Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Qupperneq 3
Eins og allir vita eru afleiðingar reykinga eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál nútímans og kosta að minnsta kosti einn fslending lífið daglega! Þetta er gífurleg fórn
fyrir þá nautn, sem reykingarnar veita og hreint með ólíkindum að ekki skuli meira gert til að sporna gegn þeim! Líklega yrði harkalega brugðist við ef til dæmis umferðin
tæki slíkan toll, en til samanburðar má nefna að undanfarin ár hafa að meðaltali 24 farist í umferðarslysum á íslandi.
Það er erfitt að sitja hjá aðgerðarlaus! Þess vegna hefur DV ákveðið að hrinda af stað átakinu Notaðu fríið til að hætta! sem mun standa yfir í allt sumar. Við höfum
fengið Guðbjörgu Pétursdóttur, hjúkrunarfræðing til að gefa þeim góð ráð sem vilja nota sumarið til að hætta að reykja. Guðbjörg starfar á lungnadeildinni á Reykjalundi
og hefur um árabil fengist við reykingavarnir og aðstoðað ótalmarga við að hætta að reykja. Það er því mikill fengur fyrir lesendur DV að fá að njóta leiðsagnar Guðbjargar,
en fyrsti pistill hennar birtist hér að neðan. Fylgist með frá byrjun og komist að því af hverju Guðbjörg telur sumarfríið heppilegan tíma til að hætta að reykja.
Afleiðingar tóbaksnotkunar eru eitt helsta
heilbrigðisvandamál nútímans, en a.m.k.
einn Islendingur deyr daglega af völdum
sjúkdóma sem rekja má til reykinga,
margir langt um aldur fram. Þessir
sjúkdómar eru í heild dýrustu sjúkdómar
Guðbjörg Pétursdóttir, heilbrigðiskerfisins, en þar má nefna
hjukrunarfræðingur, gefur hjarta_ aaðasjúkdón^ lungnasjúkdóma
þeim góð ráð sem vilja
nota sumarið til að hætta °9 ýmsar te9undir af krabbameini. Það
að reykja. er því afar mikilvægt fyrir þá sem reykja
að hætta sem fyrst.
Það er sérstök skylda heilbrigðisstarfsfólks að hvetja
reykingafólk til að hætta að reykja og veita stuðning og
ráðgjöf sem hentar hverjum og einum, en kannanir sýna
einmitt að reykingafólk sækist eftir stuðningi til þess að
hætta að reykja.
(pistlum mínum mun ég á næstu vikum fjalla um ýmsar
hliðar þess að hætta að reykja og jafnframt reyna að gefa
góð ráð til að hjálpa fólki til að halda út reykleysið. Þeir
sem ætla að hætta að reykja geta þá tileinkað sér þá þætti
úr fræðslunni sem þeir telja að henti sér. Ekki er hægt að
setja allt reykingafólk í sama
flokk, og því verður hver og
einn að hætta á sinn hátt, á
sínum eigin forsendum og
nota sín eigin bjargráð.
Lesendum er velkomið að
senda inn spurningar eða
frásagnir um hvaða aðferð
þeim finnst virka best.
Hugsaðu þér hvað það væri jákvætt að
byrja fríið á því að taka sér tak og hætta
að reykja. Þú hefur nægan tíma tíl að vinna
með reykleysisáætlun þína, vinna gegn
fráhvarfseinkennum nikótínsins, yfirvinna
reykingaávanann, stunda siökun, hvílast
nægjanlega og sofa.
augnablikið með því að ákveða daginn sem þú ætlar að
hætta. Kannanir sýna að 72% íslendinga sem reykja vilja
hætta og' myndu eflaust gera það tafarlaust, án mikillar
umhugsunar ef þeir þekktu auðvelda leið til þess. Hugsaðu
málið!
Skoðum tóbakið aðeins nánar.
( reykingatóbaki eru um 2000 efni, en um 2500 [
munntóbaki. Að minnsta kosti 28 þeirra eru þekktir
krabbameinsvaldar. Tóbaksreykur er hins vegar blanda af
um 4000 mismunandi efnasamböndum og af þeim eru
rúmlega 40 sem geta valdið krabbameini. (tóbaksreyk
eru bæði lofttegundir, vökvi og örsmáar fastar
efnisagnir. (hverjum millilítra af reyknum sem
fólk sogar að sér eru 1 -5 milljarðar þessara
agna eöa 10-100 þúsund sinnum meira en
í menguðu borgarlofti. Það er því gífurlega
mikilvægt að hætta.
Hvernig er hægt að losna undan
reykingavananum?
Fyrst og fremst með góðum andlegum
undirbúningi. Þú undirbýrð þig fyrir rétta
Notum sumarfríið til að hætta að
reykja!
Sumarfríið er tilvalinn tími til að gera
eitthvað gott fyrir sjálfan sig. Hugsaðu
þér hvað það væri jákvætt að byrja fríið
á því að taka sér tak og hætta að reykja.
Þú hefur nægan tíma til að vinna með
reykleysisáætlun þína, vinna gegn fráhvarfseinkennum
nikótínsins, yfirvinna reykingaávanann, stunda slökun,
hvílast nægjanlega og sofa. (Fyrst eftir að þú hættir að
reykja geturþú fundið fyrir svefntruflunum, t.d. sofið meira
en venjuiega eða átt erfitt með svefn). Það er auðveldara
að hætta að reykja ef þú breytir um umhverfi. Kannski ferð
þú í ferðalag innanlands eða til útlanda og þá er fátt sem
tengir þig við gömlu reykingavenjurnar þínar.
Það er gaman að vera í sumarfríi og þegar lífið er
skemmtilegt er auðveldara að breyta um lífsstíl á jákvæðan
hátt. Breyta um mataræði, stunda reglulega hreyfingu og
njóta lífsins reyklaus!
Fyrsti dagurinn í sumarfríinu er því ákjósanlegur dagur til
að hætta að reykja!
Nicotinell*