Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Qupperneq 27
LAUGARDAOUR 3. MAÍ 2003
// e I c) a rblo c) DV
27
til að opna þína leið eða loka
henni. Þannig að það er mjög
varhugavert að gefa fólki bara
eitthvert nafn. Ef nafnið er ekki
rétt og hentar ekki barninu verða
örlögin mun erfiðari.
Ég get tekið nærtækt dæmi, af
sjálfum mér. Fram til fimm ára
aldurs var ég mjög opið og glað-
lynt barn sem lék sér og hafði
gaman af því. Þegar ég var fimm
ára dó faðir minn og þá fór vit-
und mín að verða miklu nærtæk-
ari sjálfum mér. Ég horfðist í
augu við lífið og dauðann og fór
inn í skel. Það sem gerðist líka
var aö nafnið varð mér til trafala
og ég fór að nota það á neikvæð-
an hátt. Það var erfítt fyrir mig
sem lítinn strák úr sveit að fara í
skóla og heita Hermundur Rósin-
kranz Sigurðsson. Þetta var
þungt og mikið nafn og gamalt í
sér. Ég þorði varla að bera þetta
nafn frammi fyrir öllum hinum
krökkunum og faldi mig á bak
við mömmu þegar skólastjórinn
kallaði upp nafnið. Ég fór fljót-
lega að láta fólk kalla mig
Hemma. Ég nýtti mér ekki ork-
una sem bjó á bak við persónu-
leikann í nafninu Hermundur
Rósinkranz, varð hlédrægur og
feiminn og varð því fyrir einelti í
skóla. Tjáningin var engin og í
rauninni var ég ekki ég.
Svo liðu árin og ég fór að taka
nafninu betur. Um leið og ég
sættist við nafnið mitt hætti ég
að vera reiður, árásargjarn og
pirraður innra með mér. Þegar
lyklarnir fara að virka í nafninu
og maður er orðinn sáttur við
nafnið sitt og stoltur af því þá er
maður um leið orðinn stoltur af
sjálfum sér. Hluti af því að vera
heill maður er að vera sáttur við
nafnið sitt því nafnið fylgir
manni alla ævi.“
Lék við álfa og huldufóllt
Þegar maöur hlustar á þœttina
þina finnst manni að þú sért ekki
eingöngu að notast við talnaspeki
heldur einnig skyggnigáfu.
„Skyggnigáfan hefur fylgt mér
frá fæðingu. Ég man best eftir
sjálfum mér frá fæðingu og fram
til fimm ára. Ég átti heima í
Hveragerði og þar var stórt og
mikið klettabelti þar sem ég lék
mér við huldufólk og álfa. Þegar
ég var í kringum fjögurra ára
aldurinn hljóp ég upp í klettana
og þá komu krakkar niður stíg úr
berginu og ég lék mér við þá. Mér
fannst þetta ósköp eðlilegt en
seinna, þegar ég spurði mömmu
mína, áttaði ég mig á að þetta
voru ekki krakkarnir sem bjuggu
i Hveragerði
Ég fór fyrst úr líkamanum þeg-
ar ég var um það bil tveggja ára.
Ég man eftir mér þar sem ég sat
uppi í gluggakistu og horfði á
stjömurnar og var að hugsa um
þær. Svo heyrði ég mikinn barns-
grát sem var stöðugt að trufla
mig. Ég sá pabba minn fara á fæt-
ur og stumra yfir barni í barna-
rúmi. Þá áttaði ég mig á því að
þetta barn var ég. Ég var fárveik-
ur en hafði farið úr líkamanum
til að fá að vera í friði. Um leið og
ég áttaði mig á þessu sneri ég aft-
ur í líkamann.
Skyggnigáfa mín hafði trufl-
andi áhrif á mig í bamaskóla. Ég
átti við lestrarörðugleika að
stríða þegar ég var yngri og
þurfti að sitja framarlega til að
geta fylgst með því hvað stæði á
töflunni. Það var viðtekin hefð í
Austurbæjarskólanum að standa
upp og hneigja sig þegar einhver
kom inn í stofuna. Ég var alltaf
að sjá fólk koma inn og stóð þá
upp og kennarinn var sífellt að
segja mér að setjast. Ég sá fólk
sem aðrir sáu ekki. Þetta endaði
með því að ég þurfti að færa mig
aftast i bekkinn því þaðan sá ég
þegar hinir krakkarnir stóðu upp
og stóð upp um leið og þeir.
