Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 38
38 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ2003
Varnarsigur ÍA
yfir Keflavíkingum
Átti ekki í vandræðum með máttlausa Suðurnesjamenn
1 -0 Stefán Þór Þórðarson 41.
I
Hafi eitthvert 1. deiidar lið gert
sig líklegt til að siá úrvalsdeild-
ariið úr keppni í leikjum gær-
dagsins var það sjáífsagt lið
Keflvíkinga. Hjá Skagamönnum
var hins vegar ekkert vanmat í
gangi og unnu þeir heidur
óspennandi en öruggan 1-0
sigur.
Það var Stefán Þórðarson sem
tryggði sínum mönnum sigurinn
með skalla af mjög stuttu færi eftir
hom Guðjóns Sveinssonar frá
hægri. Fram að þessu hafði ekkert
mikilvægt gerst en það var helst að
gestimir gerðust aðgangsharðir við
f mark ÍA á 12. mínútu. Jens Sævars-
son átti ágætt skot sem Þórður
varði í hom en úr því fékk Þórarinn
Kristjánsson prýðisgott færi sem
hann misnotaði.
Skagamenn léku í fyrri hálfleik
4-3-3 eins og í sfðustu leikjum en
breyttu um fyrirkomulag í hálfleik.
Þá fór bakvörðurinn, Unnar Val-
geirsson, út af, Kári Steinn datt aftur
í hans stöðu og Hjörtur Hjartarson
kom inn á í sóknina með Stefáni.
Miðjan var því með fjóra menn, þá
Guðjón og Julian á köntunum en
Grétar og Pálma á milli þeirra.
Ekld skilaði þetta fyrirkomulag
fleiri marktækifærum fyrr en á síð-
asta stundarfjórðungnum eða svo
en fram að því höfðu gestimir
reynst hættulegri. Stefán Gíslason
átti gott skot úr aukaspyrnu og Þór-
arinn fékk aftur gott skotfæri sem
misfórst.
Færeysk gieði í stúkunni
Hættulegustu færi hálfleiksins
komu þó undir lokin þegar Gunn-
laugur Jónsson átti skalla hárfínt yf-
ir markið á 72. mínútu og missti
Færeyingurinn Julian Johnson (sem
var ákaft studdur af færeyskum
stuðningsmönnum sínum í
stúkunni) rétt svo af boltanum fýrir
nánast opnu marki nokkrum mín-
útum síðar.
Sem fyrr vom það miðverðirnir
tveir hjá ÍA, Reynir og Gunnlaugur,
sem sáu til þess að andstæðingn-
um tókst ekki að skapa sér nein
stórhættuleg færi upp við mark sitt.
Skagamenn tóku einnig öll völd á
miðju með Pálma Haraldsson í far-
arbroddi og náðu þeir að halda
ungum og friskum Keflvíkingum
algerlega niðri nánast allan leikinn.
Scott Ramsey kom inn á þegar stutt
var eftir en það var sama sagan þar,
ekkert gekk.
Hjá gestunum bar hæst að
Magnús Þorsteinsson átti fínan
leik, sem og Stefán Gíslason og
Ómar Jóhannsson markvörður.
„Við hefðum getað klárað leildnn
miklu fýrr,“ sagði Pálmi Haraldsson
eftir leik. „En þetta var mikill bar-
áttuleikur enda Keflavík með mjög
frískt og teknískt lið. Við emm fegn-
ir því að vera komnir áfram enda
getur bmgðið til beggja vona í bik-
arleikjum sem þessum."
Maður leiksins: Pálmi Haralds-
son, ÍA. eirikurst@idv.is
Hetjuleg barátta
Hauka dugði ekki
Fram skoraði þrjú gegn einu Haukamarki í framlengingu
1-0 Guðmundur Steinarsson 57.
1- 1 Kristján Ó. Bjömss., víti 90.
2- 1 Ómar Hákonarson 94.
3- 1 Andri Fannar Ottósson 95.
3- 2 Ómar Kari Sigurösson 104.
4- 2 Ómar Hákonarson 116.
Hetjuleg barátta 1. deiidar
liðs Hauka dugði ekki gegn
úrvalsdeildarliði Fram á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöld í 16 liða úrslitum bikar-
keppninnar. Heimamenn
höfðu á endanum nauman
sigur sem allt eins hefði getað
fallið gestunum í skaut.
Afskaplega fátt markvert gerð-
ist í fyrri hálfleik - jafnræði var
með liðunum en færin vom af
skomum skammti - tvær hættu-
legar sóknir á lið og undirritaður
var hreinlega farinn að kvíða fyr-
ir seinni hálfleiknum. Það var þó
með öllu ástæðulaust því að það
sem eftir lifði leiks buðu bæði lið
upp á fjör og spennu í bland við
góða baráttu.
Guðmundur Steinarsson skor-
aði fyrsta mark leiksins og var
kappinn þá að sjást í fyrsta og
síðasta skipti í leiknum - honum
var kippt út af á sömu mínútu.
Framarar vom með pálmann í
höndunum en þeim tókst ekki
að ganga frá máJunum í kjölfarið
þrátt fyrir nokkrar hættulegar
sóknarlotur.
