Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Qupperneq 40
-/ 44 OVHUGAIÍBLAO LAUCARDAOUR 7. JÚNÍ2003 4 Barðist við fíkn frá barnsaldri Nærmynd afBaldri Frey Einarssyni sem var dæmd- ur 1 þriggja ára fangelsi á dögunum fyrir að verða ungum manni að bana í átökum í Hafnarstræti í maí2002. Þegar ég byrjaði að drekka sagði ég við sjálfan mig að aldrei skyldi ég nota fíkniefni. Þegar ég byrjaði að nota hass ætlaði ég aldrei að nota hörðu efnin. Þegar ég byrjaði að nota hörðu efnin ætlaði ég aldrei að nota sýru. Þegar ég byrjaði að nota sýru ætíaði ég aldrei að sprauta mig. Ég sprautaði mig aldrei en það var næsta prinsipp til að brjóta." Þannig hefst viðtal sem birtist við Baldur Frey Ein- arsson í DV í lok október 1998. Þá var Baldur nftján ára og hafði tímabundið losnað úr klóm fíknarinnar með aðstoð SÁÁ og lýsir í viðtalinu vegferð sinni um skuggalendur eiturlyfjanna allt frá bamsaldri. Baldur Freyr er annar tveggja sem vom dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum fyrir að verða Magnúsi Frey Sveinbjörnssyni að bana eftir áflog íyrir utan skemmtistaðinn Spotlight í Hafnarstræti. Þar kom til átaka seint á aðfaranótt 25. maí og Bald- ur Freyr og félagi hans, Gunnar Friðrik Friðriksson, slógust við Magnús heitinn Frey sem lést á sjúkrahúsi > viku síðar af völdum áverka sem hann hlaut í átökun- um. Baldur Freyr fékk þyngri dóm, eða þriggja ára fang- elsi, en hann var dæmdur fyrir tvö önnur ofbeldisbrot sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur 7. apríl 2002. Dómurinn yfir tvímenningunum hefur vakið hörð viðbrögð í samfélaginu en mörgum þykir hann of vægur f samanburði við dóma fyrir svipuð brot. Viðtal við foreldra fórnarlambsins í DV í byrjun vikunnar vakti og þjóðarathygli. Það er því freistandi að skyggn- ast inn í fortíð Baldurs Freys eins og hann lýsir henni sjálfur í áður áminnstu viðtali haustið 1998. Að sögn heimildarmanna innan fjölskyldu Baldurs Freys hefúr hann sýnt mikla iðrun eftir verknað þenn- '* an en hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu í Keflavík tæpum sólarhring eftir átökin í Hafnarstræti. Hann skýrði fjölskyldu sinni frá atvikum áður en hann gaf sig ffam við yfirvöld en hann á móður og fjögur systk- ini. Hann vakti talsverða athygli í réttarhöldunum þegar hann mætti með Biblíu í höndunum og notaði hana til að skýla andliti sínu fyrir ljósmyndurum og einnig þegar heyrinkunnugt varð að hann hafði skrif- að m.a. forseta íslands bréf þar sem hann hvatti til átaksaðgerða gegn ofbeldi. Baldur mun hafa verið byrjaður að sækja samkomur í Krossinum fýrir nokkrum árum í þeirri viðleitni sinni að halda sig frá neyslu fíkniefna. Fullur í barnaafmælum ellefu ára Baldur Freyr fæddist árið 1979 og ólst að mestu upp í Keflavík. Hann er elstur fjögurra barna einstæðrar móður sem hefur átt frekar erfitt uppdráttar í lífinu og Baldur mun hafa verið nokkurs konar leiðtogi systkina sinna sem eru tvö nálægt honum í aldri en tvö mun yngri. Baldur byrjaði að drekka þegar hann var ellefu ára og hann og vinir hans fóru drukknir í barnaafmæli. Fjórtán ára var hann farinn að nota ýmis lyf auk áfeng- is og tók bæði sjóvéikitöflur, geðlyf og róandi töflur til að komast í vímu. Þegar Baldur var fimmtán ára, árið 1994, hurfu tveir unglingspiltar í Keflavík sporlaust og hefur aldrei neitt spurst til afdrifa þeirra. Leit að þeim stóð dögum sam- an og miðlar, sporhundar og þjóðin öll lagðist á eitt án árangurs en málið vakti gríðarlega athygli og óhug. Piftarnir voru 14 ára og annar þeirra var uppeldis- bróðir Baldurs Freys en hinn vinur og þetta varð Baldri mikið áfall. Ári seinna var hann enn í stífri neyslu og nú hafði amfetamín bæst á listann yfir efni sem hann notaði. Skipulagði útförina „Þegar ég var sautján ára var ég búinn að plana út- förina mína. Ég vissi ekki hvað ég myndi lifa lengi. Mér fannst það kúl að lifa hátt og deyja ungur. Það væri miklu betra líf,“ sagði Baldur í viðtali við DV 1998 og má ráða af því að sjálfseyðingarhvöt og sjálfsmorðs- hugsanir voru farnar að sækja á hann. Um sautján ára aldur sendi fjölskylda Baldurs Freys hann til Danmerkur með það fyrir augum að