Ég gerði mér ekki grein fyrir
því að ég væri skyggn og sæi það
sem aðrir sáu ekki. Þess vegna
skildi ég ekkert af hverju ég var
skammaður fyrir að standa upp
þegar ég sá fólk koma inn. Mér
fannst ég vera heimskur og
fannst ég eiga bágt af því ég vissi
ekki hvenær ætti að standa upp
og hvenær ekki.
Skyggnigáfan dvínaði á ung-
lingsárunum en varð aftur áber-
andi eftir tvítugsaldurinn. í raun-
inni var ég þó aldrei fullkomlega
viss um að ég væri eitthvað öðru-
vísi en aðrir fyrr en ég fór að lesa
um miðla og hitti miðla. Ein-
hvern tíma var ég spurður hvern-
ig væri að vera eins og ég, að sjá
og fmna og skynja. Ég sagðist
ekkert geta svarað því. Það eina
sem ég gæti spurt viðkomandi að
væri hvernig væri að vera eins
og hann sem sæi ekki og fyndi
ekki.“
Flugslys, pestir og
hryðjuverk
Geturóu spáð fram í tímann?
„Ég fer í djúptrans, oft ásamt
konu minni, og við fáum þannig
upplýsingar sem hafa margoft
komið okkur á óvart. Við fengum
til dæmis upplýsingar um að lof-
steinn myndi fara mjög nálægt
jörðu árið 2024. Ári seinna var ég
að fletta blöðunum og sá frétt um
að vísindamenn væru búnir að
finna loftstein sem þeir teldu að
gæti lent á jörðinni um svipað
leyti. Ég var búinn að fá fréttirn-
ar ári áður en þær birtust.
Fyrir áramót fór ég í trans fyr-
ir þátt sem ég átti að fara í á
Bylgjunni. Þá sagði ég að fréttir
myndu koma úr loftinu og þar
væru átök, ég sagði að stórir og
miklir stormar myndu geisa, sem
við hefðum ekki upplifað áður,
og ég sá mikla sprengingu í
strandbæ. Ég sá einnig fjölda
flugslysa, og það munu verða
mörg flugslys á þessu ári.
Strax eftir áramót hröpuðu
nokkrar flugvélar, strandbærinn
sprakk á nýársdag á markaði
sem var að selja flugelda og
stormar fóru yfir eyjar. Þetta
þrennt kom sem sagt fram
skömmu eftir að ég setti fram
spádóminn. Ég sagði að það
kæmu fréttir með loftinu, í formi
flensu sem gæti orðið jafn skæð
og svarti dauði. Svonefnd Asíu-
inflúensa sem við erum að upp-
lifa núna er einungis upphafið,
það eiga eftir að verða miklu
skæðari flensufaraldrar. Hryðju-
verk verða mikil á árinu í tengsl-
um við innrásina í írak og bæði
Bandaríkjamenn og Bretar verða
fyrir þeim. Bush er ekki góður
leiðtogi og mun halda áfram
sinni hættulegu utanríkisstefnu."
Mannkyn
á breytingaskeiði
Þetta hljómar eins og það sé
ekki sérlega bjart fram undan,
eóa hvaó?
„Það er alls ekki eintómur
sorti. Öld vatnsberans er hafin,
hófst 5. maí 2000 þegar sjö stjörn-
ur röðuðu sér upp í eina beina
línu, sem gerist ekki nema á
fimm þúsund ára fresti. Þessar
stjörnur eru allar persónustjörn-
ur sem hafa áhrif á persónuleika
okkar. Maöurinn er að fara í
gegnum gríðarlegt tilfinninga-
uppgjör með sjálfum sér og hann
er að opnast gagnvart því hvað
kærleikur er. Mannkynið er að
fara í gegnum afar miklar breyt-
ingar." -KB
I 1
*
r T
£ Y /
m v*
Barnabolir 7-13 ára
590
Verð áður kr. 990
"5
Dömubolir
590
Verð áður kr. 990
Stelpublússur 7-13 ára
Verð áður kr. 1990
Dömuvesti
1990
Verð áður kr. 3490
SUfifM
&JL.-1
fífSLfi TTUR.
LÆGSTA VERÐIÐ LÆKKAR ENN FREKAR
\
Dömubuxur
1990
Verð áður kr. 2990
I ' / , ‘
I %j
Dömubuxur -
299
Verð áður kr.
Dömupeysa
990
Verð áður kr. 1490
"7
Barnapils 7-13 ára
990
Verð áður kr. 1990
Fálkahúsinu, Suðurlandsbraut 8
sfmi: 554 0655 • opið: 10-18 virka daga, 11-17 laugard. 11-16 sunnud.
*Verð eru birt með fyrirvara um prentvillur.