Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 24
24 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 2.JÚLÍ2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 5810
Lopez klæðalaus
Stjörnurnar vestur í Hollywood
láta ekki að sér hæða þegar sól
fer að hækka á lofti og hitinn að
aukast. Þá kasta þær bara klæð-
um, enda um fátt annað að
ræða vilji maður vera utandyra,
nema þá bara að stinga sér í
laugina og dvelja þar langdvöl-
um. Þetta kemur fram í könnun
sem bandaríska blaðið New
York Daily News lét gera meðal
fina fólksins. Latínubomban
Jennifer Lopez er ein þeirra sem
hefur unun af því að ganga um
á Evuklæðunum einum. „Mér
finnst gaman að ganga um nak-
in," segir hún og upplýsir jafn-
framt að hún hafi verið alin upp
við nekt. „Mamma mín var
þannig gerð og systur mínar
líka.
Vill kaupa torf
Noel í Oassis vill kaupa torf af
Maine Road leikvanginum í
Manchester, gamla heimavelli
Manchester City liðsins. Torfið
hyggst hann nota til þess að
útbúa eftirlíkingu af Maine
Road í bakgarðinum sínum og
til þess að gera eftirlíkinguna
sem líkasta leikvanginum
hyggst hann einnig bjóða í
nokkur sæti og eins og eitt
Móska rðshnjúkar:
Sólin lét bíða eftir sér og það tók
meistara Þórberg marga daga að
átta sig á því að þetta var líparítið í
tindunum, ekki sólin, sem hann sá.
Að ganga á Móskarðshnjúkum er
gönguferð sem allir hafa gaman af.
Fyrir þá sem ekki vita eru Mó-
skarðshnjúkarnir fyrir austan Esj-
una, milli hennar og Skálafells. Ysti
hnjúkurinn er hæstur, 807 metrar
yfir sjávarmál. Efstu hlutar
hnjúkanna eru líparít og skera þeir
sig því mjög úr umhverfi sínu. Frá
Reykjavík séð gætu ókunnugir
haldið að sól skini á tindana en svo
er ekki, vegna hins Ijósa litar lípar-
ítsins.
Þegar Þórbergur Þórðarson var
ungur og atvinnulaus í Reykjavík á
öðrum áratug 20ustu aldar hafði
Ásta málari boðið honum vinnu við
húsamálun um leið og stytti upp og
sólin færi að skína. Á hverju kvöldi
gekk Þórbergur í rigningarsudda
uppá Skólavörðuholt og sá sól
skína á Móskarðshnjúka. Hann var
því vongóður um sól og atvinnu
næsta dag. En sólin lét bíða eftir sér
og það tók meistara Þórberg marga
Fá fjöll nálægt Reykja-
vík eru eins skemmtileg
til fjallgöngu og Mó-
skarðshnjúkar.
daga að átta sig á því að þetta var
líparítið í tindunum, ekki sólin,
sem hann sá.
Milli Móskarðshnjúka og Skála-
fells er Svínaskarð. Um skarðið
liggur vegarslóði sem áður fyrr var
alfaraleið milli Kjósar og Mosfells-
sveitar. Slóðinn er tæplega jeppa-
fær í dag en mikið notaður af hesta-
mönnum.
Fá fjöli nálægt Reykjavík eru eins
skemmtileg til fjallgöngu og Mó-
skarðshnjúkar enda er afar víðsýnt
þaðan f góðu veðri. Þá er upplagt
að ganga af hnjúkunum og yfir á
Esjuna eftir mjóum rana sem þó er
tæplega fær á vetrum.
kgk@dv.is
CfTSÝNI: Frá Móskarðshnjúkum er
mikið og gott útsýni yfir landið.
DV-mynd Gunnar V. Andrésson
Reglulegt flug frá Færeyjum til Narsarssuag með viðkomu á íslandi:
Leiðin greið til Grænlands
í síðustu viku hófst að nýju
reglulegt áætlunarflug milli
Reykjavíkur og Narsarssuaq á
Suður-Grænlandi en flug á
þessari leið hefur legið niðri um
tveggja ára skeið.
