Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ2003 FRÉTTIR 17
f
<
Bush sendir ríki út í kuldann
BANDARÍKIN: Bandarísk stjórnvöld
tilkynntu í gær að þau hefðu ákveðið
að hætta allri hernaðaraðstoð við 35
lönd, þar á meðal Kólumbíu og sex
ríki sem vilja komast inn í NATO
vegna þess að þau styðja Alþjóðlega
glæpadómstólinn og hafa ekki und-
anþegið Bandaríkjamenn hugsan-
legri málsókn.
Tólf lönd til viðbótar voru sett á
bannlista en þau höfðu ekki þegið
neina aðstoð á þessu ári.
Ráðstafanirnar nú eru enn einn liður-
inn í atlögu stjórnar Georges W. Bush
gegn Alþjóðlega glæpadómstólnum,
sem settur var á laggirnar í fyrra og á
að lögsækja þá sem hafa gerst sekir
um stríðsglæpi og þjóðarmorð.
Bandaríkjamenn undirrituðu stofn-
samning dómstólsins 1998 en Bush
óttast að hann muni verða notaður í
pólitískum tilgangi.
ítalar teknir við formennsku í Evrópusambandinu:
Engar prédikanir, takk
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, svarar fullum
hálsi þeim sem hafa dregið í
efa hæfni hans til að veita ráð-
herraráði Evrópusambands-
ins forsæti vegna ailra spill-
ingarmálanna sem hann er
flæktur í. ítalíu tók við for-
mennsku í ESB í gær og gegn-
ir henni næstu sex mánuðina.
„Við skulum orða þetta á kurt-
eislegan hátt: Enginn getur tekið
ríkisstjórnina, sem ítalska þjóðin
kaus, í kennslustund í siðferði,"
segir Berlusconi í dagblaðsgrein
sem birtist f dag.
Mótmæli áformuð
ítalski forsætisráðherrann
ávarpar Evrópuþingið í dag þar
sem hann mun gera grein fyrir
þeim málefnum sem ítalar munu
setja á oddinn innan ESB næstu
sex mánuðina. Ekki er þó búist
við að þingmenn verði mjög mót-
tækilegir fyrir boðskap hans.
Þingmenn græningja áforma
að efna til mótmæla þar sem þeir
SVARAR FULLUM HALSI: Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra ftalíu, tók
við forystu i Evrópusambandinu í gær.
Hann hefur svarað gagnrýnisröddum
um hæfni hans til verkslns fullum hálsi.
munu hefja á loft borða með
áletruninni: „Allir eru jafnir fyrir
lögunum". Þar vísa þeir til þess að
ítalska þingið samþykkti nýlega
lög sem veita Berlusconi og
nokkrum öðrum æðstu mönnum
ríkisins friðhelgi frá lögsóknum á
meðan ítalar eru í forsæti ESB. Af
þeim sökum neyddist dómstóll f
Mílanó til að slá á frest réttar-
höldum yflr Berlusconi sem
ákærður er fyrir að hafa borið
mútur á dómara.
Hættuiegur Evrópu
Fjölmiðlar um alla Evrópu hafa
haldið uppi gagnrýni á
Berlusconi síðustu daga. Þýska
dagbiaðið Berliner Zeitung sagði
meðal annars í gær að menn
myndu ekki vilja taka í höndina á
Berlusconi af fúsum og frjálsum
vilja. Franska dagblaðið Libér-
ation sagði hann hættulegan fyrir
Evrópu og annað franskt blað, Le
Monde, taldi að eindreginn
stuðningur hans við stefnu
Bandaríkjanna myndi valda
ágreiningi við leiðtoga ýmissa
annarra Evrópulanda.
Berlusconi sagði sjálfur á
mánudag að hann myndi reyna
að koma aftur á vinsamlegum
samskiptum Evrópu og Banda-
ríkjanna en þau biðu nokkurn
hnekki vegna Iraksstríðsins.
Fyrir þá sem ganga yfir Fimmvörðuhálsinn er
tilvalið er að gista á Hótel Eddu Skógum. Þar
er líka gott að dvelja og njóta fegurðar
náttúrunnar og nálægðar jökla og fossa.
Upplýsingar og pantanir 444 4000 • www.hoteledda.is
Pakgluggar
Opnanlegir að neðan
Öryggisgler ÁLTAK
Valin Pine viður
Stillanleg öndun
Tvöföld vatnsvörn
Stórhöfði 33 • Sími: 577 4100
Fax: 577 4101* www.altak.is
BÓNUSVÍDEÓ
Leigan í þínu hverfi