Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2003, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST2003 DVHELGARBLAÐ 19
þegar Þursaflokkurinn var að klára einhverja
tónleika í Vík í Mýrdal, minnir mig. Það var
búið að klappa okkur tvisvar sinnum upp og
fólkið heimtaði alltaf meira. Þá var ákveðið
baksviðs að byrja bara á einhverju. Þessi texti
er eftir Jónas Árnason og er yfirleitt sunginn
undir öðru lagi, svona sjómannapolka. En við
ákváðum að gleyma polkanum og gera bara
eitthvert pönk. Það var alger tilviljun að ég
söng þetta, ég held ég hafi bara boðist til
þess. Menn verða að bera sig eftir björginni."
Allar götur síðan syngur Tómas þetta lag á
tónleikum og enginn annar, ef röddin og
heilsan leyfir, eins og hann segir sjálfúr.
Pönkið var í algleymingi á þeim tíma þegar
lagið varð til og þeir sem séð hafa Rokk í
Reykjavík muna eftir þjóðlegum Þursa-
flokknum innan um pönk og gaddavírsrokk,
þar sem hann stakk óneitanlega dálítið í stúf.
Tómas segir ástæðuna einfalda:
„Við slysuðumst nú reyndar bara inn í þá
mynd. Við sáum um hljóðupptökurnar-vor-
um nýbúnir að stofna lítið hljóðver í bak-
garðinum hjá Agli. Ég held að Friðrik Þór hafi
bara kennt í brjósti um okkur og þess vegna
leyft okkur að vera með. Unga reiða fólkið og
við, svona gamlir og gramir.“
í mínu tilviki varþetta engin
sérstök athöfn, ég fór bara að
svara játandi effólk spurði
mig hvort ég væri hommi.
Talsverðum sögum fer af hæfileikum
Tómasar í eldhúsinu og ganga sumir svo
langt að kalla hann meistarakokk. Tómas
dregur, spurður, úr öllu saman en viðurkenn-
ir þó að hann lumi á nokkrum uppskriftum
og kveðst kunna lagið á helstu eldhúsáhöld-
um.
„Ég lærði eiginlega að elda af illri nauðsyn.
Við Þórður og Jakob fórum til London ein-
hvern tímann í gamla daga að reyna fyrir
okkur, sjá hvort við kæmumst einhvers stað-
ar að í hljómsveitum, og þá var maður fjarri
kjötkötlunum hennar mömmu. Við þurftum
að fara að elda sjálfir og það var skelfileg lífs-
reynsla - viðbrunnið halck með tómatsósu og
eitthvað þannig. En maður þrælaði þessu í
sig og prófaði aftur næsta dag. Svo komu
framfarirnar á þriðja og fjórða degi og smám
UPPTÖKUSTJORINN TÓMAS
Tómas byrjaði að fikta í tökkum við upptöku-
stjórn 1984 á plötu Þursaflokksins, Gæti eins
verið, fékk þá bakteríuna og hefur síðan verið
með vinsælustu og virtustu upptökustjórum í
íslenskri tónlist, verið við stjórnvölinn á
nokkrum af þekktari plötum síðustu ára og
t.d. unnið með EGÓ, Sykurmolunum, Megasi,
Bubba, Björká plötunni Gling-Gló og Hilmari
Erni Hilmarssyni, svo fátt eitt sé nefnt.
Meðal þess sem Tómas gerði með Bubba eru
tvær af vinsælustu plötum hans, Kona og
Dögun, sem almennt eru líka taldar með betri
verkum Bubba.
Vinnuna við Konu segirTómas hafa verið
nokkuð eftirminnilega því honum var falið að
búa til nýja plötu úr fullkláraðri plötu.
„Félagi minn og samverkamaður, Ásgeir Jóns-
son, vann með mér á Konu. Eftirvinnslan var
dálítið mikil á henni, eiginlega mjög mikil, því
það var búið að klára plötuna þegar við feng-
um hana í hendur. Menn höfðu hins vegar
fengið einhverja bakþanka með þetta allt
saman, létu okkur fá plötuna og báðu okkur
að gera eitthvað. Bubbi var reyndar sjálfur
ekki á svæðinu meðan við krukkuðum í plöt-
una en á endanum stóð eiginlega ekkert eftir
nema söngurinn hjá Bubba - hitt var gert upp
á nýtt. Við getum sagt að hún hafi verið dálítið
ólík þeirri útgáfu sem við fengum í hendur. En
ég held að Bubba og útgefandanum hafi liðið
betur."
„Ég gerði líka Dögun með Bubba og sú plata
seldist ansi vel, minnir mig. Við tókum hana
upp í London. Ég man alltaf eftir einu sem
gerðist undir lokin. Það var verið að vinna eitt-
hvað í teipunum, hreinsa einhverjar rásir og
svona, og upptökuvélin festist á upptöku. Ég
hafði brugðið mér eitthvað frá, Bubbi líka, og
þegar ég kom til baka voru menn í mikilli
panik því það hafði þurrkast út heill söngur
með Bubba. Það var eitthvert stress í mann-
skapnum með hvernig hann myndi taka
þessu. Ég tók að mér að segja honum frá
þessu þegar hann kom aftur og hann brást
við þessu öllu saman með stakri ró, bað okkur
að rétta sér hljóðnemann og söng þetta bara
aftur, einn, tveir og þrír. Ég dáðist að honum
þá fyrir geðprýðina."
saman áttaði maður sig á því að þetta var ekk-
ert mál. Að elda máltíð er eiginlega svipað því
að útsetja lag; maður raðar hinu og þessu
saman, prófar mismunandi hluti og sér svo
hvortþað passar."
