Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Page 2
2
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003
Fréttir
Málverkafölsunarmálinu lýkur væntanlega í dag:
Kjarval þekktur fyrir efdrlíkingar
dl að rugla fræðimenn í ríminu
í dómsai
Rut Júlíusdóttir, verjandi Péturs Þórs Gunnarssonar, gaf lítiö fyrir ummæli
sérfræöinga sem kvaddir voru til aö bera vitni í málverkafölsunarmálinu.
Rut Júlíusdóttir, verjandi Pét-
urs Þórs Gunnarssonar, hóf
munnlegan málflutning sinn í
gær. Fór hún fram á aö Pétur Þór
yrði sýknaður af öllum kröfum
ákæruvaldsins. Hún rakti hæfl
sérfræðinganna, rannsóknir
þeirra og hagsmunatengsl þeirra á
milli. Hún benti á aö þeir væru
einnig kærendur og brotaþolar í
málinu og því óhæfir sem sérfræð-
ingar. Lögreglan hefði óskað eftir
tillögum frá kærendum um hvern-
ig haga ætti rannsókninni og
hefðu nokkrir þeirra einnig útveg-
að verk til samanburðar við hinar
meintu falsanir. Hún sagði að svo
virtist sem um sameiginlegt átak
þeirra allra hefði verið að ræða til
að komast að því að um fólsuð
verk væri að ræða. Engin skýrsln-
anna hefði verið hlutlaus eða sjálf-
stæð.
Rut sagði að rökstuðningur
ákæruvaldsins stæði á brauðfót-
um og sönnunarfærslan ekki í
takt við það sem tíökaðist í opin-
berum málum. Hvorki hefði tekist
að sanna að Pétur Þór og Jónas
Freydal hefðu falsað eða látið falsa
verkin né að verkin væru fölsuð
yfir höfuð. Hún velti því einnig
upp að ef um svo skipulagða og
kerfisbundna glæpastarfsemi
hefði verið að ræða eins og ákæru-
valdið héldi fram, af hverju engin
ummerki væru um þá starfsemi
eða hvar hún hefði farið fram.
Hún gagnrýndi listfræðingana
fyrir að hafa borið meintu falsan-
irnar saman við bestu og þekkt-
ustu verk listamannanna. Lagði
hún fram ýmsar myndir eftir
Kjarval og fleiri listamenn sem
hún taldi líkjast mjög umdeildu
myndunum og gaf því lítið fyrir
þau ummæli sérfræðinganna að
listamennimir hefðu aldrei getað
málað slíkar myndir. Hún vitnaði
í bók um Kjarval þar sem fram
kom að hann hefði verið mjög
brokkgengur í list sinni og verk
hans allt of margbreytileg til þess
að unnt væri að skilja hismið frá
kjarnanum. Kjarval hefði einnig
verið þekktur fyrir að gera eftir-
líkingar eigin verka og sett mörg
ártöl á þau til þess að rugla kaup-
endur og seinni tíma fræðinga í
ríminu. Rut benti á að slíkur vafi
væri á sekt hinna ákærðu að ekki
væri annað hægt en að sýkna þá.
Karl Georg Sigurbjörnsson,
verjandi Jónasar Freydal, mun í
málflutningi sínum meðal annars
fjalla um alkíðefnið sem fannst í
mörgum verkanna en sérfræðing-
arnir töldu að slík efni hefðu ekki
verið komin á markað þegar lista-
mennimir voru uppi og því væru
verkin fölsuð. -EKÁ
Þróunarfélag Austurlands:
Gísli fékk hvatn-
inganverðlaunin
Gísli Jónatansson, framkvæmda-
stjóri Loðnuvinnslunnar hf. á Fá-
skrúðsfirði, hlaut hvatningarverð-
laun Þróunarfélags Austurlands
árið 2003. Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, af-
henti verölaunin á ráðstefnunni
Austurland framtíöarinnar sem
haldin var á Hótel Héraði á Egils-
stöðum í gær. Verölaunin hlýtur
Gísli fyrir langa og farsæla stjórn-
un fyrirtækja í sjávarútvegi á Fá-
skrúösfirði.
