Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAOUR 7.JÚNI2003
DV Bingó
Tveir hafa þegar
tilkynnt bingó á B-
röðina og er þeim
leik því lokið. Nú
leikum við I-röðina
og hér tU hliðar birtist
fyrsta talan í þeim leik.
Spilað verður á bingóspjald
DV í allt sumar og veglegir ferða-
vinningar íboði. Samhliða því að
einstakar raðir eru spilaðar er allt
spjaldið spilað. Ferð með
Iceland Express er í boði fyrir
bingó á I-röðina en vikuferð til
Portúgals með Terra Nova Sól í
boði fyrir allt spjaldið.
Efni blaðsins
IP-tala kemur upp um
klámhundana
— fréttir bls. 6
Aðeins hundurinn vildi
tala við Clinton
- erlent fréttaljós bls. 14
Draumaprinsinn á
Rauðarárstíg
- DV Helgarblað bls. 26
Hvítlaukur
- Matur og vín bls. 24-25
Rútubílstjóri kallar á
hjálp
- DV helgarblað bls. 28
Færeyingar bjartsýnir
- DV Sportbls. 40-41
| + A UM HVÍTA-
II Æ\ SUNNUNA
DV kemur næst út þriðjudaginn 10.
júní. Smáauglýsingadeildin er opin
samkvæmt venju í dag en lokuð á
morgun,sunnudag.Á mánudag er
opið kl. 16-22. Panta má og skoða
smáauglýsingar á www.smaar.is.
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson
Aftalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aftstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjörn, skrifstofur, auglýsingar,
smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Skaftahlíft 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550
5020 - Aðrar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar:
auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerft og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins
í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgialds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl vlð þá
eða fyrir myndbírtingar af þeim.
Planet Reykjavík opnuð á ný
LÍKAMSRÆKT: Lfkamsrækt-
arstöðin Planet Reykjavík
verður opnuð á ný í dag eftir
aðTollstjórinn ÍReykjavík inn-
siglaði fýrirtækið á miðviku-
dag vegna vangoldinna
vörslugjalda. Nýr aðili hefur
tekið við rekstrinum og er Sig-
rún Benediktsdóttir lögmaður
í forsvari fyrir hann. Magni
Már Bernhardsson verður
áfram framkvæmdastjóri
Planet Reykjavík og vildi
hann, í samtali við DV.ekki
gefa upp hver það væri sem
tæki við rekstrinum en sagði
að það myndi skýrast síðar í
vikunni. Starfsmannafundur
var haldinn í gær. Allt starfs-
fólk verður endurráðið á
sömu kjörum og allir við-
skiptavinir munu halda s(nu.
Eiður fyrirliði
KNATTSPYRNA: EiðurSmári
Guðjohnsen verður fyrirliði
(slenska landsliðsins í
knattspyrnu í dag þegar liðið
mætir Færeyingum í
undankeppni EM.Þetta
verður í fýrsta sinn sem Eiður
Smári er fyrirliði liðsins en
Rúnar Kristinsson hefur gegnt
þeirri stöðu undanfarið.
Þýfið fundið
RÁN: Nítján ára piltur játaði í
gær að hafa framið bankaránið
(Grindavík á fimmtudag. Þýfið
fannst nærri Reykjanesvita. Föt-
in sem maðurinn klæddist.auk
hnífs sem hann ógnaði starfs-
fólki bankans með,fundust eft-
irábendingu hans.Sami maður
var einnig handtekinn í apr(l sl.
fyrir vopnað rán í Sparisjóði
Hafnarfjarðar.
Sóttmengaður úrgangur
á glámbekk á ísafirði
Einfalt óhapp, segirJón Frantzson, framkvæmdastjóri íslenska gámaféiagsins
Lögreglan á ísafirði telur lík-
legt að íslenska gámafélagið
verði kært fyrir brot á reglum
um flutning á hættulegum
farmi en flutningabíll frá fyr-
irtækinu stóð opinn með
sóttmengaðan sjúkrahúsúr-
gang á ísafirði aðfaranótt
föstudags.
Farmurinn var í plastpokum sem
fuglar og fólk höfðu aðgang að vegna
þess að hlera vantaði á bílinn. Komið
hefur fram í fjölmiðlum að fslenska
gámafélagið hafi ekki leyfi til að flytja
sóttmengaðan úrgang. Jón Frantz-
son, framkvæmdastjóri fslenska
gámafélagsins, segir að þama hafi
einfalt óhapp átt sér stað og segir það
úr lausu lofti gripið að fyrirtækið hafi
ekki Ieyfi til að flytja vaming af þessu
tagi.