Allt er gay í harðindum
Gay Pride-dagurinn er haldinn hátíðlegur í
dag og mikið um dýrðir í borginni. Meðal upp-
ákoma í miðbænum eftír skrúðgönguna miklu
eru tónleikar stórsveitarinnar Sirkus Homma
Homm. Glöggir og getspakir lesendur sjá ef-
laust að þarna er lifandi komið einhvers konar
annað sjálfTómasar, eða TommaTomm, eins
og hann er gjarnan kallaður.
Ég var að spila á gítar og syngja
með einhverju fólki þegar hús-
ráðandi kom til mín, alvarlegur í
bragði, og tilkynnti mér að ístof-
unni sæti maður, nágranni og
góður vinur, sem vildi ekki hafa
mig þarna inni.
„Ég er að reyna mig sem hljómsveitarstjóri í
fyrsta sinn og það er djöfuls púl,“ útskýrir
Tómas. „Ég hóaði saman nokkrum vinum og
kunningjum og við ætlum að spila fjögur eða
fimm lög. Sumir eru streit, aðrir ekki. Eða eins
og amma mín sagði: Allt er gay í harðindum.
Kynhneigð er aukaatriði, enda tilgangur dags-
ins að fagna fjölbreytninni. Þessi skxúðganga
er líka orðin almennur viðburður og aðsóknin
fer að jafnast á við 17. júní sem fáir vita núorð-
ið fyrir hvað stendur, held ég. Eða, eins og ein
kona sagði í fyrra, þegar hún sá allar fjölskyld-
urnar og börnin með regnbogafána í skrúð-
göngunni: Voðalega koma þau orðið snemma
út úr skápnum!"
Sjálfur kom Tómas út úr skápnum fyrir
löngu, þó svo að það hafi kannski lítið verið á
almanna vitorði að hann sé hommi.
„Ég var nú ekki mjög ungur þegar ég kom út
úr skápnum, nálægt þrítugu, held ég, eða ein-
hvem tímann upp úr 1980. Maður var auðvit-
að búinn að vita þetta lengi sjálfur en það var
bara allt annað umhverfi 4 þessum ámm.
Menn flýðu land unnvörpum og það urðu til
nýlendur íslenskra homma í Kaupmannahöfn
og víðar. Nú setur næstum enginn þetta fyrir
sig nema Gunnar í Krossinum og hans nótar.
Og kannski páfinn. Þetta var nú voða lítið mál
fyrir mig og ég hef aldrei orðið fyrir neinu að-
kasti eða óþægindum vegna þessa. Jú,
kannski bara einu sinni, þegar mér var vísað
út úr partíi í Vestmannaeyjum, reyndar meira
að segja eftir að hafa verið þar mjög lengi,"
rifjar Tómas upp, brosandi út í annað.
Út úr húsum og skápum
„Ég var að spila á gítar og syngja með ein-
hverju fólki þegar húsráðandi kom til mín, al-
varlegur í bragði, og tillcynnti mér að í stof-
unni sæti maður, nágranni og góður vinur,
sem vildi elcki hafa mig þarna inni. „Við verð-
um þess vegna að biðja þig að fara en takk
kærlega fyrir spiliríið og skemmtunina,"
sagði hann svo bara blátt áfram. Þetta var
óskaplega fyndið, ég trúði ekki mínum eigin
eyrum. Eini maðurinn sem gerði eitthvert
mál úr þessu þarna á svæðinu og fannst eitt-
hvað athugavert við þetta var Guðlaugur
sundkappi. Hann hélt þrumuræðu yfir lið-
inu, sagði því að skammast sín og bauð mér
svo heim til sín og konu sinnar þar sem við
sátum þrjú að sumbli þar til Herjólfur fór um
morguninn. Þetta er, held ég, í eina slciptið
sem ég hef áþreifanlega orðið var við það að
lcynhneigð manns skipti einhverju máli."
- Þetta orðalag, „að koma út úr skápnum",
er mjög myndrænt og hljómar eins og nokk-
ur athöfn, enda oftast stórt skref fyrir fólk.
Hvernig var þessu háttað hjá þér?
„Fólk gerir þetta nú á afar misjafnan hátt,
sumir með milcilli athöfn og skipulagningu,
tillcynna fjölslcyldunni það formlega við
kvöldverðarborðið eða eitthvað þess háttar.
Aðrir gera þetta frekar ósjálfrátt og með
minna umstangi, hægt og rólega. Það er eng-
in ein leið í þessu. I mínu tilviki var þetta eng-
in sérstök athöfn, ég fór bara að svara játandi
ef fólk spurði mig hvort ég væri hommi. Ég
var ekkert að tilkynna þetta í sjálfu sér að
fyrra bragði enda komst fólk misjafnlega
snemma eða seint að þessu. Svo er ég í af-
skaplega líberal hljómsveit þar sem kyn-
hneigð mín er nú sárasjaldan til umræðu,
elckert ffekar en annarra. Ég ofsæki þau held-
ur ekkert fyrir að vera gagnkynhneigð, enda
blessunarlega laus við heterófóbíu," segir
Tómas hátíðlega og alvarlega en glettnin er
augljós í augum og munnvikum. fín@dv.is
UTSALAN
Sófasetí • Borðstofuhúsgögn
Stólar • Lampar • Skápar
Borð • Spcglar • 0.11.
í fulliun gangi
opið laugardag
kl. 11-16
10% - 50%
afsláttur!
'mmm
HÚSGAGNAVERSLUN
SÍÐUMÚLA 20 | SÍMI 568 8799