Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2003, Qupperneq 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003
DV
DV-MYNDIR ÞÖK
Malarnám í Esjubergi er mjög áberandi þegar ekið er Vesturlandsveg um Kollafjörö
Steypustööin hf. gerir ráö fyrir aö Ijúka malarnáminu þarna á næstu fimm eöa tíu árum, en tekiö hefur veriö efni úr námunni í 50 ár.
Svöðusár í Esjurótum
- malarnámi mun Ijúka á næsta áratug
Efnisvinnsla í Esjubergl
/ hálfa öld hefur gríöarlega mikiö malarefni veriö unniö á þessum staö úr
Esjunni og stórvirkar vinnuvélar munu enn vera þar aö störfum næstu árin.
Malamámi í námu Steypustöðv-
arinnar hf. í Esjubergi mun ljúka
á næstu fimm eða tíu árum að
sögn framkvæmdastjóra Steypu-
stöðvarinnar, Sigurðar Sigurðs-
sonar. Eigendur eru farnir að
huga að því hvemig gengið verður
frá sárinu í Esjunni. Jarðefni hafa
verið tekin úr námunni í áratugi,
40 eða 50 ár. Steypustöðin hf. á 40
prósent af svæðinu og hefur starfs-
leyfi þar til nokkurra ára. Sigurð-
ur segir hluta námunnar vera
tæmdan en sums staðar sé efni eft-
ir. Séð sé fyrir endalokin á vinnslu
þar.
„Viö höfum verið í viðræðum
við samtökin Gróður fyrir fólk i
landnámi Ingólfs um hvemig við
göngum frá svæðinu eftir okkur.
Uppfyllingum verður komið fyrir í
sárinu og plöntum sáð.“
Að sögn Björns Guðbrands Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra samtak-
anna Gróður fyrir fólk í landnámi
Ingólfs, GFF, var búið að skipu-
leggja uppgræðslu á námunni í
sumar en afstaða landeigenda, þar
á meðal Steypustöðvarinnar,
leiddi til frestunar. Ástæðan var
sú að talið var að náman væri ekki
fullnýtt.
„Það voru dálítil vonbrigði því
Steypustöðin hefur verið mjög já-
kvæð varðandi uppgræðslu á
svæðinu. Náman hefur verið um-
deild og til dálítilla vandræða á
Kjalarnesi. Við höfum hins vegar
óskað eftir því við þá að þetta
verði þá tekið þeim mun fastari
tökum í vetur og hafist handa
næsta vor við uppgræðslu, að
minnsta kosti í þeim hluta
námunnar sem örugglega er full-
nýttur. Þeir hafa fullan hug á sam-
vinnu og ég á von á því að vel
gangi þegar þetta kemst af stað.“
Sigurður segir ekki hafa farið
fram umhverfismat á námunni
enda eigi slíkt eðli málsins sam-
kvæmt ekki við námur sem nú
þegar eru í vinnslu og hafi verið í
langan tíma.
„Ákvörðun um malamám er
tekin miðað við bestu þekkingu,
skoðanir og tíðaranda í samfélag-
inu á hverjum tíma. Þó svo sjónar-
miðum um umhverfisvernd hafi
vaxið fiskur um hrygg á undan-
förnum árum má ekki dæma
menn of hart aftur í tímann."
DV fjallaði á miðvikudag um
malamám í Ingólfsfjalli sem er
umdeilt meðal annars vegna sjón-
mengunar. Um það segir Sigurður:
„Umræðan um malarnámið í
Ingólfsfjalli er því út í hött. Skað-
inn er skeður og verður ekki bætt-
ur. Umhverfismat á við þegar ætl-
unin er að hefja nám, breyta því
eða færa. Það skiptir engu máli
varðandi námur sem hafa veriö
opnar lengi og lagar ekki neitt.
