Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Qupperneq 56
60
LAUGARDAGU R 22. M ARS 2003
HeIqarblað DV
A horni Laugavegar og Klapparstigs
Eigum aðeins eftir þrjá
afþessum gullfallegu
sjón varpsskápum.
Verð 250 þús.
Tilboð 195 þús.
http://simnet. is/bomedecorl928/
Laugardagstilboð
Funkis-stólar
í anda afa og ömmu
Verð 49 þús. Tilboð 39 þús.
Skoðið heimasíðuna
okkar ogkíkið d tilboðin
DAGUR I-ÐNAÐARINS
í dag laugardaginn 22. mars kynna félagsmenn
í Meistarafélagi bólstrara glæsilega íslenska
húsgagnaframleiðslu og bólstrun. Verið velkomin
í opið hús milli 13 og 16 í dag. Þið finnið allt um
Dag iðnaðarins og bólstrara á Meistarinn.is og
í laugardagsblaði Morgunblaðsins.
Samtok^iðnaðarm ^ ..1
- par sem pu
finrtur fagmanninn
MORE& MORE
A LIFE PHILOSOPHY
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
Kjólar - Dragtir - Pils - Toppar
St. 36 - 52
Flottir bandaskór í
hvítu og beige.
Glæsibær
Viðskipta bátturinn
Utvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viðskipti og efna-
hagsmál þar sem blaðamenn
Viðskiptablaðsins rýna í það
helsta á markaðnum á hverjum
virkum degi milli klukkan 17-18
tilll þnð áluifi<irerð(isla í lirinii riðskipla í <laf>
- þaá borgar sig að hlusta
□ Landsbankinn
Umsjón
Sævar Bjarnason
Amber-mótið:
Blindskák og
í Mónakó fer fram þessa dag-
ana hið árlega Amber-mót sem
einhver auðkýfingur heldur til
minningar um látna dóttur sína,
sem hét einmitt Amber. Keppend-
ur tefla 2 skákir við hvern og
einn, eina atskák og eina blind-
skák. Blindskákirnar vekja mesta
athygli, það er ótrúlegt hvað þess-
ir kappar geta teflt þær vel, en
þeir eiga það nú til sumir að
skilja menn eftir í dauðanum eða
yfirsjást mát í 2 leikjum.
Blindskákin er tefld á tölvu-
skjám, skákmennirnir hafa tóm-
an tölvuskjá fyrir framan sig en á
áhorfendasvæðinu, hjá dómurun-
um og á netinu geta menn séð
skákirnar. Skákmennirnir
„klikka“ með músinni á þann reit
sem maðurinn eða peðið stendur
sem þeir ætla að færa og siðan á
þann reit sem á að færa á. Þetta
virkar vel. Margir eiga erfitt með
að skilja hvernig skákmennirnir
sjái stöðuna og geti hugsað leiki
síðan út frá henni. Þetta er auð-
vitað hin mikla reynsla sem skák-
menn búa yfir og er keimlíkt því
hvernig skákmenn hugsa út sína
leiki áður en þeir leika þeim í
venjulegri skák.
Ég hef stundum líkt þessu við
prjónaskap, þeir (þær!) sem
prjóna þekkja þetta, flókin mynst-
ur koma nær sjálfkrafa hjá vönu
fólki og sumir eru svo flinkir í
þessu að þeir geta haldið uppi
samræðum um leið og fipast ekki
hið minnsta. Það sem aðgreinir
blindskák frá venjulegum prjóna-
skap er að sífellt þarf aö finna
upp ný mynstur eða stef, sérstak-
lega þegar líða tekur á skákina.
Flestir þokkalegir íslenskir
sem erlendir skákmenn geta teflt
blindskák en eru að sjálfsögðu
misjafnlega góðir. Helsta afrekið
er að tefla blindskákarfjöltefli,
þar reynir á einbeitinguna og eft-
ir því sem skákunum fjölgar
fækkar þeim sem geta teflt svona.
En ég held að flestir skákmenn
með yfir 2300 Elo-stig geti teflt 3-4
skákir samtímis, bara ef þeir fá
næði til að einbeita sér. Stór-
meistarar og margir aðrir geta
teflt fleiri en til hvers að leggja á
sig þetta erfiði? Það eru bara ein-
staka harðjaxlar sem gera það.
En víkjum að mótinu í
Mónakó. Svona er staðan eftir 5
umferðir (tvöfaldar).
Staða efstu manna í blindskák-
inni: 1. Kramnik 4,5 v. 2.-3.
Gelfand og Leko 3,5 v.
Það vekur athygli hversu öflug-
ur Kramnik heimsmeistari er í
blindskákinni en hann hefur að-
eins skrapað saman 2 v. í atskák-
inni. Anand virkar jafnvígur á
bæði at- og blindskák, enda efstur.
Shirov er í óstuði eftir góða ís-
landsför og er næstneðstur. Stór-
meistarinn Ljubojevic er neðstur,
en hann hefur verið sérstakur
heiðurskeppandi undanfarin ár.
Ljubo er fæddur 1951, jafnaldri
Anatolíjs Karpovs. Þarna eru
flestir þeirra bestu, en ég held að
Kasparov hafi aldrei verið með.
Hann annaðhvort vill ekki vera
með í blindskákarmótum eða ger-
ir of miklar peningakröfur.
