Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Page 32
32 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 2.JÚLI2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Stórafmæli 90 ára Ragnheiður Biöndal, Miðleiti 5, Reykjavík. Fólk í fréttum Guðjón Magnússon nýráðinn forstjóri Lýöheilsustöðvar Guðjón Magnússon, fyrrv. skrif- stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og fyrrv. formaður RKÍ, hefur verið ráðinn forstjóri Lýðheilsustöðvar sem tók til starfa í gær. Hann mun taka við starfinu þann 1.10. nk. Starfsferill Guðjón er fæddur í Reykjavík 4.8. 1944 og ólst þar upp en dvaldi á Stokkseyri á sumrin til tólf ára ald- urs. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1964, embættisprófi í læknis- fræði frá HÍ 1971 og prófí í samfé- lagslækningum frá háskólanum í Edinborg f Skotlandi 1975. Guðjón stundaði sérnám við rannsóknar- deild skoska heilbrigðisráðuneyt- inu í Edinborg 1975, á Hudd- ingesjúkrahúsinu í Stokkhólmi 1975-80 og lauk doktorsprófi í við Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1980. Hann varð sérfræðingur í fé- lagslækningum í Svíþjóð 1979 og viðurkenndur sérfræðingur í fé- lagslækningum og embættisiækn- ingum hérlendis ári síðar. Guðjón var aðstoðarlæknir á barnadeild Landspítalans 1972, að- stoðarborgarlæknir 1972-73, skóla- yflrlæknir 1973, héraðslæknir á Hofsósi og Sauðárkróki 1973-75, aðstoðarlæknir og aðstoðaryfir- læknir á Uttans sjukhus í Stokk- hólmi, lungnadeild, 1975-76, að- stoðarlæknir með námi í félags- lækningum við Socialmedicinska institutet, Huddinge sjukhus í Stokkhólmi 1976-77, á geðdeild þar 1977-78 og við Socialmedicinska institutet 1978-80, aðstoðarland- láeknir 1980-84 og 1985-90, settur landlæknir 1984-85, skrifstofustjóri heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- isins og staðgengill ráðuneytis- stjóra frá 1990-96, lektor og sfðan dósent við í félagslækningum við HÍ 1982-92, kennari í samfélags- lækningum við Norræna heilbrigð- isháskólann í Gautaborg 1981, pró- fessor þar 1991-92 og rektor skól- ans frá 1996. Guðjón, sem spilaði handbolta og fótbolta með Fram á yngri árum, lék körfuknattleik með ÍS og dæmdi fjölmarga landsleiki í íþróttinni, bæði heima og erlendis. Hann var formaður Félags læknanema 1969 og varaformaður Stúdentaráðs HÍ 1969-70, ritari Læknafélags Islands 1971-75, ritstjóri Læknablaðsins 1981- 85 og Nordisk Medicin 1983-86 og hefur verið í ritstjórn Scandinavinan Journal of Social Medicine frá 1982. Guðjón var í stjórn Hollustuverndar ríkisins 1982- 85, í kjaradeilunefnd 1982-85, forseti Norræna félags- lækningasambandsins 1983-85, formaður Samtaka lækna gegn kjarnorkuvá 1983-85 og varafor- maður Reykjavíkurdeildar Rauða krossins 1981-85, sat í stjórn Rauða kross íslands frá 1982, var varafor- maður 1983-85 og formaður frá 1986-96, varaforseti