Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Side 33
LAUOARDAGUR 3. MAÍ 2003
H e Iqcí rb la ð 13 "V
37
Blind
ást
-Bankaræninginn John Killock átti sér eiginkonu, lang-
tíma-hjákonu og langan fangelsisdóm yfir höfði sér þeg-
ar hann mœtti stóru ástinni.
Flugmaöurinn Tim
Joyce átti ekki
annarra kosta völ
en að hlýða þegar
byssum var belnt
að honum.
Ástin er óútreikanleg og fölnar og blómstrar eftir óviss-
um lögmálum og oft óútskýranlegum. Oft leiðir ástin fólk í
fyrirsjáanlegar ógöngur og öðnun óskiljanlegar. Hvað dró
rúmlega fertugan bóksaflisfræðing, glæsilega og vel mennt-
aða konu í góðri stöðu, að sextugum atvinnu-
glæpamanni, sem alið hafði mestan sinn aldur
í fangelsum, er öðrum hulið. Ekki síst fyrir þá
sök að karlinn var heilsutæpur, var kvæntur
og átti sér hjákonu að auki og enginn sem tii
þekkti spáði nema ömurlegri framtíð.
Hann ólst upp í glæpaklíkum og fangelsum í
Ástralíu og var byssubófi, þjófur og mannræn-
ingi. Hún var vel menntuð, glæsileg og nýskil-
in við mann sinn þegar hún hitti bófann í gleð-
skap sem henni var boðið til. Það var árið 1997.
Þar varð ást við fyrstu sýn og örfáum mánuð-
um síðar varð siðfágaður bóksafhsfræðingur að
vel vopnuðum flugræningja sem náði élskhuga
sínum úr fangelsi á glæfralegan hátt.
Lucy Dudko er einkadóttir rússneskra inn-
flytjenda. Faðir hennar var prófessor sem vissi
hvað í dóttur hans bjó og hvatti hana til að nota
góðar gáfúr og glæsilegt yfirbragð til að mennta
sig og komast áfram í nýju og öðruvísi samfé-
lagi en þau ólust upp í. Lucy var með háskóla-
próf í rússneskri menningarsögu auk þess að
vera lærður bókasafhsfræðingur. Hún bauð af
sér góðan þokka og var það mörgum undrunar-
efhi þegar hún batt trúss sitt við ótíndan glæpa-
mann en hefði ella getað valið úr frambærileg-
um mannsefnum. En „ást er fædd og alin blind“
og verður skynsemin stundum að víkja fyrir
„sterkasta aflinu“ og er ekki um að fast.
Tveim árum síðar var John Killock lokaður
inni i fangelsi utan við Sydney rétt einu sinni og átti að sitja
lengi inni. En turtildúfumar gátu ekki án hvor annarrar
verið og heimsótti Lucy ástvin sinn í fangelsið eins oft og
leyft var.
í marsmánuði 1999 var mikið um að vera i Sydney, enda
var verið að byggja og bæta alla borgina vegna væntanlegra
ólympíuleika. Var því mikið um ferðamenn og var flest gert
til að greiða götur þeirra. Því var lítið tekið eftir þegar
hringt var í þyrluleigu og spurt hvort flugmaður myndi
ekki fara að óskum farþega, sem greiddi vel fyrir, í einu og
öllu. Því var jánkað og að morgni hins 25. sté aðlaðandi ung
kona upp í þyrluna sem Tim Joyce flaug. Hann var vanur
svaðilforum og björgunarstörfum í fleiri álfum og hafði gott
orð á sér sem öruggur og traustur flugmaður.
Lucy Dudko var með margar handtöskur meðferðis og
var ekkert óvenjulegt við það því ferðamenn hafa oft marg-
ar og margvíslegar mymdavélar og tilheyrandi hafurtask
með í útsýnisflug í þyrlum. Hún greiddi nokkur hundruð
dollara fýrir klukkustimdarflug. Þegar komið var á loft
bauð hún 350 dollara bónus ef flugmaðurinn gerði það sem
hún krafðist. Joyce féllst á það og fékk greitt í reiðufé, Hon-
um datt ekki í hug að gera ætti neitt ólöglegt.
Flogið var yfir Óperuhúsið og ólympiuleikvanginn sem
verið var að ljúka við. I fyrstu var Lucy þögul en þegar kom-
ið var yfir úthverfm spurði hún hvort flugmanninum væri
ekki sama þótt hann flygi að fangelsinu í Silverwater þegar
þau nálguðust þann stað. Hann benti henni á að ekki væri
leyfilegt að fljúga nær jörðu vegna hávaðamengunar og að
samkvæmt öryggiskröfum fangelsa væri bannað að stunda
lágflug nærri þeim. Að þeim orðum
sögðum sneri hann þyrlunni í átt að
höfninni.