Haukamir sóttu í sig veðrið og
náðu á lokakaflanum nokkurri
pressu og á lokamfnútunni
braut Ómar Hákonarson á
Gunnari Sveinssyni innan teigs
og góður dómari leiksins, Mar-
ínó Þorsteinsson, dæmdi rétti-
lega víti. Úr þvi skoraði Kristján
Ómar Bjömsson af öryggi.
í firamlengingunni komu
Framarar geysiákveðnir til leiks
og áðumefhdur Ómar og Andri
Fannar Ottósson, sem komu
báðir inn á sem varamenn í
seinni hálfleik, gerðu sittt markið
hvor með mínútu millibili.
Héldu nú menn að sagan væri öll
en þau sögulok vom Hauka-
menn ekki tilbúnir að sætta sig
við. Ómar Karl Sigurðsson
tendraði vonameista í brjóstum
þeirra með góðu marki. Þeir gáfu
allt sem þeir áttu í seinni hálfleik
framlengingarinnar og vom ekki
langt frá því að jafría. Framarar
vom einnig skeinuhættir og
Ómar Hákonarson gulltryggði
sigur Safamýrarpiltanna og um
leið sæti í 8 liða úrslitunum með
marid af glæsilegri gerðinni. Fínn
seinni hálfleikur og framlenging
hjá báðum liðum - ekta bikar-
slagur á ferðinni þá.
Maður leiksins: Ómar Hákon-
arson, Fram sms
UPP í SKALLANN: Ágást
Gylfason,Fram, og Gor-
,m Lukic, Haukom, berj-
ast um boltann.
DV-mynd Pjetur
NÆSTU LEIKIR
VISA-bikarkeppni karla: Varmárv.: Afturelding-Valur 19.15
Akureyrarvöllur: KA-Fylkir 19.15
KR-völlun KR-lA U23 19.15
l.deild kvenna A- Sandgerðisvöllur: RKV-Fjöinir 20.00
3. deild karla D:
Seyðisfj.: Huginn-Leiknir F. 20.00
SKREFIA UNDAN: FH-ingunnn Freyr
Bjamason kemst á undan Þróttaranum
Sören Hermansen aö knettinum f leik
liöanna f Kaplaknka f gær.
DV-mynd SiguröurJökull
0-1 Chariie McCormick 12.
1- 1 Jónas Grani Garðarsson 43.
2- 1 Tommy Nielsen, víti 68.
FH-ingar voru ekki í vandræð-
um með að tryggja sér sigur á
máttlausum Þrótturum í 16 liða
úrslitum VISA-bikarsins í gær-
kvöld. Leikurinn var tilþrifalítill
og þessi spútniklið Lands-
bankadeildarinnar náðu sér
aldrei almennilega á flug að
þessu sinni.
Leikurinn hófst vægast sagt ró-
lega og sá bolti sem boðið var upp á
fyrstu mínútun leiksins er á góðu
götumáli kallaður göngubolti.
Bæði lið voru augljóslega mjög
meðvituð um það sem var í húfi og
léku varfæmislega, sóttu hægt og
gáfu fá færi á sér vamarlega. FH-
ingar réðu þó ferðinni og virtust
líklegri til afreka þegar 35 metra
aukaspyma Chariies McCormicks
af hægri kanti sigldi yfir allan pakk-
ann í teignum og í netið.
FH-ingar héldu ró sinni þrátt fyr-
ir markið og byggðu upp sóknir í
rólegheitum en tóku sér fulllangan
tíma í uppbygginguna og vel skipu-
lögð vöm Þróttar var ekki í miklum
vandræðum með að koma boltan-
um frá. Sóknimar þyngdust þó eft-
ir því sem á leið og það var komið
fram á markamínútuna frægu þeg-
ar Jónas Grani jafnaði leikinn sann-
gjamt fyrir heimamenn.
Aðeins meiri Juaði var í seinni
hálfleik, reyndar þurfti ekld að
skipta um marga gíra til þess að
toppa fyrri hálfleikinn, en fá vom
færin. Það hafði lítið gerst í síðari
hálfleik Jónas Grani slapp éinn í
gegn en Jens Sævarsson reif hann
niður i teignum. Magnús Þórisson
dæmdi réttilega vítaspymu. Hann
gerði samt herfileg mistök með því
að reka Jens ekki af velli sem var
aftasti maður og rændi Jónas klár-
lega uplögðu tækifæri. Hinn feiki-
sterki Dani, Tommy Nielsen, tók
vítaspymuna og skoraði ömgglega
úr henni.
Markið varð ekki þess valdandi
að Þróttarar hristu af sér slenið og
virtust þeir aldrei líklegir til þess að
jafna fýrir utan gott skot Páls Ein-
arssonar sem small í markslánni.
Lengra komust þeir ekki og áttu
sannast sagna ekki meira skilið.
Það fer að verða rann-
sóknarefni hversu illa
Þrótturum gengur á
útivelli.
FH-ingar hafa oft leikið betur en
í gær en þeir gerðu það sem þurfti
til að sigra og það gildir. Heimir var
öflugur á miðjunni og dreifði spil-
inu mjög vel og Tommy Nielsen var
eins og klettur í vöminni eins og
venjulega. Jónas Grani átti einnig
lipra spretti í framlínunni.
Það fer að verða rannsóknarefhi
hversu illa Þróttumm gengur á úti-