Sárið í Ingólfsfjalli verður alltaf
svona og þó svo þeir taki milljón
rúmmetra í viðbót verður það ekk-
ert ljótara fýrir vikið.“
Af þessu má draga þá ályktun að
umhverfismat sé í versta falli til-
gangslaust og í besta falli afar
íþyngjandi gagnvart eigendum mal-
amáma sem eru í rekstri. Því verði
að fara varlega í sakimar. Þetta er
í samræmi við orð Sivjar Friðleifs-
dóttur umhverfisráðherra í blaðinu
á miðvikudag þar sem fram kom að
verið sé að kanna hvort koma megi
við umhverfismati á gömlum nám-
um og þannig að það fari fram að
liðnum tilteknum fresti. -fln
Arnaldur Indriöason:
Sigraði annað
árið í röð
Glæpasagna-
höfundurinn
Arnaldur Ind-
riðason hlaut í
gær Glerlykil-
inn, norrænu
glæpasagna-
verðlaunin, fyr-
ir bók sína
Grafarþögn.
Þetta er annað
árið í röð sem
Arnaldur hlýtur verðlaunin en í
fyrra féllu þau honum í skaut
fyrir bókina Mýrina sem hefur
nú verið seld til átta landa. Til-
nefndar voru bækur frá Dan-
mörku, Finnlandi, Svíþjóð og
Noregi auk íslands og var dóm-
nefnd skipuð fulltrúum allra
landanna. Arnaldur veitti verð-
laununum viðtöku í Niðarósi í
gær en ekki náðist samband við
hann þar ytra.
Bækur Árnalds koma nú út
hver á eftir annarri erlendis og
sem dæmi má nefna að þýska
forlagið Bastei-Lubbe hefur
tryggt sér útgáfurétt á öllum
bókum Arnalds. Þá eru tvær
kvikmyndir eftir bókum Arnalds
í undirbúningi. Baltasar Kor-
mákur vinnur að gerð bíómynd-
ar eftir Mýrinni og Snorri Þóris-
son hefur stefnt að gerð alþjóð-
legrar stórmyndar eftir Napóle-
onsskjölunum. -áb
Hannes Hólmsteinn og Ingibjörg Sólrún í Seðlabankann:
Held að við höfum
bæði gott af þessu
„Ég geri ráð fyrir að hún gegni
sínum skyldustörfum af sam-
viskusemi eins og ég mun reyna
að gera,“ segir Hannes Hólm-
steinn spurður um hvers hann
vænti af samstarfi við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur í bankaráði
Seðlabankans. „Það er mjög fróð-
legt að vera í bankaráðinu. Það
er eins og að sækja reglulega
málstofu um efnahagsmál. Eg
held að við höfum bæði gott af
þvi.“
Þau Hannes og Ingibjörg voru
sem kunnugt er kjörin í banka-
ráðið af Alþingi í vikunni; Hann-
es var endurkjörinn en Ingibjörg
sest ný í þankaráðið. Ekki náðist
í Ingibjörgu Sólrúnu.
78 þúsund á mánuði
Greiðslur fyrir setu í banka-
ráði Seðlabankans nema 78 þús-
und krónum á mánuði sam-
kvæmt upplýsingum úr forsætis-
ráðuneytinu. Formaður banka-
ráðs hefur tvöfalda þessa upp-
hæð og varaformaður 1,5-falda.
Hannes Hólmsteinn Glssurarson.
Fundir bankaráðsins eru að jafn-
aði tveir á mánuði.
Auk þeirra Hannesar og Ingi-
bjargar voru kjörnir aðalmenn í
bankaráðið: Ólafur G. Einarsson,
Helgi S. Guðmundsson, Jón Sig-
urðsson, Sigríður Stefánsdóttir
og Ragnar Arnalds.