Út undan sér sá Joyce flugmaður
hvar farþegi hans seildist í eina hand-
töskuna og hélt hann að loks ætti að
fara að taka myndir. En úr töskunni
tók bóksasafnsfræðingurinn veski og
upp úr því skammbyssu.
Hún beindi herini að höfði flug-
mannsins og tilkynnti að þetta væri
flugrán og væri þeim báðum fyrir
bestu að hann hlýddi fýrirskipunum
hennar í einu og ölllu. í fyrstu datt
Joyce í hug að snarsnúa þyrlunni til að
koma ræningjanum úr jafnvægi og
freista þess að afvopna konuna. Hann
sá brátt að það væri of hættulegt og
ætlaði þess í stað að ýta á sérstakan
neyðarhnapp sem var á fjarskipatækj-
um og mundu menn á neyðarvakt þeg-
Brúöarmyndin af vel gefinni menntakonu og efnilegum vísindamanni þegar
þau giftust í Rússlandi á sínum tíma. Þau Lucy og Alexy skildu og hún kynnt-
ist margdæmdum bófa í nýju landi.
Bankaræninginn John Killock var kaldrifjaöur
glæpamaður sem átti hug og hjörtu róman-
tískra kvenna.
ar í stað gera ráðstafanir. En Lucy vissi
hvað hún var að gera og var ráðið vel
undirbúið. Hún sagðist hiklaust skjóta
flugmanninn og þau færust þá bæði ef
hann reyndi að gera einhverjar óæski-
legar kúnstir og tók þar með fjarskipta-
tækin öll úr sambandi og tók stærri og
kraftmeiri byssu upp úr annarri tösku
og skellti sjálfvirku skotfærahylki á
sinn stað með vel æfðum handtökum.
Flugmaðurin var vel veraldarvanur
og sá að konunni var fúlasta alvara og
myndi hiklaust standa við hótanimar ef
henni væri ekki hlýtt undanbragða-
laust. Jocye spurði því hvað hún ætlað-
ist fyrir. Hún benti á fangelsið og skip-
aði honum að lenda í æfingagarðinum
þar sem þau ættu að taka farþega. Þeg-
ar þyrluflugmaðurinn spurði Lucy
hvort hún væri snarvitlaus svaraði hún
kuldalega að þeim væri báðum fyrir
bestu að hann gerði það sem honum
væri sagt.
Þegar þyrlan lækkaði flugið fóru
fangamir, sem vom úti við að veifa og
hrópa, og fangaverðir æptu í gjallar-
hom og vömðu við að þyrlan nálgaðist
meira og hótuðu að skjóta ef reynt yrði
að lenda.
Lucy skipaði flugmanninum að lenda
hvað sem hver segði og spurði hann þá
hvem hann ætti að taka um borð. Þá
hljóp gráhærður maður út úr hópnum
og hljóp á móts við lendingarstað sem
konan benti á. Áður en þyrlan snerti
jörðina stökk Killock upp á lendingar-
búnaðinn og kom þá hættuleg slagsiða á
þyrluna. Flugmaðurinn sá sitt óvænna
og sagði karlinum að flýta sér um borð
og mundi hann þá koma honum út íyr-
ir múrana. Killock snaraðist inn og
greip sjálfvirku byssuna sem ástkona
hans rétti honum.
Allt var þetta í hasarstíl Hollywood-
framleiðslunnar enda var flóttinn
skipulagður eftir þekktum kvikmynd-
um þar sem svalir karlar plötuðu fangaverði og löggæslu-
menn eftir kúnstarinnar reglum.
Strokufanginn sagði flugmanninum að honum yrði ekk-
ert mein gert ef hann aðeins gerði það sem honum væri
skipað, annars væri ekki um aðra
kosti að velja. Um tíu mínútum siö-
ar var Joyce skipað að lenda þyrl-
unni á sandströnd norðan við
Sydney og þar fóru flugræningjamir
út og sáust ekki næstu vikumar og
vissi enginn hvað af þeim varð.
Eftirförin
Nu hófst víðtækasta leit að saka-
mönnum í sögu Ástralíu. Fjölmiðlar
gerðu eins mikið úr flóttanum og
þeim var mögulegt. Mikið var um
myndbirtingar ásamt fjörlegum frá-
sögnum af ástum parsins.
