Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003
Helgarblað
DV
3000 börn deyja dag-
lega ún malaríu í Afrfeu
Erlendar fréttir vikun
Erlingur
Kristensson blaöamaöur r 'WU ’ M §
Fréttaljós ; - •
Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sem
opinberuð var í Kenía á föstudaginn í
tengslum við „Afríska malaríudag-
inn“, deyja rúmlega þrjú þúsund af-
rísk böm daglega úr malaríu, eða tvö
á hverri mínútu sem er nærri tvö-
fóldun á síðustu tíu árum.
Malaria, sem smitast við stungu
moskítóflugunnar, er því skæðasti
sjúkdómurinn sem herjar á afrísk
börn og er fimmtungur allra
dauðsfalla barna á aldrinum fimm ára
og yngri rakinn til hennar.
Fjögur mismunandi tilbrigði eru
þekkt af malaríu og herja þau ekki
aðeins á böm heldur líka fullorðna.
Ófrískar konur eru sérstaklega næm-
ar fyrir smitun en af þeim rúmlega
milljón manns sem malaría leggur að
velli árlega í öllum heiminum eru um
95% börn og þar af 90% frá Afríku á
svæðinu sunnan Sahara.
Snikilsjúkdómur
Malaría, sem er sníkilsjúkdómur,
hefur verið viövarandi í yflr níutíu
löndum i heiminum síðustu áratugina
og er nú svo komið að einn af hverj-
um tíu smitast árlega af sjúkdómnum,
aðallega í Afríku, Indlandi, Braslíu
Sri Lanka, Víetnam, Kólumbíu, Saló-
monseyjum og öðrum fátækum lönd-
um við miðbaug.
Sjúkdómurinn er vel læknanlegur
greinist hann á fyrstu stigum en hann
veldur ekki aðeins heilsufarslegum
skaða heldur líka efnahagslegum,
aðallega hvað varðar tapaðar vinnu-
stundir og einnig samdrætti í ferða-
iðnaði og fjárfestingum.
Þrátt fyrir að malaría sé skæð og
leggi marga að velli ná margir sem
smitast fullum bata en baráttan við
veikina getur staðið í ailt að tíu til
tuttugu daga og eins og áður segir
mikilvægt að hún greinist á fyrstu
stigum.
Hár hiti og kuldahrollur
Fyrstu einkenni malaríu eru hár
hiti og síðan kuldahrollur í kjölfarið
nokkrum stundum síðar og gera þessi
einkenni vart við sig á tveggja til
fjögurra daga fresti.
í verstu tilfellum getur sjúkdómur-
inn haft áhrif á nýma- og heilastarf-
semina og jafnvel valdið blóðleysi eða
dái sem leitt getur til dauða.
Þrátt fyrir áralangar tilraunir vís-
indamanna víða um heim til þess að
ráða niðurlögum sjúkdómsins deyja
nú fleiri úr honum heldur en fyrir
þrjátiu árum auk þess sem hann
hefur breiðst út tU mun fleiri landa.
Útbreiðsla sjúkdómsins er þó aðal-
lega bundin við lönd í hitabeltinu og
sunnan þess en einnig hefur hann
breiðst út tU Austur-Evrópulanda og
Tyrklands, auk þess sem nokkur tU-
feUi hafa að undanförnu greinst í
Bandaríkjunum.
Lyfin hætt að virka
Aukin útbreiðsla malaríu er helst
rakin tU þess að sníkUlinn hefur með
tímanum byggt upp mótstöðu gegn
venjubundnum lækningum og á sum-
um svæðum í Asíu eru algengustu
lyfin hætt að virka.
Þá hefur moskítóflugan einnig
byggt upp mótstöðu gegn helstu teg-
undum skordýraeiturs sem notuð
hafa verið tU þess að hefta útbreiðslu
sjúkdómsins en aukið hitafar i heim-
Berskjaldað barn
Ung börn og ófrískar konur eru
berskjölduö fyrir biti moskítóflugunnar,
sem ber malaríusníkilinn.
inum hefur frekar stuðlaö að
aukningu hans og útbreiðslu tU fleiri
landa utan hitabeltisins.
Pólitískt og efnahagslegt ástand á
ýmsum svæðum hefur einnig leitt tfl
þess að fólk hefur í auknum mæli flutt
tU svæða þar sem útbreiðsla sjúk-
dómsins er meiri en þar býr fólkið
síðan við sárustu fátækt og getur litt
varist moskítóflugunni.
Þá hafa ýmsar breytingar á um-
hverfinu, sem orsakast af landröskun,
eins og vegalagningu, námugrefti eða
áveituframkvæmdum, leitt tU betri
fjölgunarskilyröa fyrir fluguna.
