Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Síða 36
40
/7 e / c) a rb la ö X>V LAUGARDAGUR 3. (vlAf 2003
Á vorin þegar náttúran fer afstað tekur
holdið við sér og líkamleg ást blómstrar
sem aldrei fgrr en þvímiður getur ástin
verið kenjótt ótukt og ekki endurgoldin.
Þvígetur regnst nauðsgnlegt að grípa til
hjálparmeðala til að vekja frggð þess sem
maður ber girndarhug til. Hjálparmeðulin
er mörg og margvísleg og ekki ólíklegt að
eitt þeirra gæti virkað.
Holdleg ást á sér
raargar stellingar
Það sem telst eró-
tík eða sjálfsögð
kynhegðun í einu
menningarsamfé-
lagi getur þótt
argasta klám og
öfuguggaháttur í
öðru.
Ástarhvatar eru fjölbreytilegir og því ekki víst
að allir hafi sömu virkni á allar manneskjur. Það
sem verkar örvandi á einn getur reynst letjandi á
annan. Matur og ýmiss konar drykkir hafa löngum
þótt frábær frygðarlyf og ekki tilviljun að fólk í til-
hugalífinu fer oft út að borða saman. Aðrir safna í
kringum sig hlutum sem eiga að hafa örvandi áhrif
á gredduna og losa um buxnastrenginn, þetta geta
verið erótískar bókmenntir, dónalegar matreiðslu-
bækur og handbækur um ástarlífið eða listmunir,
myndlist, tónlist, myndbönd eða skúlptúrar.
Það sem telst erótík eða sjálfsögð kynhegðun í
einu menningarsamfélagi getur þótt argasta klám
og öfuguggaháttur í öðru. í Austurlöndum er því
víða trúað að nashyrningshorn auki kyngetu
karla, Grikkjum til forna þótti ekkert tiltökumál
þótt eldri karlmenn ættu sér unga elskhuga af
sama kyni og í dag þykir samkynhneigð ekkert til-
tökumál á íslandi en stutt er síðan slíkt var álitið
argasta óeðli. Á sama hátt hafa mismunandi ástar-
Ástin vex í frjórri mold
Sheikh Nefzawi, höfundur The Perfumed Garden, þótti mikill sérfræðingur í ástarmálum, hann taldi aspas
ómissandi á matseðlinum til að viðhalda æskuþrekinu.
'
1
.
m
m
(*; ‘ . V>
■
•
■
*.
%
■
hvatar tengst ákveðnum tímabilum sögunnar og
mismunandi menningu.
Kræklingar kampavín og jarðepli
Fjölfræðingurinn Albertus Magnus, sem var
uppi á miðöldum, taldi máltíð úr akurhænuheilum
og rauðvín kraftmikið frygðarlyf og ekki drægi úr
árangrinum ef ferskum korianderlaufum, sem tínd
voru í síðasta kvarteli á minnkandi tungli, var
stráð yfir matinn. Albertus taldi einnig að ferskju-
át kæmi getulitl-
um körlum að
miklu gagni. Ara-
bíski læknirinn
Avicenna
(980-1037) ráð-
lagði sjúklingum
sínum að hræra
engifer og pipar
út í hunang fyrir
ástarleiki.
Frægasti elsk-
hugi allra tíma,
Casanova, taldi
kræklinga og
kampavín líkleg-
ast til árangurs
þegar tæla ætti
konu og státaði
sig af því að hafa
lagt tvær nunnur
samtímis með
hjálp fiskmetis og
freyðivíns. Að
eigin sögn byrj-
aði hann á því að
hækka hitann í
herberginu og fór
svo að leika sér
með matinn um
leið og hann
hellti kampavíni
í nunnurnar.
Casanova segist
hafa matað nunn-
urnar með kræk-
lingi úr eigin
munni og óvart
misst bita á milli
brjósta þeirra og
að sjálfsögðu
þurfti hann að
veiða matinn upp
með tungunni.
Breski grasa-
fræðingurinn
John Gerard
(1545-1612), sem er frægur fyrir alfræðibók sína
um plöntur, taldi gulrætur ómissandi á hverju
heimili til að bragðbæta hjónalífið. Grikkir og
arabar til forna voru á sama máli og töldu gulræt-
ur bæði bæta ástarlífið og auka úthaldið. Rithöf-
undurinn J. K. Huysmans (1848-1907) taldi ilm öfl-
ugasta ástarhvatann enda eru bækur hans uppfull-
ar af lýsingum á angan, ilmi og skítalykt.
Kleópatra drottning (69-30 f. Kr.) var að sögn nösk
á að vita hvaða ilmur þóknaðist karlmönnum og
baðaði sig í rósavatni.
Sheikh Nefzawi, höfundur The Perfumed Gar-
den, þótti mikill sérfræðingur í ástarmálum á sín-
um tíma, hann taldi aspas ómissandi á matseðlin-
um til að viðhalda æskuþrekinu. Nefzawi taldi víst
að möndlur og fururhnetur í hunangi ykju á getu
eldri karlmanna til bólfara og að lauksafi blandað-
ur með hunangi fengi meira að segja holdið á kar-
lægum ellibelgjum til að rísa. Viagra síns tíma.
Upptalningin er óendanleg, Loðvík sólkonungur
gekk með kartöflu í buxunum til að herða slátrið.
Kirsuber, hvítlaukur; sellerí, súkkulaði, pistasíu-
hnetur, dádýrshorn, vanilla, rjómi og kókaín, allt
þetta og margt fleira hefur einhvern tímann verið
talið til fryðarauka. Bananar eru sagðir auka frjó-
semi kvenna í Mið-Afríku og á Filippseyjum og
talið var að paprika hefði örvandi áhrif fyrst eftir
að hún kom á markað hér á landi.
Klingjandi linihringir
og titrandi málmtungur
í bókinni Mannkynið og munúðin eftir Reany
Tannahill er að finna mikinn fróðleik um kynlífssögu
mannkyns og þar á meðal ýmiss konar ástarhvata.
Grikkir álitu egg, lauk, hunang, kræklinga, ýmsar
krabbategundir og snigla gredduaukandi en Kínverj-
ar töldu flóknar efnablöndur vænlegri til árangurs.
Ein mixtúran hét „lyf sköllótta kjúklingsins" og átti
maður sem tók hana inn þrisvar á dag í sextíu daga
að fara létt með að fullnægja fjörutíu konum.
Kínverskir karlmenn notuðu einnig sérstaka gerð
limhringja með bjöllu, svokölluðum atorkubjöllum,
til að auka getu sína. Konur um allan heim hafa aft-
ur á móti notast við svonefndar búrmabjöllur eða kúl-
ur sem er smeygt upp í leggöngin fyrir samfarir til að
auka sæluna. Bjöllurnar hafa einnig þótt ágætar til
sín brúks einar og sér án þess að karlmaðurinn sé að
þvælast fyrir. í slíkum tilfelliun eru kúlurnar tvær,
önnur hefur að geyma kvikasilfursdropa en hin litla
titrandi málmtungu, og segja konur sem til þekkja að
þær valdi mikilli sælu við minnstu hreyfingu mjaðma
og fóta. í nútíma útgáfu eru kúlurnar þrjár í setti og
er sú þriðja hol að innan.
Unaðsjurtir og graðplöntur
Brönugrös hafa lengi verið tengd ástargaldri. Þau
þóttu og þykja eflaust enn góð til að vekja ástir séu
Holdið
er veikt