í umsögn með verðlaununum
segir meðal annars: „Gísla hefur
tekist að sigla fyrirtæki í erfiðri
grein, sem sjávarútvegur er, í gegn-
um ólgusjó viðskiptalífsins í bráð-
um þrjá áratugi. A þessum tíma
Yfip 20 árekstr-
ar í Reykjavík
AIls höfðu orðið 23 árekstrar í
umdæmi lögreglunnar í Reykjavík
um kvöldmatarleytið í gær. Eitt um-
ferðarslys varð þegar tveir fólksbUar
skullu saman á Háaleitisbraut við
Smáagerði um miðjan dag. Klippa
þurfti ökumenn úr bUunum og vora
þeir fluttir á slysadeUd. Annar mun
hafa hlotið beinbrot. Þá höfðu 28
ökumenn verið teknir fyrir of hrað-
an akstur undir kvöld.
BUI fór út af veginum og valt í
Breiðadal í Önundarfirði undir
kvöld. Ökumaður var einn í bUnum
en slapp ómeiddur. Kenndi hann
vindhviðu um hvemig fór. -hlh
Svöl helgi
Kuldakastið sem sett hefur vor-
gleöina á ís í bili heldur áfram
um helgina. Vind lægir reyndar
eitthvað í dag en næturfrost verð-
ur víðast hvar. Norðaustlæg átt
verður áfram á sunnudag, kalt í
veðri og víða él, en þó bjartviðri
á Suður- og Vesturlandi. Fremur
hæg breytileg átt verður á mánu-
dag og úrkomulítið. Suöaustlægar
áttir taka við á þriðjudag og mið-
vikudag, með slyddu og síðar
rigningu og hlýnandi veðri. Á
fimmtudag er hins vegar útlit fyr-
ir norðaustlæga átt með vætu og
kólnandi veðri á ný. -hlh
Frambjóðendur búsettir utan kjördæmis
B D N s u
Flóldl Saetl Flöldl Sætl Fjöldi Sæii Flöldl Sætl Flöldl Sætl Fléldl Sætl
Norðvestur 1 15. 0 1 4. 13 1., 3., 4. 0 1 20.
Noröaustur 1 5. 0 1 19. 8 1., 4., 6. o 0 -
Suöur 1 5. O 2 1. og 14. 7 1., 6., 11. 0 1 1.
Suövestur O O 2 12. og 17. 6 1., 2., 9. 0 1 16.
Alls: 3 O 6 34 0 3
Hlutfall allra frambjóöenda: 3,75% 0,00% 7,50% 42,50% 0,00% 3,75%
Framboðslistar vegna alþingiskosninga:
Nýtt all sækir 42 prósent fram-
bjóðenda út lyrir Kfördœmai
Ríflega 42% frambjóðenda Nýs
afls í kjördæmunum fjórum utan
Reykjavíkur eru ekki skráðir með
lögheimili í því kjördæmi þar sem
þeir bjóöa sig fram, eða 34 af alls
80 frambjóðendum. Þetta er lang-
hæsta hlutfall nokkurs flokks en
næstur kemur Frjálslyndi flokkur-
inn meö 7,5% eða 6 af 80 frambjóö-
endum. Á hinn bóginn eru allir
frambjóöendur Sjálfstæðisflokks-
ins og Samfylkingarinnar í þess-
um kjördæmum skráðir með lög-
heimili þar sem þeir bjóða sig
fram.
Athygli vekur að allir efstu
menn Nýs afls í þessum kjördæm-
um eru „sóttir annað“, ef svo
mætti að orði komast. Oddviti
flokksins í Norðvesturkjördæmi
er Hildur Helga Sigin-ðardóttir,
Reykjavík; í Noröausturkjördæmi
er það Valdimar H. Jóhannesson,
Mosfellsbæ; í Suðurkjördæmi Ein-
ar Birnir, Reykjavík; og í Suðvest-
urkjördæmi Tryggvi Agnarsson,
Reykjavík. Flokkurinn hefur
fæsta frambjóðendur búsetta í
Norðvesturkjördæmi eða aðeins 7
af 20 sem eru í framboði þar.
Þess má til gamans geta að sá
frambjóðandi sem lengst er „sótt-
ur“ er Dagur Kári Pétursson kvik-
myndagerðarmaður, 16. maður á
lista Vinstri grænna í Suðvestur-
kjördæmi, en hann er búsettur í
Kaupmannahöfn.
