Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2003, Síða 38
38 DVSPORT FÖSTUDAGUR 18.JÚLÍ2003
Nýr samningur hjá Duncan
Kvennalandsliðið í 17. sæti
KÖRFUKNATTLEIKUR: Fram-
herjinn frábæri Tim Duncan
verður áfram í herbúðum nú-
verandi NBA-meistara, San
^Antonio Spurs, næstu sjö árin
en hann skrifaði undirsamn-
ing þess efnis í gær.
Duncan, sem hefði verið með
lausan samning eftir næsta
tímabil,fær 122 milljónirdoll-
ara fyrir þessi sjö ár eða tæp-
lega 1,4 milljarða íslenskra
króna í árslaun.
Duncan var valinn leikmaður
ársins í NBA-deildinni á síðasta
ári auk þess sem hann var val-
inn besti leikmaður úrslita-
keppninnar í vor þar sem San
Antonio Spurs lagði New Jers-
ey Nets í úrslitaeinvígi um
NBA-titilinn, 4-2.
KNATTSPYRNA: tslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu
er í 17. sæti á styrkleikalista Al-
þjóða knattspyrnusambands-
ins sem var birtur í gær.
(slenska liðið fer upp um eitt
sæti síðan listinn var birtur
síðast en tíu Evrópuþjóðir eru
fyrir ofan íslenska liðið.
Frakkar eru efstir af mótherjum
(slands í undankeppni EM, í
níunda sæti, Rússar eru í
ellefta sæti, Ungverjar, sem
ísland vann, 4-1, á
Laugardalsvellinum 14.júní,
eru í 26. sæti og Pólverjar eru í
31. sæti.
Island mætir Rússum næst í
undankeppni EM í Rússlandi 9.
ágúst næstkomandi og síðan
Frökkum ytra 8. september.
17. sæti: (slenska kvennalandslið-
ið í knattspyrnu er á góðu róli.
Valsstúlkur lögðu Stjörnuna, 1-4, í undanúrslitum Visa-bikarsins
0-1 Dóra María Lárusdóttir (31.)
0-2 (ris Andrésdóttir (40.)
0-3 Nína Ósk Kristinsdóttir (51.)
1 -3 Auður Skúladóttir, víti (53.)
1-4 Dóra María Lárusdóttir (90.)
Valur tryggði sér sæti í úrslitum
i VISA-bikars kvenna þegar liðið
sigraði Stjörnustúlkur, 1-4, á
Stjörnuvellinum í gærkvöld.
Sigur Valsstúlkna vár aldrei í
hættu og allt frá fyrstu mínútu
mátti sjá í hvert stefndi. Þær áttu
hvert markskotið á fætur öðru án
þess að Stjarnan gott sem kæmist
yfir miðju. Það var þó ekki fyrr en á
31. mín. sem Valsstúlkur fundu
marknetið. Sending Dóru Maríu
Lárusdóttur fór þá fram hjá Nínu
y Ósk Kristinsdóttur, sóknarmanni
„Það eina sem við
hugsuðum um var að
koma okkur á
Laugardalsvöllinn.
Vals, og einnig Maríu Björgu
Ágústsdóttur, markverði Stjöm-
unnar. Valsstúlkur bættu síðan við
öðru marki fyrir leikhlé og var það
einnig slysaiegt, skot írisar Andrés-
dóttur fór þá í Auði Skúladóttur,
varnarmann Stjörnunnar, og það-
an fram hjá Maríu. Umdeilt atvik
átti sér stað undir lok íyrri hálfleiks
þegar brotið var á Hörpu Þorsteins-
* dóttur þegar hún var að sleppa inn
fyrir aftasta varnarmann Vals.
Brottrekstur hefði verið viðeigandi
en leikmaðurinn fékk aðeins að líta
gula spjaldið.
Stjörnustúlkur komu mun
ákveðnari til síðari hálfleiks en það
voru gestirnir sem vom fyrri til að
skora þegar Nína Ósk kláraði vel
fyrirgjöf Rakelar Logadóttur.
Stjörnustúlkur fengu dæmda víta-
spyrnu aðeins tveimur mínútum
síðar þegar boltinn fór í hönd eins
varnarmanna Vals. Auður Skúla-
dóttir skoraði örugglega og gaf lið-
inu vonargiætu, en það var ekki
nóg því munurinn var orðinn of
mikill. Valsstúlkur bættu síðan við
marki á lokamínútu leiksins, Dóra
María innsiglaði góðan sigur Vals-
stúlkna á Stjömustúlkum, sem
hvort tveggja virtust skorta viljann
og trúna til að leggja Hlíðarendalið-
ið.
Hjá Stjörnunni átti María ágætan
leik í markinu og einnig barðist
Harpa Þorsteinsdóttir vel í framlín-
unni. Auður Skúladóttir lék einnig
ágætlega í vörninni. Hjá Val átti
Dóra María mjög góðan leik og
einnig áttu þær Dóra Stefánsdóttir
og Rakel Logadóttir ffn tilþrif, lfkt
og flestallir leikmenn liðsins, sem
sýndi oft og tíðum mjög góðan
samleik en datt aftur á móti aðeins
niður á plani f síðari hálfleik.
Fínn sigur
„Þetta var fínn sigur en ég var
samt ekki nógu sátt við leik okkar í
síðari hálfleik en það var greinilega
þreyta og spennufall hjá leik-
mönnum eftir mánudagsleikinn
gegn KR og þessi leikur bar þess
merki," sagði Helena Ólafsdóttir,
þjálfari Vals, að leik loknum. „Það
eina sem við hugsuðum um var að
koma okkur á Laugardalsvöllinn og
það er það sem við stefndum á, við
vomm þar í fyrra og vildum vera
þar aftur,“ sagði Helena að lokum
við DV-Sport.
