Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Blaðsíða 28
28 DVHELGARBLAD LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ2003 Það er rigning og þungbúið veður á Akranesi þegar DV kemur að heimsækja Steingrím Guðjónsson sem býr í rauðu og hvítu timburhúsi klæddu hinu klassíska ísienska bárujárni og stendur við aðaltorgið á Akra- nesi. Þetta er snoturt hús sem er næstum 100 ára gam- alt og heitir Sunnuhvoll og er samtals 160 fermetrar. Það er til sölu þetta hús því eigandinn skuldar íslenska ríkinu um 1,5 milljónir í sektir og málskostnað eftir dóm í Hæstarétti. Húsið er með 90% lánum áhvílandi sem þýðir að þegar eigandinn verður búinn að selja það og greiða skuld sína stendur hann eftir nær tóm- hentur. Húsið er falt fyrir 9,5 milljónir þótt það myndi áreiðanlega seljast á tvöfalda þá upphæð ef það stæði í vesturbænum í Reykjavík. Þess vegna er rigning f hjarta þessa húseiganda þennan dag og hann er dapur. Til þess að skilja hvers vegna þurfum við að rifja upp forsögu málsins. Hún er sú að Steingrímur Guðjónsson starfaði sem vélvirki í Járnblendinu á Grundartanga og bjó í þessu húsi en hann hefur verið búsettur á Akranesi í 20 ár. Hann fékk þá hugmynd að hann gæti drýgt tekjur sínar með því að stunda akstur rútubíla meðfram fastri vinnu og vet- urinn 2000 tók hann þess vegna það sem venjulega er kallað meirapróf. Engar athugasemdir A þessu var sá hængur að Steingrímur hafði og hef- ur litla sem enga sjón á hægra auga. Hann varð fyrir slysi þegar hann var 10 ára gamall og ör var skotið af boga í auga hans. Augasteinninn var fjarlægður en sjónskerðingin hefur valdið honum ómældum þján- ingum og hann á að baki fimm aðgerðir og fjórar ley- sigeislameðferðir. Ekki voru gerðar neinar athugasemdir við sjóndepru á hiálp hans né pappíra sem hann lagði fram þar að lútandi og hann lauk prófi með öðrum öku- nemendum á tilskildum tíma. Steingrímur lýsir hinum verklega þætti prófsins þannig að hópurinn hafi ekið einn hring á sveitavegum og ók hver nemandi í um það bil tíu mín- útur og annar eins ökutúr var tekinn á götum Reykja- vrkur. Vorið 2000 byrjaði Steingrímur síðan að aka rútum í frítíma sínum, meðal annars starfsmannarútum Járn- blendifélagsins. í júlí fór hann í sumarfrí og var þá beð- inn að aka 30 erlendum ferðamönnum hringinn um landið. Ferðalag hópsins gekk vel suður um land og austur um þar til síðla dags þann 16. júlí þegar Stein- grímur kom að Hólsstaðakíl á Hóls^öllum sem er á vegi 864, leiðinni frá Grímsstöðum að Dettifossi að austanverðu. Brúin var merkt með hefðbundnum „Dagurinn er langur og leiðinlegur en ég fer í laugina á hverjum degi og hjóla mikið til að fá hreyfingu og reyni að setja mér markmið um að vakna snemma á hverjum morgni. Ég er auðvitað mölbrotinn eftir þetta allt saman, ekki bara eftir slys- ið heldur eftir að hafa gengið í gegn- um þessar aðstæður og einsemdin ermikil. Steingrímur Guðjóns- son er 47 ára gamall vélvirki og 75% öryrki. Hann býr í einbýlishúsi á Akranesi sem verður selt á næstunni til að greiða sektir og sakar- kostnað upp á 1.5 milljónir. Steingrímur var bílstjóri á rútu sem valt við brúna yfir Hólsselskíl á Hólsfjöllum í júlí árið 2000. Þar lést einn farþegi og nokkrir slösuðust. Steingrímur segir DV sögu sína. hætti sém einbreið brú en hún reyndist vera 2.60 metrar á breidd. Bifreiðin var 2.49 metrar á breidd svo það eru um það bil 5,5 cm hvorum megin sem svigrúm er til aksturs. Rútan fór út af brúnni og valt ofan í ána. Ellefu farþegar slösuðust og einn þeirra lést. Sýkna og sekt Hér verða ekki rakin nánar deiluefni sem snúast um það hvað nálcvæmlega olli því að þetta gerðist en ári seinna eða í júlí 2001 kvað héráðsdómur Vesturlands upp þann dóm að Steingrímur skyldi sýknaður af ákæru um brot á almennum hegningarlögum og um- ferðarlögum og skyldi allur sakarkostnaður niður falla. f febrúar 2002 kvað Hæstiréttur upp sinn dóm og sneri niðurstöðum héraðsdóms algerlega við. Þar var Stein- grímur dæmdur í fangelsi í 30 daga með skilorðsá- kvæðum í tvö ár, sviptur rétti til að stjórna ökutæki í sex mánuði og dæmdur til greiðslu alls sakarkostnað- ar og málskostnaðar á báðum dómsstigum, samtals 1,5 milljónir. Vill að aðrir axli ábyrgð Steingrímur hefur verið atvinnulaus frá því í nóvem- ber 2002 og hefur talið ýmsa formgalla á meðferð málsins. Hann telur að embætti sýslumanns á Akra- nesi ætti að axla meiri ábyrgð vegna málsins þar eð það hefði ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni sem skyldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.