Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Blaðsíða 3
DV Fréttir
*
MIÐVIKUDAGUR 77. DESEMBER2003 3
Dekraðu við þig
Spurning dagsins
Er heilbrigðiskerfið á íslandi of dýrt?
Jólasveinarnir eru að koma. Þeir
koma ofan úr fjöllum þar sem
mamma þeirra stendur snarbrjáluð
og hrærir í stórum grautarpotti full-
um af óþekkum börnum. Það er
sárasjaldan minnst á föður þeirra
enda er hann víst alger hengilmæna
og hefur fátt gert til þess að hljóta
þann virðingarsess sem frægir menn
hafa. Það er aldrei viðtal við hann í
sjónvarpinu og hann skartar aldrei á
forsíðu Séð og Heyrt. En það eru
margir aðrir leppalúðar sem þar
brosa breitt og hjálpa til við að selja
þetta merka tímarit sem kennt hefur
þjóðinni að það skiptir ekki máli
hvað menn gera, geta, kunna eða
segja; frægðin ein og sér er aðalat-
riðið. Það er oft í þróunarsögu fjöl-
miðlanna talað um Stokkhólms-
syndrómið. Það er bankaránið með
gfslatökunni á Norrmalmstorgi
haustið 1973 þar sem stúlkurnar
sem teknar voru til fanga urðu ást-
fangnar af gíslatökumönnunum.
Samband sem snerist upp í and-
hverfu sína. Svipað er þessu háttað í
slúðurfréttapressunni. Það er, sá
sem framið hefur glæp eða gert sig
að fffli á einhvern hátt verður
frægastur og bestur og það er jú
frægðin per se sem skiptir aðalmáli.
Hugsjónir hvað?
Við lifum á erfiðum tímum, það
er kannski ekki svo mikið atvinnu-
þref en það er vandi að velja veginn
þegar hugsjónir eru nánast af-
greiddar sem hugsýki.
Enda, ég meina það sko, hver
græðir á því að vera með einhverjar
hugsjónir?
Það er svo skrítið með þessa jóla-
hátíð, sem oftast hefur verið nýtt til
þess að minna á okkar minnstu
bræður og hvetja fólk til þess að vera
gjafmilt við annað fólk, að núna er
þessu þannig farið að menn eru
hvattir til þess að vera góðir við
sjálfa sig.
Dekraðu við þig. Láttu dekra við
þig. Jólahlaðborð, aðeins 4300 krón-
ur á manninn, láttu það eftir þér.
Elísabet Brekkan
skrifar um jólasveina.
Sem sagt, gerðu sjálfan þig að þínu
eigin dekurbarni. Ætleiddu sjálfan
þig, þannig að þú erfir örugglega
þína eigin peninga að lokum.
Það er kannski þess vegna sem
hann heldur sig svona til hlés hann
Leppalúði; hann kann hreinlega
ekki að dekra við sjálfan sig.
En íslenskir stjórnmálamenn eru
miklar dekurrófur. Þeir kunna að
dekra við sjálfa sig. Það er einmitt
þess vegna sem allir minni máttar
treysta þeim svo vel.
Hrekkir og prettir
í þessu fi'na dekri
okkar væri nú líklega
best að sleppa því
algerlega að tala
um einhvern boð-
skap, eins og til
dæmis fæðingu
frelsar'ans og þýð-
ingu þeirra at-
burða sem tengd-
ust honum.
Hrekkir og prett-
ir jólasvein
anna eiga
rniklu
betur við.
Það er ekki einn
þeirra sem dekrar ekki við sjálfan
sig. Að vísu er kannski ekki hægt að
flokka það undir dekur að skella
hurðum, en Hurðaskellir fær útrás
á kostnað annarra þannig að hann
stenst alveg prófið. Ég er viss um að
ef þeir kæmust í almennan dekur-
banka þá væru þeir vitlausir í að fá
góða starfslokasamninga. Hugsið
ykkur gleðina. 700 milljónir skyr-
tunna sem yltu niður fjallshlíð og
beint upp í Skyrgám. Sá myndi nú
ekki vera í neinum vandræðum með
að dekra við sig. Stekkjastaur er
náttúrlega á jaðrinum með að vera
öryrki með sína staurfætur, sá
myndi nú dekra við sig á öryrkjabót-
unum, maður minn!
Kjötkrókur gæti nú aldeilis
dekrað við sig á niðurgreiðslunni og
Kertasníkir ætti ábyggUega ekki í
vandræðum með að láta dekra við
sig. Hann myndi bara vaxbera á sér
lappirnar sér til dekurs og ánægju.
Ég er ansi lirædd um að
þetta séu ekki gamlir eða úreltir jóla-
sveinar sem nú eru að birtast ung-
viðinu heldur bara nútfmamenn
með sjálfa sig í
fararbroddi.
Góðar fyrir-
myndir sem
sóma sér vel
á markaðs-
torgi sjálfs-
dekursins.
