Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Side 18
Helcfct rblaö 13 "V LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003
I 8
Guðný Bergsdóttir á góðum degi í Nýhöfn í Kaupmunnahöfn á spjalli við tónlistarmenn á götunni.
ljóta andarungans
Guðný Bergsdóttir er íslenskur blaðamað-
ur, búsett íKaupmannahöfn. Hún segir Evu
Hreinsdóttur hispurslaust frá litríkri ævi
sinni, blaðamennsku á Tímanum, samkyn-
hneigð og samböndum við karla og konur.
Guðný hefur margt reynt og lætur engan
bilbug á sér finna.
Hún er ekki feimin við aö láta vaða, Guðný Bergsdótt-
ir blaðamaður (eða blaðurmaður, eins og hún vill oft
kalla sig). Hún er fædd í Reykjavík, sjálfstæöisárið 1944,
uppalin á Akureyri en hefur búið um árabil í Kaup-
mannahöfh og síðastliðin 12 ár starfað hjá Blindrafélagi
Danmerkur þar sem hún sér meðal annars um fréttablað
félagsins. Hún hefur ekki farið varhluta af áfóllum í líf-
inu. Það nýjasta er að henni ásamt mörgum öðrum
starfsmönnum blindrafélagsins var sagt upp vegna sam-
dráttar í rekstri. Guðný er komin á þann aldur að oft er
erfitt að fá fasta vinnu aftur en ætlar sér ekki að gefast
upp.
Guðný er dóttir Bergs Pálssonar, skipstjóra frá Hrísey,
og Jónínu Sveinsdóttur. Þau hjónin, sem bæði eru látin,
áttu 5 böm og er Guðný elst þeirra. Næstelstur var bróð-
ir hennar Páll, landfræðingur og kennari, sem lést úr
krabbameini 46 ára, aðeins sex mánuðum eftir að Berg-
ur faðir þeirra lést. Foreldra og ekki síst Páls er enn sárt
saknað. Guðný segir aö systur hennar tvær hafi hún
áður fyrr litið á sem einhverja skyldu, sem þurfti oft að
draga með sér, ekki síður en Berg, yngsta systkinið. Nú
er annað upp á teningnum og systkinin era mjög sam-
rýnd þótt langt sé á milli þeirra landfræðilega. Systur
Guðnýjar búa fyrir norðan, Þórunn er skólastjóri og Guð-
rún upplýsingafulltrúi en Bergur fetaði í fótspor foður
síns og var þar til fyrir skömmu yfirvélstjóri á flutninga-
skipi en starfar nú í landi.
Guðný hefur verið í samböndum við bæði karla og konur og hún veltir því fyrir sér í viðtalinu hvort hún eigi
kannski að prófa karlmann næst en finnst sokkaþvotturinn svo leiðinlegur.
Litli ljóti andarunginn?
„Ég var fædd virkilega ljót, litli ljóti andarunginn,
nema ég held að ég hafi ekki skánað. Nefið á mér var
kallaö Holmenkollen en ég er með alveg hreinræktaö
kartöflunef,“ lýsir Guðný sjálfri sér og alltaf er jafiistutt
í hláturinn.
„Mamma og pabbi voru bæði falleg og það era systk-
ini min líka, svo ég veit ekki hvaðan útlitið kemur, ekki
frekar en annað við minn persónuleika." Ekki fer þó á
milli mála að Guðný er sérstaklega létt og skemmtileg,
hvað sem henni finnst sjálfri um útlitið. Það geislar bók-
staflega af henni.
„Við systkinin voram alin upp í mikilli ást og gleði en
pabbi var oft mánuöum saman að heiman, þannig að