Alþjóðasam- bands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Genf í Sviss 1989-93 og hefur gegnt íjölda annarra trún- aðarstarfa fyrir Rauða kross-hreyf- inguna. Guðjón var formaður norrænnar nefndar um heilbrigðistölfræði 1985-89, í samvinnunefnd sjúkra- húsa í Reykjavík og á Akureyri 1985- 91, í stjórn Geislavarna ríkis- ins 1985-97, í nefnd til að gera til- lögur um lækkun lyfjakostnaðar 1986- 89, formaður landsnefndar um alnæmisvarnir frá 1988-94, fulltrúi Evrópu í stjórn alnæmis- átaks Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar 1988-90, í samstarfsráði sjúkrahúsa í Reykjavík frá 1990, í samninganefnd Tryggingastofnun- ar ríkisins frá 1990 og í fulltrúaráði Sólheima í Grímsnesi, hefur verið félagi í Rotaryklúbbi Reykjavíkur frá 1986, hefur skrifað á annað hundrað greina í innlend og erlend tímarit um læknisfræðileg efni og niðurstöður rannsókna. Guðjón varð heiðursfélagi í Finnska læknavísindafélaginu 1986, hlaut riddarakross hinnar ís- lensku fálkaorðu 1989, heiðurs- merki mexíkóska Rauða krossins 1990, gullskjöld sænska Rauða krossins 1990, heiðursmerki danska Rauða krossins 1990 og heiðursmerki pólska Rauða kross- ins 1991, heiðurmerki finnska Rauða krossins 1997, og æðsta heiðursmerki Rauða kross íslands 1997. Fjölskylda Guðjón kvæntist 2.7. 1966 Sig- rúnu Gísladóttur, f. 26.9. 1944, B.Ed. frá KHÍ, fyrrv. skólastjóra Flataskóla og bæjarfulltrúa í Garða- bæ. Foreldrar hennar: Gísli Ólafs- son, f. 8.1. 1917, fyrrv. fulltrúi, og Bjarnheiður Gissurardóttir, f. 29.11. 1913, fyrrv. klæðskeri. Synir Guðjóns og Sigrúnar eru Arnar Þór, f. 21.8. 1970, læknir í Reykjavfk; Halldór Fannar, f. 22.4. 1972, eðlisfræðingur í San Franc- isco; Heiðar Már, f. 22.4. 1972, B.S. hagfræðingur í Reykjavík. Hálfsystkini Guðjóns, sam- mæðra: Guðmundur Kristján Hjartarson, f. 23.3. 1948, verslunar- maður; Einar Vilberg Hjartarson, f. 26.4. 1950, tónlistarmaður; Guð- finna Helga Hjartardóttir, f. 23.7. 1958, skrifstofumaður; Ingibjörg Halldóra Hjartardóttir, f. 29.3. 1963, húsmóðir. Guðjón á þrjú systkini, samfeðra. Foreldrar Guðjóns: Magnús Jónsson, f. 30.6. 1924 á Stokkseyri, d. 24.7.1968, vörubílstjóri á StokJcs- eyri, og Alma Einarsdóttir, f. 30.12. 1928 í Reykjavík. Stjúpfaðir Guðjóns: Hjörtur Guð- mundsson, f. 21.6.1924, rafvirki. Ætt Magnús var sonur Jóns, kaup- manns og útgerðarmanns á Stokks- eyri Magnússonar, b. á Brú í Flóa og kaupmanns Gunnarssonar, b. á Hæringsstöðum Ingimundarsonar, pr. á Ólafsvöllum Gunnarssonar. Móðir Jóns kaupmanns var Ástríð- ur Eiríksdóttir, b. á Brú Eiríkssonar, b. í Arakoti á Skeiðum Guðmunds- sonar. Móðir Ástríðar var Anna Bjarnadóttir, b. í Björnskoti Lafranzsonar. Móðir Önnu var Margrét Eyjólfsdóttir, b. í Björnskoti Árnasonar, b. í Björnskoti Sigvaldasonar, b. á Löngumýri á Skeiðum Jónssonar. Móðir Árna var Margrét Bergsdótt- ir, ættföður Bergsættar