Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Blaðsíða 57
LAUCARDAGUR 7. JÚNÍ2QQ3 TILVERA 61
REGnBOGinn
SIMI 551 9000
NDLER
Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum!
x .
★★*
H.K.DV ^
★ ★★
HJ.Mbl.
X-ið 977
JAGEMENT
Fyndnasta myndln
sem þú sérð á árlnul
Losaðu þig við reiðina og
hlæðu þig máttlausan!
Einn óvæntasti
spennutryllir ársins.
Sýnd kl. 3.30,6,8.30 og 11. Sýnd kl. 4,6,8 og 10. B.i. 16.
NARC: Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
CITY BYTHESEA: Sýnd kl. 8.
CREMASTER: Cremaster 1 og 2 - sýnd kl. 4.
Cremaster 3 - sýnd kl.4.
Cremaster 4 og 5 - sýnd kl.6.10.
EMENT
DLER
■
8 FEEL THE LOVE
& Fyndnasta myndln
sam þú sárð á árlnul
Losaðu þig við reiðina og
hlæðu þig máttlausan!
5ýnd kl. 4,6,8 og 10
IDENTITY:
Sýnd kl.8og 10.
TOFRABUÐINGURINN
Sýnd kl.4.
EXTREME OPS
Sýnd kl. 6.
FJÖLMIÐLAVAKTIN
Silja Aðalsteinsdóttir
skrifar m fjölmiöla
I öðru Ijósi
Ég trúði ekki mínum eigin augum
á miðvikudaginn. Las sjónvarpsdag-
skrá í öllum blöðum og bæklingum
og hringdi loks í Stöð 2 til að láta
hana segja mér að þær væru vitlaus-
ar. En dagskrárnar voru allar réttar:
Haltu mér slepptu mér - Cold Feet -
var ekki á dagskrá um kvöldið! Sleppt
vegna einhverrar míníseríu, skildist
mér. Ég fór í íylu og opnaði ekki fyrir
neina rás það kvöld. Búin að laga
sumartrísferðir sérstaklega að þessu
eftirlæti mínu, en missi nú af loka-
þættinum. Lffið leikur mann illa.
Að gráta er ekki nóg
Fiennes-ættin gerði kvikmynd eft-
ir áhrifamiklu söguljóði Pushkins um
Evgeni Onegin, manninn sem þurfti
að láta aðra segja sér hvað hann ætti
að girnast og þrá, og var hún sýnd á
Stöð 2 í vikunni. En þó að Ralph
Fiennes og Liv Tyler píndust og grétu
í púðann sinn snart það mann ein-
kennilega lítið. Kannski var Liv held-
ur ung í hlutverk Tatjönu og Ralph
ekki nógu heltekinn.
Mun magnaðri var seguldávaldur
Ole Lemmeke í þeirri frábæru mynd
Mortens Henriksens, Magnetisorens
femte vinter, í Sjónvarpinu. Ætli hafi
verið broddur í því að láta Svía leika
hinn trausta, sannleikselskandi föð-
ur, Dana sjarmörinn mesta en Norð-
mann leiðindaskjóðuna?
Hvað er veruleiki?
Eiginlega trúir maður ekki að sum
dýranna í spendýraþáttum Davids
Attenborough í Sjónvarpinu séu til.
Eru þau ekki bara tölvuteiknuð?
Dvergapar - ekki stærri en hnefí
manns! Apakettir sem vita að ákveð-
in tegund laufblaða hefur sótthreins-
andi áhrif og fælir skordýr frá! Apar
með blá andiit, grátt hár og rauða
bringu ... Ég meinaða. En maður
glápir algerlega heillaður. I næsta
þætti ræðir þessi sjónvarpsgaldra-
maður í hálfa öld að líkindum um
alætuna sem engu eirir, leggur allt í
níst í kringum sig og lagar land, vötn
og loft að sínum þörfum - okkur
mennina.
Talandi um samband manns og
lands þá ættu þeir sem misstu af
kvikmynd Hrafns Gunniaugssonar,
Island í öðru ljósi, um páskana að
hafa í huga að hún verður endursýnd
í Sjónvarpinu á morgun hvítasunnu-
dag kl. 12.05. Þetta er víðfeðmt yfirlit
yfir íslandssöguna þar sem bent er á
hvernig við höfum nýtt landið og lag-
að það að okkar þörfum - ekki bara á
nútímum heldur allar götur síðan
farvegi Öxarár var breytt í árdaga til
hagsbóta fyrir þingmenn og fylgdar-
lið á Þingvöllum.
Casablanca og Bandits í sjónvarpinu í kvöld:
Tveir töffarar
Á sínum tfma var Humphrey
Bogart mesti töffari kvikmyndanna
og segja má að hann sé ímynd sem
margir leikarar, sem vilja sýnast
svalir, sækja í. Einn slfkur er Bruce
Willis og segja má að margt sé líkt
með Bogart og Willis. Báðir eru þeir
eðlilegir þegar þeir eru að leika
svala náunga, eru ekkert að streða
við það að vera töff eins og margir
kollegar þeirra.
STJÖRNUGJÖF DV
★ ★★★
Casablanca ★ ★★★
Bandits ★ ★
I kvöld er hægt að bera þá saman.
Sjónvarpið sýnir eftir miðnætti eina
frægustu kvikmynd allra tíma,
Casablanca, þar sem Bogart skap-
aði eftirminnilega persónu sem lif-
að hefur góðu lífi í rúm fimmtíu ár.
Mótleikkona hans er Ingrid Berg-
man og ná þau einstaklega vel sam-
an í myndinni. Það eru mörg eftir-
minnileg atriði í Casablanca og
sjálfsagt eru það margir sem þekkja
hana út og inn. Casablanca býr
samt yfir þeim sjaldgæfa eiginleika
að það er hægt að horfa á hana aft-
ur og aftur.
Bandits, sem Stöð 2 sýnir, er öll í
nútímanum og þó ekki sé hægt að
telja hana meðal bestu kvikmynda
Bruce Willis þá er hann í góðu hlut-
verki sem hann fer vel með. Bandits
fer ekki illa af stað en dalar nokkuð
þegar líða fer á myndina. Bruce
Willis og Billy Bob Thornton leika
fanga, Joe er töffari sem lætur eng-
an eiga neitt inni hjá sér og er harð-
ur í horn að taka. Terry er gáfaðri en
um leið hálfgerð mannleysa. Þeim
BANDITS: Bruce Willis (hlutverki fangans
Joe.
hefúr orðið vel til vina innan rimla
fangelsisins og þegar Joe sér tæki-
færi til að flýja fær Terry að fljóta
með. Flóttinn tekst vel og nú ætlar
Joe að láta draum sinn rætast um að
reka skemmtstað í Acapulco. Til að
fjármagna það á að ræna banka.
Það er hér sem Terry reynist betri
en enginn. Hann kemur með þá
snilldarhugmynd að ræna fyrst
bankastjóranum kvöldið áður,
dvelja um nóttina hjá honum og
láta hann síðan lóðsa þá um bank-
ann um morguninn ...
hkarl&dv.is
B0NUSVIDE0