Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 36
36 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ2003 DV Sport Keppni i hverju ordi Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Þormóður mætti á æfingu hjá KR KNATTSPYRNA: Margir stuðn- ingsmanna KR kættust í gær þegar þeir fengu fréttir af því að Þormóður Egilsson hefði mætt á æfingu hjá liðinu. Þor- móður sagði í samtali við DV- Sport í gær að þeir hinir sömu ættu að anda rólega því að hann hefði ekki tekið fram skóna á nýjan leik. „Ég datt bara á eina æfingu því mig langaði til að hreyfa mig. Ég hef ekkert ákveðið að byrja að spila á ný. það getur vel ver- ið að ég mæti á fleiri æfingar en ég er ekki að fara að æfa á fullu. Ég vissi að þetta yrði auð- veld æfing þar sem það er leik- ur daginn eftir og Willum var svo vinsamlegur að leyfa okkur Þorsteini Jónssyni að vera með. Ég neita því samt ekki að það freistar svolítið að vera með þegar veðrið er gott en það nær ekki lengra eins og er,“ sagði Þormóður. Við þetta má svo bæta að þeir Veigar Páll Gunnarsson og Sig- urvin Ólafsson eru byrjaðir að æfa á ný og verða væntanlega með gegn U-23 ára liði (A í VISA-bikarnum í kvöld. Þormóður Egilsson, fyrrum fyrirliði KR. id Béckliain eq Cailos Queirós a ...jntiago Bemab-'du I gær en Queiros var fvrir skemmstUjKiðinn þjálfari hjá Real ^jladrid en hamj \ ,ir aðstoðarmaður hjá Sir •rgusohífvrra. Reutc Beckham orðinn leikmaður Real skrífaði undir 4 ára samning í gær Ríkur Rússi kaupir Chelsea Það var stór dagur hjá David Beckham í gær. Hann byrjaði daginn á því að fara í tveggja tíma læknisskoðun í Madrid sem sýnd var í beinni útsend- ingu á sjónvarpsstöð Real Madrid. Að því loknu fór hann á Santiago Bernabeau, heimavöll Real Madrid, þar sem hann skrifaði undir fjög- urra ára samning við félagið. Mikil spenna var í loftinu meðan á læknisskoðuninni stóð og beið fjöldi fréttamanna fyrir utan heilsugæslustöðina eftir fréttum af þvf hvort Beckham hefði staðist skoðunina. Það gerði hann með glans en þess má geta að heilsufyrirtæki nokk- urt á Spáni greiddi rúmar 30 milljónir fyrir auglýsingaréttinn á sjónvarpsútsendingunni. Að skoðun lokinni hélt hann ásamt konu sinni, Victoriu, og syninum Brooklyn, á Santiago Bemabeau. Þar byrjaði hann á þvf að fara út á völlinn og bað hann um bolta svo hann gæti leikið sér með stráknum sínum. „Ég get ekki beðið eftir að byrja að spila hérna,“ sagði Beckham með bros á vör. Eftir spriklið settist hann niður með forseta félagsins, Florentino Perez, og yfirmanni knatt- spymumála, Jorge Valdano, tii þess að skrifa undir samninginn. Til þess notaði hann sérstakan blekpenna sem Victoria hafði gefið honum til nota við sérstök tækifæri. Að því loknu gaf hann Perez dagbók og blekpenna sem Perez sagði að yrði notaður til þess að skrifa undir næsta samning. „Ég vona það svo sannarlega. Ég er virkilega hamingjusamur með þetta allt sarnan," sagði Beckham brosmildur að lokinni undirskrift. henry@dv.is Rússneski olíubaróninn Roman Abramovich keypti meirihluta í enska knattspyrnufélaginu Chelsea, sem Eiður Smári Guðjohnsen leikur með, í gær. Abramovich náði samkomulagi við Ken Bates, stjórnarformann Chelsea, um kaup á meira en helmingi hlutabréfa Chelsea Village, sem átti Chelsea, fyrir rúmar 4 milljarða íslenskra króna. Abramovich er næstríkasti mað- ur Rússlands og á stóran hlut í olíu- félaginu