Síðast en ekki síst hefur niður-
skurður fjármagns valdið því aö dreg-
ið hefur verið úr öUu eftirliti og upp-
byggingu fyrirbyggjandi aðgerða gegn
útbreiðslu sjúkdómsins en í sumum
tilfeUum hefur þurft að hætta öUum
fyrirbyggjandi aðgerðum vegna fjár-
skorts.
Fyrstu gleðifréttirnar
Undanfarm ár hefur stöðugt verið
unnið að rannsóknum á malaríu og
sem dæmi var 84 miUjónum doflara,
eða um 6,3 mUljörðum íslenskra
króna, varið tU þeirra rannsókna í
heiminum árið 1993. Aðaláherslan
hefur verið lögð á að þróa ódýrt bólu-
efni en þrátt fyrir það hefur ekki enn
þá tekist að ljúka þróun mótefnis sem
notað hefur verið utan rannsóknar-
stofnana.
Síðustu fréttir gefa þó góða von um
að eitthvað sé að gerast í þeim efnum
og hefur að sögn ónafngreindra vís-
indamanna þegar tekist að þróa bólu-
efni sem hefur reynst vel við tUraunir
á dýrum.
Fyrstu gleðifréttirnar bárust þó á
síðasta ári þegar bandarískir og ástr-
alskir visindamenn tilkynntu að þeir
hefðu greint þá þætti DNA-gena mala-
ríusníkilsins sem byggt hafi upp
ónæmi gegn hefðbundnum lyfjum og
það gæfi von um að hægt væri að þróa
mótefni sem bryti niður ónæmis-
vamir þeirra.
Plöntueitur lykillinn?
Dr. Geoff McFadden, sem fer fyrir
hópi bandarísku vísindamannanna
sem starfa við Eliza HaU-rannsóknar-
stofnunina í Bandaríkjunum, sagði að
líffræðUeg uppbygging áðurnefndra
DNA-gena malaríusníkUsins, sem
byggt hefðu upp ónæmi gegn hefð-
bundnum lyfjum, væri svipuð upp-
byggingu plöntugena og plöntueitur
gæti því reynst lykiUinn að þróun
nýrra lyfla gegn malaríu. „Það hafa
rannsóknir okkar reyndar þegar
sannaö," sagði McFadden.
Hann sagði einnig að stöðug
ónæmisuppbygging malariusníkUsins
hefði hingað tU verið helsta vanda-
málið við þróun nýrra lyfja og dæmi
væri um lyf frá áttunda áratugnum,
sem aðeins hefði dugað í þrjá mánuði.
„Það lyf sem mest hefur verið notað
tU þessa kom á markað á sjötta ára-
tugnum og er nú orðið alveg gagns-
laust þannig að í dag höfum við í raun
ekkert sem kemur í staðinn," sagði
McFadden.
Nýtt bóluefni
í desember sl. tUkynntu þýskir vís-
indamenn, sem starfa við háskólann í
Tubingen í Þýskalandi, að þeir hefðu
þróað nýtt bóluefni sem gæfi góðar
vonir. Það hefði þegar verið prófað á
fuUorðnum malaríusjúklingum með
góðum árangri og heföu þeú flestir
náð sér að fuUu á tveimur vikum.
Bóluefnið hefur þó ekki enn verið
prófað á börnum og segjast vísinda-
mennimir vonast tU þess að það verði
komið á markað innan tíu ára eftir
frekari rannsóknir.
Nýjustu fréttimar í baráttunni
gegn malaríu bárust frá Skotlandi í
síðasta mánuði þegar vísindamenn,
sem starfa við Edinborgarháskóla, tU-
kynntu að þeim hefði tekist að ein-
angra hluta prótíns sem framkaUaði
ónæmi gegn nýjum lyfjameðferðum.
Þykir uppgötvun þeirra marka
tímamót í baráttunni gegn malaríu og
er vonast tU að hún muni leiða tU
þróunar nýrra lyfia gegn
sjúkdómnum.
Eiturúðuð flugnanet
Miðað við stöðuna í dag er ljóst að
biðin eftir nothæfu lyfi eða bóluefiii
gegn malaríu gæti tekið nokkur ár tU
viðbótar og því ljóst að á meðan verð-
ur að grípa tU annarra fyrirbyggjandi
aðgerða eins og að halda moskítóflug-
unni í skefium. En tU þess þarf aukið
fiármagn og auknar aðgerðir.
Að mati sérfræðinga væri hægt að
draga verulega úr barnadauða í Af-
ríku með aðeins hálfs miUjarðs doU-
ara framlagi á ári en með þeirri upp-
hæð yrði hægt að framleiða flugnanet,
úðuð skordýraeitri, fyrir öU börn á
helstu malaríusvæðum Afriku og
draga þannig úr barnadauða um allt
að fiórðung.
í dag sofa aðeins um fimmtán pró-
sent afrískra barna undir flugnaneti
en aðeins um tvö prósent undir netum
úðuðum með skordýraeitri. Rann-
sóknir með eiturnetin hafa sýnt að
þau vemda ekki aðeins börnin því
eitrið drepur moskítófluguna og stuðl-
ar þannig einnig að verulegri fækkun
hennar.