Meginverkefni bankaráðsins
samkvæmt lögum er að hafa eft-
irlit með því að Seðlabankinn
starfi í samræmi við lög sem um
Inglbjörg Sólrún Gísladóttlr.
hann gilda. Auk þess eru talin
upp í lögunum sérstök verkefni
sem ráðið skal sinna. Þau eru
meðal annars að ákveða laun og
önnur starfskjör bankastjóra; að
hafa umsjón með innri endur-
skoðun við bankann; að hafa eft-
irlit með eignum og rekstri
bankans; og staðfesta starfsregl-
ur sem bankastjórn setur um
margvíslega þætti starfseminn-
ar. -ÓTG
Róiö á röng miö?
íslandsbanki telur aö tryggingafélög-
in hafi ekki nægiiega skýra stefnu
varöandi fjárfestingar í hlutabréfum,
til dæmis vegi sjávarútvegsfyrirtæki
heldur þungt í eignasafni sumra
þeirra.
Tryggingafélögin:
Stefnan óskýr og
tími til að selja
Nokkuð skortir á þaö, að mati
Greiningar íslandsbanka, að fjár-
festingarstefna tryggingafélag-
anna sé skýr og bankinn telur að
félögin ættu að nýta tækifæri til
að selja hlutabréf úr safni sínu. í
frétt frá bankanum er vakin at-
hygli á því að ijárfestingarstarf-
semi skipti rekstur tryggingafé-
laga miklu. Þannig sé bókfært
verð skráðra hlutabréfa í eigu
Sjóvár-Almennra 7,8 milljarðar
króna, í eigu TM séu tæpir 6
milljarðar en tæpir 4 milljarðar
hjá VÍS.
Greining ÍSB nefnir sérstaklega
að hlutdeild sjávarútvegs í eigna-
safni TM sé mikil, eða ríflega
40%, en verðlagning sjávarútvegs-
fyrirtækja sé almennt nokkuð há
og því megi leiða rök að því að
ágætt tækifæri sé til að leysa inn
söluhagnað. „Að sama skapi má
nefna tækifæri til innlausnar
söluhagnaðar í hlutabréfasafni
Sjóvár-Almennra, til dæmis í
Eimskipafélaginu, Skeljungi og
Granda," segir i frétt bankans.
-ÓTG
Sjávarútvegsspá:
Vepsnandi afkoma
sjávarútvegs
Fram kemur í nýrri spá í vefrit
fjármálaráðimeytisins að afkoma
sjávarútvegs hefur versnað um-
talsvert frá árinu 2001 en þó er
gert ráð fýrir að greinin skili
áfram hagnaði á þessu ári. í
vefritinu kemur fram að hagnað-
ur ársins 2001 var óvenju góður
og nam hagnaður fýrir afskriftir
og fjármagnsliði 21% af tekjum.
Þar er hagnaður allra greina sjáv-
arútvegsins tekinn með í reikn-
ingin og eftir skatta var niðurstað-
an 11% af tekjum. Undanfarið
hafa síðan rekstrarskilyrði grein-
arinnar breyst þannig að fjármála-
ráðuneytið hefur gert afkomuáætl-
un fyrir árin 2002 og 2003. Þar
kemur fram að veiðigreinar
standa mun betur en vinnslu-
greinar sem eru taldar verða
reknar með halla á þessu ári.
Einnig kemur þar fram að lítið
megi út af bregða til að greinin
lendi í heild sixmi í taprekstri.
Miðað við þær forsendur, sem
áætlun fjármálaráðuneytisins
byggir á, má áætla að sjávarútveg-
urinn í heild verði rekinn með
halla ef gengið hækkar upp fyrir
4% miðað við meðalgengi maí-
mánaðar. Þó er bent á að aðlögun-
arhæfni sjávarútvegsins hér á
landi sé mikil þar sem fýrirtæki
bregðast gjaman við gengisbreyt-
ingum og verðbreytingum á rnörk-
uðum erlendis með því aö flytja
sig á milíi markaða. í reikxiifigum
ráðuneytisins er ekki gert raö fyr-
ir slíkum tilfærslum en þær
myndu óneitanlega hafa jákvæð
áhrif á afkomuna. -áb