Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 16
76 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2.JÚLÍ 2003 Útlönd Heimurinn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Ekki úr Hvalveiðiráðinu JAPAN: Junichiro Koizumi, for- sætisráðherra Japans, sagði í morgun að Japanar ættu ekki að segja sig úr Alþjóðahval- veiðiráðinu, heldur reyna að afla sér stuðnings innan þess fyrir að hefja aftur hvalveiðar í ábataskyni. Japanskir embættismenn sögðu í síðasta mánuði að stjórnvöld ÍTokyo myndu íhuga að segja sig úr Hvalveiði- ráðinu eða neita að greiða ið- gjöldin eftir að hvalveiðiand- stæðingum tókst að fá ársfund ráðsins til að samþykkja tillög- ur um frekari verndun hvala- stofnanna. Ársfundur Hvalveiðiráðsins hafnaði beiðni Japana um að fá að veiða 150 hrefnur og 150 aðra hvali í Kyrrahafi. Kíkt á basalt FÆREYJAR: Nokkur erlend olíu- félög, undir forystu hins norska Statoil, hefja í næstu viku jarð- bylgjumælingar á færeyska landgrunninu til að kanna hvort þar sé olíu eða gas að finna. Þykkt basaltlag er á hafs- botninum á því svæði sem kannað verður en að sögn get- ur reynst erfiðleikum háð að sjá undir það. Annað skref Vegvísis til fríðar: Brottflutningur frá Betlehem ísraelar munu í dag hefja brott- flutning herja sinna frá bænum Betlehem á Vesturbakkanum og er það annað skrefið í yfir- standandi friðarferli sem byggt er á alþjóðlegum vegvísi til frið- ar, sem stutt er af Bandaríkja- mönnum, ESB, Rússum og SÞ. Ferlið hófst með brottflutningi ísraelskra hersveita frá Gaza- svæðinu á sunnudaginn og yf- irtöku Palestínumanna á allri öryggisgæslu á svæðinu eftir að helstu samtök herskárra hreyfinga Palestínumanna höfðu lofað að stöðva allar árásir á ísraelska borgara og samþykkt þriggja mánaða vopnahlé. Annað skrefið er tekið eftir fund þeirra Ariels Sharons, forsætisráð- herra ísraels, og Mahmouds Abbas, forsætisráðherra Palestínu, í gær en þar náðist samkomulag um að halda fríðarferlinu strax áfram. Þetta var fjórði fundur þeirra Sharons og Abbas á síðustu sex vik- um og á sameiginlegum blaða- mannafundi fyrir fundinn voru þeir sammála um að grafa stríðsöxina og horfa til friðsamlegrar framtfðar fyr- ir þjóðir sínar. Gott andrúmsloft Gott andrúmsloft virtist ríkja milli ráðamanna þjóðanna sem þátt tóku í fundinum og lofuðu forsætisráð- herrarnir að binda enda á ofbeldið um leið og þeir tókust innilega í hendur. „Það ríkir enginn fjand- skapur á milli þjóða okkar," sagði Abbas og meira að segja þeir Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Israels og Mohammed Dahlan, öryggis- málastjóri Palestínumanna, svarnir fjandmenn til margra ára, sáust stinga nefjum saman vinsamlega. Sharon og Abbas lýstu báðir ein- dregnum stuðningi við alþjóðaleg- an vegvísi til friðar og sagði Sharon að þjóð sín væri tilbúin til að færa sársaukafullar fórnir til að tryggja öryggi og frið fyrir botni Miðjarðar- hafs - frið fyrir komandi kynslóðir, frið sem allir þrá. Eins og á Gaza-svæðinu mun palestínska lögregl- an taka yfir alla öryggis- gæslu í Betlehem en á móti munu ísraelsmenn draga herlið sitt til þeirra svæða sem þeir héldu áð- ur en ófriðarbálið bloss- aði upp. Abbas tók undir orði Sharons og sagði nóg væri komið af ofbeldinu. „Við höfum þjáðst nóg og upplifað mikinn sárauka. Það er kominn tími til þess að þessu linni og horfa frek- ar hughraust til friðsamlegrar fram- tíðar sem við eigum öll skilið," sagði Abbas. Brottflutningur frá Betlehem Eins og á Gaza-svæðinu mun palestínska lögreglan taka yfir alla öryggisgæslu í Betlehem en á móti munu Israelsmenn draga herlið sitt til þeirra svæða sem þeir héldu áður en ófriðarbálið blossaði upp í sept- ember árið 2000. Brottflutningurinn frá Betlehem breytir þó litlu fyrir íbúana þar sem þeir fá ekki ferðafrelsi utan bæjarins og eftir stendur sú ákvörðun ísraels- manna að byggja rammgert varnar- virki á milli Betlehem og Jerúsalem. Hanna Nasser, bæjarstjóri í Bet- lehem, sagði í morgun að vonandi stæðu ísraelamenn nú við gefin lof- orð og minnti á að síðast þegar þeir hefðu dregið lið sitt út úr bænum hefði það verið komið aftur eftir nokkra daga. „Ég vona að þeir standi við gefm loforð. Ég verð þó að vera bjartsýnn því einhvern veginn verða þjóðir okkar að umbera hvora aðra til framtíðar," sagði Nasser. Vopnahléð virðist