Best á velllnum: Dóra María
Lárusdóttir, Val þaþ
Þrjú dýrmæt stig
Jón Gunnar Gunnarsson skoraði bæði mörk Hauka í 2-1 sigri á Njarðvík
0-1 Jón Gunnar Gunnarsson (28.)
1-1 Eyþór GuOnason (79.)
1-2 Jón Gunnar Gunnarsson (88.)
Haukar nældu sér í þrjú dýr-
mæt stig t baráttunni í 1. deild
karla í gærkvöld er þeir sigr-
uðu Njarðvíkinga, 1-2, í Njarð-
vík.
Gestirnir byrjuðu leikinn mun
, betur og höfðu góð tök allt frá
fyrstu mínútu og nokkmm sinn-
um björguðu Njarðvíkingamir á
síðustu stundu áður en Jón Gunn-
ar Gunnarsson stakk sér inn fyrir
vöm Njarðvíkinga og afgreiddi
knöttinn laglega. Njarðvíkingar
S vom svo stálheppnir að fá ekki á
sig fleiri mörk á næstu mínútum
4 en Goran Lukic átti gott skot í
stöng og strax í næstu sókn átti
Magnús Ólafsson skot í þverslá. Á
36. mínútu dró til tíðinda þegar
Davíð Logi Gunnarsson fékk að
líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot.
Stuttu áður hafði hann lent í sam-
stuði við leikmann Njarðvíkur og
eflaust hefur dómari leiksins met-
ið þetta sem klárt hefnibrot.
Eftir þessa uppákomu dró held-
ur úr Haukum en Njarðvíkingar
vom samt aldrei líklegir í hálf-
leiknum. Síðari hálfleikur fór
heldur rólega af stað og Haukarn-
ir virtust hafa allt í hendi sér lengi
vel framan af síðari hálfleik. Helgi
Bogason, þjálfari Njarðvíkinga,
jók sóknarþunga síns lið stundar-
fjórðungi fyrir leik sem bar árang-
ur skömmu sfðar þegar Eyþór
Guðnason skoraði glæsilegt mark.
Ef eitthvað var hefði maður haldið
að heimamenn myndu f fram-
haldinu ýta enn frekar á sóknar-
leikinn og reyna að innbyrða stig-
„Við vorum einfaldlega
ekki nógu hungraðir."
in þrjú en svo var aldeilis ekki.
Haukamir vom mun sterkari á
lokakaflanum og það var Jón
Gunnar, besti leikmaður þeirra,
sem komst upp vinstri kantinn
skömmu fyrir leikslok og náði að
innsigla sigurinn.
Markaskorari Hauka var glaður
er blaðamaður DV-Sport hitti
hann eftir leik. „Við sýndum mik-
inn karakter hér í kvöld. Missum
mann út af eftir um hálftíma leik
en komum bara virkilega sterkir
inn í síðari hálfleikinn. Njarðvik-
ingamir áttu í raun aðeins eitt al-
vöm færi, sem þeir skomðu úr, en
að öðm leyti ógnuðu þeir ekki,“
sagði Jón Gunnar.
Guðni Erlendsson, miðjumaður
Njarðvíkinga, var lítt hrifinn af
niðurstöðu leiksins. „Já, við vor-
um einfaldlega ekki nógu hungr-
aðir í kvöld. Það hefði f raun verið
sorglegt að gera jafntefli en það er
hryllingur að tapa þessum leik.
Við þurfúm að fá hjörtun til að slá
í takt því annars gengur þetta
ekki.“
Maður leiksins: Jón Gunnar
Gunnarsson, llaukum. eáj
KNATTSPYRNA — 1.DEILD KARLA
BKeflavík 9 7 1 1 25-10 22
Víkinqur 10 5 4 1 14-7 19
Þór, Ak. 9 4 3 2 20-15 15
Haukar 10 4 2 4 15-15 14
HK 9 3 2 4 11-12 11
Njarðvík 10 3 2 5 16-18 11
AftureldinglO 3 2 5 13-17 11
Stjarnan 9 2 4 3 11-13 10
Breiðablik 9 3 1 5 7-10 10
Leift./Dalv. 9 2 1 6 9-20 7
Markahæstir:
Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak. 11
Magnús Þorsteinsson, Keflavík 7
Þórarinn Krístjánsson, Keflavik 6
Eyþór Guðnason, Njarðvík 5
Stefán örn Arnarson, Vfkingi 5
Zeid Yasin, Leiftri/Dalvik 5
Daníel Hjaltason, Vikingi 4
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík 4
Henning E. Jónasson, Aftureldingu 4
Valdimar Kristófersson, Stjömunni 4
Zoran Panic, HK 4
Þorvaldur Guðmundsson, Afture. 3
Högni R. Þórðarson, Njarðvík 3
Jón Gunnar Gunnarsson, Haukum 3
Kristján Ómar Björnsson, Haukum 3
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Stjörn. 3
Olgeir Sigurgeirsson, Breiðabliki 3
Óskar Örn Hauksson, Njarðvík 3
Sverrir Þór Sverrisson, Njarðvik 3
Næstu leikir:
Þór-Breiðablik fös. 18. júli kl. 20
Stjarnan-Keflavik fös. 18. júli kl. 20
HK-Leiftur/Dalvfk lau. 19. júll kl. 16