Staða efstu manna í atskákinni:
1.-2. Anand og Morozevich 4 v. 3.
Bareev 3,5 v. Bareev og Móri eru
þekktir atskákmenn, sérstaklega
Bareev. Hann hefur unnið sterk
ofuratskákmót en er líklega slak-
ari í blindskákinni. Réttara er að
segja að hinir séu einfaldlega að-
eins betri!
Staðan í heildarkeppninni: 1.
Anand 7 v. 2.^1. Leko, Kramnik
og Morozevich 6,5 v. 5. Gelfand
5,5 v. 6.-8. Almasi, Ivanchuk og
Topalov 5 v. 9.-10. Bareev og Van
Wely 4,5 v. 11. Shirov 2,5 v. 12.
Ljubojevic 1,5 v. Tefldar veröa 11
tvöfaldar umferðir þannig að
mótið er rétt rúmlega hálfnað.
Þannig að allt getur gerst enn.
Lítum nú á blindskák á milli
Kramniks og helsta aðstoðar-
manns hans, Bareevs.
Hvítt: Vladimir Kramnik (2807)
Svart: Evgeníj Bareev (2729)
Slavnesk vörn.
Monte Carlo, Mónakó (5), 20.3. 2003
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
e3 a6 5. Rc3 b5 6. b3 Bf5 7. Re5
h6 8. g4 Bh7 9. Bg2 e6 10. 0-0
Be7 11. f4 Rfd7
Kramnik hefur teflt þokkalega
hvasst sem er ólíkt honum en nú
verða sviptingar á miðborðinu þar
sem Kramnik hefur uppgvötað
slæma stöðu hróksins á a8. Vel af
sér vikið í blindskák! 12. cxd5!
Rxe5 Eftir 13. - cxd5 eða 13. exd5
kemur 14. Rxd5! Með peðsvinn-
ingi. 13. d6! Dxd6 14. dxe5 Dc7
Bareev þorir ekki í endataflið
enda er það greinilega verra. Að
auki er Kramnik sennilega mesti
endataflsmaður sem nú teflir.
Smyslov gamli er enn lifandi en
kominn yfir áttrætt. Hér áður fyrr
tefldi hann mörg glæsileg enda-
töfl. 15. Re4 0-0 Hrókar beint
ofan í sóknina! Nú jæja. 16. Bb2
Rd7 17. Hcl c5 18. g5! hxg5 19.
Rxg5
19. - Bxg5 Nei, þetta er ekki
sjónrænn afleikur, hvítur er bú-
inn að yfirspila svartan. Eftir 19.
Ha7 eða 19. Had8 kemur 20. Rxh7
Kxh7 21. Dh5+ Kg8 22. Be4 og fátt
er til varnar. 20. Bxa8 Hxa8 21.
fxg5 Rxe5 22. Dd4 f6 23. Df4
Frekari barátta er vonlaus, svarta
staðan er í rústum. 1-0.
Anand fór illa með Ivanchuk
sem hefur teflt með öryggiö í fyr-
irrúmi undanfarið ár. Ivanchuk er
frábær skákmaður en Anand er
einfaldflega oftast ofjarl hans.
Hvítt: Vishy Anand (2753)
Svart: VassUíj Ivanchuk (2699)
Spánski leikurinn.
Monte Carlo, Mónakó (4), 18.3. 2003
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
atskák
Vladimir Kranmik
Stendur sig vel í blindskákinni.
4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5
7. Bb3 0-0 8. h3 Bb7 9. d3 He8
10. a3 h6 11. Rc3 Bf8 12. Ba2
Rd4 13. Rh2 d5 14. exd5 Rxd5
15. Rg4 Rf4 16. Re4 Rg6 17. c3
Re6 18. Df3 Hb8 Þetta er nokkuð
hefbundinn leikmáti í þessu af-
brigði spænskrar varnar. Hvítur
teflir upp á veikleika svarts á
skálínunni a2-g8 og Ivanchuk var-
ar sig ekki nóg á margbreytileika
hvítu stöðunnar. 19. g3 h5 20.
Rh2 h4 21. Df5 Bd5
Þessi leikur var í sjálfu sér
nauðsynlegur en hefði mátt koma
fyrr. Ekki gekk 21. - Dxd3 vegna
22. Rf6+ og svarta drottningin
fellur. 22. Bxd5 Dxd5 23. Rf3
Hbd8 24. gxh4 Dxd3 25. Dg4
Rc5 26. Bg5! Rxe4 Sennilega var
26. - Hd5 betri leikur með flóknu
tafli. 27. Hxe4 Hd6 28. h5 Rf4?
Nauðsynlegt var 28. Re7 og sætta
sig við peðstap. Nú skella á verri
atburðir. 29. He3 f5
A#I ^
Slæmt er að hafa óvaldaðan
hrók á a8. Nú fellur riddarinn
djarfi og frekari skýringar ekki
þörf, að sinni. 30. Dh4 Re2+ 31.
Kfl Dd5 32. Kxe2 f4 Þetta er víst
bara smá sprikl. 33. Bxf4 exf4
34. Hxe8 Dd3+ 35. Kel Dxf3 36.
De7 Hf6 37. h6 Dg2 Nú kemur
glæsilegur lokaleikur. 38. Dxg7+
1-0.