halda Þrátt fyrir vopnahléssamkomulag Palestínumanna hefur komið til einhverra átaka milli stríðandi fylk- inga síðustu tvo daga en þó ekki al- varlegra og virist sem vopnahléð ædi að halda að mestu leyti. ísraelskir hermenn skutu í gær palestínskan byssumann til bana í nágrenni bæjarins Tulkarm á Vest- urbakkanum eftir að hann hafði skotið að ísraelskum hermönnum á eftirlitsstöð og er það önnur árásin sem gerð er á ísraeska hermenn á heimastjórnarsvæðunum síðan vopnahléð var samþykkt. Hryðjuverk ekki liðin Sharon ítrekaði fyrir fundinn í gær að hryðjuverkin yrðu ekki liðin og að það yrði ekki samið um frið við hryðjuverkasamtök. Abbas sagði aftur á móti að hver dagur sem liði án samkomulags væri dagur glat- aðra tækifæra og dauði hvers manns væri harmleikur. „Við höfum fengið nóg af drápunum," sagði Abbas. Þeir félagar forðuðust að ræða erfiðu málin, eins og landtöku- byggðimar, flóttamannavandann og málefni Jerúsalem, á blaða- mannafundinum, en samþykktu síðan á fundi sínum að skipa við- ræðunefndir sem munu ræða fjögur aðgreind málefni sem eru palest- Vinsamlegt handaband: Þeir Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palestínu og Ariel Sharon, forsætisráðherra (sraels, takst í hendur fýrir fund sinn í gær. ínskir fangar í ísraelskum fangels- um, viðskipti, öryggisgæsla og upp- bygging. Bandaríska fréttastofan CNN sagði frá því í morgun að ísraelar hefðu gefið til kynna að þeir leyfðu Yasser Arafat hugsanlega að flytja frá Vesturbakkanum yfir til Gaza- svæðisins. Það yrði þó án efa með þeim skilyrðum að hann fengi ekki að fara aftur til baka, en ferðafrelsi Arafats er eitt af þeim skilyrðum sem herskáar fylkingar Palestínu- mann settu fyrir vopnahlénu. Árásirnar halda áfram í írak: Uppbyggingin langtímaverk Morðið á dönsku stúlkunni: Nauðgað og kyrkt Danska lögreglan telur lík- legt að tólf ára stúlkan, Mia Teglgaard Sprotte, hafi orðið fórnarlamb morðingja sem býr í námunda við hana í smábænum Benlose, norður af bænum Ringsted á Sjá- landi. Miu var nauðgað og hún síðan kyrkt með nælonsnúru á föstudag. Norska blaðið VG hefur eftir stjórnanda morðrannsóknar- innar, Poul Andersen, að morð- inginn hafi komið aftur á morð- staðinn daginn eftir ódæðis- verkið til að grafa lík litíu stúlkunnar í jörðu. Lík Miu fannst grafið nærri fótboltavelli aðfaranótt þriðjudagsins. Miu hafði verið saknað frá því aðfaranótt laugardagsins. Fyrr um kvöldið hafði hún komið boðum til foreldra sinna um að hún ætlaði að fara á leikvöll í Ringsted, í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð ffá heimili hennar. Mia hafði lofað foreldrum sínum að vera komin heim fyrir klukkan tíu á föstudagskvöld og hún var passasöm að láta alltaf vita ef henni seinkaði, Lögregl- an gerir því ráð fyrir að hún hafi verið myrt fyrir klukkan tíu á föstudagskvöld. Umbreyting íraks og uppbygg- ing landsins eftir stríðið verður umfangsmikið langtímaverk og litlar líkur á því að Bandaríkja- menn geti kallað herlið sitt burt frá landinu á næstu árum. „Við vissum það frá upphafi að verkið yrði bæði langt og erfitt og að það myndi reyna á þolrifin,“ sagði George W. Bush Bandaríkja- forseti í ávarpi sem hann flutti í Hvíta húsinu í gær. Barry McCaffrey, fyrrum fjögurra stjörnu hershöfðingi, sem tók þátt í Persaflóastríðinu 1991, varaði við því í viðtali við breska sjónvarpið BBC að bandarfskir hermenn kynnu að verða fastir í írak næsta áratuginn. LÍKBURÐUR: Heimamenn bera kistu klerks eins sem lét lífið í sprengingu sem varð í mosku í bænum Falluja í (rak í gær. Banda- ríski herinn vísar á bug ásökunum heima- manna um að hann beri ábyrgð á spreng- ingunni sem varð níu að bana. Bandarískur hermaður lést í morgun af sárum sem hann hlaut þegar bilalest, sem hann var í, varð fyrir árás. Þá hafa 23 bandarískir hermenn fallið frá því lýst var yfír að stríðinu f írak væri lokið. Spáir fleiri árásum Bandarískir öldungadeildarþing- menn, sem eru í heimsókn í Irak, vöruðu í gær við því að frekari árás- ir væru líklegar. „Stríðið stendur enn yfir, hættan er enn fýrir hendi og mjög líklega mun manntjón hljótast af,“ sagði þingmaðurinn John Warner, repúblikani frá Virginíu. Engin teikn eru á lofti um að spennan í írak fari minnkandi og árásir á her- menn eru daglegt brauð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.