Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ2003 Samið um heilbrigðisnetið Grandi í laxeldið á Djúpavogi HEILBRIGÐISMÁL Jón Krist- jánsson, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, undirritaði í gær þrjá samninga um verk- efni sem verða hluti af (slenska heilbrigðisnetinu. Samið var við sóttvarnalækni, landlækni og forstjóra Tryggingastofnun- ar ríkisins f.h. viðkomandi stofnana. Komið verður á fót miðlægum gagnagrunni þar sem skráðar verða upplýsingar um alla þá sem láta bólusetja sig sem sóttvarnalæknir síðan varðveitir. Þá verður safnað með rafrænum hætti upplýs- ingum um vistun frá sjúkra- stofnunum í landinu en með því er verið að undirbúa sam- ræmda, rafræna söfnun og úr- vinnslu gagna um vistun á sjúkrastofnunum. Þriðji samn- ingurinn, sem undirritaður var í gær, er samningur um nýtt sérfræðireikningskerfi sem nota á í samskiptumTrygg- ingastofnunarog sérfræði- lækna sem eru á verksamningi viðTR. Verkefnið gengur út á að koma á rafrænum sending- um sérfræðilæknareikninga til TR sem verða hluti af nýju samskiptakerfi við læknana. FISKELDI: Útgerðar-og fisk- vinnslufýrirtækið Grandi hefur keypt 70% hlutafjár fiskeldisfyrir- tækisins Salar Islandica á Djúpa- vogi. Tilgangur þess félags er eldi sjávardýra og hefurfýrirtækið þegar hafið laxeldi í Berufirði. Þar hefur Salar Islandica heimild til framleiðslu á allt að 8.000 tonn- um af laxi. Þegar hefur verið sleppt 400.000 seiðum en nokkur ár munu væntanlega líða þar til heimildin til framleiðslu verður fullnýtt og starfsemin skilar um- talsverðum tekjum. Kaupverð hlutarins var ekki gefið upp en fjármögnun kaupanna er með eigin fé. Hingað til hefur aðkoma Granda að fiskeldi átt sér stað í gegnum hlut í Stofnfiski, Fiskeldi Eyjafjarðar og chileska fiskeldis- fýrirtækinu Salmones Friosur. Svamlað í Nauthólsvíkinni KRÆKLINGSVEIÐAR: Það er um að gera að nýta veðrið til að veiða kræklinga. Eins og sjá má af andlitum þessara Nauthólsvíkurgesta er einbeitingin ílagi.enda nauðsynlegt þegar bera þarf björg í bú. Sólarlandafarar hafa löngum vit- að að þá sé aldeilis ekki amalegt að geta brugðið sér á ströndina þegar vel viðrar. Við sem höldum okkur hér heima fyrir höfum kannski ekki alveg sömu tækifæri til þess - og þó, því á góðviðrisdögum er hægt að skella sér í Nauthólsvíkina. Hún jafnast alveg á við sólarstrendumar á góðum dögum og eru bæjarbúar sífellt að átta sig betur á því. Júní- mánuður komst nálægt því að slá hitamet í höfuðborginni í ár og hafa því mörg tækifærin gefist til að sprikla aðeins í Nauthólsvíkinni. Ljósmyndari DV leit þar við fyrir skömmu og fangaði stemninguna sem var fjömg, enda nóg hægt að gera á góðviðrisdögum ef hug- myndaflugið er í lagi. HÁTT UPP í HIMININN: Það er að sjálfsögðu klassísk afþreying á ströndinni að skella flugdreka á loft. Þá þarf að byrja að hlaupa með hann en að því loknu má fá sér sæti og njóta afraksturs erfiðisins. ALLUR ER VARINN GÖÐUR: Þegar sólin skín er nauðsynlegt að hafa sólarvörnina á næstu grösum og passa að allir séu vel varðir fyrir geislunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.