Sturlaugs- sonar. Móðir Magnúsar var Halldóra Ólöf Sigurðardóttir, b. á Vegamót- um á Seltjamarnesi Guðmunds- sonar. Alma er dóttir Einars, bryta á Akranesi og síðar verslunarstjóra í Reykjavík, frá Flankastöðum í Gull- bringusýslu Magnússonar, og Helgu Guðjónsdóttur. Guðfinna Sigrún Ólafsdóttir athafnakona í Reykjavík Guðfinna Sigrún Ólafsdóttir at- hafnakona, Arahólum 6, Reykjavík, er áttatíu og fímm ára í dag. Starfsferill Guðfmna fæddist í Stóra- Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Húsmæðraskóla Árnýjar Filippus- dóttur sem þá gekk undir heitinu Grautarskóli. Auk heimilis- og uppeldisstarfa stundaði Guðfinna lengst af ráðs- konustörf. Þá stundaði hún versl- unarstörf við verslun eiginmanns síns sem starfrækti biðskýlið við Bústaðaveg í Reykjavík 1961-80. Fjölskylda Eiginmaður Guðfinnu var Guð- mundur Ingvar Ágústsson, f. 13.3. 1917, d. 1978, kaupmaður í Reykja- vík. Hann var sonur Ágústs Friðriks Guðmundssonar, skósmiðs í Reykjavík, og k.h., Maiendínu Guð- laugar Kristjánsdóttur húsmóður sem bæði em látin. Börn Guðfinnu og Guðmundar em Maja Þuríður Guðmundsdóttir, f. 1.5. 1941, húsmóðir í Reykjavík, en eigimaður hennar er Hafliði Örn Björnsson flugmaður og eiga þau þrjú börn; Sigrún Hrefna Guð- mundsdóttir, f. 29.4. 1947, búsett í Reykjavík og á hún þrjár dætur; Ólöf Hafdís Guðmundsdóttir, f. 17.10. 1949, húsmóðir í Reykjavík en maður hennar er Sigurjón Guð- mundsson; Kristján Arnfjörð Guð- mundsson, f. 30.10. 1951, strætis- vagnastjóri hjá Hagvögnum og á hann sex börn; Ingibjörg Linda Guðmundsdóttir, f. 1.4. 1956, starfsmaður hjá Flugleiðum, búsett í Reykjavík og á hún þrjú börn. Systkini Guðflnnu: Guðmundur Ólafsson, f. 6.10. 1914, nú látinn, verkstjóri hjá fslenskum aðalverk- tökum, var kvæntur Guðrúnu Eyj- ólfsdóttur sem nú er látin, börn þeirra em tvö; Guðrún Ingibjörg, f. 13.2. 1916, nú látin, var búsett í Reykjavík, var gift Jóni Benedikts- syni og átti með honum tvö börn en þau slitu samvistir og hún átti eitt barn fyrir hjónaband; Ellert, f. 4.4. 1917, d. 1984, leigubílstjóri en kona hans var Ingibjörg Júlíusdótt- ir og börn þeirra eru tvö; Guð- mundur Viggó, f. 20.11. 1920, nú látinn, leigubílstjóri, var kvæntur Fjólu Jóhannesdóttur og eiga þau þrjú börn; Pétur, f. 26.2. 1922, nú látinn, var starfsmaður íslenskra aðalverktaka, búsettur á Stóra- Knarrarnesi; Hrefna, f. 16.4. 1923, húsmóðir og fótsnyrtidama, gift Ólafl Björnssyni; Margrét, f. 11.11. 1924, ráðskona í Reykjavík, gift Eð- varð Sveinssyni sem nú er látinn, börn þeirra em þrjú; Ólafur, f. 6.6. 1926, d. 22.6. 1940; Guðbergur, f. 7.8. 1927, leigubílstjóri í Keflavík, kvæntur Esther Jósepsdóttur og eiga þau fjóra syni; Bjarney, f. 17.12. 1928, hárgreiðsludama í Reykjavík, gift Guðmundi Jasonar- syni og eiga þau sex börn; Áslaug Hulda, f. 7.7. 