Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Blaðsíða 22
22 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ2003
... kíkt í snyrtibudduna
Kanebo maskari
„Ég hef verið þessum
maskara fullkomlega trú frá
: því ég kynntist honum fyrst
íyrir nokkuð mörgum árum.
Hann er eini hluturinn f snyrtibuddunni sem ég myndi alls ekki vilja
vera án. Hann er vatnsheldur og verður því aldrei að sjúskaðri daginn-
eftir-línu fyrir neðan augun eins og svo margir aðrir. Fer ekki af nema
maður gráti hressilega eða fari í sund.“
Kanebo púðurmeik
„Þetta er það eina, fyrir utan maskarann góða,
sem ég set á mig næstum daglega. Ég hef aldrei
nennt að eyða miklum tíma í förðun og geri það
nánast alltaf á hlaupum. Það er því tilvalið að hafa
púður og meik í einu og í sömu dósinni. Lfkar ágæt-
lega við þessa tegund."
Victoria's Secret varagloss
• „Þetta gloss er í sérstöku uppáhaldi hjá mér því Berg-
lind systir mín, heimsborgarinn mikli, gaf mér hann í
jólagjöf. Þessar vörur eru eingöngu seldar í Banda-
ríkjunum og ég hélt reyndar að Leyndarmál Viktor-
íu einskorðuðust við undirfatnað en glossið stendur
yrir sínu. Ég nota það við ýmis tækifæri."
Fjölnota augnblýantur
„Þessi dæmigerði brúni augnblýantur gegnir
fjölþættu hlutverki. Ég nota
hann bæði á augun og varirnar i
ef ég er sérstaklega litlaus og
grá. Hann er líka með bursta á öðrum endanum sem ég nota ef augn-
hárin klístrast saman. Ég er nú ekki mikil vörumerkjakona og það er
oftast hagsýni sem ræður því hvaða tegund ég kaupi."
Steinanudd: Rafal Lesniak hefur komið fyrir heitum og köldum steinum eftir ákveðnu kerfi áður en sjálft nuddið hefst. Drífa Jóna
Kristjánsdóttir er í góðri slökun á bekknum.
DV-myndir E.ÚI
Rautt Versace varagloss
„Þetta vínrauða varagloss nota ég
*t ekki mjög oft en það hefur þó komið sér
mjög vel. Aðallega þegar ég vil h'fga að-
eins upp á andlitið með smá lit. Það kemur alltaf
jafn mikið á óvart hvað rauður varalitur getur gert, í raun fært
mann í sparibúning á augabragði."
Fréttakonan Rakel Þorbergsdóttir er á leið til
Spánar í sumarfrí þar sem hún ætlar að heim-
sækja systur sína í Madrid og sóla sig með fjöl-
skyldunni á Benidorm. Rakel, sem starfað hef-
ur hjá Ríkissjónvarpinu í þrjú og hálft ár, segir
að hagsýni ráði að mestu snyrtivörukaupum
hennar frekar en að hún eltist við einhver
ákveðin merki. Þó heldur hún mikilli tryggð
við maskara frá Kanebo.
Nuddað með heitum
oq köldum steinum
Hvítur, kaldur marmari og heitir, mjúkir steinar frá Snæfellsnesi eru verkfæri
pólska nuddarans, Rafals Lesniaks. Steinanudd á vaxandi vinsældum að
fagna í heiminum en aðferðin þykir góð til að örva blóðrásina og draga úr
bólgu og spennu.
Steinarnir:
Hvítur marmari og svartir steinar
frá Djúpalóni á Snæfellsnesi.
„Steinanudd hefur ótrúlega marga kosti. Það er mjög
gott til að vinna á vöðvabólgu og losa um streitu og
spennu í líkamanum. Ég vinn með
heita og kalda steina samtímis
sem framkalla djúpa og góða
slökun," segir Rafal
Lesniak nuddari.
Rafal hefur verið
búsettur hér á landi
um nokkurt skeið og
í rúm tvö ár hefur
hann einbeitt sér að
steinanuddi. Hann
starfar nú í heilsu-
lind Nordica Spa en
þar er steinanuddið
ein af fjölmörgum
líkamsmeðferðum
sem í boði eru.
Steinanudd er ekki
mjög gamalt í hett-
unni, að minnsta
kosti ekki í þeirri
mynd sem það er iðkað nú. Það var bandarísk kona að
nafni Mary Hannigan sem hóf að þróa þessu gömlu
aðferð frumbyggja Bandaríkjanna fýrir hartnær áratug.
Hún segir upphafið megi rekja til hugljómunar sem
hún fékk þegar hún sat í gufubaði og var að spjalla við
frænku sína. Skyndilega heyrði hún raddir og mat það
svo að skilaboðin væru þau að hún ætti að beita stein-
um við nudd. Hún prófaði þegar í stað að nudda
frænku sína með steinum og árangurinn var góður.
Hvað sem Mary Hannigan líður þá er steinanudd nú í
boði um víða veröld og fjöldi nuddara í faginu sífelllt
að aukast.
Steinanudd byggir á þeirri hugmyndafræði að not-
aðir eru annars vegar kaldir steinar og hins vegar heit-
ir. Að sögn Rafals eru köldu steinamir hvítur marmari.
Marmarinn er kaldasti steinninn í náttúmnni og er ís-
kaldur viðkomu. Heitu steinarnir í safni Rafals koma
hins vegar af Snæfellsnesi; nánar tiltekið úr Djúpalóni.
„Ég hef farið nokkmm sinnum vestur á Snæfellsnes og
alltaf fundið mjög góða steina. Þetta em steinar sem
hafa slípast vel í sjónum og em vindbarðir. Þeir em
mjög hlýir og mjúkir viðkomu," segir Rafal.
Hann segir að við upphaf meðferðar sé steinunum
raðað á líkamann eftir ákveðnu kerfi. Heitum og köld-
um steinum þannig er raðað sitt á hvað; til dæmis á
milli tánna. Allt hefur þetta tilgang að sögn Rafals; m.a.
þann að manneskjan nær dýpri slökun en ella. Þegar
uppröðun er lokið þá hefst nuddið með steinum.
„Langflestir ná djúpri slökun í steinanuddi. Nuddið
örvar blóðflæði og efnaskipti líkamans. Það dregur
einnig úr bólgum og verkjum. Samspil heitra og kaldra
steinanna hefur einnig góð áhrif á ónæmiskerfið og
fólki líður alltaf vel að lokinni meðferð," segir Rafal.
Hugmyndin að baki því að nota heitt og kalt
saman til að örva blóðflæði er ekki ný af nálinni.
Margir hafa prófað að fara inn og út úr gufu;
kæla sig vel niður á milli. Steinanuddmeðferð
er stundum sögð jafnast á við að fólki fari 100
sinnum inn og út úr gufubaði en þá vantar að
/ sjálfsögðu sjálft nuddið.
Fjöldinn allur af öðrum nuddmeðferðum er í boði
í heilsulind Nordica Spa; svo sem svæðanudd, ind-
verskt höfuðnudd, stólanudd, ilmolíunudd og klassískt
vöðvanudd.
Herðanudd: Fjóla Rut Rúnarsdóttir nuddari beitir herðanuddi
sem er ein af þeim meðferðum sem eru (boði (heilsulindinni.