatökum þurfa að
fara inn á fyrstu hringjum eftir
eldsneyti. Sá sem ræsti aftastur og
fór hægt af stað er um miðja keppni
kominn í forystu. Þetta er það sem
Max Mosley sá fyrir sér. -ÓSG
Tímatafla helgannnar
Notaöir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
I Baleno Wagon 4x4,
skr. 8/99, ek. 75 þús.
Verð kr. 1140 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4 d.,
bsk., skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Baleno Wagon,
ssk., skr. 10/99, ek. 46 þús.
Verð kr. 1170 þús.
Suzuki Jimny JLX
bsk., skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0,
bsk., skr. 6/01, ek. 67 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Toyota Touring Terra 4x4,
skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1250 þús.
Subaru Forester 2,0,
ssk., skr. 3/98, ek. 89 þús.
Verð kr. 1250 þús.
Peugeot 406, 3 d. 2,0,
ssk., skr. 11/98, ek. 72 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Land Rover Freelander
bsk., skr. 6/99, ek. 58 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Ford Focus Trend 1,6,
bsk., skr. 3/99, ek. 49 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
--y///_-----,
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-51 (M)