Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Page 8
8 FRÉTTIR LAUOARDAGUR 7.JÚNÍ2003 ALUTBOÐ - FORVAL F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir umsóknum verktaka um að fá að taka þátt í lokuðu alútboði á hönnun og byggin- gu tveggja deilda steinsteypts leikskóla að Stakkahlíð 19. Áætlaður verktími er júní 2003 til janúar 2004. Stærð byggingar: Flatarmál húss um 364 m2. Forvalsgögn verða afhent hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur frá og með 21. maí2003. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað, eigi síðar en kl. 16.00,16. júní 2003. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Revkja' Fax 562 2616 - Netfang ng Í8r@rhus.n/k.is Tilkynning um væntanlegt útboð á miðamælum fyrir Bílastæðasjóð Reykjavíkur Fyrirhugað er útboð á miðamælum (Pay and display) til staðset- ningar við gjaldskyld bílastæði í Reykjavík Um er að ræða öflun, uppsetningu, rekstur og leigu á miðamælum fyrir Bílastæðasjóð Reykjavíkur. Útboðið mun verða auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Nánar verður auglýst síðar í helgarblöðum, og á heimasíðu Innkaupastofnunar, www.reykjavik.is/innkaupastofnun, hvenær útboðið fer fram en gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin í byrjun júlí. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík - Sfmi 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang f tfang isr@rhu8.rvk.is UTBOÐ F.h.Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í málun innanhúss í Laugalækjarskóla í Reykjavík. Helstu magntölur eru: Grófpússaðir veggfletir: 800 m2 Gifsplötuveggir: 750 m2 Gifsplötuklædd loft: 650 m2 Endurmálun eldri steinveggja 560 m2 Lok verkáfanga eru: 15. ágúst og 30. desember 2003. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 11. júní 2003, kl. 9.30, á sama stað. FAS 72/3 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík - Sfmi 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang isf@rhus.rvk.is F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið: „Akranes Ijósleiðaralögn". Leggja skal ídráttarrör fyrir Ijósleiðara á Akranesi innanbæjar. Helstu magntölur eru: Skurðlengd: 1850 m Lagning ídráttaröra: 1850 m Malbikun: 90 m2 Steypa: 90 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 11. júní 2003, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 18. júní 2003 kl. 10.30, á skrifstofu Innkaupastofnunar. OR039/03 F.h. Orkuveitu Reykjavíkur og Landssíma íslands er óskað eftir tilboði í verkið: „Hádegismóar stofnlögn“. Leggja skal stofnlögn hitaveitu, strengi rafveitu og ídráttarrör fyrir Landssímann frá Selásbraut að Hádegismóum norðan Rauðavatns. Helstu magntölur eru: Skurðlengd: 782 m Lengd hitaveitulagna: 480 m Strengjalagnir: 1.850 m Lagning ídráttaröra: 1.300 m Malbikun: 40 m2 Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, frá og með 10. júní 2003, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 18. júní 2003 kl. 14.00, á skrifstofu Innkaupastofnunar. OR040/03 FASTUR FYRIR: Halldór Ásgrímsson segir að andi varnarsamningsins við Bandaríkjamenn sé að hér séu trúverðugar varnir og taka skuli tillit til sjónarmiða (slendinga í þeim efnum. Utanríkisráðherra ósammála Hjálmari Árnasyni um varnarliðið: Hefur ekkert með írak að gera „Þessi mái eru algjörlega ótengd og afstaða íslands til íraks var aldrei rædd í þessu samhengi," segir Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra, spurður að því hvort hann telji að samningsstaða ís- lendinga í viðræðum um varnarsamstarf við Bandarík- in sé sterkari en ella vegna stuðnings fslands við aðgerð- irnar í írak. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjör- dæmi, tengdi þetta saman í fréttum Sjónvarpsins á miðvikudagskvöld og sagði: „... hefðum við tekið okk- ur af þeim lista jríkja sem studdu aðgerðirnar gegn Irakj þá væri samningsstaða okkar allt önnur í dag og þyrfti ekkert að spyrja þar að leikslokum fyrir þær fjölmörgu fjöl- skyldur, sautján hundruð fjölskyld- ur, sem vinna hér jhjá varnarlið- inuj.