Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Blaðsíða 14
74 FRÉTTIR LAUGARDACUR 7.JÚNÍ2003
Bush hélt friðarfund
GEORGE W. BUSH Bandaríkja-
forseti heimsótti Mið-Austur-
lönd í fyrsta sinn [ vikunni þeg-
ar hann hitti arabaleiðtoga og
hélt síðan friðarfund með for-
sætisráðherrum (sraels og
Palestínumanna. Bush tókst að
fá Ariel Sharon til að lofa því
að (sraelar myndu fjarlægja
ólöglegar landtökubyggðir á
palestínsku landi. Þá lofaði Ma-
hmoud Abbas því að reyna að
fá palestfnska harðlínuhópa til
að láta af árásum sínum á (sra-
elsríki.
Niðurstöður fundarins vöktu
mismikla hrifningu.Yasser Ara-
fat,forseti Palestínumanna,
sagði að loforð ísraelskra ráða-
manna væru ekki fullnægj-
andi.
Suu Kyi í haldi
BURMNESKA baráttukonan
Aung San Suu Kyi var hneppt í
varðhald fyrir átta dögum, í
kjölfar átaka milli stuðnings-
manna hennarog þrjóta á
snærum herforingjastjórnar-
innar.Sameinuðu þjóðirnarog
fjöldi þjóðarleiðtoga hafa kraf-
ist þess að hún verði tafarlaust
látin laus. Fulltrúi fram-
kvæmdastjóra SÞ kom til
herforingja
Burma á föstudag til að reyna
að telja stjórnvöld á að láta
Suu Kyi lausa. Fulltrúinn gerði
sér vonir um að fá að hitta Suu
Kyi.
Fullyrt er að Suu Kyi hafi
slasast í átökunum en því vísa
herforingjarnir á bug. Að
minnsta kosti fjórir létu lífið.
Blair í stormi
HART VAR SÓTT að Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í vik-
unni og hann sakaður um að
hafa ekki sagt satt og rétt frá um
gjöreyðingarvopnaeign Sadd-
ams Husseins í írak áður en stríð-
ið hófst.Blairsvaraði gagn-
rýnendum fullum hálsi og sagði
að hann væri 100 prósent viss
um áreiðanleika leynilegra
upplýsinga þar um.
Hundurinn sá eini sem
vildi tala við forsetann
'Wl% FRÉTTAUÓS
Guðlaugur Bergmundsson
blaðamaöur
Hillary Rodham Clinton er eng-
inn Harry Potter en hún er nú samt
komin fast á hæla honum. Endur-
minningabók hennar, „Living Hi-
story“ komst upp í annað sæti met-
sölulista netverslunarinnar Ama-
zon á miðvikudag, heilum fímm
dögum fyrir opinberan útgáfudag.
Nýjasta bókin um töfrastrákinn
Harry Potter, sem heldur er ekki
komin út, er í því fyrsta.
„Sem eiginkonu lang-
aði mig til að snúa Bill
úr hálsliðnum."
Fjölmiðlar komust heldur betur í
feitt þegar fréttastofan AP birti út-
drætti úr endurminningunum á
þriðjudag. Þar var að sjálfsögðu
mestu púðri eytt í frásögn Hillary af
viðbrögðum hennar þegar Bill
Clinton forseti, játaði fyrir henni að
hafa logið til um eðli sambands síns
og lærlingsins Monicu Lewinsky.
Öskraði og grenjaði
„Ég náði varla andanum. Ég tók
andköf og byrjaði að grenja og öskra
á hann: Hvað meinarðu? Hvað ertu
að segja? Af hverju laugstu að mér?
Ég var öskuill. Hann bara stóð
þarna og endurtók í sífellu: Mér
þykir þetta leitt, mér þykir þetta
leitt. Ég var að reyna að halda hlífi-
skildi yfir ykkur Chelsea," segir Hill-
ary í bókinni um þá stund þegar Bill
viðurkenndi fyrir henni að hafa ekki
sagt satt og rétt frá samskiptum sín-
um við Monicu, hvorki eiginkon-
unni né nokkrum öðrum.
Bill hafði vakið konu sína að
morgni dags til að segja henni sann-
leikann. Kannskj ekki seinna vænna
því tveimur dögum síðar átti hann
að bera vitni í málinu, eiðsvarinn.
Hillary segir frá þessum átakanlega
morgni í sjónvarpsviðtali sem sýnt
verður á sunnudagskvöld.