í síðustu alþingiskosningum
voru aðeins tveir þingmenn kjöm-
ir sem áttu lögheimili utan þess
kjördæmis þar sem þeir voru í
framboði. Þeir voru fjórir í kosn-
ingunum 1995; sex í kosningunum
1991; og tíu í kosningunum 1987.
-ÓTG
hefur umhverfi sjávarútvegs gjör-
breyst á íslandi og mörg fyrirtækin
tekið stórar dýfur og lent í alvar-
legum hremmingum. Gísla hefur
hins vegar tekist að stýra sínu fyr-
irtæki án áfalla og styrkt það í
sessi.“
Auk hvatningarverðlauna Þróun-
arfélags Austurlands hlutu þrír að-
ilar hvatningarviðurkenningar fé-
lagsins í ár, Karl Sveinsson, fisk-
verkandi á Borgarfirði eystra,
Sæsilfur hf. og Malarvinnslan hf. á
Egilsstöðum. -hlh
DV-MYND GVA
Vopnaleit á Akureyri
Vopnaleitarvél var nýveriö tekin í
gagniö í flugstööinni á Akureyri. Vél-
in er í innritunarsalnum til bráöa-
birgöa en í næsta mánuöi er mein-
ingin aö koma henni varanlega fyrir
ásamt annarri leitarvél. Þessi vél er
fyrir handfarangur en hefur veriö not-
uö síöustu daga til aö skanna allan
farangur. Nýja vélin veröur sérstak-
lega fyrir lestarfarangur. Vopnaieit
hefur aö sögn gengiö snuröulaust
og ekki orsakaö tafir.
Stuttar fréttir
Fé til leikins efnis
Ríkisstjómin hefur að tillögu
menntamálaráðherra ákveðiö að
veita 15 milljónir króna til Kvik-
myndasjóðs til að veita styrki til leik-
ins sjónvarpsefnis. Mbl. greindi frá.
Meiri útblástur
Útblástur gróðurhúsalofttegunda á
íslandi var 7% meiri áriö 2000 en árið
1990. Spár um útblástur til 2020 benda
til þess að útblástur muni ekki
aukast umfrarn þau 10% sem Kyoto-
bókunin heimilar. Mbl. greindi frá.
Mikil aðsókn
Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinn í Laugardal í Reykjavík hef-
ur aldrei verið meiri í apríi en í ár.
Mbl. greindi frá.
Áfrýjunamefnd samkeppnismála
hefur vísað frá nefhdmni kæra flug-
félagsins Jórvíkur frá í mars þar sem
kærð var ákvörðun samkeppnisráðs
frá í febrúar 2003. Jórvík kvartaði
yfir ríkisstyrkjum í innanlandsflugi
til Flugfélags íslands og íslandsflugs.
Seölar berast seint
Greiðsluþegar Tryggingastofnunar
ríkisins fá póstinn ekki í hendur fyrr
en á mánudag vegna bilunar hjá
Reiknistofu bankanna. Mbl. greindi
frá.
Feröamessa
Ferðatorgs 2003 fer fram í Vetrar-
garði Smáralindar um helgina. Þar
getur fólk aflað sér upplýsinga um
ferða- og afþreyingarmöguleika um
allt ísland.
Sjá um Hornstrandir
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra og
forráöamenn ísafjarð-
arbæjar hafa undirrit-
að samning um að ísa-
fjarðarbær sjái um
friðlandið á Hom-
ströndum næstu 10 ár.
Fljótaleiö ekki dýrari
Trausti Sveinsson, sem um árabil
hefur barist fyrir því að farin verði
svonefnd FTjótaleið við jarðgangagerð
á Tröllaskaga, telur að nýir útreikn-
ingar sýni að það sé rangt að sú leið
verði dýrari en leiðin um Héðins-
fjörð. RÚV greindi frá. -hlh
Látinn
Haukur Clausen tannlæknir er
látinn á 75. aldursári. Haukur var
kunnur afreksmaður I iþróttum
og varð Norðurlandameistari í 200
m hlaupi 1947 og setti Norðurl-
andamet í sömu grein sem stóð í
mörg ár. Hann átti einnig fjölda
Islandsmeta í frjálsum íþróttum.