“ Loftvarnir nauðsynlegar Ekki hefur verið upplýst hvað fólst í bréfí frá Bush Bandaríkjafor- seta sem þeim Halldóri og Davíð Oddssyni var afhent í fyrradag. Halldór segir þó að Bandaríkja- menn vilji fara nýjar leiðir í vamar- samstarfinu. „Það er allt í lagi að fara nýjar leiðir ef þær eru í sam- ræmi við gagnkvæmar skuldbind- ingar og skoðanir beggja aðila,“ segir Halldór, en af orðum hans að dæma er sú ekki raunin. Halldór segir að afstaða íslands hafi löngum verið skýr: „Við teljum að varnir íslands þurfl að vera trú- verðugar. Við teljum að í því felist að það þurfi að vera loftvarnir. Það var samið um að skera þær vem- lega niður árið 1994, niður í Iág- mark sem var talið ásættanlegt. Það „Andi varnarsamnings- ins er að hér séu trú- verðugar varnir og að tekið sé tillit til skoð- ana íslendinga íþeim efnum." er okkar skoðun að þar hafl ekki orðið nein breyting á þegar litið er til lengri tíma.“ Halldór segir hins vegar löngum hafa verið uppi sjón- armið hjá ýmsum aðilum í Banda- ríkjunum um að ekki væri nauð- synlegt að hafa loftvarnir á íslandi, þótt aðrir þar hafi talið það væri bráðnauðsynlegt. BNA skuldbundin? Spurt er hvort íslensk stjórnvöld líti svo á að með varnarsamningn- um frá 1951 hafi Bandaríkjamenn beinlínis skuldbundið sig til að halda úti loftvörnum á íslandi. „Andi vamarsamningsins er að hér séu trúverðugar varnir og að tekið sé tillit til skoðana íslendinga í þeim efnum. Það er það sem við höfum tekið skýrt fram,“ segir Hall- dór en leggur áherslu á að viðræð- urnar eigi eftir að fara fram. Ljóst er að með orðum sínum fer utanríkisráðherra mjög nærri því að segja að íslensk stjórnvöld líti svo á að Bandaríkjamenn fæm á svig við varnarsamninginn við ís- land með því að hverfa með flug- herinn frá íslandi - að minnsta kosti á svig við „anda samnings- ins“. Erfiðar viðræður Framhald málsins er að Davíð Oddsson svarar bréfi Bandaríkja- forseta, líklega í næstu viku. Halldór segist gera ráð fyrir að viðræðurnar verði erfiðar. „Þetta varðar þær langtímaskuldbinding- ar sem eru í vamarsamningnum þannig að við munum á næstunni fyrst og fremst leita að pólitískri lausn sem er ásættanleg fyrir báða aðila. Það starf verður áreiðanlega erfitt, en ég vil ekkert spá frekar um það á þessu stigi." Alvarlegt mál Halldór segir að málið sé alvar- legt en að hann geti ekki útskýrt hvað hann eigi við með því, um- fram það sem hann hafi áður sagt. Ljóst er að samdráttur hjá varn- arliðinu gæti haft slæmar afleiðing- ar fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum. Gagnrýnt hefur verið að stjórnvöld hafi hér lokað augunum fyrir fyrir- sjáanlegum vanda. „Þetta mál er fyrst og síðast öryggis- og varnar- mál og það verður að reka það sem j slíkt," segir Halldór. „Ég skil | áhyggjur fólks en það er ekki hægt að blanda því inn í viðræður við Bandaríkjamenn. Það hefur hins vegar margt verið gert til að efla at- vinnulíf á Suðurnesjum á undan- förnum ámm; ég nefni mikla upp- byggingu í flugstöðinni, auk starf- semi Flugleiða, og núna væntan- lega uppbyggingu á stálpípuverk- smiðju sem mun jafnvel skapa nokkur hundmð störf." Halldór j bætir við að þessi mál séu sjálfstæð og aðskilin frá stöðu varnarliðsins.“ Þökk sé Samfylkingu Utanrfkismálanefnd Alþingis fjallaði um málið í fyrrakvöld. „Það var mjög góður fundur og mikil samstaða á honum. Samfylkingin lýsti yfir eindregnum stuðningi við það starf sem nú fer fram. Ég er mjög þakklátur Samfylkingunni fyrir þá eindregnu afstöðu og tel að | það styrki okkur í því sem fram undan er,“ segir Halldór Ásgríms- | son. -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.