Mætti standa betur
aðrekstri
„Auðvitað erþetta ansi dýrt, en bet-
ur mætti standa að rekstrinum. Það
vilja allirað vel sé staðið að þessum
rekstri, slíkt er krafa bæði starfsfólks
og sjúklinga."
Stefán Steinar Tryggvason,
fv. lögregluvarðstjóri
„Nei, ekki að
mínu mati.En .
þeim fjármun-
um sem eru til
ráðstöfunar er
ekkiskipt
þannig að sem
flestir fái bestu
mögulegu
þjónustu þar
sem þeir þurfa á henni að halda."
Elsa B. Friðfinnsdóttir,
form. Félags ísl. hjúkrunarfræðinga
„Það þarfað
hagræða og
ná betri ár-
angri fyrirþá
fjármuni sem
við höfum til
skiptanna. Svo
sem með þvi
að ríkið kaupi í
ríkari mæli
þjónustu einkaaðila úti I bæ.“
Kjartan Ólafsson,
þingmaður Sjálfstæðisfiokks
„Ég tel það
ekkiofdýrt
miðað við þá
þjónustu sem
við fáum. Við
þurfum að
laga fjárveit-
ingar að þjón-
ustustigi, en
jafnframt vinna að hagræðingu og
betri nýtingu fjármuna."
Sigurður Bessason,
formaður Eflingar, stéttarfélags
„Þetta kerfi er
alls ekki of
dýrt, það þjón-
arvel sínum
og hefur af-
bragðsgóða
lækna í sinni
þjónustu.
Vandamálið er að ofnaumt er skammt-
að I fjárveitingum til þessarar starf-
semi."
Grétar Ársælsson
bifvélavirki
Gylfi er haltur
Tómas Guðmundsson skrífai: Af
hverju eru forystumenn launþega
svona feimnir að segja okkur hver
laun sín séu og hvaða lífeyrisréttindi
Lesendur
þeir hafi tryggt sér. Hvers vegna
kjósa þeir að segja ekkert - og þar
með ljúga með þögninni. Gylfi Arn-
björnsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
var í Kastljósi spurður þessarar
spurningar en vildi engu svara. Þar
með gerði hann sjálfan sig tortryggi-
legan - því laun verkalýðsfor-
kólfanna eiga að liggja fyrir. Svart á
hvítu.
Nú eru kjara-
viðræður að hefj-
ast, þar sem Gylfi
verður væntan-
lega í fylkingar-
brjósti. Og í bar-
áttuna heldur
hann sem vafa-
Gylfi Tortryggilegur samur maður og
haltur á báðum
fótum, fyrir að hafa ekki svarað
þeirri þýðingarmiklu einu spurn-
ingu sem hér að framan greinir.
Engin búhyggindi
Anna Jónsdóttir hríngdi: Stór-
tækar sparnaðartillögur Landspítala
- háskólasjúkrahúss eru vont mál
fyrir alla aðila. Fjárveitingarvaldið
sjálft er komið í bobba. Niðurskurð-
ur á sjúkrahúsinu þýðir að þjóðin,
sem er góðu vön hvað heilbrigðis-
þjónustu varðar, mun leita eftir
læknisaðstoð annars staðar, svo sem
á einkastofum úti í bæ. Reikningum
þeirra verður umsvifalaust vísað til
Tryggingastofnunar, rétt eins og
lækna er siður. Það er því næsta víst
að niðurskurður á einum stað þýðir
útgjaldaaukningu á hinum næsta.
Sparnaðurinn virðist því vera í
flestu tilliti algjörlega vanhugsaður -
og ekki bera vott um nein sérstök
búhyggindi þeirra sem með opin-
bera fjármuni fara.
Landspítalinn Þjóðin ergóðu vön.
Kjánagreyin tvö
Krístján Ólafsson skrífar. Síðustu
misserin hafa tveir ungir menn á
sjónvarpsstöðinni Popp-Tíví náð
miklum vinsældum - og um margt
orðið fyrirmyndir og átrúnaðargoð
ungra Islendinga. Þeir Sveppi og
Auddi hafa náð miklum vinsældum;
sakir fíflagangs og angurgapaháttar.
Illu heilli eru fjölmiðlar á íslandi
fyrst og síðast reknir áfram af taum-
lausri gróðafíkn. Minna fer fyrir
menningarlegri viðleitni - og þeirri
meðvituðu skyldu sem stjórnendur
fjölmiðla eiga hafa; að sinna uppeld-
islegu hlutverki gagnvart þjóð sinni.
Popp-Tíví er rekið af öðrum hvötum
og annarlegri. Þar er aulahúmor lát-
inn vera í aðalhlutverki. Þar sem
fremstir fara tveir áðurnefndir piltar
sem ég kýs að kalla kjánagrey tvö.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Mikill niðurskurður stendur nú fyrir dyrum á Landspítala -
háskólasjúkrahusi.
'-iLi 7 ' ' ' ••
Úl
efftir Dag Kðra
ER KOMIN ÚT Á DVD 0G SÖLUMYNDBANDI.