Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ2003
ARÐSEMI: Ný þriggja hæða gatnamót á Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut á þessari mynd eru unnin af Sigurði Val Sigurðssyni, (náinni sam-
vinnu byggingaverkfræðinganna Haralds Óskarssonar og Haralds Sig-
þórssonar hjá Línuhönnun.Þau yrðu væntanlega mjög arðsöm til lengri
tlma litið. Vegagerðin og samgöngunefnd Reykjavíkurborgar hafa nú til
skoðunar svipaða hugmynd um þriggja hæða gatnamót en þar yrði
hringtorgið á efstu hæðinni.
Þriggja hæða gatnamót á mótum Krínglumýrarbrautar og Miklubrautar:
Gætu fækkað
slysum um 80%
Vinnuhópur Vegagerðarinnar
og Reykjavíkurborgar hefur
unnið greiningu á mögulegum
lausnum á gatnamótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbraut-
ar. Hópurinn hefur nú skilað af
sér áfangaskýrslu þar sem farið
er yfir helstu valkosti með tilliti
til kostnaðar, fækkunar slysa,
umferðarálags og annarra um-
ferðartæknilegra þátta.
Fjórar tillögur um ný gatnamót
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar hafa verið lagðar fyrir sam-
göngunefnd borgarinnar með
áfangaskýrslu vinnuhóps sem
marka á framtíðarstefnu í málinu.
Ein þeirra, og sú tilkomumesta,
gerir ráð fyrir gatnamótum á þrem
hæðum á þessum stað, með gerð
stokka út frá gatnamótunum í aust-
ur og vestur eftir Miklubraut. Þetta
er svipuð tillaga að þriggja hæða
gatnamótum og kynnt var í DV í
mars.
Talið er að þriggja
hæða gatnamót á þess-
um stað geti fækkað
umferðarslysum um
80%.
Gerð mislægra gatnamóta í og
við Reykjavík hefur sýnt sig að skila
miklum árangri í fækkun árekstra
og slysa og tilheyrandi lækkun á
tjónakostnaði. í skýrslu sem lögð
HUGSANLEGAR BREYTINGAR: Hugmynd að gatnamótum Lönguhlíðar og Stakkahlíðar.
var fyrir umferðarnefnd kemur
m.a. fram að þriggja hæða lausn er
umferðartæknilega best og með
henni næst mesti árangur í fækkun
umferðaróhappa og minnkun á
tafatíma. Þessi lausn er mjög arð-
söm. Hún innifelur einnig bestu
lausn með tilliti til hávaðamengun-
ar og fyrir gangandi og hjólandi.
Einnig er möguiegt að koma fyrir
ágætis lausn á skiptistöð fyrir al-
menningsvagna við gatnamótin.
Auk þess má ætla að þessi lausn ýti
undir bætta nýtingu svæða vestan
Kringlumýrarbrautar vegna greið-
ari aðgengis umferðar. Undir þetta
tekur Jónas Snæbjörnsson, um-
dæmisstjóri Vegagerðarinnar í
Reykjavfk og á Reykjanesi, í samtali
viðDV.