Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagiö DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRrTSTJÓRl: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýslngan auglysingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Forvitnir geta nú leitað til einkaspæjara - frétt bls. 4 Dómur í brottkastsmáli - frétt bls. 6 Þristurinn til þjónustu reiðbúinn í 60 ár - frétt bls. 8 Bandarískum hermönn- um skipað að slappa af - erlend frétt bls. 12 Enska biskupakirkjan út úr skápnum - erlend frétt bls. 14 Pæjumótið byrjar vel - DV Sport bls. 40 Bíó og sjónvarp -Tilvera bls. 60-63 DV Bingó Nú spilum við allt spjaldið og ætti ekki að líða á löngu áður en einhver fær bingó. Verðlaun fyrir bingó á allt spjaldið eru afar glæsileg, vikuferð til Portúgals með Terra Nova Sól. Athugið að samhliða einstökum röðum hefur allt spjaldið verið spilað (sumar þannig að tölurnar sem dregnar hafa verið út ( bingóleik DV til þessa gilda á allt spjaldið. 23. talan sem kemur upp er 66. Þeir sem fá bingó láti vita í síma 550 5000 innan þriggja daga. Ef fleiri en einn fá bingó er dregið úr nöfnum þeirra. Enn meðvitundarlaus Ovissa hjá Jafnréttisstofu SLYS: Líðan mannsins sem slasaðist alvarlega er hann hrapaði um tíu metra við Sandá í Þistilfirði á fimmtu- dagsmorgun er óbreytt. Mað- urinn var fluttur með þyrlu inn til Þórshafnar, þar sem sjúkra- flugvél beið eftir honum. Flog- ið var með hann á bráðadeild sjúkrahússins í Fossvoginum, þar sem hann gekkst undir að- gerð í fyrradag. Hann var síðan flutturlfgjörgæsludeildina þar sem honum var haldið í önd- unarvél, en að sögn læknis á vakt á gjörgæsludeild er hann þó kominn úr henni. Maður- inn, sem er um fertugt, hlaut töluverða höfuðáverka við fall- ið og hafði ekki komist til fullr- ar meðvitundar þegar DV fór í prentun í gærkvöld. JAFNRÉTTISMÁL: Ekki er víst hver muni stýra Jafnréttis- stofu eftir að Valgerður Bjarnadóttir sagði starfi sínu lausu (kjölfar dóms Héraðs- dóms Norðurlands í svoköll- uðu leikhússtjóramáli. Félags- málaráðherra hafði áðurtil- kynnt starfsmönnum Jafnrétt- isstofu að þeim yrði kynnt framtíðarskipan stofnunarinn- ar síðasta þriðjudag en af því varð ekki. Búist er við því að starfsmönnum verði tilkynnt hver muni stýra stofnuninni til bráðabirgða í næstu viku en ekki er víst hvenær staðan verður formlega auglýst til umsóknar. Valgerður mun verða við störf fram til 1. sept- ember en ekki hefur enn verið samið um starfslok hennar. Farnir heim SJÚKRAFLUG: Sérstök sjúkra- flugvél kom hingað til lands í gær til þess að ferja fimm Tékka til síns heima en þeir lentu í rútuslysi á Geldinga- draga um síðustu helgi. Vélin lenti á Reykjavíkurflugvelli í gærdag og hélt strax til Tékk- lands eftir að hinir slösuðu höfðu verið bornir um borð. Mest 71 til 85 þúsund á mánuði Á MIKLATÚNI: (þessu fleti í rjóöri á Miklatúni lágu tveir sofandi menn þegar Ijósmyndari DV átt leið þar um í gærmorgun. Fyrir þessum ógæfumönnum liggur fátt annað en að búa við enn ömurlegri vist þegar hausta tekur og kólna fer í veðri. DV-mynd GVA Tekjulaust útigangsfólk getur vænst þess að fá í opinbera að- stoð allt að 71 til 85 þúsund krónur á mánuði. Þetta fólk kemst þó trúlega seint á lista yfir tekjuhæstu íslendingana. Flest þetta fólk er óvinnufært sökum langvarandi drykkju, vímu- efnaneyslu eða örorku og í því ligg- ur stærsti vandi þess. Því helst illa á peningum, aðallega vegna óreglu, og flæmist þá úr húsaskjóli sem það hefur hugsanlega haft. Staða þess er því oft æði bágborin og get- ur verið undirrót hnupls og þjófn- aða. Flestir úr þessum hópi þrá að fá aðstoð og húsaskjól sem virðist þó af skornum skammti. Hjá Tryggingastofnun fengust þær upplýsingar að nær ómögulegt væri að segja til um hve stórt hlut- fall af útigangsfólki sé í hópi skjól- Svokallaðir „útigangs- menn", sem falla undir skilyrði Tryggingastofn- unar, gætu átt mögu- leika á að fá útborgað á mánuði um 85.000 krón- ur þegar búið er að draga frá skatta. stæðinga stofnunarinnar. Þeir sem rétt eigi á bótum frá stofnuninni eru öryrkjar. Örorkumatið byggist aifarið á læknisfræðilegum for- sendum samkvæmt breytingum á almannatryggingalögum. sem tóku gildi 1. september 1999. Undir þetta falla alls ekki allir útigangs- menn. Svokallaðir „útigangsmenn" sem falla undir skilyrði stofnunarinnar gætu átt möguleika á að fá útborg- að á mánuði um 85.000 krónur þegar búið er að draga frá skatta. Það eru rúmar 2.800 krónur á dag. Þar er um að ræða að fólk fái ör- orkulífeyri og tekjutryggingu ef laun eru lítil sem engin. Þá hafi ör- yrkjar m.a. möguleika á að fá heim- ilisuppbót, ef það býr ekki hjá vandamönnum, og uppbót á líf- eyri. Hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur- borgar fengust þær upplýsingar að tekjulaust fólk, sem ekki hefur í önnur hús að venda, gæti vænst þess að fá í aðstoð mest 71 þúsund krónur á mánuði. Það nemur tæp- um 2.400 krónum á dag að meðal- tali. Alls nutu 3.600 heimili aðstoð- ar Félagsþjónustunnar á síðasta ári og var það 22% aukning frá árinu 2001. Vaxandivandi Fjöldi fólks á hvergi höfði sínu að að halla og verður því að búa sér náttstað á víðavangi eða í því skjóli sem hægt er að finna hverju sinni. Útigangsfólki hefur síðan farið fjölgandi þar sem gistirýmum hefur fækkað mjög að undanförnu. Að mati Guðmundar Jónssonar f Byrg- inu er ekki ólíklegt að sú tala geti verið allt að 130 manns. Ástæðuna rekur hann m.a. til þess að vist- heimilinu í Gunnarsholti var lokað og þar fóru þrjátíu rými. Þá flutti Byrgið úr Rockville austur í Gríms- nes og fækkaði gistirýmum um nærri fjörutíu, eða úr 84. Einnig var afeitrunardeild þar lokað en hún var fyrir allra veikasta fólkið. Úr- ræðunum fyrir þetta ógæfúsama fólk fækkar því stöðugt. hkr@dv.is HVERJiR ERU 0DYRASTIR? ÚT5ALAN VERÐUR' TIL 18 Agúst FATALAND ICELANDAIR www.icelandair.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.