Rakið var að Lucy kom til Ástr-
alíu ásamt foreldrum sínum á tí-
unda áratugnum og eiginmanni,
rússneska vísindamanninum Alexy
Lyovich, sem hún skildi við og
kynntist atvinnuglæpamanninum
John Killock. Hún varð svo yfir sig
hrifin að þau fluttu saman þrátt fyr-
ir að Killock væri kvæntur og ætti
þar að auki hjákonu sem hann var
búinn að halda við lengi. Það efldi
aðeins ástina þegar hún komst að
þvi að hann var margdæmdur og
fyrrverandi og tilvonandi fangelsis-
matur. Lucy lýsti ástvini sínum sem
manni sem hæfði sér fullkomlega,
hvað sem aðrir kynnu að finna að
honum.
Þegar þau kynntust átti hann yfir
höfði sér réttarhöld fýrir þrjú bank-
rán og að hafa skotið að lögreglu-
þjóni. Þegar bófinn var settur inn sór
bóksafhsffæðingurinn að hún myndi
aldrei yfirgefa hann og heimsótti
Killock i fangelsið eins oft og lög
leyfðu en hann var dæmdur til ævi-
langrar vistar þar fyrir afbrot sín.
Hún var svo hrifin að hún vingaðist
jafnvel við Gloriu, eiginkonuna sem
Killock var búinn að vera kvæntur í
20 ár.
Næstu 45 dagana eftir flóttann
birtu blöðin stöðugt fréttir af skötu-
hjúunum sem þau kölluðu Bonny og
Clyde. Ábendingar bárust um að þau
hefðu sést á Honolulu og Nýja-Sjá-
landi og jafiivel á Fidjieyjum. En lög-
reglan var viss um að þau hefðu
aldrei farið frá Ástralíu. Að lokum
fundust þau á móteli við húsvagna-
stæði skammt frá Sydney. Þau
skráðu sig þar sem herra og frú
Brown. Mótelstjórinn hringdi i lög-
regluna og taldi að strokufanginn og
vinkona hans hefðu dvalið þar fjóra
sólarhringa. Hann áttaði sig ekki í
fyrstu á hverjir gestir hans voru en
frú Brown talaði með smávægilegum
erlendum hreim og virtist tauga-
óstyrk. I fyrstu hélt stjórinn að þau
ættu í leynilegu ástarsambandi og
það kom honum ekkert við. En svo
kviknaði á perunni þegar hann varð
var við að karlinn Brown skammaði
leigubílstjóra heiftarlega og þar við
bættist að hann réðst harkalega að
hreingemingarkonu sem kom óvænt
inn i herbergi þeirra.
Klukkan hálfþrjú næstu nótt
vöknuðu gestir mótelsins upp við að
kallað var I hátalara lögreglubíls að
hjúin, sem kölluð vora Bonnie og
Clyde, yrðu handtekin og dygði ekki
að veita mótspymu. Fjöldi lögreglu-
bíla beindi Ijóskösturum aö herbergi
þeirra og vopnaðir verðir laganna
umkringdu húsbílastæðið og mótel-
ið.
Ástin lét ekki að sér hæða og þeg-
ar þau vora bæði lokuð inni bak við
lás og slá fóra þau fram á það við
fangelsisyfirvöldin að þau fengju
leyfi til að ganga í heilagt hjónaband.
Killock var settur í stranga örygg-
isgæslu og á litla von um að vera
sleppt lausum á ný. Lucy Dudko var
dæmd árið 2002 í 12 til 15 ára fang-
elsi. Við réttarhöldin var hún glæsi-
lega klædd og hélt reisn sinn þegar
hún reyndi að ljúga sig ffá þyrlurán-
inu og hélt því fram að þar hefði ein-
hver önnur kona verið að verki.
Þyrluflugmaðurinn var aðalvitnið
gegn henni og sór að flugvélaræn-
inginn væri konan sem ákærð var
fyrir fimm alvarleg afbrot, svo sem
mannrán, vopnað þyrlurán, fyrir að
hjálpa fanga til að stijúka og svo framvegis.
Hún situr nú í fangelsi og segist vera viss um að elskhugi
hennar muni losna á ný og þá muni hún taka á móti hon-
um og elska til æviloka.
Bókasafnsfræðingurinn Lucy
var glæsileg kona sem kaus sér marg-
dæmdan gtæpamann að ástvini.