Sibneft. Hann hefur lög- fræðigráðu og var kosinn til neðri deildar rússneska þingsins árið 1999. Hann var í skýjunum með kaupin á Chelsea í gær en hann ætlar sér stóra hluti með félagið. „Við erum hæstánægðir með að hafa náð yfirráðum yfir einu stærsta félagi Evrópu. Við höfúm fjármagnið og metnaðinn til þess að ná enn frekari árangri með þetta félag þar sem sóknarfæri þess og möguleikar eru margir," sagði Abramovich í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Þessir fréttir þýða það að afi enska boltans, Ken Bates, mun ekki verða áfram við stjómvölinn hjá Chelsea. Hann var engu að síður ánægður með að salan hefði geng- ið í gegn og hann er á því að kaup Abramovich á Chelsea sé framfara- skref fyrir félagið. „Þetta er frábær samningur fyrir Chelsea Village, félagið og stuðn- ingsmenn þess. Við höfum náð „Við höfum fjármagnið og metnaðinn til þess að ná enn frekari ár- angri með þetta félag þar sem sóknarfæri þess og möguleikar eru margir." ótrúlegum árangri með félagið síð- j ustu 21 ár, höfum byggt frábæran leikvang og hæfileikaríkt lið sem sem hefur skipað sér sess sem eitt það besta í Evrópu. Það er mikil og hörð samkeppni meðal knatt- spymufélaga í Evrópu í dag og það mun aðeins koma Chelsea til góða að hafa eigendur með djúpa vasa sem geta komið félaginu skreh lengra," sagði Bates sem væntan- lega ber ekki skarðan hlut frá borði persónulega. Eftir kaup Abramovich á Chelsea er félagið metið á 60 milljónir punda sem segir reyndar lítið þar sem það er talið skulda um 80 millj- ónir punda og hefur tapið verið mikið undanfarin ár. Abramovich á þó von á bjartari tíð með blóm í haga þar sem Chelsea varð í fjórða sæti í ensku deildinni í fyrra og vann sér þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. henry@dv.is NÝR YFIRMAÐUR: Eiður Smári Guðjohnsen fær launaseðla sína í framtíðinni frá rússneska olíujöfrinum Roman Abramovich sem keypti Cheisea f gær. 5 ír Þorvaldsdalsskokk 2003 Þorvaldsdalsskokkiö verður haldið í tíunda skiptið laugardaginn 5. júlí og hefst klukkan 10.00 við romf í Hörgárdal. Hlaupið endar við Árskóg á Árskógsstr og geta þátttakendur geymt bíla sina |ar, því (arið ver með rútu þaðan kl. 9:00. Þáttökugjald er kl. 1.000,- á hvem þátttakanda. AöUar sem sonda aö hUupinu eru; Bjorjunarsveit Árskógsstrándar pg FcrtefelafiÖ Hoqpr, MCflMM Upplýsingar á www.hlaup.is og í síma 462-6824 (Bjami) ungmennaieagio vscyrur, r ___ . Fwft^jónusan Ytrl-ViV I Kiknldnni Rustu kominn til Barca Fyrsti leikmaðurmn sem Joan Laporta fær til félagsins 1 Hinn nýkjörni forseti Barcelona, Joan Laporta, byrjaði byltingu sína á Barceíona-liðinu í gær þegar hann gekk frá kaupunum á tyrkneska landsliðsmarkverð- inum Rustu Recber. Recber kom til Barcelona á mánudag og fór svo í læknisskoðun í morgun sem hann flaug í gegnum. Að því loknu skrifaði hann undir samning við Barcelona en hann kostaði félagið ekki evru þar sem hann var með lausan samning hjá tyrkneska félaginu Fenerbahce. „Eg vona að ég eigi eftir að standa mig KLAR f SLAGINN: Rustu Recber ásamt Joan Laporta, forseta Barcelona vel. Ég hef verið stuðningsmaður Barcelona frá 7 ára aldri. Það eru aðeins tvö félög sem ég held með „Ég hefverið stuðningsmaður Barcelona frá 7 ára aldri." en það eru Barca og Fenerbahce," sagði Rustu himinlifandi eftir und- irskriftina. henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.