Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Qupperneq 71
l_A.UGA.RDA.OUR 22. fVlARS 2003
He Iq a rb la c? 13 "V
75
V
Myndagátur
Myndirnar tvær virð-
ast við fyrstu sýn eins
en þegar betur er að
gáð kemuríljósaðá
annarri myndinni hef-
ur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi
fimm atriði skaltu
merkja við þau með
krossi og senda okkur
ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að
tveimurvikum liðnum
birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
Verðlaun:
Minolta-myndavél frá
Sjónvarpsmiöstöðinni,
Síöumúla 2, aö
verðmæti 4490 kr.
Vinningarnir veröa
sendir heim til þeirra
sem búa úti á landi.
Þeir sem búa á höfuö-
borgarsvæöinu þurfa
aö sækja vinningana
til DV, Skaftahlíö 24.
eigi síöar en mánuöl
eftir birtingu.
Svarseðill
Nafn:______________________________
Heimili:___________________________
Póstnúmer:----------Sveitarfélag:
Merkið umslagiö meö lausninni:
Rnnur þú fimm breytingar? nr. 710,
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík.
Verðlaunahafi fvrir getraun 708:
Rakei Guðnadóttir
Tunguvegur 90
Reykjavík.
Lífið eftir vinnu
Flóaniarkaður á Eiðistorgi
I dag verður haldinn RISA flóa-
markaður til styrktar 65 strákum og
stelpum í 5. fl. handknattleiksdeildar
Gróttu. Þar mun kenna ýmissa grasa
enda geymslur stórar á Nesinu og í
Vesturbænum og bílskúrar og
geymslur fullar af dóti sem fólk er
hætt að nota. í hádeginu ætlar svo
Bubbi að koma og taka lagið. Mark-
aðurinn verður opinn frá 11-16 og
þegar líða fer á hann má fólk gjarn-
an prútta því helst á allt að seljast.
Hamionikkugleði á
Suðumesjuin
Harmonikkugleði verður á Ránni
við Hafnargötu í Keflavík á vegum
F.H.U.S, Félags harmonikkuunnenda
á Suðurnesjum. M.a. koma í
heimsókn góðir gestir frá Akranesi
auk nemenda úr Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Aðgangur ókeypis.
Kaffisala á staðnum.
Danssýning
Það verður danssýning í
Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, kl.
20.30-21.30, dansarar frá ýmsum
heimshornum skemmta gestum.
Tónleikar með jazz-funk
hljómsveitinni HOD.
Mat á skólastarfi og
raunveruleikinn
Mat á skólastarfi hefur verið slag-
orð stjórnvalda um nokkurt skeið.
Mörgum hefur þó fundist erfitt að
finna raunveruleika þess eða tilgang.
Ráðstefna um þessi mál verður hald-
in í dag i Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Ráðstefnan stendur frá
9.30-17. Ráðstefnustjórar eru: Lárus
H. Bjarnason, rektor MH, og Einar
Birgir Steinþórsson, skólameistari í
Flensborgarskólanum.
Listadagar í Garðabæ
Það eru listadagar barna- og ung-
linga í Garðabæ fram á sunnudag.
Mikið um að vera í bænum alla dag-
ana. Kíkið inn á www.gardabaer.is
Tónleikar á Grand Rokk
Örkuml, Sein og 5ta Herdeildin
leika á Grand Rokk í kvöld kl. 22,
500-kall inn.
Einleikarapróf í Salnum, Tón-
listarhúsi Kópavogs
Ella Vala Ármannsdóttir hornleik-
trni og Hrefna Unnur Eggertsdóttir
píanóleikari munu halda tónleika á
vegum Tónlistarskólans í Reykjavik
í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs,
kl. 14. Tónleikarnir eru seinni hluti
einleikaraprófs Ellu Völu Ármanns-
dóttur, frá skólanum.
Bíósýning í Bæjarbíói
Kvikmyndasafh íslands stendur
fyrir sýningu myndarinnar La Baie
des anges í dag kl. 16 í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfírði. Myndin
sem er frá árinu 1963, var nefnd
Stúlkan með ljósa hárið á íslensku
og var gífurlega vinsæl á sínum
tíma. Miðaverð er krónur 500.