Skipað að segja Chelsea frá
„Þetta er líklega það versta sem
hægt er að ímynda sér að nokkur
þurfi að ganga í gegnum af því að
þennan morgun sagði hann mér að
hann hefði ekki verið hreinskilinn
við mig né aðra. Hann hefði ekki
sagt mér allan sannleikann um
hvernig sambandinu var háttað. Og
ég var, ég var fjúkandi reið. Ég var
alveg frávita af reiði og vonbrigð-
um,“ segir Hillary í viðtalinu við
Walters á ABC-sjónvarpsstöðinni.
Hillary segir í bókinni að hún hafi
grætt eiginmanninn þegar hún hafi
skipað honum að segja Chelsea,
dóttur þeirra, frá ástarsambandinu.
Chelsea var þá átján ára.
„Sem eiginkonu langaði mig til að
snúa Bill úr hálsliðnum. Erfiðustu
ákvarðanirnar sem ég hef tekið á
lífsleiðinni voru að halda lífí í
hjónabandinu og að bjóða mig fram
til öldungadeildarinnar," skrifar
Hillary sem nú situr í öldungadeild
Bandaríkjaþings fyrir New York.
Þær mæðgur voru að vonum ekk-
ert upprifnar yfir félagsskap forset-
ans eftir játningar hans. En hann
var þó ekki alveg einn, eins og Hill-
ary segir í bókinni.
„Hundurinn Buddy hélt Bill sel-
skap, hann var sá eini í fjölskyld-
unni sem var tilbúinn til þess,“ seg-
ir Hillary í bók sinni.
Opinskárri en búist var við
Hillary fékk átta milljónir dollara
fyrir handritið að endurminningun-
um, sem er 562 blaðsíður, og fyrsta
upplagið verður ein milljón eintaka.
Miðað við pantanirnar sem þegar
liggja fyrir má ljóst vera að slegist
verður um bókina þegar hún kemur
í bókabúðir á mánudag.
Ýmsir voru þeirrar skoðunar að
forleggjarinn, Simon og Schuster,
tæki mikla áhættu með því að
greiða svona há höfundarlaun þar
sem ekki væri vitað hversu opinská
Hillary myndi verða. Hún var nefni-
lega ansi loðin í svörum um hvað
yrði í bókinni þegar hún ræddi fyrst
við útgefendur. Þær glefsur sem
þegar hafa verið birtar benda að
margra mati til þess að Hillary sé
opinskárri en búist var við. Hins
vegar á eftir að koma í ljós hvernig
hennar hlið sögunnar kemur heim
og saman við sögu eiginmannsins
sem einnig er með endurminningar
sínar í undirbúningi.
En það var ekki bara
forleggjarinn sem þótti
tefla í tvísýnu með út-
gáfu endurminning-
anna heldur þykir
mörgum sem Hillary
hafi einnig sett pólitísk-
an feril sinn að veði.
Ekki verður annað séð en fólk hafi
á ýmsu að kjamsa eftir helgina. Þeg-
ar er búið að selja útgáfuréttinn til
sextán landa og sjálf ætlar Hillary að
leggja land undir fót á næsta ári og
ferðast um gjörvöll Bandaríkin til að
kynna gripinn.
En það var ekki bara forleggjarinn
sem þótti tefla í tvísýnu með útgáfu
endurminninganna heldur þykir
mörgum sem Hillary hafi einnig sett
pólitískan feril sinn að veði.
Hillary nýtur töluverðra vinsælda
meðal þjóðarinnar, þótt ekki séu
allir á einu máli um ágæti hennar.
Enda þótt hún hafi aftekið með öllu
að keppa að því að verða forsetaefni
Demókrataflokksins í forsetakosn-
ingunum 2004, er hún engu að síð-
ur vinsælli í röðum demókrata en
nokkur hinna níu karla og kvenna
sem keppa um útnefninguna. Svo
verður aftur kosið um forseta 2008
og hver veit hvað þá gerist.
HILLARY RODHAM CLINTON UMSETIN: Fréttamenn voru eins og flugnager í kringum Hillary Rodam Clinton, öldungadeildar-
þingmannfrá NewYork og fyrrum forsetafrú, í vikunni eftir að birtar voru glefsur úr endurminningum hennar sem væntanlegar
eru (bókabúðir vestra á mánudag. Þar var að sjálfsögðu aðaláherslan á viðbrögð hennar við þv( þegar eiginmaðurinn játaði fyrir
henni að hafa logið til um raunverulegt eðli sambands síns og lærlingsins Monicu Lewinsky.ástarævintýri sem varð nærri til að
fella hann.