hann næði sér úr klóm ofneysiu og burt frá þeim lífsstíl sem hann hafði tamið sér. Sú tilraun mistókst algerlega því Baldur drakk daglega meðan hann dvaldi ytra og reykti hass á hverjum degi og neytti annarra ffkniefna. / Hann kom aftur heim til Keflavíkur sumarið sem hann varð 18 ára og enn var neyslan hörð en þung- lyndi og sjálfsvígshugsanir sóttu á hann. Hann endaði með því að taka inn mjög stóran skammt af lyfjum í þeim ásetningi að stytta sér aldur. Frænka hans ók honum á gjörgæsludeild og þar tókst læknum að bjarga lífi hans. I „Ég horfði í spegilinn áður en ég tók pillurnar og reyndi að finna einhverja ástæðu til þess að lifa. Ég JP hugsaði um fjölskylduna mína en fannst ég ekkert MANNSBANI: Baldur Freyr Einarsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að valda dauða Magnúsar Freys Sveinbjörnssonar (Hafnarstræti í maí 2002. Baldur á að baki baráttu við fíkniefnaneyslu allt slðan hann var á barnsaldri. DV-mynd Hilmar Þór geta gert fyrir hana eins og ástandið var á mér. „I was better off dead". Þetta var vitlaus hugsun en hugsun mín var orðin svo sjúk að ég hélt að ég væri hvort sem er að deyja," segir Baldur í viðtalinu við DV 1998. Eftir þetta dvaldi Baldur tímabundið á geðdeild á Landakoti en útskrifaði sig sjálfur. Hann sagði við DV 1998: „Þá fannst mér ég einn á eyðieyju og það væri engin leið burtu. Það var eins og ég væri hestur sem væri stjórnað og sleginn áfram." Reyndi að slíta sig lausan Um mitt sumar 1997 ákvað Baldur að taka sig á í neyslunni og fór að sækja AA-fundi þótt hann væri enn ekki laus við fíkniefnin. í framhaldi af því fór hann í meðferð á Vog, sem hann líkti við hreinsunareld, og síðan í framhaldsmeðferð á Staðarfelli og bjó að því loknu á áfangaheimili SÁÁ. Áhrifin af meðferðinni entust í þrjá mánuði en þá féll Baldur aftur í næstum því sama farið. Hann lýsir niðurferðinni svo í viðtalinu 1998: „Á þrettán dögum náði ég að keyra mig niður til hel- vítis. Ég byrjaði á sama stað og ég endaði og síðan versnaði það og ég fór neðar en áður.“ Baldur fór beint aftur inn á Vog og í þetta skipti gekk meðferðin betur og skömmu fyrir jól 1997 var Baldur kominn heim aftur en fann strax fyrir þungri pressu í sínu samfélagi því allir vinir hans og kunningjar voru enn á fullri ferð í drykkju og neyslu fíkniefna. Baldur lýsir því i viðtalinu við DV haustið 1998 hvernig hann sé búinn að vera edrú í ellefu mánuði og segir: „Mér líður ótrúlega vel. Ég er að gera hluti sem ég bjóst aldrei við að ég gæti gert." Hann talar síðan um að þrennt sé mikilvægast í lífinu en það sé lífið sjálft, frelsið og trúin og má af því ráða að hann hafi verið farinn að sækja samkomur í Krossinum um þetta leyti. Vissi ekki hvað hann var sterkur Heimildamenn DV innan fjölskyldunnar segja að Baldur hafi „fallið" aftur um skamman tíma eftir að þetta viðtal birtist en síðan tekið sig á enn einu sinni og vent sínu kvæði í kross. Hann mun hafa stundað nám við Viðskipta- og tölvuskólann og sótt námið af mikilli hörku og verið meðal efstu manna. Hann stundaði líkamsrækt og lyftingar af miklu kappi og var að sögn gríðarlega sterkur, jafnvel svo að hann vissi ekki afl sitt. Sömu heimildir segja að hann hafi stefnt á dvöl erlendis þar sem hann átti kost á vinnu. Baldur bar fyrir dómi að hann hefði drukkið 3-5 bjóra kvöldið og nóttina sem átökin urðu. Það er al- mennt skilgreint svo að fyrrverandi fíkill falli strax þegar hann tekur fyrsta sopann og skiptir þá engu hve margir þeir verða eða stórir. Félagi hans, Gunnar Frið- rik, bar fyrir dómi að hann hefði þetta kvöld drukkið nokkra bjóra en einnig neytt kókafns. Hver sem áform Baldurs Freys voru um betra líf án vímu þá urðu þau að engu í apríl og maí vorið 2002 þegar hann þrisvar sinnum á stuttum tíma sýndi gríð- arlega hörku og ofbeldi í átökum við aðra. Fyrri tvö skiptin leiddu af sér minni háttar meiðsli og tannmissi fyrir þá sem hann átti í höggi við og hefðu án efa leitt til sakfellingar fyrir lfkamsárásir en í þriðja sinnið lét ungur maður lífið. Eitt höggið var of þungt og mun fylgja þeim sem það greiddi til leiðarenda. polli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.