Hálfur mUljarður doUara er aUs
ekki há upphæð á heimsvísu en tU
samanburðar má geta þess að gælu-
dýraeigendur í Bandaríkjunum eyða
svipaðri upphæð árlega tU þess að
verja gæludýr sín fyrir skordýra-
bitum.
í áðurnefndri skýrslu Alþjóða heU-
brigðisstofnunarinnar, WHO, kemur
fram að ef ekkert verði að gert muni
malaríuvandinn aukast stig af stigi og
verða að meiri háttar faraldri sem erf-
itt verður að fást við.
Þess vegna hefur WHO ýtt úr vör
átaki sem miðar að því að draga um
helming úr barnadauða af völdum
malaríu fram tU ársins 2010.
JJ3J/
Mannskæður jarðskjáifti
Á annað hundrað
( manns týndi lífi í
öflugum jarðskjálfta
sem reið yfir suð-
austanvert Tyrkland
aðfaranótt fimmtu-
dags. Meðal hinna
látnu eru tugir
bama sem sváfu I heimavist skóla
síns í bænum Bingöl. Þegar síðast
fréttist voru björgunarsveitir enn
að leita í rústum heimavistarinnar
þar sem tugir nemenda voru taldir
vera grafnir. Bæjarstjórinn í Bin-
göl sagði að haldið yrði áfram að
grafa í rústunum þar tU öUum
börnunum hefði verið náð.
Lýsti yfir sigri í írak
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti því yfir í vikunni að bar-
dögum í írak væri að mestu lokið,
með sigri Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra. Harðstjórinn
Saddam væri faUinn og írak frels-
að. Bush sagði við sama tækifæri,
um borð í flugmóðurskipinu Abra-
ham Lincoln, að sigurinn í írak
væri mikflvægur áfangi í barátt-
unni viö hryðjuverkamenn. Donald
Rumsfeld, landvamaráðherra
Bandaríkjanna, heimsótti írak í
vikunni, og bandarískir hermenn
drápu á annan tug íraskra borgara
i bæmun FaUudja.
Garner fundaði í írak
Jay Gamer,
bandarískur her-
námsstjóri íraks,
fundaði í vikunni
með fuUtrúum ým-
issa áhrifahópa
innan íraks og var
samþykkt að boða
tfl annars fundar
innan fiögurra vikna þar sem ætl-
unin er að skipa bráðabirgðastjóm.
Gamer lagði áherslu á það að fuU-
trúar aUra áhrifahópa ættu sæti í
væntanlegri stjóm. Skiptar skoðan-
ir eru meðal íraka um þátt Banda-
ríkjamanna í uppbyggingarstarfmu
í landinu í kjölfar stríðsins fram að
kosningum sem lofað hefur verið
að muni verða haldnar í fyUingu
tímans.
ísraelar drápu á Gaza
Daginn eftir að svokaUaöur veg-
vísir að friði fyrir botni Miðjarðar-
hafs var kynntur málsaðUum, ísra-
elskum stjómvöldum og palest-
ínsku heimastjórninni, réðust ísra-
elskir hermenn inn í úthverfi
Gaza-borgar og feUdu á annan tug
manna, þar á meðal tveggja ára
gamlan dreng. ísraelamir beittu
meðal annars skriðdrekum í
árásinni. Yasser Arafat, forseti
Palestínumanna, sagði að árásin á
fimmtudag lýsti vel friðarvUja ísra-
ela. ísraelar sögðust vera að svara
fyrir sjálfsmorðsárás í Tel Aviv á
miðvikudagsmorgun þar sem þrír
ísraelar létust. Vegvisirinn svokaU-
aði gerir meðal annars ráð fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna fyrir árið 2005.
Faraldur aö ná hámarki
HeUbrigðisyf-
irvöld í kín-
versku höfuð-
borginni Peking
lýstu því yfir
undir vikulok að
svo virtist sem
bráðalungna-
bólgufaraldurinn
í borginni væri
að ná hámarki. Hvergi á byggðu
bóli hafa tilfeUi sjúkdómsins verið
fleiri. Af þeim sökum hefur mikUl
ótti ríkt meðal íbúa borgarinnar
þar sem hátt í tíu þúsund manns
hafa verið sett í sóttkví. Yfirvöld í
kanadísku borginni Toronto fogn-
uðu mikið í vikunni þegar Alþjóða-
heUbrigðismálastofnunin afturkaU-
aði viðvörun sína um ónauðsynleg
ferðalög tU þessarar háborgar við-
skiptalífsins í Kanada. Toronto var
sú borg utan Asíu þar sem flest tU-
feUi af bráðalungnabólgunni höfðu
komið upp. Þar létust einnig
nokkrir af völdum sjúkdómsins.