„Það sást í poka með sorpinu en
þeir vom vel varðir og plastaðir,"
sagði Jón í samtali við DV.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fs-
lenska gámafélagið kemst í kast við
heilbrigðisyfirvöld, því fyrirtækið sá
MEÐ SÓTTMENGAÐ SORP: Flutningabíll
frá Islenska gámafélaginu.sem hafði staðið
á Isafirði með sóttmengað sorp, var tæmdur
á föstudag og sendur til Reykjavíkur.
um salemisaðstöðu á Eldborgarhá-
tíðinni árið 2001. Þá var bílhlassi af
úrgangi sturtað á sand þar sem hann
sást greinilega ffá þjóðvegi og varð
fréttamatur á sfnum tíma. Málið var
afgreitt þannig að fslenska gámafé-
lagið hreinsaði upp úrganginn eftir
að stofnunin gerði athugasemdir og
engir aðrir eftirmálar urðu af málinu.
„Þetta em ólík mál að mínu mati
en það er vissulega slæmt að lenda
tvisvar sinnum í svona leiðindamál-
um. Árið 2001 var það mest van-
kunnáttu okkar að kenna að illa fór
og slíkt hefur ekki gerst aftur. Við
munum líka læra af þessu máli,"
sagði Jón Frantzson, framkvæmda-
stjóri íslenska gámafélagsins. kja&dv.is
Mega fjarlægja olíu
Norska ríkisstjórnin ákvað í gær
að siglingamálastofnun Noregs
mætti tæma olíu úr flaki Guðrúnar
Gísladóttur sem strandaði við
strendur Norður-Noregs fyrir tæpu
ári. Slæmt veður og fjárskortur hef-
ur tafið að eigandi flaiksins, fshúsié-
lag Njarðvíkur, hafi getað hafið
björgunaraðgerðir. Norska ríkis-
stjórnin féllst ekki á þessar afsakan-
ir og veitti því leyfið í gær til að
koma í veg fyrir mengunarslys.
Dripplað um landið
Tvær fylkingar íþróttamanna á
vegum Þórs á Akureyri og
Körfuknattleikssambands fslands
hlaupa nú frá Egilsstöðum til Kópa-
vogs og drippla körfubolta á leið-
inni. Annar hópurinn ferð norður
um land en hinn suður. Hlaupið
hófst á fimmtudag og er áætlað að
því ljúki á mánudag. Hlaupið verð-
ur allan sólarhringinn. Áheitum
verður safnað og rennur ágóðinn til
Landssöfnunar Regnbogabarna.
MÁ BJÓÐA ÞÉR EINA MEÐ ÖLLU7
suðaustan til. Hiti 6 til 15 stig,
'
Sólarlag í
kvöld
Rvík 23.45
Ak. 24.09
Sólarupprás á
morgun
Rvík 03.08
Ak.02.15
Síðdegisflóð
Rv(k 24.08
Ak. 16.15
Árdegisflóð
Rvík 00.08
Ak. 04.41
Veðriðkl.
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvík
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
New York
París
Winnipeg
6 i morgun
alskýjað 13
skýjað 11
úrkoma 9
alskýjað 10
þokumóða 10
skýjað 19
skýjað 20
21
rigning 10
rigning 17
léttskýjaö 26
heiðskírt 17
hálfskýjað 25
heiðskírt 14
Þessar rauðklæddu stúlkur afgreiddu á
þriðja þúsund pylsur ofan í gestina.
Hátíðínýjum
höfuðstöðvum áAkureyri:
Hundruð
fögnuðu
með DV
Mikið fjör var á Akureyri f gær
þegar haldið var upp á flutning höf-
uðstöðva DV á Norðurlandi í Hafn-
arstræti 94, hús sem ýmist hefúr
verið kallað Hamborg eða Sport-
húsið en heitir nú Akureyri Centr-
um. Hundruð bæjarbúa og annarra
gesta hélt upp á daginn með DV
enda var veðrið hið ágætasta og
mikið um að vera. Poppararnir í
Dúmbó spiluðu, Cirkus Atlantis lék
listir sfnar, Leikfélag Keflavíkur
mætti á svæðið og skemmti gestum
auk þess sem gefnir voru bíómiðar,
svo eitthvað sé nefnt. Bein útsend-
ing var svo frá herlegheitunum á
útvarpsstöðinni FM Akureyri.