1930, húsmóðir í Keflavík, gift Hermanni Helgasyni og eiga þau sjö böm; Eyjólfur, f. 13.4.1932, vömbflstjóri í Reykjavík, kvæntur Ágústu Högnadóttir og eiga þau tvö börn; Klara, f. 9.10. 1933, nú látin, starfsstúlka í mötu- neyti íslenskra aðalverktaka, var gift Ástvaldi Ragnari Bjarnasyni verkstjóra sem einnig er látinn og eignuðust þau flmm börn. Foreldrar Guðfinnu vom Ólafur Pétursson, f. 28.6. 1884, d. 11.10. 1964, bóndi og fiskverkmaður, og Þuríður Guðmundsdóttir, f. 17.4. 1891, d. 25.2. 1975, búsett á Stóra- Knarrarnesi frá árinu 1913 til ævi- loka. Haldið verður upp á daginn á Stóra-Knarrarnesi, Vatnsleysu- strönd, miðvikudaginn 2.7. 85 ára Guörún Elíasdóttir, Strandgötu 9a, Stokkseyri. Margrét Ólafsdóttir Hjartar, Asparfelli 8, Reykjavík. 80 ára Svelnn Guömundsson, Heiöargeröi 51, Reykjavík. 75 ára Margrét H. Sigurðardóttir, Hörgshiíö 8, Reykjavík. 70 ára Esther Árnadóttir, Holtageröi 52, Kópavogi. Guöný Halldórsdóttir, Kirkjuvegi 17, Ólafsfirði. Ingibjórg Ólafsdóttir, Hátúni, Dalvik. Pétur Sölvi Þorleifsson, Gullengi 17, Reykjavík. Sigríöur Siguröardóttir, Gnoðarvogi 18, Reykjavík, 60 ára —^jzr-— Ragnar Michelsen f flk blómskreytingarmað- Jk| ur, Krummahólum 6, Reykjavík. Hann er wL. sonur Paul V. Michel- ^ , ÆU sen og Sigriöar Rakelsdóttur, lands- þekktra frumbyggja í Hveragerði. Hann verður meðal blómanna á af- mælisdaginn. Guðjón Jóhannsson, Túngötu 30, Siglufirði. Gylfi Gunnarsson, Breiövangi 69, Hafnarfirði. Kristinn Hólm Þorleifsson, Víðilundi 12d, Akureyri. Ólafía Helga Stígsdóttir, Kothúsavegi 10, Garöi. Sigríöur Ásgrímsdóttir, Aöallandi 15, Reykjavík. 50 ára Aöalheiöur Steingrímsdóttir, Oddeyrargötu 34, Akureyri. Arnlín Þuríöur Óladóttir, Bakka, Hólmavík. Álfheiöur Siguröardóttir, Ljósheimum 6, Reykjavík. Bjarni Snæbjörnsson, Fagrabergi 14, Hafnarfiröi. Guöný Þórunn Magnúsdóttir, Hellisgötu 15, Hafnarfirði. Jón Einarsson, Löngubrekku 39, Kópavogi. Jón Guðmundsson, Drangshlíð 1, Hvolsvelli. Jón Svavar Þóröarson, Ölkeldu 3, Snæfellsbæ. Kjartan Jóhann Magnússon, Skipholti 51, Reykjavík. Ólafur Snorrason, Grýtubakka 30, Reykjavík. Páll Konráö Konráösson, Hverfisgötu 32b, Reykjavík. Unnur Rós Jóhannesdóttir, Smyrlahrauni 6, Hafnarfirði. 40 ára Alda Ásgeirsdóttir, Blómvangi 14, Hafnarfirði. Arnór Hafstaö, Laugarásvegi 42, Reykjavík. Bára Traustadóttir, Hvammstangabraut 15, Hvammstanga. Dagbjört Gísladóttir, Ólafsvegi 28, Ólafsfiröi. Friörik Helgi Vigfússon, Starengi 4, Selfossi. Gunnhildur Einarsdóttir, Núpastðu 7, Akureyri. Ingunn Slgurbjörnsdóttir, Norðurgötu 31, Akureyri. ísleifur Karl Guðmundsson, Stapasíðu llh, Akureyri. Jenný Inga Eiðsdóttlr, Raftahliö 35, Sauöárkróki. Krlstinn Ólafur Kristinsson, Fálkagötu 11, Reykjavík. Kristín Þóra Sigurðardóttlr, Gauksási 49, Hafnarfiröi. Nanna Árnadóttir, Brekkugötu 23, Ólafsfiröi. Reynilo Loreto, Hraunbæ 40, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.