Aninia Reykjavík í MÍR
Anima Reykjavík er nafnið á nýrri
hreyfimyndahátíð sem Bíó Reykjavík
stendur fyrir í bíósal MÍR, Vatnsstíg
lOa, i kvöld klukkan 19.30. Á hátíð-
inni verða eingöngu sýndar myndir
sem gerðar eru með hreyfimynda-
tækni, eftir leikstjóra eins og Jan
Svankmeyers, Jiri Trinka, Aardman
og Tim Burton. Ókeypis aðgangur á
meðan húsrúm leyfir.
Brídge
Fyrsta opna EM í Menton
í Frakklandi 14.-28. júní
Fyrsta opna Evrópumótið í
bridge verður haldið í Frakk-
landi dagana 14.-28. júní næst-
komandi. Keppt verður í öllum
flokkum nema flokki yngri
spilara og verður spilaður tví-
menningur og sveitakeppni.
Eins og fram kemur er mótið
opið öllum og tekur
Bridgesamband íslands við
þátttökutilkynningum til 30.
apríl. Áætlað er að mótið verði
haldið annað hvert ár. Sem
sagt, tilvalið tækifæri fyrir alla
sem telja sig eiga erindi á al-
þjóðlegt bridgemót.
Eitt vinsælasta mót
Bridgesambands íslands, ís-
landsmót í paratvímennings-
keppni, verður haldið um helg-
ina í húsnæði Brigdesam-
bandsins við Síðumúla 37.
Ástæða er til þess að hvetja
áhorfendur til að koma og
horfa á bestu karl- og kvenspil-
ara landsins í skemmtilegri
keppni.
Danir eru eins og íslending-
ar að spila undankeppni fyrir
landsmót sitt og eins og spilið í
dag gefur til kynna, þá virðist
þar „valinn maður í hverju
rúmi“.
Skoðum það betur.
V/Allir
4 82
<4 653
4 DG1063
4 762
4 ÁG6
K42
4 985
4 ÁG98
4 KD1073
44 ÁDG8
♦ K4
4 D5
Spilið var spilað á 12 borð-
um og á sjö þeirra var árangur-
inn sá sami eftir nokkurn veg-
inn sömu vörn og úrspil, sem
innihélt tvö endaspil, undir-
trompun og trompbragð.
Lokasamningurinn var sá
sami, eða tveir spaðar í suður.
Einn sagnhafi, Nils Graulund,
leysti málið svona.
Útspilið var laufaþristur
drepinn á ásinn, sem gaf austri
tækifæri til að hnekkja spilinu.
Hann verður að spila tígli
strax, en enginn fann þá vörn
fyrr en í umræðu á eftir.
Reyndar spilaði hann laufi til
baka, vestur drap á kónginn og
spilaði meira laufi.
Suður trompaði, spilaði tíg-
ulkóng og fékk slaginn. Hann
spilaði meiri tígli, vestur drap
og var endaspilaður. Hann
reyndi að spila sig út á hjarta-
tíu og sagnhafi fékk slaginn á
gosann. Suður spilaði nú
spaöakóng, austur gaf og þá
tók sagnhafi hjartaás og spilaöi
hjarta. Austur fékk slaginn á
kónginn og var endaspilaður.
Staðan var nú þessi:
4 8
< DGIO
♦ -
* N |*AG
Vc A49
S U G
4 D107
* 8
•f -
* -
Þaö er vonlaust fyrir aust-
ur aö spila trompi, tígull gerir
spilið líka auðvelt, þannig aö
* 954
»1097
♦ Á72
4 K1043
4 7
4 10
austur prófaði laufgosann.
Sagnhafi var vel á verði þegar
hann trompaði með sjöunni og
yfirtrompaði síðan með átt-
unni í blindum. Svo tók hann
tíguldrottningu, kastaði hjarta ~
að heiman og fékk síðan átt-
unda sláginn á trompdrottn-
ingu með trompbragði.
Glæsileg spilamennska, sem
eins og áður sagði var endur-
tekin á sex öðrum borðum.