Flogið verður tvisvar í viku og
þetta er samstarfsverkefni Flugfé-
lags Islands og færeyska flugfélags-
ins Atlantic Airways. Hægt var að
hefja ferðir að nýju eftir að græn-
lenska heimastjórnin og ríkisstjórn
Islands gerðu samkomulag sín í
milli um að styrkja flug á þessari
leið með opinberum fjármunum.
Loftbrú frá Færeyjum
Að sögn Jóns Karls Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Flugfélags ís-
lands, er reiknað með að í krafti áð-
urnefndra samninga verði reglu-
legu flugi á þessari leið haldið uppi
að minnsta kosti næstu þrjú árin.
Samstarfið við Atlantic Airways
opnar einnig nýja möguleika. Þota
„Ég á von á því að far-
þegunum muni fjölga
með tímanum."
félagsins, sem tekur 84 farþega, fer
frá Færeyjum að morgni, millilend-
ir í Reykjavík og heldur áfram til
Grænlands og sömu leið til baka
síðdegis.
Á milli íslands og Grænlands er
tæplega tveggja tíma flug og nú
verður í raun til loftbrú milli vest-
norrænu landanna þriggja. Þau
hafa í áranna rás haft með sér
margvíslega samvinnu, enda eiga
þau margt sameiginlegt.
Flogið til austurstrandar
Þá er Flugfélag fslands árið um
kring með áætlunarflug tvisvar í
viku til Scoresbysunds og Kulusuk
á austurströnd Grænlands. Því flugi
er sinnt með titstyrk "heimastjóm-
arinnar. Er það hugsað sem stuðn-
ingur við afskekktar byggðir á þess-
um slóðum með tilliti til sam-
gangna.
Til Kulusuk er félagið einnig með
ferðir tvisvar á dag yfir sumarmán-
uðina og njóta þær vinsælda, enda
gefst þar þannig ágætt tækifæri til
þess að fá á einni dagstund sýnis-
horn af grænlenskri menningu fyrri
tíðar.
Farþegum mun fjölga
„Á meðan reglulegu áætlunar-
flugi til Narsarssuaq var sinnt á
okkar vegum vom farþegarnir á
þessari leið á þriðja þúsund á ári.
Ég á von á því að sá fjöldi verði
svipaður fyrsta kastið en með
markaðssetningu í samvinnu við
ferðamálayfirvöld í Grænlandi
rnuni farþegunum fjölga með tím-
anum," segir Jón Karl ðlafsson.
Suðurfirðir Grænlands hafa á
seinni ámm orðið æ sterkara að-
dráttarafl ferðarhanna. Tignarlegir
jöklar, óspillt náttúra og sögufrægir
staðir em einkennandi fyrir þetta
svæði. í Narsarssuaq er ágætur
flugvöllur og hótel og þaðan eru
svo greiðar leiðir, hvort heldur er á
sjó eða í lofti, til áhugaverðra
áfangastaða.
í SÖGUALDARBÆNUM: I Brattahlíð situr fólk við hlóða-
eldinn í sögualdarbænum - og hver veit nema andi Ei-
ríks rauða svífi þar yfir vötnum.
FRÆKNIR FLUGKAPPAR: Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Islands, Magni Arge, forstjóri
Atlantic Airways, og Árni Gunnarsson, markaðsstjóri
Ff.
BRATTAHLfÐ: Myndarlega hefur verið byggt upp í
Brattahlíð og hús sem þar voru reist fyrir fáum árum
eru lík því sem gerðist á víkingatimanum. Lyklarnir,
sem að þeim ganga, minna frekar á listaverk en ann-
að.
GRÆNLENSKT LEYNDARMÁL: Kankvísir strákar í Nars-
arssuaq og leyndarmáli laumað í eyra þess yngri.
DV-myndir GVA